Fréttablaðið - 06.04.2019, Side 28

Fréttablaðið - 06.04.2019, Side 28
ÉG GAT EKKI SOFIÐ, EKKI BORÐAÐ, FÉKK ALVEG HUNDRAÐ HUGMYNDIR OG VAR OFSALEGA HÁTT UPPI. Minnisleysið sem G u n n h i l d u r Una Jónsdóttir glímdi við í kjöl-far raf lostmeð-ferðarinnar er meginþráðurinn í frásögn hennar í nýrri bók, Stórar stelpur fá raflost. „Sagan fjallar um reynslu mína af andlegum veikindum sem hófust þegar ég var ung kona,“ segir Gunn- hildur Una. Hún rekur upphaf veikinda sinna til áfalls sem hún varð fyrir sem ung kona. „Þetta var í raun fyrsta áfallið í lífi mínu. Ég lenti í bílslysi og fékk mikið höfuðhögg sem hafði mikil áhrif. Ég var að læra á píanó og missti það. Ég gat ekki lengur gert sömu hluti og áður. Ég var svolítið lengi að finna mér farveg aftur,“ segir Gunnhildur. Fyrstu merki veikindanna Fyrsta einkenni geðhvarfasýkinnar var líklega djúpt þunglyndi sem hún fann fyrir einn veturinn og strax næsta vetur á eftir telur Gunnhildur að hún hafi farið í fyrstu maníuna. „Þetta stendur beinlínis ekki í sjúkraskýrslum um mig en ég man vel eftir þessum tíma. Ég varð svo þunglynd að ég gat ekki farið út úr húsi. Þarna bjó ég ein og var barn- laus. Ég hætti að mæta í skólann og lokaði mig af. Ég talaði við Margréti Blöndal geðhjúkrunarfræðing sem reyndist mér vel. Næsta vetur var ég á fyrsta ári mínu í Listaháskólanum og ég held að þá hafi ég farið í mína fyrstu maníu. Ég gat ekki sofið, ekki borð- að, fékk alveg hundrað hugmyndir og var ofsalega hátt uppi. Ég hringdi þá í Margréti sem benti mér á lækni til að tala við út af svefnleysinu. Ég fékk svefnlyf sem virkuðu náttúru- lega ekki neitt. Það er svo mikill kraftur í maníunni að þegar maður er kominn hátt upp er erfitt að lyfja það niður,“ segir Gunnhildur. Ég fékk tíma hjá þessum lækni og hann gaf mér lauslega greiningu. Ég gæti verið með geðhvarfasýki. Hann sagðist myndu vilja sjá hvernig þetta þróaðist í lífi mínu. En þegar ég er spurð hvenær ég hafi verið greind, þá lít ég til baka til þessa tíma,“ segir Gunnhildur sem hefur nú tekist á við erfið veikindi undan- farinn áratug. Gunnhildur eignaðist frumburð sinn að verða 31 árs gömul og varð svolítið þunglynd í kjölfarið. „Þá var ég á leiðinni í meistaranámið mitt. Við fluttum til Ameríku og þetta var krefjandi nám. Ég stundaði nám í f lottum tækniháskóla sem var með flotta listadeild. Maður var eins og í öðrum heimi í þessum háskóla og pressan var ofsalega mikil. Skólinn bauð þessa vegna upp á fría sál- fræðitíma fyrir nemendur sem ég sótti. Sálfræðingurinn kenndi mér dýrmæta lexíu. Hún sagði við mig; þú verður að læra það sem við köllum á ensku: Good enough! Hún sagði mér að ef ég væri að bíða eftir því sem skólinn segði mér að væri nógu gott, þá myndi ég aldrei fá svar. „Því þetta er þannig skóli, þetta er hola sem verður aldrei fyllt.“ Ég reyndi að fylgja þessu ráði og byrjaði að læra að setja sjálfri mér mörk.“ Minni markmið eru holl Þegar hún lagðist fyrst inn á geð- deild Landspítalans var hún í dokt- orsnámi í myndlist og menntunar- fræðum en þurfti að hætta námi. Veikindin voru of krefjandi og móðurhlutverkið þurfti meira rými enda er Gunnhildur einstæð móðir þriggja barna. „Það hafa alltaf liðið svolítið stuttir tímar á milli innlagna hjá mér. En ég er smám saman að kom- ast í betra form. Hluti af því er að vera ekki alltaf með þessi fáránlega bjartsýnu markmið. Heldur smærri markmið, eins og til dæmis: Í dag ætla ég að eiga mjólk í kaffið. Þá er dagurinn bara frábær! Missti minnið eftir raflost Gunnhildur Una Jónsdóttir lýsir reynslu sinni af raflostmeðferðum sem hún fór í á Landspítalanum. Hún glímdi við djúpt þunglyndi og meðferðin átti að kippa henni upp, hratt og örugglega. Eftir meðferðina missti hún bæði minni og færni til að gera einföldustu hluti eins og að kaupa inn mat. Gunnhildur Una gefur út bókina, Stórar stelpur fá raflost. Í henni gerir hún upp andleg veikindi og meðferð við þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ég var að kenna námskeið nú í vetur, sem heitir Batasögur, með Hrannari Jónssyni í Bataskól- anum sem er á vegum Geðhjálpar og Reykjavíkurborgar. Og ég var að segja nemendum þar að mér fyndist að þeim mun minni mark- mið sem maður setti sér, þeim mun hamingjusamari yrði maður. Þann- ig hefur mín upplifun verið. Af því að samfélagið okkar setur svo miklar kröfur á okkur. Þær dynja á okkur, þú átt að vera svo frábær og dugleg og ná svo langt. Ég held að það sé ofsalega dýrmætt að átta sig á því að við getum ekki kollvarpað samfélaginu, en í okkar persónulega í lífi getum við unnið á móti þessu. Með því að segja: Já, ég ætla bara að hafa lítil markmið fyrir mig. Ég vel þetta fyrir mig,“ segir Gunnhildur og segist einnig afar heppin því hún eigi gott bakland. „Þó að ég sé ein með börnin og eigi sjaldan pening þá hefur mér samt tekist ýmislegt. Ég gat sett þau í tón- listarskóla, stundum hef ég þurft að Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 4 -2 0 1 9 0 8 :1 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C 2 -1 2 F C 2 2 C 2 -1 1 C 0 2 2 C 2 -1 0 8 4 2 2 C 2 -0 F 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.