Fréttablaðið - 27.03.2019, Síða 58
kvika.is
Birting lýsingar Kviku banka hf.
Stjórn Kviku banka hf. hefur óskað eftir því að allir hlutir í félaginu verði teknir til viðskipta
á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og hefur félagið í tengslum við umsóknina birt lýsingu
dagsetta 26. mars 2019 sem staðfest hefur verið af Fjármálaeftirlitinu. Lýsingin er gefin út á
ensku en einnig hefur félagið birt samantekt á íslensku og er hún þýðing á ensku útgáfunni
sem er hið staðfesta eintak. Sé misræmi milli texta í ensku og íslensku útgáfu
samantektarinnar gildir sú enska.
Heildaröldi útgefinna hluta í Kviku banka hf. við dagsetningu lýsingarinnar eru
1.844.996.308. Allir hlutirnir eru í sama flokki og jafnréttháir. Félagið á enga eigin hluti.
Hlutir félagsins eru gefnir út rafrænt í kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf. og er hver hlutur
1 króna að nafnverði. Hlutirnir eru skráðir á First North Iceland og er auðkenni þeirra
KVIKA. Samþykki Kauphöllin að taka hluti útgefna af félaginu til viðskipta á Aðalmarkaði
Nasdaq Iceland hf. mun auðkenni þeirra á Aðalmarkaði jafnframt vera KVIKA. ISIN númer
hlutabréfanna er IS0000020469.
Nasdaq Iceland hf. mun tilkynna með a.m.k. eins viðskiptadags fyrirvara hvenær hlutir
félagsins verða teknir til viðskipta.
Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast í 12 mánuði frá staðfestingu hennar í höfuð-
stöðvum Kviku, Borgartúni 25, 105 Reykjavík. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu Kviku,
www.kvika.is/lysing
Reykjavík, 27. mars 2019
Stjórnmálafræðiprófessor-inn Hannes Hólmsteinn Gissurarson er umdeildur maður en ekki verður af honum tekið að hann er hamhleypa til verka
á ritvellinum, svo mjög að hann
sést stundum vart fyrir. Hann er
um þessar mundir að senda frá sér
fjórðu bókina á skömmum tíma
og er þá ótalin vægast sagt eldfim
skýrsla hans um erlenda áhrifa-
þætti bankahrunsins, sem hann
skrifaði fyrir fjármálaráðuneytið.
„Í fyrsta lagi var það nú þessi
fræga skýrsla til f jármálaráðu-
neytisins,“ segir Hannes þegar
hann hefur upptalningu á nýjustu
afrekum sínum á lyklaborðinu. „Ég
náttúrlega lauk henni fyrir löngu
síðan. Hún var bara í ritrýni og ég
varð að stytta hana mikið og það
tók mikinn tíma.“
Bókin Til varnar vestrænni
menningu er eina ritið í þessum
staf la sem Hannes sk rifaði á
íslensku en auðheyrt er að það
brann á honum að koma þeirri
bók frá sér og að hún eigi erindi við
samtímann þótt meginuppistaða
hennar sé frá árunum 1950–1958.
„Ég tók mig til og gaf út ræður
sex rithöfunda úr kalda stríðinu
og skrifaði 40 blaðsíðna formála
að henni, auk aftanmálsskýringa.“
Hannes segist í formálanum aðal-
lega fjalla um menningarbaráttuna
í kalda stríðinu og í ræðunum sex
hafi skáldin Tómas Guðmundsson,
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi,
Sigurður Einarsson í Holti og rit-
höfundarnir Gunnar Gunnars-
son, Kristmann Guðmundsson og
Guðmundur G. Hagalín, sem „voru
auðvitað í hópi fremstu rithöfunda
þjóðarinnar“, snúist til varnar gegn
áhrifum frá Sovétríkjunum.
Pakkað í hægri vörn
„Síðan skrifaði ég 65 blaðsíðna
skýrslu á ensku í stóru broti, Why
Conservatives Should Support
the Free Market,“ segir Hannes
og bætir við að hún sé sprottin af
áhyggjum af því að íhaldsmenn í
Evrópu séu að hneigjast dálítið til
of sterks ríkisvalds. „Ég er að reyna
að brýna fyrir þeim að þeir eigi að
leyfa markaðnum, það er að segja
hinu frjálsa vali einstaklinganna,
að ráða.“
Nokkuð kunnuglegt stef úr þess-
um ranni en Hannes er svo sem
gjarn á að kveða oft þær vísur sem
honum finnst góðar eins og þriðja
ritið ber með sér en þar fá jafnaðar-
menn að kenna á engilsaxneskri
orðsveðju hans.
„Þessi skýrsla heitir ending
Other People’s Money: A Criti-
que of Rawls, Piketty and Other
Redistri butionists.“ Eins og nafnið
bendir til tekur Hannes þar á
beinið þá John Rawls og Thomas
Piketty, „helstu hugsuði jafnaðar-
stefnunnar á okkar dögum“, eins og
hann kallar þá.
„Ef þú t alar v ið einhver ja
bókelska Samfylkingarmenn eða
Vinstri græna þá er ég alveg viss um
það að þeir myndu segja að Rawls
og Piketty væru nú alveg búnir að
sýna fram á það að kapítalisminn
gengur nú ekkert upp og er ekki
réttlátur og það þurfi að leggja
skatta á hina ríku til þess að láta
hina fátæku fá og svo framvegis.
Ég myndi segja að þeir færi
fram sterkustu málsvörnina fyrir
jafnaðarstefnu á okkar dögum og
skýrslan mín er gagnrýni á kenn-
ingar þeirra,“ segir Hannes og
leggur áherslu á að öll þessi rit hans
megi finna á netinu.
Jaðarsettur miðjumaður
Þessi rit þín eru öll á ensku nema
eitt. Má skilja það sem svo að eftir-
spurnin eftir þér sé meiri í útlönd-
um en hér heima?
„Ég myndi segja það að mér sé
betur tekið í hinum enskumæl-
andi fræðaheimi. Þar á ég mér að
minnsta kosti einhvern af kima,“
segir Hannes og bendir á að það sé
ekki einfalt að skýra spámanns-
Hannes hefur vetursetu í Rio de Janeiro þar sem hann skrifar í næði. Á Íslandi er hann meira í grúski þar sem hér eru flest skjöl og gögn sem hann sækir í. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÞAR ER ÉG Í FÁMENN-
UM MINNIHLUTAHÓPI
HÆGRISINNAÐRA MENNTA-
MANNA. ÞAÐ ER AUÐVITAÐ ÚT
AF ÞVÍ AÐ DUGLEGIR OG GÁFAÐIR
HÆGRIMENN VERÐA LÆKNAR,
VERKFRÆÐINGAR OG ATVINNU-
REKENDUR EN DUGLEGIR OG
GÁFAÐIR VINSTRI MENN VERÐA
KENNARAR OG BLAÐAMENN.
ÞANNIG ER ÞETTA OG ER AL-
ÞEKKT Í ÖLLUM LÖNDUM.
Vinsælli
á ensku
Hannes Hólmsteinn Gissurarson dælir
út skýrslum og bókum en segist farinn að
skrifa meira á ensku enda nái hann þann-
ig til þakklátari lesendahóps.
2 7 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
7
-4
7
9
0
2
2
A
7
-4
6
5
4
2
2
A
7
-4
5
1
8
2
2
A
7
-4
3
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K