Fréttablaðið - 27.03.2019, Page 46
Skotsilfur
Helgi Vífill
Júlíusson
SKOÐUN
Apple kynnir eigið greiðslukort
Tim Cook, forstjóri Apple, kynnti á blaðamannafundi á mánudag nýtt greiðslukort sem tæknirisinn hyggst gefa út í samstarfi við fjárfestingar-
bankann Goldman Sachs. Forstjórinn sagði að Apple-kortið, sem mun ekki bera árgjald, yrði ein mesta nýjung sem sést hefði á sviði greiðslumiðl-
unar undanfarin fimmtíu ár. Forsvarsmenn tæknirisans segja vextina á kortinu verða með þeim lægstu sem munu bjóðast. NORDICPHOTOS/GETTY
Við mat samkeppnisyfir-valda á samkeppnisleg-um áhrifum samruna skiptir það samkeppn-islega aðhald sem hið
sameinaða fyrirtæki mun búa við
í kjölfarið miklu máli. Því meira
aðhald sem er til staðar, innlent sem
erlent, því minni líkur eru á því að
samruninn raski samkeppni.
Í nýlegum málum sem hafa verið
til rannsóknar hjá Samkeppniseftir-
litinu hefur samkeppnislegt aðhald
erlendra netverslana verið tekið til
skoðunar.
Kaup Haga á Lyfju
Við rannsókn á fyrirhuguðum
kaupum Haga á Lyfju var metið
að hversu miklu leyti erlendar net-
verslanir myndu veita hinu sam-
einaða fyrirtæki samkeppnislegt
aðhald. Þar sem hið sameinaða
fyrirtæki hefði öðlast sterka stöðu
í smásölu snyrtivara á Íslandi
skipti þetta atriði töluverðu máli.
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins
leiddi meðal annars í ljós að fáir
smásalar snyrtivara á Íslandi litu
á erlendar netverslanir sem sína
helstu keppinauta. Af þeim 24
svörum sem bárust nefndi enginn
snyrtivörusali hreina netverslun
(e. pure online players) sem sinn
helsta keppinaut né þann sem
kæmi þar á eftir. Endurspeglaðist
sú niðurstaða í neytendakönnun
sem framkvæmd var fyrir Sam-
keppniseftirlitið í þessu máli
en þar svöruðu um 8% því til að
hafa keypt snyrtivörur í erlendri
netverslun á síðastliðnum 12
mánuðum. Rannsóknin leiddi
í ljós að samkeppnislegt aðhald
erlendra netverslana í sölu snyrti-
vara á þeim tíma sem samruninn
var rannsakaður virtist vera tak-
markað. Samruninn var ógiltur
en samrunaaðilar áfrýjuðu ekki
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.
Kaup N1 á Festi og Haga á Olís
Við rannsókn á samrunum N1 og
Festar og Haga og Olís var ekki þörf
á því að rannsaka ítarlega það sam-
keppnislega aðhald sem erlendar
netverslanir myndu veita sam-
runaaðilum í kjölfar samrunanna.
Ástæða þess er einföld: Það erlenda
samkeppnislega aðhald sem dag-
vöru- og eldsneytissalar búa við
frá erlendum netverslunum er afar
takmarkað. Á það við hér á landi
sem og erlendis en alla jafna er
samkeppni á þessum mörkuðum
mjög staðbundin þar sem erfitt er
fyrir smásala að flytja þessar vörur
þvert á landamæri og svæði, nálægð
við neytendur er yfirleitt mikilvæg
og oft er þörf á vörunum með mjög
skömmum fyrirvara.
Tekið er tillit til erlends
samkeppnislegs aðhalds
Eins og fram hefur komið metur
Samkeppniseftirlitið áhrif erlends
samkeppnislegs aðhalds við rann-
sókn samruna. Ofmeti eftirlitið
erlent samkeppnislegt aðhald getur
það leitt til þess að of margir sam-
keppnishamlandi samrunar nái
fram að ganga. Sé aðhaldið van-
metið getur það leitt til þess að
hlutast sé til um samruna sem ekki
skaða samkeppni. Því er mikilvægt
að Samkeppniseftirlitið ofmeti
hvorki né vanmeti það erlenda sam-
keppnislega aðhald sem er til staðar
í hverju máli hverju sinni. Það
þjónar best hagsmunum íslenskra
neytenda og fyrirtækja.
Fyrirvari: Skoðanir eru höf-
undar og þurfa ekki nauðsynlega
að endurspegla afstöðu eða stefnu
Samkeppniseftirlitsins.
Erlendar netverslanir
og samkeppniseftirlit
Valur
Þráinsson
aðalhag-
fræðingur
Samkeppnis-
eftirlitsins
Uppsláttur á forsíðu Stundar-innar um arðgreiðslur hót-ela bar þess merki að blaðið
skeytti lítt um gangverk efnahags-
lífsins.
Margir átta sig ekki á hve auðvelt
það er að tapa miklu fé á skömmum
tíma í rekstri. Margt getur farið
úrskeiðis. Jafnvel þótt allt hafi
gengið að óskum skömmu áður.
Skúli Mogensen þekkir það
manna best. Hann hefur tvisvar svif-
ið seglum þöndum og tvisvar horft
á hlutafé sitt brenna upp. Gæfan er
hverful. Saga hans er ýkt en varpar
ljósi á hvernig það er að stunda við-
skipti. Það skiptast á skin og skúrir.
