Fréttablaðið - 06.04.2019, Qupperneq 25
við þá sýn. En svo stóð ég allt í einu
uppi á sviði. Ég naut þess að f lytja
þessa tónlist og samverunnar við
vini mína sem voru með mér í þessu
og það var frábært. Ég man eftir því
að hafa oft hugsað: Ég er að gera það
sem mig dreymir um, án þess að
hafa nokkurn tíma dreymt um það!“
Góð leið til að verða geðveikur
Það er á þessum tíma, árið 2005, sem
Kristín Anna samdi fyrsta lag nýju
plötunnar. Þá enn meðlimur í múm.
„Ég var ólétt þegar ég skrifaði fyrsta
lagið á plötunni fyrir 14 árum síðan.
Ég var stödd með múm í Hollandi á
tónlistarhátíð til að semja „inter
ludes“ við verk eftir Iannis Xenakis,
þema hátíðarinnar var himnaríki
og helvíti. Ég var búin að vera úti um
hvippinn og hvappinn í vinnunni og
ekki getað dílað við þetta sem mig
grunaði að væri að gerast. Eftir að
ég f lutti lagið í Amsterdam f laug
ég heim til að eyða fóstrinu. Ég var
gengin átta vikur. Ég flaug svo sam
dægurs til Ísafjarðar og gekk yfir
fjall með harmónikku á bakinu til
þess að fara og semja efni með múm
á Galtarvita. Þar fékk ég í fyrsta
skipti í langan tíma frið til að hug
leiða hvað hafði gengið á. Ákvörð
unin sem ég tók og framkvæmdin á
henni var ekki meðvituð. Ég ætlaði
ekki að segja neinum frá þessu. Og
minntist ekki á það við nokkurn
mann í sjö ár. Þá væri eins og þetta
hefði ekki gerst. Það er líklega góð
leið til þess að verða geðveikur,“
segir Kristín Anna.
„Ég náði ekki að tengja við ferlið
sem við ætluðum öll að vera í. Ég var
bara ein með sjálfri mér að syrgja
þetta svolítið og hugsaði aftur og
aftur: Hvað var ég eiginlega að gera?
Ég sat mikið ein inni í eldhúsi með
gítar. Samdi lag, fór svo upp á loft og
tók það upp á kassettu. Svo kom við
maður á bát og ég stökk um borð og
skildi kassettuna eftir,“ segir hún.
Lagið á kassettunni átti eftir að
verða fyrsta lagið sem Kristín Anna
gaf út undir listamannsnafninu Kría
Brekkan. Wildering.
Hætti í múm
„Þetta var upphafið að því að ég
hætti í múm. Ég fór til New York,
þar sem vinur minn bjó. Meira til
að f lýja undan vissum hlutum og
aðstæðum en að láta ljós mitt skína.
Ég talaði ekki við neinn um það
sem var í gangi og það sem ég var að
hugsa. En ég fann fyrir því að fólk
hélt að ég væri að fara út til að hefja
sólóferil og slá í gegn. En það var
auðvitað ekki þannig. Ég ætlaði að
sanna það að ég væri sko ekki farin
til að slá í gegn. Og heldur betur var
ég ekki að leggja mig mikið fram við
það,“ segir Kristín Anna.
„Þar hélt ég áfram að semja á
píanó en gafst sjaldan tækifæri til
að f lytja lögin og það hefti mig. Ég
fór því að semja tónlist þar sem ég
þurfti ekki að nota píanó heldur alls
kyns græjur og fékkst við það sam
hliða.
Ég kom svo heim til Íslands árið
2009 og fór að gera myndlist og
gjörninga. Ég ákvað að það skipti
ekki máli að taka upp tónlist. Það
skipti bara máli að skapa og gera
persónulegar uppgötvanir sem lutu
bara að sambandi mínu við alheim
inn. En svo komst ég að því að sem
samfélagsþegn og listamaður var
ég búin að mála mig út í horn,“ segir
Kristín Anna og segir frá gjörningi
sem lýsir því vel hvað hún var orðin
einangruð.
„Ég var búin að smíða einhvern
kofa í Hjartagarðinum, þetta var á
Þorláksmessu árið 2010. Þetta var
sjálfsali; Kría Brekkan helgileikur
og pípsjó. Sat þarna inni með hita
blásara og lögg fram á miðnætti
og beið eftir því að einhver styngi
pening í rauf. Kveikti þá á eldspýtu,
svo á ljósi og f lutti lag. Þar komst
bara einn áhorfandi fyrir í einu.
Áhorfandi setti á sig heyrnartæki
og gægðist í gegnum kíki á hvolfi.
Ég hafði hlaupið aðeins upp á
Laugaveg og beðið fólk um að koma
og kíkja á verkið. Sara Riel mynd
listarkona og vinkona mín kom til
mín og varð eiginlega alveg bálreið
við mig. Hvers vegna ég væri að gera
þetta án þess að nokkur vissi. Ekki
einu sinni jólasveinn að bjóða fólk
velkomið að kíkja á!“ Rifjar Kristín
Anna upp. „En samt var þetta hug
mynd sem ég hafði verið að útfæra
í hálft ár og þegar ég vaknaði næsta
dag þá fann ég algjöra fullnægju yfir
sköpuninni. En svo fattaði ég að ég
hafði ekki einu sinni tekið mynd.
Skrásetti ekkert.
Algerlega í eigin heimi
Ég var svo upptekin af því að vera
ekki að leika leikinn, að ég var eigin
lega bara í eigin heimi.“
Er það ekki að einhverju leyti
hollt?
EN SVO KOMST ÉG AÐ ÞVÍ
AÐ SEM SAMFÉLAGSÞEGN
OG LISTAMAÐUR VAR ÉG
BÚIN AÐ MÁLA MIG ÚT Í
HORN
Kristín Anna sagði ekki nokkrum manni frá erfiðri reynslu sinni í sjö ár.
Lau. 6. apríl 14:00 Origo-höllin Valur – Haukar
Lau. 6. apríl 16:00 Framhús Fram – ÍBV
Mán. 8. apríl 18:30 Vestmannaeyjar ÍBV – Fram
Mán. 8. apríl 20:00 Schenker-höllin Haukar – Valur
Fim. 11. apríl 18:30 Framhús Fram – ÍBV
Fim. 11. apríl 20:00 Origo-höllin Valur – Haukar
Lau. 13. apríl 13:30 Vestmannaeyjar ÍBV – Fram
Lau. 13. apríl 16:00 Schenker-höllin Haukar – Valur
Þri. 16. apríl 18:30 Framhús Fram – ÍBV
Þri. 16. apríl 20:15 Origo-höllin Valur – Haukar
ÚRSLITARIMMAN
HEFST Í DAG!
OLÍS-DEILDIN
#Olísdeildin
MÆTUM Á VÖLLINN
OG STYÐJUM OKKAR LIÐ
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25L A U G A R D A G U R 6 . A P R Í L 2 0 1 9
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
2
-2
B
A
C
2
2
C
2
-2
A
7
0
2
2
C
2
-2
9
3
4
2
2
C
2
-2
7
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K