Fréttablaðið - 06.04.2019, Qupperneq 38
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Sítrónur eru frábært hráefni í matargerð enda hægt að nýta þær á ótal vegu. Þær henta
vel í ýmsa kalda og heita drykki,
eru frábærar með sjávarfangi, setja
skemmtilegan svip á baksturinn
og fríska upp á sósurnar. Þær eru
auk þess stútfullar af B- og C-víta-
míni og ódýrar í þokkabót. Hér
koma nokkrar einfaldar, bragð-
góðar og skemmtilegar uppskriftir
sem flestir ættu að gera spreytt
sig á.
Sítrónukartöflur
Meðlæti fyrir 6
Einfaldur og frískandi kartöflu-
réttur sem fer vel með flestum
kjöt- og fiskréttum.
8-10 stórar kartöflur, skornar í
hæfilega munnbita
Safi úr lítilli sítrónu
2 msk. olía
¼ tsk. salt
¼ tsk. svartur pipar
¼ tsk. hvítlauksduft
½ tsk. óreganó
½ tsk. timían
½ tsk. þurrkað rósmarín
Hvítlauksgeirar, pressaðir
Hitið ofn í 190 gráður og hitið með
á sama tíma hreina ofnskúffu.
Sjóðið kartöflubitana í léttsöltuðu
vatni í 5 mínútur. Hellið vatninu
og þerrið bitana lítillega. Öllu öðru
hráefni er hellt í stóra skál og hrært
saman. Bætið kartöflubitunum
út í og hrærið vel saman. Dreifið
kartöflubitum á heita ofnskúffuna
og bakið í ofni í eina klukkustund.
Snúið bitunum á 20 mín. fresti svo
þeir brúnist jafnt. Tilvalið er að
strá yfir smátt saxaðri steinselju
eða graslauk áður en borið er fram.
Spínat með sítrónu og
hvítlauk
Meðlæti fyrir 2
Frábært meðlæti með flestum fisk-
og kjötréttum.
280 g ferskt spínat (um 12 bollar)
1 msk. olía
3 hvítlauksgeirar, pressaðir eða
skornir í þunnar sneiðar
Börkur af 1 sítrónu
1 msk. sítrónusafi
Salt og svartur pipar
Chilli-flögur (má sleppa)
Hitið olíu og hvítlauk á stórri
pönnu við miðlungshita. Steikið
stutta stund eða þar til hvítlaukur-
inn mýkist. Bætið næst spínatinu
út á. Hrærið af og til svo það
mýkist allt upp. Saltið og piprið
eftir smekk og bætið við chilli-
flögum ef þið viljið. Að lokum er
sítrónuberkinum og sítrónusaf-
anum bætt út í og hrært saman við.
Berið fram.
Sítrónusmjör með fiski
Fyrir 2
Þetta ljúffenga sítrónusmjör inni-
heldur aðeins tvö hráefni; sítrónu
og smjör. Lykillinn hér er að brúna
smjörið í upphafi. Það passar virki-
lega vel með t.d. steiktum fiski.
60 g smjör
1 msk. sítrónusafi
Bræðið smjörið á ljósri pönnu
eða potti (það er erfiðara að
fylgjast með bráðnuðu smjörinu
á dökkri pönnu). Hrærið rólega
þar til froðan hefur breytt um lit
og verður karamellulituð (um 3
mín.). Á þessu stigi ættuð þið að
finna öðruvísi lykt af smjörinu
sem minnir á ristaðar hnetur.
Hellið smjörinu í skál, líka dökku
skáninni sem er á botninum.
Hellið sítrónusafanum út í og
saltið og piprið lítillega.
Blandið saman hveiti, salti og
pipar. Veltið fiskinum (t.d. rauð-
sprettu eða þorskhnakka) upp úr
blöndunni og steikið upp úr olíu.
Þegar fiskurinn er tilbúinn er hann
settur á disk og sítrónusmjörinu
hellt yfir ásamt smátt saxaðri
Sítrónur fríska upp á matargerðina
Gular og ferskar sítrónurnar minna óneitanlega á sumarið sem er rétt handan við hornið. Hægt
er að elda alls kyns rétti, stóra og smáa, úr sítrónum og þeir þurfa alls ekki að vera flóknir.
Geggjað sítrónusmjörið er dásamlegt með fiski.
Sítrónu-
kartöflur eru
einfaldur og
frískandi kart-
öfluréttur.
Spínat með sítrónu og hvítlauk er
frábært meðlæti með flestum fisk-
og kjötréttum.
LANDSBYGGÐIRNAR
Föstudaginn 10. maí gefur Fréttablaðið út sérblaðið Landsbyggðirnar.
Í þessu skemmtilega blaði er fjallað um byggðir landsins utan
höfuðborgarsvæðisins. Fjallað er um t.d. byggðaþróun, búsetukosti,
atvinnutækifæri, menntamöguleika og ferðaþjónustu á landsbyggðinni.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Jóhann Waage sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5656 / johannwaage@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fer st vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minni gunn um aldur og ævi.
Tryg u þér gott uglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
steinselju. Ofnsteikt rótargræn-
meti fer vel með þessum rétti.
Spagettí með sítrónum
og spínati
Fyrir 2
Ferskur og léttur réttur, tilvalinn
á virku kvöld eða sem fljótlegur
helgarréttur
1 laukur, smátt saxaður
3 hvítlauksgeirar, pressaðir
2½ bolli grænmetissoð
1 bolli kókosmjólk
250 g spagettí
3 bollar spínat
Sítrónusafi úr ½ sítrónu
1 tsk. sítrónubörkur
Salt og pipar
Chilli-flögur
Notið stóran pott til að steikja
laukinn upp úr olíu í 3 mínútur,
eða þar til hann er orðinn mjúkur.
Bætið hvítlauknum út í og steikið
í aðra mínútu. Bætið út í ósoðnu
spagettíinu, kókosmjólkinni og
sítrónusafanum. Hrærið af og til og
þrýstið spagettíinu ofan í vökvann
þegar það er orðið nægilega mjúkt.
Sjóðið í 15-18 mínútur eða þar til
spagettíið er tilbúið. Þá er spínat-
inu og sítrónuberkinum bætt út í.
Sjóðið í 2 mínútur og smakkið til
með salti, pipar og chilli-flögum.
Berið strax fram.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
6
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:1
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
2
-5
D
0
C
2
2
C
2
-5
B
D
0
2
2
C
2
-5
A
9
4
2
2
C
2
-5
9
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
5
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K