Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Blaðsíða 13

Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Blaðsíða 13
13 hörku og burðarþol steina með því að setja plðtur af gefinni stærð steinsins, er reyna skyldi, í skrúfstykki og mæla svo afl- ið, sem þurfti til að brjóta og kremja hann sundur. Reyndi burðarafl gráa steinsins frá Tjörnesi þannig (sbr. 18. bls. V. h. Fylkis). Hitt held eg óþarfara og ekki eins áríðandi, að al- þýða reyni að skilja ut í æsar hina kemisku samsetningu steina, til þess að geta notað þá. Pað verk er vísindanna frem- ur en verkmannsins. Og þó efni íslenzkra steina sé of marg- víslegt og margvíslega samsett, til þess að þeir séu allir jafn varanlegir og útlendir steinar af einfaldari og beztu sam- setningu, þá eru svo mikiar gnægtir til af ágætum íslenzkum steintegundum, að ekki þarf að óttast skort á byggingarefni fyrir allar þær byggingar, sem bygðar verða hér á landi, þó íbúar þess verði þrítugfalt til sextugfalt fleiri, en þeir eru nú, ef menn aðeins kanna að vinna úr því. Mér þykir annars mjög vænt um að sjá eina efna uppleysingu af einni steintegund, sem höf. hefur gert s.l. vetur, og eg óska að höf. geri fleiri rannsóknir á algengustu steintegundum íslands, einkum þeim, sem eg hefi sent til Reykjavíkur og gefi álit sitt um nothæfi þeirra, t. d. gráa steinsins frá Tjörnesi, sem eg held vel nýti- legan í húsabyggingar, brimbrjóta, bryggjur, o. s. frv., og einnig hve mikið kalk finst í ýmsum leirtegundum, sem eg hef s6nt þangað, svo að bæði þing og þjóð fái að sjá ein- hvern verulegan árangur af öllum þessum steinaleitum mínum og steinarannsóknum Reykjavíkur efnarannsóknar stofúrinar, og og verði einhverju nær í því mikilvæga spursmáli: nvernig má bezt vinna kalk til bygginga og nota steintegundirnar, sem hér eru hvarvetna að sjá og hvarvctna fyrir hendi?* Purfi fáeina tugi þúsunda til rannsókna og kalkbrenslu-til- rauna, þá ætti það ekki að þurfa að gera landið fremur gjald- þrota en það er, né heldur verða útundan eða »sitja á hakan- um«, svo framt trúverðir menn standa fyrir verkinu. Sjálfur hef eg ekki getað, peningaleysis vegna, hvorki útvegað mér nauðsynleg áhöld til rannsókna né ferðast um landið og safn- að og skoðað það nægilega, néeins ogég hef viijað. Ei heldur

x

Ásrún : fylgiblað Fylkis

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásrún : fylgiblað Fylkis
https://timarit.is/publication/1321

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.