Fréttablaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 30
Hafsport í Kópa- vogi býður upp á gott úrval af vörum tengdum sjósporti, þar á meðal gott úrval af kajökum og sjósundsvörum. Verslunin Hafsport í Kópa-vogi býður upp á gott úrval af vörum tengdum sjósporti, þar á meðal gott úrval af kajökum og sjósundsvörum, segir Þorvaldur Haf berg, eigandi Hafsports. „Vin- sældir kajaksportsins hafa vaxið gífurlega mikið á undanförnum árum og verslun okkar býður upp á vandaða, stöðuga kajaka sem einfalt er að taka með í stutta túra og í fríið. Kajakarnir okkar eru þannig búnir að auðvelt er að taka þá í sundur, skella þeim í skottið eða hjólhýsið, og bruna af stað. Við teljum að kajak- sportið eigi eftir að vaxa mikið því þetta er skemmti- legt sport sem allir geta tekið þátt í.“ Úrvalið af kajökum og vörum þeim tengdum er mikið og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi bætir Þorvaldur við. „Við bjóðum upp á veiðikajaka, kajaka fyrir byrjendur og fyrir lengra komna. Einnig bjóðum við upp á vönduð björgunarvesti, léttar árar þar sem hægt er að stilla lengdina, þurrgalla, svuntur, helstu fylgi- hluti og varahluti.“ Sjósundið vinsælt Sjósund er önnur íþrótt sem hefur notið sífellt meiri vinsælda undan- farin ár og Hafsport þjónar þeim ört stækkandi hópi með úrvali af vönduðum vörum. „Bæjar- félög víða um land hafa sett upp aðstöðu fyrir sjósundsfólk en sjóböð eru þekkt fyrir að styrkja ofnæmiskerfið og vera einstaklega góð fyrir húðina þar sem sjórinn er ríkur af steinefnum. Við bjóðum upp á allan búnað sem hentar í sjósundið, t.d. hanska, skóbúnað, sundgleraugu, sundhettur og sundfatnað. Nýjasta varan okkar er vind- og vatnshelt ponsjó sem frábært er að skella yfir sig þegar komið er upp úr köldum sjónum. Allur sjósundsfatnaður sem við seljum er úr endurunnu efni en framleiðandinn er í samvinnu við kafara og kajakræðara sem hreinsa strandlengjur af nælon- netum og endurvinna efnið í sundfatnað.“ Mikið úrval Utan ofangreindra vara býður Hafsport upp á gott úrval vara fyrir þá sem vilja stunda fjölbreytta og skemmtilega útivist. „Yfir sumartímann er mjög vinsælt að snorkla, bæði hér heima og erlendis og bjóðum við m.a. upp á sett til sölu sem inniheldur grímu, öndunarpípu og froskalappir. Einnig bjóðum við upp á mikið úrval af köfunarvörum frá öllum helstu framleiðendum sem og viðhaldsþjónustu á slíkum búnaði. Sjóskórnir okkar hafa verið gífur- lega vinsælir til að hafa meðferðis í gönguferðir út um allan heim þar sem vaðið er yfir ár og fyrir ströndina. Hér má finna gott úrval af sundfatnaði fyrir allan aldur og fylgihluti og einnig utanborðsmót- ora, báta, björgunarvesti, öryggis- hjálma og köfunarvörur.“ Allar nánari upplýsingar má finna í nýrri vefverslun Hafsports, www.hafsport.is. Frábært úrval fyrir sjósportið „Við bjóðum upp á allan búnað sem hentar í sjósundið, t.d. hanska, skóbúnað, sundgleraugu, sundhettur og sundfatnað,“ segir Þorvaldur Hafberg, eigandi Hafsports sem er til húsa í Kópavoginum. MYND/ERNIR Það eru rúmlega þrjú og hálft ár síðan Heiða Mjöll Stefáns-dóttir hjúkrunarfræðingur hóf að stunda sjósund sem hún segir eina bestu ákvörðun lífs síns. „Á þessum tíma var ég í nokkur ár búin að kljást við óútskýrð veikindi sem líklegast voru tengt rakaskemmdum. Þeim fylgdu ýmis undarleg einkenni, meðal annars þau að mér var alltaf rosalega kalt og var ég farin að nota nýtt hugtak, sem var að mér væri „innankalt“. Það var því heilsubrestur sem rak mig út í sjósundið en þá prófar maður gjarnan ótrúlegustu hluti og jafnvel misgáfulega. Af öllu því sem ég hef prófað er þetta það allra gjöfulasta sem ég hef nokkru sinni reynt. Og það besta að ekki þarf að bíða eftir áhrifum, heldur finnur maður þau strax. Sem hjúkrunar- fræðingur hef ég mikinn áhuga á öllu sem viðkemur heilsu. Ég hafði því kynnt mér nokkuð áhrif kuldaþjálfunar á heilsufar og þótti mjög athyglisvert að hljóta strax ávinning af þessum „hryllingi“.