Fréttablaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 8
1.628
milljónir kostaði
viðbyggingin
19.995
POLAROID
MINT LJÓSMYNDAPRENTARI
• Prentaðu myndirnar úr símanum á einfaldan hátt
• Bluetooth og NFC, það verður ekki einfaldara
• ZINK ljósmyndapappír, stærð 5,2x7,5cm 8.995
verð frá:
sjáðu fleiri flottar
fermingargjafir
elko.is/fermingargjafir
39.995
RAZER
LEIKJAVÖRUR
• Vandaðar leikjavörur frá Razer
• Fjölbreytt úrval í boði
SAMSUNG
GALAXY WATCH ACTIVE
• Góður skjár með Always On Display
• Vatnshelt að 50metrum, innbyggt GPS
• Rafhlaða sem endist og endist
• Virkar með Strava, Spotify, o.fl. forritum
it
A V
c
e
G R A N D I – L I N D I R – S K E I FA N – E L K O . I S
46.995
BOSE
QUIETCOMFORT 35 II
• Bluetooth, NFC, 3,5mm jack
• Allt að 20 klst. rafhlöðuending
• Active Noise-Canceling
BORGARMÁL Innri endurskoðun
Reykjavíkurborgar segir framúr-
key rslu kostnaðar v ið f ram-
kvæmdir við Mathöllina á Hlemmi
óásættanlega og gefur borginni
rauða ábendingu í skýrslu sem
kynnt var fyrir borgarráði í gær.
Þar segir að kostnaður vegna eftir-
lits með framkvæmdum hafi í öllum
tilfellum verið vanáætlaður og svo
virðist sem áætlanir um það hafi
einungis verið til málamynda.
Í skýrslunni er fjallað um fjögur
verkefni á vegum borgarinnar sem
fóru af stað á síðasta kjörtímabili.
Viðbyggingu við Sundhöll Reykja-
víkur, gerð hjólastígs við Grensás-
veg, viðbyggingu við Vesturbæjar-
skóla og Mathöllina við Hlemm.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins, sagði að loknum fundi
borgarráðs að það væri margt bogið
við framkvæmdir á vegum borgar-
innar. Skortur væri á útboðum,
kostnaðaráætlanir væru of lágar og
nú væru þrír eftirlitsaðilar að skoða
framkvæmdir borgarinnar. Þar að
auki hefði Mathöllin farið fram úr
fjárheimildum sem stangast á við
sveitarstjórnarlög. Hann segir að
tvennt þurfi að gera. „Fyrst þarf að
viðurkenna undanbragðalaust að
hlutirnir séu ekki í lagi, ekki koma
með einhverjar túlkanir. Kerfið er
allt of f lókið. Það er svo mikið af
stýrihópum og stjórnendum að
verkefnin, og ábendingar týnast og
eru eftirlitslaus,“ segir Eyþór.
Hann gerir athugasemdir við að
meirihlutinn miði við seinni kostn-
aðarmöt en ekki það fyrsta. „Það er
ákveðin lenska að verkefni byrji
með lágri kostnaðaráætlun, svo er
gerð önnur þar sem kostnaðurinn
hækkar, svo önnur og kannski ein
í viðbót. Ítalir kalla þetta salami-
aðferðina. Setja vondu fréttirnar í
bita. Þetta verður til þess að verk-
efni fara af stað sem hefðu kannski
ekki átt að fara af stað.“
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti
borgarstjórnar, segir ábendingar
innri endurskoðanda góðar og þær
fari beint inn í vinnu meirihlutans
við að endurskilgreina miðlæga
stjórnsýslu. Hún bendir á að fram-
kvæmdirnar sem um ræðir séu
þróunarverkefni, eða í endurbygg-
ingum. Verkefni sem sé tæknilega
Óásættanleg framúrkeyrsla í borginni
Innri endurskoðun skilaði borgarráði skýrslu um fjórar framkvæmdir á vegum borgarinnar. Mathöllin á Hlemmi fór tugi milljóna
fram úr fjárheimildum. Forseti borgarstjórnar segir ábendingarnar góðar. Vigdís Hauksdóttir segir skýrsluna enn einn áfellisdóm.
