Fréttablaðið - 27.03.2019, Page 54
ÉG HELD AÐ ÉG VERÐI
BARA AÐ LÝSA YFIR
TRÚNAÐARTRAUSTI Á ÁHORF-
ANDANN, HANN VERÐUR AÐ FÁ
AÐ EIGA UPPLIFUNINA MEÐ
SJÁLFUM SÉR.
Bjarni H. Þórarinsson sýnir á annað hundrað blýantsteik ningar í BERG Contemporary. Sýningin nefnist Víð-róf. „Þetta er frumsýn-
ing á öllum þessum verkum sem
ég vann heima í átta til tíu tíma á
hverjum einasta degi vikunnar á
árunum 2012-2014 og 2016-2017,
þannig að þau eru frekar nýleg,“
segir Bjarni.
Mynd- og hugmyndaheimur
Bjarna er mjög sérstakur. Árið 1987
fór hann að leggja grunn að kerfi
hugmynda, sem hann kallar Sjón-
háttafræði og tekur til allra þátta
tilverunnar; sjónlista, heimspeki,
tungumáls og form- og merkingar-
fræði sem hann myndgerir.
Ný sköpunaraðferð í myndlist
Um uppgötvun sína á þessu hug-
myndakerfi segir Bjarni: „Hugur
minn upptendraðist, mér leið eins
og ég hefði uppgötvað nýjan töfra-
lykil, eins konar týndan hlekk í
hugsun mannsandans. Þessi upp-
götvun olli straumhvörfum á lista-
mannsferli mínum. Ég gerðist sjón-
háttafræðingur, hafði fundið nýja
sköpunaraðferð í myndlistinni.
Við tóku ítarlegar rannsóknir á
tungumálinu og fljótlega gerðist ég
eins konar kerfissmiður varðandi
tungumál og tungumálanotkun. Ég
byrjaði á því að setja saman mynd-
lykla- eða ritlyklakerfi sem gerði
mér kleift að greina hugtök sem
höfðu sameiginlegt stef og áttu það
sammerkt að geta f lokkast undir
viðkomandi lykil.
Í hlutverki eins konar brúarsmiðs
„Hugur minn upptendraðist, mér leið eins og ég hefði uppgötvað nýjan töfralykil,“ segir Bjarni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ein mynda Bjarna, en á annað
hundrað blýantsteikninga eru á
sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BÆKUR
Bönd
Höfundur: Domenico Starnone
Þýðandi: Halla Kjartansdóttir
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa
Blaðsíður: 142
Domenico Starnone er nú um stundir þekktastur sem eiginmaður Anitu Raja, kon-
unnar sem er talin skrifa undir höf-
undarnafninu Elena Ferrante. Um
tíma voru reyndar sögusagnir um
að Starnone sjálfur væri Ferrante og
einnig að hjónin hefðu skrifað Ferr-
ante-bækurnar í sameiningu.
Aðdáendu r Fer rante munu
örugglega hafa bók hennar Daga
höfnunar í huga á fyrstu blaðsíðum
þessarar bókar þar sem reið og bitur
eiginkona hellir sér yfir eiginmann-
inn sem hefur yfirgefið hana og
börn þeirra tvö vegna yngri konu.
Sagan fer síðan í aðra átt en lesand-
inn á von á því hún er að mestu sögð
frá sjónarhorni eiginmannsins.
Í byrjun verður ekki annað séð
en að eiginmaðurinn hafi farið fyrir
fullt og allt en í ljós kemur að hann
hefur snúið aftur heim. Lesandinn
kynnist hjónum á áttræðisaldri
sem hafa búið saman í áratugi, fyrir
utan nokkurra ára hlé. Yfirborðið
virðist nokkuð slétt og fellt og það
kann jafnvel að virðast sem hliðar-
spor eiginmannsins hafi ekki skilið
eftir sig varanleg ör í sambandinu.
Hjónin kjósa að láta eins og ástar-
samband hans hafi ekki átt sér stað
og á yfirborðinu er nánast eins og
ekkert hafi gerst, en um leið hefur
allt breyst. Eftir að brotist er inn
í íbúð hjónanna og þau horfast í
augu við eyðilegginguna opinberar
höfundur innihaldsleysi hjóna-
bands þeirra hægt og örugglega.