“ Ekki aftur snúið Það var seinni hluta sumars 2016 þegar Heiða stakk sér fyrst í svalan sjóinn í Nauthólsvík í Reykjavík. „Góð vinkona bauð mér með og ég ákvað strax að taka þetta alla leið. Ég keypti sjósundshanska, galla, skó og hettu og hafði þar með enga afsökun fyrir því að fara ekki. Þegar ég byrjaði í sjósundi þótti mér alveg makalaust hvað allir voru glaðir, gefandi og miklir vinir. Í sjósundssamfélaginu ríkir mikill kærleikur milli allra og allt er svo viðráðanlegt og skemmtilegt. Þarna var eitthvað alveg nýtt að gerast. Ég las því allt sem ég komst yfir um þetta málefni og komst að því að enska orðatiltækið „high on your own supply“ á svo sannarlega við um sjósundið.“ Allir kátir og glaðir Hún segir að samkvæmt rann- sóknum séu vísbendingar um að sund í köldum sjó geti hraðað efnaskiptum„Það verður aukning á framleiðslu á norepinephrins, sem er adrenalín og heldur okkur skörpum, og einni endorfíni sem gerir okkur kát og glöð. Með öðrum orðum komst ég að því að þarna var mögulega hægt að verða uppdópaður af lífinu sjálfu. Dagný Hermannsdóttir frænka mín sagði mér eftir nokkur skipti að sjó- sundið væri besta verkjameðferð sem hún hefði fundið og aukaverk- anir væru bara gleði og orka. Ég hef heyrt f leira segja svipaða hluti auk þess að fá bót við bólgum, verkjum, kvíða og ýmsum öðrum kvillum.“ Engin keppni Hún hvetur sem flesta til að prófa sjósundið. „Þegar maður finnur svona fjársjóð vill maður deila eins og enginn sé morgundagurinn. Þegar byrjað er í sjósundi skiptir félagsskapurinn öllu máli. Hlustið og berið virðingu fyrir áralangri visku félaganna og munið að sjó- sund er ekki keppni. Það er hægt að byrja hvenær sem er yfir árið og hægt að fjárfesta í ýmsum búnaði til að verjast mesta kuldanum. En það sem skipti öllu máli er hvernig hug- urinn er stemmdur. Auk þess þarf að huga að almennum atriðum eins og að vera vel sofin, vel nærð og vel upplýst. Gefið ykkur tíma til þess að jafna ykkur eftir umgangspestir, kvef eða annað slíkt áður en farið er aftur á stað í sjósund. Ylströndin og ýmsar sérverslanir selja búnað sem þarf til sjósunds en skynsemina er ekki hægt að kaupa. Fyrir þá sem glíma við sjúkdóma eða önnur heilsufarsvandamál mæli ég alltaf með því að viðkomandi ræði við lækni áður en byrjað er.“ Nánari upplýsingar fyrir byrjendur má m.a. finna á nautholsvik.is/sjosund. Ein besta ákvörðun lífsins Heiða Mjöll Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur segir sjósund vera bestu verkjameðferð sem hún hefur fundið. Einu aukaverkanirnar eru gleði og orka og félagsskapurinn er frábær og gefandi. Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Heiða Mjöll Stefánsdóttir, aftast fyrir miðri mynd, ásamt hressum sjósundsfélögum. MYND/LAUFEY G. SIGURÐARDÓTTIR 6 KYNNINGARBLAÐ 5 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RSJÓSPORT 0 5 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :2 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 B F -9 9 C 0 2 2 B F -9 8 8 4 2 2 B F -9 7 4 8 2 2 B F -9 6 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 4 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.