Fréttablaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 2
Veður Sigið við græna þúfu Listaverkið vinsæla Þúfa fékk í gær nauðsynlega yfirhalningu fyrir komandi ágang erlendra ferðamanna með hækkandi sól. Í því fólst meðal ann- ars að f letta af verkinu grasklæðningunni og sigu síðan verkamenn niður eftir því og sinntu sínu hefðbundna viðhaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Snýst í norðaustan 3-8 í dag, en 8-13 norðvestanlands síð- degis og einnig við suðaustur- ströndina. Skýjað og sums staðar lítilsháttar slydda eða snjókoma norðan til á landinu en bjartviðri syðra. SJÁ SÍÐU 20 Hefur þú prófað nýju kjúklgasteikurnar? NÝTT OG SPENNANDI FRÁ HOLT A MENNING Nafn Magnúsar Geirs Þórðarsonar útvarpsstjóra er á vörum allra sem Fréttablaðið hefur rætt við um stöðu þjóðleikhús- stjóra, sem auglýst verður á næst- unni. Skipunartími þjóðleikhús- stjóra rennur sitt skeið um áramót og samkvæmt leiklistarlögum er skylt að auglýsa stöðuna í lok hvers skipunartímabils. Engar hömlur eru þó settar í lögum um framlengingu á skipun í stöðuna og hafa þjóðleik- hússtjórar oft gegnt stöðunni í ára- tug og jafnvel lengur. „Mér finnst ganga vel og það er auðvitað hvatning fyrir mann að halda áfram,“ segir Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri. „Það var meiri aðsókn í Þjóðleikhúsið á síðasta ári heldur en í meira en fjörutíu ár þar á undan og fyrstu þrír mánuðir þessa árs eru með meiri aðsókn en á metárinu í fyrra,“ bætir Ari við og gerir ráð fyrir að sækjast eftir því að halda áfram í leikhúsinu. Hann segir leikhúsið hafa verið rekið með hagnaði frá því hann tók við stöðunni og stemninguna góða hjá starfsfólkinu. Hann vísar í könnun sem gerð var meðal helstu sviðs- listastofnana landsins í mars í fyrra. „Þar kom Þjóðleikhúsið mjög vel út og eiginlega best hvað varðar traust á yfirstjórn og starfsánægju.“ Þeir sem Fréttablaðið ræddi við og hafa haldið nafni Magnúsar Geirs á lofti segja mikinn áhuga á honum meðal alls leikhúsfólks enda hafi hann stýrt Borgarleikhúsinu af miklum glæsibrag. Magnús gegndi stöðu leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar frá 2004 til 2008 þegar hann var ráðinn til Borgarleikhúss- ins sem hann stýrði þar til hann var ráðinn útvarpsstjóri árið 2014. „Ég er í öðru krefjandi starfi núna,“ segir Magnús Geir, aðspurð- ur um áhuga á að snúa aftur í leik- húsið. Magnús er á sínu sjötta ári í stöðu útvarpsstjóra en hann var endurráðinn um síðustu áramót. „Það eru engin áform um breyting- ar á því enda fjölmörg spennandi verkefni fram undan,“ segir hann. Mjög sterk hefð er fyrir endur- nýjun skipunar sitjandi leikhús- stjóra, sækist hann á annað borð eftir að gegna henni áfram. Þetta er gagnrýnt meðal leiklistarfólks sem Fréttablaðið ræddi við, án þess þó að sú gagnrýni beinist að sitjandi leikhússtjóra, heldur rifjað upp að Stefán Baldursson hafi gegnt stöð- unni í fimmtán ár en svo langur tími samsvari í raun lunganum úr heilli starfsævi leikara. Fyrir leikara sem ekki er í náðinni hjá leikhús- stjóra stærsta leikhúss landsins geti það haft afdrifarík áhrif á allan hans feril ef viðkomandi leikhússtjóri er þrásætinn í starfi. „Ráðherrar koma og fara. Af hverju ekki leikhússtjórar?