Það eru ekki einungis djarfir ævin-
týramenn sem eru illa leiknir eftir
fyrirtækjarekstur. Leikfangarisinn
Toys’R’Us stóðst ekki tímans tönn
og um 40 prósent álvera í heiminum
hafa verið rekin með tapi vegna
óhagstæðrar þróunar á mörkuðum.
Eins og launafólk á fjármagn rétt á
umbun sem fer eftir áhættunni sem
er tekin hverju sinni. Umbunin getur
verið í formi arðgreiðslna. Þær eru
mikilvægur liður í gangverki efna-
hagslífsins. Án þeirra geta fjárfestar
og frumkvöðlar allt eins setið heima
með hendur í skauti og atvinnu-
lífið koðnar niður. Það þarf að taka
áhættu til að skapa störf, tryggja
landsmönnum vörur og þjónustu og
skapa gjaldeyristekjur. Og umsvifin
leggja til samneyslunnar.
Ferðaþjónusta hefur í áratugi
gengið illa hér á landi. Almennt voru
hótelin rekin með tapi á árunum
2003 til 2008, samkvæmt gögnum
Hagstofunnar. Uppsveiflan á und-
anförnum árum hefur verið með
ólíkindum og því eðlilegt greiddur
sé myndarlegur arður. Launþegar
hafa sömuleiðis notið góðs af
búhnykknum. Hlutur launafólks af
verðmætasköpuninni er nú sá hæsti
meðal OECD-ríkja.
Stundinni varð á í messunni.
Tölur án samhengis segja ekkert
heldur spila á tilfinningar lesenda.
Fjölmiðillinn setti ekki arðgreiðslur
hótelanna í samhengi við það fjár-
magn sem bundið var í rekstrinum,
því síður miðað við þá áhættu sem
tekin var.
Ef tekið er dæmi af handahófi,
högnuðust Íslandshótel um 876
milljónir króna árið 2016. Það eru
háar fjárhæðir en arðsemi eigin fjár
var einungis átta prósent.
Nú er staðan önnur. Viðskiptaráð
hefur varað við að það stefni í að hót-
elin sem verkfallsaðgerðir beinast
gegn verði rekin með tæplega þriggja
milljarða króna tapi í ár. Staðan er
tvísýn. Eflaust munu margir fjár-
festar í ferðaþjónustu tapa háum
fjárhæðum á næstu misserum. Von-
andi munu einhverjir þeirra búa að
gömlum arðgreiðslum. Gleðin hefur
tekið enda.
Gleðin sem arðgreiðslur færa hefur tekið enda
Stendur í
ströngu
Í kjölfar þess
að viðræðum
Icelandair Group
og WOW air var
slitið um liðna
helgi leituðu eig-
endur skuldabréfa
í síðarnefnda félaginu til Guð-
mundar Ingva Sigurðssonar, með-
eiganda á LEX lögmannsstofu, en
hann hefur verið þeim til ráðgjafar
í viðræðum við forsvarsmenn
flugfélagsins undanfarna daga.
Guðmundur Ingvi, sem sérhæfir sig
meðal annars í endurskipulagningu
fyrirtækja, hefur þannig haft í nógu
að snúast að ráðgast við fulltrúa
allra skuldabréfaeigendanna en
þeir skipta tugum og eru einhverjir
þeirra, til dæmis eignastýringar-
fyrirtækið Eaton Vance, erlendir.
Nauðsyn að
stíga inn í
Heiðar Guðjóns-
son, stjórnar-
formaður Sýnar,
tók sterkt til
orða þegar hann
fjallaði um vand-
ræðin í kringum
sameiningu félagsins við ljós-
vakahluta 365 miðla á aðalfundi
í síðustu viku. Hann sagði kerfi
félagsins hafa gripið undirliggjandi
þróun of seint þar sem stjórnin
hefði ekki fengið upplýsingar um
óhagfelld áhrif hennar fyrr en í
desember í fyrra. „Strax í kjölfarið“
hefði aðkoma hennar að rekstr-
inum aukist.
Bein innkoma formanns stjórnar
í daglegan rekstur væri ekki eitt-
hvað sem gerðist á hverjum degi á
íslenskum hlutabréfamarkaði en
stjórn hefði talið nauðsynlegt að
stíga beint inn í reksturinn.
Í fasteignaþróun
Gísli Hauksson,
annar stofnenda
GAMMA, hefur
haft ýmislegt
fyrir stafni eftir
að hann hætti hjá
félaginu fyrir um
ári. Auk þess að sinna
eigin fjárfestingum hefur hann
stofnað fasteignaþróunarfélagið
Skipan með valinkunnum mönnum
en þar starfa meðal annars Guð-
mundur Kristján Jónsson skipu-
lagsfræðingur og Leó Hauksson,
sem starfaði síðast á sviði sölu og
viðskiptaþróunar GAMMA.
Sé aðhaldið van-
metið getur það leitt
til þess að hlutast sé til um
samruna sem ekki skaða
samkeppni.
2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
7
-2
9
F
0
2
2
A
7
-2
8
B
4
2
2
A
7
-2
7
7
8
2
2
A
7
-2
6
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K