Fréttablaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 16
Stjarnan - ÍR 96-63
Stjarnan: Brandon Rozzell 28, Antti Ka-
nervo 14, Hlynur Bæringsson 13, Ægir Þór
Steinarsson 12/10 stoðsendingar, Collin
Pryor 10, Tómas Þórður Hilmarsson 9, Filip
Kramer 7, Arnþór Freyr Guðmundsson 3.
ÍR: Kevin Capers 18, Gerald Robinson 17,
Matthías Orri Sigurðarson 17, Sigurður
Gunnar Þorsteinsson 4, Hjalti Friðriksson
4, Skúli Kristjánsson 2, Ólafur Björn Gunn-
laugsson 1.
Stjarnan er komin 1-0 yfir í einvígi liðanna en
hafa þarf betur í þremur leikjum til þess að
tryggja sér farseðilinn í úrslitaeinvígið.
KR og Þór Þorlákshöfn hefja viðureign sína í
seinni undanúrslitaviðureigninni í DHL-höll-
inni í Vesturbænum klukkan 19.15 í kvöld.
Nýjast
Domino’s-deild karla
Undanúrslit
Fjaraði undan baráttugleði ÍR í Garðabænum
ÍR byrjaði leikinn af krafti og komst tíu stigum yfir í upphafi leiksins gegn Stjörnunni í gær en réð ekkert við Brandon Rozzell og liðsfélaga hans
eftir það. ÍR tókst að halda Stjörnunni í átta stigum fyrstu níu mínúturnar en eftir það léku Garðbæingar lausum hala í sókninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í knattspyrnu leikur sinn
fimmta vináttulandsleik á þessu ári
þegar liðið leikur við Suður-Kóreu í
nótt. Leikurinn hefst klukkan 05.00
að íslenskum tíma en leikið er á
Yongin Citizen Sports Park.
Þetta er fyrri leikur liðanna af
tveimur í þessu verkefni en liðin
spila aftur á þriðjudagsmorgun.
Íslenska liðið hefur leikið tvisvar
við Skotland á árinu, haft betur í
annað skiptið í frumraun Jóns Þórs
Haukssonar og Ians Davids Jeffs
og tapaði svo þegar liðin mættust
á Algarve Cup.
Þar gerði liðið einnig jafnt-
ef li við sterkt lið Kanada
og vann svo Portúgal.
Rey n slu m i k l i r lei k-
menn á borð við Söru
Björk Gunnarsdóttur,
Dagnýju Brynjars-
dóttur, Margréti
Láru Viðarsdótt-
ur og Sif Atla-
dóttur fengu
frí í þessu
verkefni.
Þá kom-
u s t A n n a
Björk Kristjánsdóttir, Elín
Metta Jensen og Agla María
Albertsdóttir ekki í þetta
verkefni af mismunandi
ástæðum.
Þetta verður í fyrsta sinn
sem Ísland mætir Suður-
Kóreu sem var í 14. sæti á
síðasta styrkleikalista sem
FIFA gaf út á meðan Ísland
var átta sætum neðar í 22.
sæti.
Ef Fannd ís Fr iðr ik s-
dóttir spilar báða leikina
í ferðinni nær hún þeim
áfanga að spila sinn 100. landsleik
en hún yrði þá níundi leikmaður-
inn til þess að spila 100 landsleiki
eða f leiri. Hallbera Guðný Gísla-
dóttir er leikjahæsti leikmaður
íslenska liðsins með 102 leiki en
hún spilaði 100. landsleikinn í
Algarve fyrr á þessu ári.
„Það er ýmislegt líkt með liði
Suður-Kóreu og Kanada, þær eru
með sterkt lið og beinskeyttar.
Þær eru að mörgu leyti ólíkar
öðrum Asíuþjóðum þegar
kemur að því, því að þær
spila fast og ákveðið ofan
á það að vera teknískar og
mjög f ljótar.
Þet t a er verðug t
ve r k e f n i o g v ið
ber u m v i rði ng u
fyrir liði Suður-
Kóreu sem er frá-
bært en á sama
t íma ótt u mst
við ekkert. Við
þurfum bara
að einblína
á það sem
v ið æt lu m
o k k u r a ð
gera,“ sagði Jón Þór
í samtali við Frétta-
blaðið þegar hann
valdi leikmannahóp
sinn fyrir verkefnið.
„ Leik ir nir er u u m
miðjan dag úti þann-
ig að aðstæðurnar verða
k ref jandi f y rir ok kur.