“ varð einum viðmælanda blaðsins að orði. Einnig hefur verið nefnt að gagn- legt kynni að vera að fá vanan leik- hússtjóra utan úr heimi, sem hrist geti upp í íslensku leiklistarlífi. Ein- hvern sem stendur fyrir utan allar klíkur og kunningjahópa og f lytti með sér ferska strauma að utan. adalheidur@frettabladid.is Útvarpsstjóri orðaður við leikhússtjórn á ný Staða þjóðleikhússtjóra verður auglýst í sumar. Ari Matthíasson sækist eftir endurráðningu í starfið sem hann hefur gegnt undanfarin ár. Nafn Magnúsar Geirs Þórðarsonar útvarpsstjóra er þó á flestra vörum í leikhúsgeiranum. Útvarpsstjóri hefur mikla reynslu af leikhússtjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ari Matthíasson, þjóðleikhús- stjóri. STJÓRNSÝSLA Heimilt verður að leita að og bera kennsl á útlendinga sem hingað koma á grundvelli fingrafaraleitar í VIS-upplýsinga- kerfinu samkvæmt nýju reglu- gerðarákvæði sem dómsmálaráð- herra hefur birt til kynningar á samráðsvef stjórnvalda. Um er að ræða eftirlitskerfi á vegum Evrópu- sambandsins sem ætlað er að koma auga á ólöglega innf lytjendur en kerfið getur borið kennsl á ferðir fólks um Schengen-svæðið eftir að vegabréfsáritun þess rennur út. Í k y nning u á sa m r áðsvef Stjórnar ráðsins segir að full þörf sé talin á að fingrafaraleit fari fram í VIS-upplýsingakerfinu í ljósi fjölg- unar umsækjenda um alþjóðlega vernd sem koma frá ríkjum þar sem gerð er krafa um vegabréfsáritun og umsækjenda sem eru án skilríkja, framvísa fölsuðum skilríkjum eða skilríkjum annars manns. Samkvæmt reglugerðinni verður það Útlendingastofnunar að taka ákvörðun um hvort fingrafaraleit skuli fara fram en lögreglu yrði falið að annast framkvæmdina og senda gögn þar um til ríkislögreglustjóra. Ríkislögreglustjóri mun annast samskipti við miðlægan gagna- grunn VIS-upplýsingakerfisins og upplýsir Útlendingastofnun um niðurstöðu leitar. – aá Efla eftirlit með útlendingum VIS-kerfið heldur utan um ferðir fólks innan Schengen-svæðisins. BANDARÍKIN Jeff Bezos, ríkasti maður heims og stofnandi Ama- zon, og rithöfundurinn MacKenzie Bezos tilkynntu í gær að þau hefðu komist að skilnaðarsamkomulagi. Við skilnaðinn heldur MacKenzie fjögurra prósenta hlut í Amazon en gerir ekki tilkall til hlutar í Washing- ton Post né geimferðafyrirtækinu Blue Origin. Þessi fjögurra prósenta hlutur og aðrar eignir MacKenzie eru metnar á 35 milljarða dala hið minnsta samkvæmt erlendum miðl- um, andvirði um 4,16 billjóna króna. Bezos verður hins vegar ekki nema þriðja ríkasta kona heims. Eignir hinnar frönsku Francoise Bett encourt Meyers eru metnar á tæpa 50 milljarða Bandaríkjadala samkvæmt Forbes. Meyers er erfingi snyrtivöruveldisins L'Oréal. Þá er Alice Walton, dóttir Walmart-stofn- andans Sams Walton, einnig ríkari samkvæmt Forbes. Eignir hennar eru metnar á rúmlega 44 milljarða dala. – þea Bezos verður sú þriðja ríkasta 5 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 5 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :2 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 B F -7 C 2 0 2 2 B F -7 A E 4 2 2 B F -7 9 A 8 2 2 B F -7 8 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 4 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.