Ásrún : fylgiblað Fylkis

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Qupperneq 11

Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Qupperneq 11
11 eða þá í grendinni á þeim stöðum, sem kalkbrenslan á að fara fram, verði bygðir. Margir vita að ísland er eldmyndað, svo að segja ein eld- hraunadyngja, hlaðin úr stuðlabergi, hraungrýti, gosösku og vikursandi, jökulþakin hið efra, en grasivaxin með ströndum fram og í dölum; en færri vita að það er ríkt, já svo ríkt af ágætum byggingarsteini, að menn þyrftu mjög lítin trjávið að kaupa frá útlöndum, ef þeir kynnu að nota steintegundir ís- lands vel. Fáfræði manna í þessu efni er því furðanlegri sem þörfin er mikil og íslendingar eru ekki yfirleitt óverklægnir né ónámfúsir menn. Örfáar bækur, sem nokkurt verulegt gagn er að, í þvi, er snertir steinsmíði og nákvæma þekkingu á steiníegundum, eru énn til á íslenzku máli, og lítið er á öðrum málum hér á landi að finna. Fáeinar ágætar ritgerðir má þó lesa snertandi steinvinnu og bæabyggingar í ritum Lærdóms-lista Félags- ins, útgefnum fyrir lok 18. aldar. Pannig er ein ritgerð þar um bæabyggingar hér á íslandi, einkum smábæa, og önnur um kletta sprengingar. Mælir höfundur fyrri ritgerðarinnar með því að nota torf sem allra mest og haganlegast, vegna þess að það sé ódýrast og hlýast; hinnar með því, að byggja úr grjóti, hamarsniðnu, þó ekki ætið höggnu, vegna þess' að steinhús séu svo miklu varanlegri en torfhúsin, en, þar sem kalk sé örðugt að vinna hér á landi, leggur höfundur það til, að smiðjumór, hrærður út í vatni og blandaður með upptætt- um sverði, sé notaður til að fylla upp bilið á milli steinanna, og slétta veggina að utan.— Ágæt ritgerð um kalkverkun eink- anlega á Pýzkalandi og Hollandi er í IX. hefti ofan nefndra rita útgefnu 1789. Segir höf., hinn þjóðkunni Sveinn Pálsson, að brenna megi kalkstein í kringlóttum gryfjum, 3 — 4 fet á dýpt 6 — 8 fet á vídd; skuli gryfjurnar hlaðnar innan með leirkítt- uðum steinum, sem nái eitt fet upp yfir jarðflötinn; hlóðir séu á miðjum botni. Kalksteininum og eldiviðnum sé hlaðið hringinn í kring um hlóðirnar, upp með veggjunum, sitt lag- ið af hvoru, þar til kúfar upp af gryfjunni, þó ekki svo að

x

Ásrún : fylgiblað Fylkis

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásrún : fylgiblað Fylkis
https://timarit.is/publication/1321

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.