Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Side 24

Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Side 24
24 nl, 21:100; eti 21% af 42278 þús. kr. (verðhæð útfl. vara árin 1895 til 1900) —&&I8V2 þús. kr. (sbr. 11. bls. Vsk. 1913). En á árunum 1901 til 1903, námu útfl. landafurðir 5772 þús. kr. (sbr. 20. bls. Vsk. ár 1913). Hafa því útfl. landafurðir á árunum 1895 til 1903 numið 1445V2 þús. kr., eða um 14‘/2 millión kr. En frá 1895 til 1914 um 52 million kr.=2% million kr. á ári til jafnaðar. Á stríðsárunum 1915 til 1918 námu útfl. landafurðir 32% million kr., þ. e. 8 miliion kr. á ári. Frá 1895 til 1918 hafa því útfl. landafurðir numið 84lh million kr. Á siðustu þrem árum, hafa útfl. landafurðir ekki numið minnu en 6 til 7 miliion kr. ári til jafnaðar, þ. e. alls 18 til 20 million kr. Hærri talau rnun nærri réttu. Má þvi óhætt fullyrða, að siðan 1895 hafi verð- hœð útfl. aýurða numið 100 til 106 million kr. Auk ofangreindra landafurða, er dúntekja og fuglaveiði á landi (t. d. Drangéy og Vestmanneyjum) og af dún hefur verið flutt til útlanda allt að 73 þús. kr. virði á ári, lægsí um 12 þús kr. Má því ætla, að síðan 1895 hafi verið flutt til útlanda af dún, fyrir meira en rnillion, svo að alls nemi útfl. landafurðir á þessu timabili allt að 107 million kr. Þetta hafa bænd- ur og jarðyrkjumenn yfirleitt, látið tún og engjar, holt og heiðar fslands gefa af sér, auk þess að fæða sig og sína, nl. um 10 til 12 þús. framtelj- endur (þ. e. þá sem nokkurn búpening eiga) þar af 6500 til 7000 bændur og 3500 tii 4000 þurrabúðarmenn, þ. e. 60 til 70 þús. manns og til að afla sér þessara fjármuna hafa landsbúar ekki keypt frá útlöndum meir en sem svarar 150 til 160 þús. kr. virði á ári, til jafnaðar, nl. jarðyrkjuáhöld (plóga, herfi, sláttuvélar, útlendan áburð, útsæði o. s. frv.), verðhæð, sem nemur ekki meira en einum hundraðasta af verði útfl. vara, né yfir 4lh million kr. síðustu 27 árin. Árin 1914 tii 1916, námu aðfluttar vörur til landbúnaðar þarfa 0.4% til 1V2 °/o af öllum aðfluttum vörum, þ. e, 0.8% til jafnaðar af verði aðfluttra vara, á þeim þremur árum. Geri maður ráð fyrir að landsmenn hafi ekki keypt frá útlöndum, til landbúnaðar-þarfa, meir en þeir keyptu þau árin, þ. e. minna en 1% af verði allra aðfi. vara, þá nema þau útgjöld ekki yfir 4 'h million kr. á síðustu 27 árum. Að öllu athuguðu má fullyrða að Iandbúnaðurinn sé lang vissasti at- vinnuvegurinn, sem^íbúar þessa Iands geta stundað og eigi langmésta framtíð, því enn má rækta allt að 100 sinnum meira land, en búið er að rœkta, þrált fyrir allar jarðabæturnar á síðustu árum. Sveitabóndinn er enn aðal stólpi þjóðbúnaðarins og þjóðfélagsins hér á íslandi sem erlend- is og landbúnaðuriun helzta athvarfið þegar á reynir.

x

Ásrún : fylgiblað Fylkis

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásrún : fylgiblað Fylkis
https://timarit.is/publication/1321

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.