Það er eitthvað nýtt fyrir
okkur og undir þjálfara-
teyminu komið að undirbúa
leikmennina til að geta mætt
af fullum krafti,“ sagði hann
enn fremur. – hó
Kvennalandsliðið mætir
Suður-Kóreu ytra í nótt
HANDBOLTI Dregið var í riðlana í
undankeppni Evrópumótsins 2020
í kvennaflokki í Kaupmannahöfn
í gær þar sem Ísland fékk verðuga
andstæðinga. Síðasta liðið sem kom
í riðil Íslands gæti ekki verið sterk-
ara, ríkjandi heims- og Evrópu-
meistarar Frakklands bættust við
riðil Íslands með Króatíu og Tyrk-
landi þar sem tvö lið fá þátttökurétt
í mótinu á næsta ári. Mótið fer fram
í Danmörku og Noregi, á sama stað
og Ísland lék fyrst í lokakeppni á
stórmóti í kvennaflokki árið 2010.
Ísland var í neðsta styrkleika-
flokki þegar dregið var í gær og því
ljóst að andstæðingarnir yrðu alltaf
erfiðir.
Tyrkland var fyrsta liðið sem
kom upp úr pottinum. Ísland hefur
sjö sinnum áður mætt Tyrklandi og
hafa Tyrkir unnið fjóra leiki, þrem-
ur lokið með sigri Íslands. Liðin
mættust í undankeppni HM í haust
þar sem Ísland vann þrettán marka
sigur en Tyrkir hafa aldrei komist á
stórmót.
Króatía var næsta lið sem bættist
við riðil Íslands. Króatar hafa verið
fastagestir á síðustu átta Evrópu-
mótum og unnu tíu marka sigur á
Íslandi á EM 2010. Í sex tilraunum
hefur Íslandi aldrei tekist að vinna
Króatíu.
Að lokum komu ríkjandi heims-
og Evrópumeistarar í riðil Íslands.
Frakkar hafa unnið síðustu fjórtán
leiki liðanna í röð eftir að Ísland
vann fjórar fyrstu viðureignir lið-
anna árið 1984.
Axel Stefánsson, þjálfari lands-
liðsins, virtist bara nokkuð sáttur
með riðilinn þegar Fréttablaðið sló
á þráðinn til hans.
„Þetta var bara fínt, við gátum
verið heppnari en á sama tíma
gátum við verið óheppnari með
andstæðinga. Þetta verður spenn-
andi verkefni að takast á við,“ segir
Axel og bætti við:
„Frakkland er með langbesta
liðið í þessari undankeppni en það
verður gaman að mæta þeim. Við
verðum að læra af þessum leikjum
gegn þeim bestu í heiminum.“
Axel tók undir að það væri strax
stefnt á annað sætið í riðlinum.
„Þar liggja möguleikar okkar.
Króatía var ofarlega á lista hjá
manni sem andstæðingur úr þriðja
styrkleikaf lokki og ég tel að við
getum náð úrslitum gegn Króatíu.
Við þurfum að leggja allt í sölurnar
til að vinna heimaleikinn og reyna
svo að sækja úrslit til Króatíu.“
Axel telur að leikirnir gegn Kró-
atíu muni ráða úrslitum í riðlinum.
„Við mættum Tyrkjum í undan-
keppni HM, þó að þær séu í styrk-
leikaflokki fyrir ofan okkur tel ég
að við ættum að vinna báða leikina
gegn Tyrklandi. Ef við ætlum okkur
að ná öðru sætinu verðum við að
vinna báða leikina gegn Tyrklandi.
Leikirnir gegn Króatíu ættu svo að
ráða úrslitum um hvaða lið fylgir
Frökkum inn á EM.“
kristinnpall@frettabladid.is
Stefnum á annað sætið
Stelpurnar okkar eru í riðli með ríkjandi heims- og Evrópumeisturum Frakka,
Króatíu og Tyrklandi í undankeppni EM 2020 þar sem tvö lið komast áfram.
Axel var nokkuð sáttur með riðil íslenska liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
ÍSHOKKÍ Íslenska kvennalandsliðið
í íshokkí vann annan sigur sinn í
B-riðli annarrar deildar á Heims-
meistaramótinu í gær. Þetta var
þriðji leikur íslenska liðsins í riðl-
inum og deila þær efsta sætinu með
Nýja-Sjálandi og Kínverska Taípei
eftir tvo sigra í þremur leikjum.
Silvía Björgvinsdóttir sem hefur
verið afar öflug fyrir framan markið
á mótinu kom Íslandi yfir í öðrum
leikhluta. Sigrún Árnadóttir bætti
við marki í þriðja leikhluta áður en
Silvía innsiglaði sigurinn. Lands-
liðið mætir Tyrklandi í dag og Kín-
verska Taípei í lokaumferðinni á
sunnudaginn. – kpt
Öruggur sigur
gegn Króatíu
5 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
5
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:2
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
B
F
-8
6
0
0
2
2
B
F
-8
4
C
4
2
2
B
F
-8
3
8
8
2
2
B
F
-8
2
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
4
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K