Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Page 8
byggja ðli íbúðarhús í kaupstöðum og aila baeí til sveita, sem
bygðir hafa verið á þessum árum, úr íslenzku grjóti eða steini.
Hvers vegna það hefur ekki verið gert, er atriði, sem alþýða
mætti vel íhuga.
Að hús, bygð úr íslenzkum steini, nl. höggnu grágrýti óg
höggnum sandsteini, gosbrendum eða óbrendum, móbergi,
hraungrýti og blágrýti hamarsniðnu, séu fult eins hreinleg og
falleg útlits og geti orðið fult eins hlý, já hlýrri en timbur-
húsin og steinsteypu húsin eru, og langtum varaniegri en
timburhúsin og ódýrari en steinsteypuhúsin, held eg ekki örð-
ugt að sanna né að sannfsera menn um, þó að steinhúsin séu
byggð með tvöföldum veggjum, ef hagsýnir og góðir verk-
menn byggja og vinnan er ekki óþarflega dýr. Hér norðan-
lands má benda á fáeina bæi, sem bygðir eru úr móbergi,
hraungrýti, grágrýti og brunnum sandsteini. T. d. er bærinn
Pverá í Laxárdal, bygður úr móbergi, svo einnig Grenjaðar-
staður að nokkru ieyti, bærinn Svartárkot í Bárðardal úr hraun-
grýti, en bærinn Stóruvellir í Bárðardal úr höggnum grásteini,
Rreykjahlíðarkyrkja við Mývatn er bygð úr hraungrýti, hin
þjóðfræga Hólakyrkja í Hjaltada! úr gosbrendum sandsteini ög
loks, ein hin fegursta kyrkja hér norðanlands, nl. kyrkjan á
Pingeyrum í Húnavatnssýsiu, úr hamar-sniðnu blágrýti, og
— ekki að gleyma — eitt hús hér á Oddeyrinni, prentsmiðjuhús
Björns sáluga Jónssonar, éinnig úr hamarsniðnu blágrýti.
Eru steinarnir i því límdir með múrlími og lítur húsið út nú
sem nýbygt væri, þó bygt sé fyrir 30 árum síðan. Hús, bygð
úr aiíslenzkum steini, líkt og ofangreind hús, nl. höggnu grá-
grýti eða sandsteini, meitluðu móbergi eða hraungrýti, eða
hamarsniðnu blágrýti, með tvöföldum veggjum t. d. l-f-’Ai-f-l
fet á þykt, eða þar um bil, með góðu tróði á milli, verða fult
eins hlý og beztu timburhús eða steinsteypuhús, varaníegri
en timburhús og ódýrari en steinsteypuhús. Það byggingar-
efni sem ísland skortir mest, er kalkið; en fyrst um sinn má
vinna kalk úr þcim kalksteins námum, sem finnast í Esjunni
og vestanvert við Djúpafjörð í Barðastrandasýslu. Úr þeim