Viðbygging Sundhallar
Reykjavíkur
n Fyrsta kostnaðaráætlun:
930 milljónir
n Seinni kostnaðaráætlun:
n 1.420 milljónir
n 60% fóru í útboð
f lóknara að áætla en önnur. „Það
var búið að vera með alls konar
yfirlýsingar um að þetta yrði svört
skýrsla, svo er ekki. Meðal þess er að
gefa borgarráði betri upplýsingar til
að gulltryggja það að framkvæmdir
fari ekki fram úr.“
Kostnaðaráætlanirnar fá rauða
ábendingu frá innri endurskoð-
anda og þegar ábending er rauð
bendir hún til alvarlegra veikleika
í innra eftirliti sem geti leitt af sér
mikið fjárhagslegt tjón eða áhættu
um sviksemi. Þórdís Lóa segir ein-
faldlega að ekki hafi verið nægur
tími til að vinna áætlanirnar.
„Kostnaðar áætlanirnar eru ekki
slæmar í grunninn. Það er ekki
gefinn nægilegur tími í þetta. Við
erum að flýta okkur of mikið. Nið-
urstaðan er rauð núna, næst verður
hún græn.“
Vigdís Hauksdóttir, oddviti Mið-
flokksins, er ánægð með skýrsluna.
„Þetta er enn einn áfellisdómur-
inn. 102 prósenta framúrkeyrsla á
Mathöll á Hlemmi. Þetta er sama
uppskrift og í Bragganum. Það eru
einungis 20 milljónir samþykktar
í borgarstjórn sem fóru inn í fjár-
hagsáætlun, restin kemur inn í
gegnum viðauka. Það gefur vís-
bendingu um að verkefninu sé
smeygt inn með lítilli kostnaðar-
áætlun, svo er laumað inn hund-
ruðum milljóna í gegnum viðauka,“
segir Vigdís.
Viðbrögð Umhverfis- og skipu-
lagsráðs við ábendingu innri endur-
skoðanda um kostnaðaráætlanir
eru að óska eftir heimild fyrir nýtt
stöðugildi sérfræðings til að fara
yfir kostnaðaráætlanir. Vigdís er
ekki sátt við það. „Ég fordæmi það.
Yfirbyggingin hjá borginni er svo
stór að það hlýtur að finnast ein-
hver sem getur tekið það að sér.
Þetta er bara aumt yfirklór og eftirá-
skýringar.“
Ekki náðist í Dag B. Eggerts-
son borgarstjóra. Í tilkynningu
segir hann skýrsluna undirstrika
að Braggamálið hafi verið frávik.
Hlemmur eigi sér eðlilegar skýr-
ingar þar sem viðhaldsþörf var
vanmetin. Leggur hann áherslu á að
Mathöllin hafi lífgað upp á mann-
lífið við Hlemm.
arib@frettabladid.is
✿ Framúrkeyrsla framkvæmdanna í tölum
Vigdís segir skýrsluna áfellisdóm yfir meirihlutanum og bendir á tölur máli sínu til stuðnings. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Viðbygging Vesturbæjarskóla
n Fyrsta kostnaðaráætlun:
700 milljónir
n Seinni kostnaðaráætlun:
931 milljónir
n Kostaði: 1.138 milljónir
Hjólastígur á Grensásvegi
n Fyrsta kostnaðaráætlun:
170 milljónir
n Seinni kostnaðaráætlun:
195 milljónir
n Kostaði: 198 milljónir
n 85% fóru í útboð
Nauthólsvegur 100
n Fyrsta kostnaðaráætlun:
158 milljónir
n Kostaði: 425 milljónir
n Verkið er óklárað
n 0% í útboð
Hlemmur Mathöll
n Fyrsta kostnaðaráætlun:
107 milljónir
n Seinni kostnaðaráætlun:
152 milljónir
n Kostaði: 314 milljónir
n 14% fóru í útboð
173 milljónir fram úr fjárheimildum
48 milljónir fram úr fjár-heimildum
58% fóru í útboð
5 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
5
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:2
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
B
F
-B
7
6
0
2
2
B
F
-B
6
2
4
2
2
B
F
-B
4
E
8
2
2
B
F
-B
3
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
4
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K