Í ljós kemur að þau hafa, eins og
eiginkonan orðar það, „lifað saman
í hryllingi og kvöl“. Á einum stað
veltir eiginmaðurinn því fyrir sér
hvort hugsanlegt sé að hann hafi
aldrei gefið konu sinni gaum og hún
segir á öðrum stað að hún sé ekki
viss um að hún hafi nokkru sinni
elskað hann. Þriðji hluti bókarinnar
er svo nánast eins og leynilögreglu-
saga þar sem óvænt afhjúpun á sér
stað.
Bönd er vel skrifuð skáldsaga sem
opinberar á miskunnarlausan hátt
sambandsleysi einstaklinga sem
hanga saman í áratugi. Hið mis-
heppnaða hjónaband foreldranna
hefur síðan áhrif á börn þeirra með
tilheyrandi afleiðingum.
The Sunday Times, The New York
Times og Kirkus völdu bókina eina
af bókum ársins 2017. Víst er að höf-
undur gerir allt vel í þessari stuttu
skáldsögu en frásögnin hefði þó
mátt vera kraftmeiri og ástríðufyllri
og um leið hefðu áhrifin orðið enn
sterkari. Kolbrún Bergþórsdóttir
NIÐURSTAÐA: Vel skrifuð og áhugaverð
skáldsaga um hjónaband og svik.
Sambandsleysi hjóna
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Bjarni H.
Þór ar ins son sýnir
nýleg verk í BERG
Contemporary.
Er enn að þróa
hugmyndakerfi
sitt. Sterkt samspil
er milli myndmáls
og ritmáls.
Eitt sinn kallaði ég sýningu sem
ég hélt á Mokka „litlu íslensku
endur reisnina“ og hafði þá hugtakið
handrit eða myndrit í huga. Ef það
er rétt hjá mér að um geti verið að
ræða einhvers konar endurreisn þá
er hún fólgin í því að í stað þess að
gera eitthvað með gömlu aðferðinni
þá kem ég fram með nýjung sem er
myndrit, sem ég held að sé nýyrði.
Þar er um að ræða sterkt samspil
milli myndmáls og ritmáls.“
Brú milli raun- og hugvísinda
Bjarni segist enn vera að þróa hug-
myndakerfi sitt og að á sýningunni
í BERG Contemporary sé hann
kominn yfir í annað kerfi, sem
hann segir vera magnað og vill kalla
ríklakerfi. „Ríkill er hugtak sem er
mjög gildisríkt og hefur margar
birtingarmyndir og mögulegt er að
greina hvern ríkil fyrir sig. Ég hef
á tilfinningunni að ég sé kominn
í spor eins konar brúarsmiðs með
þessu heimspekilíkani mínu sem
samanstendur af ríklum. Þar er ég
að smíða eins konar brú milli raun-
og hugvísinda.
Á sýningunni eru 27 ríklar, 25 til-
heyra hinu makalausa heimspeki-
líkani sem mér tókst að setja saman
á sínum tíma og kallaði þróunar-
viðróf. Svo er ég með tvo aðra ríkla
á sýningunni. Annar þeirra er mjög
öf lugur, það er einfaldlega ríkill-
inn maður. Þar skoða ég manninn í
alls kyns samhengi, út frá sögulegu
sjónarhorni, pólitísku, þjóðfélags-
legu, samfélagslegu, félagslegu,
siðferðilegu og trúarbragðalegu.
Síðast en ekki síst tek ég manninn
fyrir sem öfluga neytendategund.
Svo er hinn ríkillinn sem er saga, en
á myndum greini ég hugtakið sögu
í öllum sínum birtingarmyndum og
breytileika.“
Myndheimur Bjarna er heillandi
en um leið afar f lókinn. Hann er
spurður hvernig hann haldi að
áhorfandinn upplifi hann og segir:
„Það er meira en að segja það að
setja sig í spor áhorfandans: Hvern-
ig upplifir hann myndverk mín
eða listaverk? Ég held að ég verði
bara að lýsa yfir trúnaðartrausti á
áhorfandann, hann verður að fá að
eiga upplifunina með sjálfum sér.
Ég ætla ekki að segja honum fyrir
verkum í þeim efnum.“
VÍST ER AÐ HÖF-
UNDUR GERIR ALLT
VEL Í ÞESSARI STUTTU SKÁLD-
SÖGU.
2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
7
-3
8
C
0
2
2
A
7
-3
7
8
4
2
2
A
7
-3
6
4
8
2
2
A
7
-3
5
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K