Fréttablaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 28
Ég man að ég sá skuggann á öldunni og hugsaði: Þessi verður stór,“ rifjaði Rodrigo
Koxa, heimsmethafi í brimreiðum,
upp fyrir skemmstu í samtali við
Smith sonian-vefinn. Koxa fór
niður rúmlega 24 metra öldu við
strendur Nazaré í Portúgal og
hirti metið af goðsögninni Garrett
McNamara.
Koxa rifjaði upp þennan dag
fyrir skömmu. Þegar hann fór
niður ölduna stóru í nóvember
2017 voru liðin þrjú ár frá því að
hann stórslasaðist við sömu iðju á
sama stað.
„Ég lét næstum lífið þann dag.
Það slokknaði á mér og þetta
var hræðilegur tími í lífi mínu,“
rifjaði Koxa upp. Hann missti
styrktaraðilana og átti erfitt með
svefn. En hann komst á fætur og
skellti sér á brettið á ný. Hann
hafði alltaf dreymt um að vera
brimbrettamaður sem svífur niður
þessar ógnarstóru öldur. Hann
byrjaði ungur á brimbretti og frétti
af Nazaré í gegnum téðan McNam-
ara. „Hann er eins og stóri bróðir
fyrir mér. Hann fór með mig upp í
Meistaradeildina,“ segir Koxa.
McNamara kynnti ekki aðeins
risaöldur Nazaré fyrir Koxa því
þessi einstaki ofurhugi kynnti
heiminum staðinn sem nú er
þekktur fyrir að vera með ótrú-
legar öldur. Gífurlegur fjöldi
mætir í þetta litla þorp í Portúgal
á ári hverju til að láta reyna á
hæfileika sína og enn f leiri mæta
til að horfa á.
„Einhvern veginn setti ég alla
mína hræðslu til hliðar þegar
ég sá hvað var í vændum. Ég veit
reyndar ekkert hvert hræðslan
fór því ég hafði aldrei séð aðra
eins öldu. Ég var á réttum stað á
réttum tíma og ég þurfti að fara
nánast beina leið niður. Aldan var
allan tímann á eftir mér og reyndi
að gleypa mig og ég heyrði vel í
henni,“ sagði Koxa.
Sá fyrsti til að hringja í Koxa
eftir að metið var staðfest í nóvem-
ber í fyrra var McNamara.
Risaöldur
Nazaré
Rodrigo Koxa á heimsmetið í því að
fara niður stærsta öldu á brimbretti.
Fyrra metið var í eigu leiðbeinanda
hans, Garretts McNamara, sem kynnti
Nazaré fyrir ofurhugum heimsins.
22 metrar var sviðið hjá Guns N’Roses í Laugardalnum.
30 metrar verður hæsta tré landsins árið 2021 sam-
kvæmt vef Skógræktarinnar.
24 metrar er málverk Errós í Breiðholti.
23 metra há er eystri stálbrúin yfir Elliðaár.
22 metrar voru í markið þegar Gylfi Þór skor-
aði gegn Leicester í vetur.
Gamla brýnið, Ástralinn Ross Clarke-Jones sem er orðinn 52 ára, hendir sér niður ofuröldu í janúar. NORDICPHOTOS/GETTY
Breski ofurhuginn Andrew Cotton alveg við það að
sleppa úr klóm einnar öldunnar við strendur Nazaré.
Sebastian Steudtner frá Þýskalandi reynir fyrir sér.
Áhorfendur fylgjast spenntir með ferðalagi hans.
Rodrigo Koxa með skjalið sem sýnir að Heimsmeta-
bók Guinness hafi staðfest öldumetið hans.
Hér er Koxa á ferðinni en merkilegt nokk er þetta ekki
aldan sem hann setti heimsmetið á heldur önnur minni.
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4980
info@yamaha.is
www.yamaha.is
Vandaðir
utanborðs-
mótorar í
mörgum
stærðum
F2,5 - F350
FULLAN MÓTOR!
KYNNTU ÞÉR ÚRVALIÐ Á WWW.YAMAHA.IS
4 KYNNINGARBLAÐ 5 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RSJÓSPORT
0
5
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:2
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
B
F
-9
4
D
0
2
2
B
F
-9
3
9
4
2
2
B
F
-9
2
5
8
2
2
B
F
-9
1
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
4
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K