Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Blaðsíða 31

Ásrún : fylgiblað Fylkis - 30.11.1921, Blaðsíða 31
31 Petta sýnir hve mikið hefur verið flutt inn í landið, á þessum 30 árum, af ofangreindum munaðarvörum; nl: af kaffi 17 miilion 722 þús. kg. rúml. eða 17 þús. og næstum 723 smálestir; af sykri 67% miilion kg, eða 67 þús. 668 smálestir; af tóbaki, 3 million og 13 þús. kg., eða 3013 smálest- ir; af öii, 8 million 150 þús. lítrar eða pt. eða 8150 smáiestir; af brenni- víni og vínanda 6 million 661 þús. lítrar eða 6661 smálestir; af öðrum vín- urn, 1 million 384 þús. lítrar eða 1384 smálestir. Neyzlan á mann og vöxtur hennar á þessu tímabili, sézt á eftirf. töblu: v Neyzla á mann. Ár. Kg. Kg. Kg. Lítr. Litr. Litr. (pt.) 1891—’95 4.3 11.2 1.2 2.1 4.3 0.8 1896—1900 5.1 14.9 1.3 2.4 4.1 0.8 1901—'05 6.3 20.5 1.3 3.3 3.2 0.7 1906—'10 6.3 24.0 1.1 4.2 2.6 0.6 1911—’15 6.0 28.5 1.1 3.0 1.7 0.5 1915 7.1 32.9 1.3 2.6 0.2 0.0 1916 7.7 26.7 1.4 3.6 0.2 0.1 Kaffi-neyzlan hefur næstum tvöfaldast, á þessum 26 árum og sykur- nevslan meir en tvöfaldast. ÖI-drykkja aukist yfir 70°/o, sykur-neyzlan er dæmafá nema á Englandi og Hollandi. Reikni menn verðið af þessum vörutegundum, geta menn séð að verðh. þessara munaðarvara, nemur á síðustu 27 árurn, með innkaupsverði, 60 miliionum kr., líkl. meiru; en með útsöluverði, nemur verðhæð þeirra yfir 100 million kr., iíklega 110 til 120 millión kr., ef allar aðfi. munaðarvörur, á þessu síðasta ári eru með taldar ásamt þeim peningum, sem farið hafa til áfengiskaupa á laun eða á bak við bannlögin. Fyrir það fé, sem farið hefur fyrir þessar vörur eínar, á síðustu 27—30 árum, hefði mátt leggja járnbraut þvert yfir fsland frá Borgarfirði til Akureyrar (áætlaða á 40 milliónir kr.) og beizla, eða vírkja, Jökulsá (n.l. Dettifoss og næstu fossa) eða Þjórsá, og rafhita og lýsa hvert einasla heimili á landinu, ætlandi hverju heimili eitt hestafl rafmagns á mann til jafnaðar, á notkunar stað. En hvað sem því líður, þá hafa landsmenn tekið svo nemur yfir 100 million kr. frá sjálfum sér, og fleygt þeim svo gott sem í eldimn og sjóinn, heldur en að verja þeim til nytsamra fyrirtækja, verklegra og vísindalegra, sem gætu komið þeim sjálfum og uppvaxandi kynslóð að notum. 1

x

Ásrún : fylgiblað Fylkis

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásrún : fylgiblað Fylkis
https://timarit.is/publication/1321

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.