Fréttablaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@
frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr
Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Það er óhætt að segja að tónlistarmaðurinn Karl Olgeirsson sé senuþjófur
sýningarinnar Einæðisherrann
sem Þjóðleikhúsið frumsýndi fyrr
í vetur en þar sér hann um tón-
listarstjórn, píanóleik og leikhljóð
með eftirminnilegum hætti. „Þetta
er búið að vera ótrúlega skemmti-
legt ferli því utan þess að spila á
píanó á sviðinu allan tímann er ég
líka að gera áhrifahljóð. Ég er því
einn af leikurunum því tímasetn-
ingar mínar hafa áhrif á leikarana
og tímasetningar þeirra á mig. Svo
elska ég Chaplin eins og svo margir
og leikhópurinn er skipaður
tómum snillingum.“
Næg verkefni
Utan Einræðisherrans er Karl
á fullu í alls konar verkefnum.
„Síðasta haust var ég að fylgja
plötu minni og nótnabók úr hlaði.
Um miðjan febrúar fæddist dóttir
mín og það hefur nú aldeilis sett
svip á lífið. Svo féllu mér Íslensku
tónlistarverðlaunin í skaut sem
lagahöfundur ársins og fyrir
plötu ársins í djassflokki sem gaf
plötunni og nótnabókinni byr
undir báða vængi. Ég er að vinna
í plötu með Jóhanni Helgasyni,
undirbúa næsta leikverkefni í
Þjóðleikhúsinu og að semja lög
með orgeltríóinu mínu þannig að
það er í mörg horn að líta.“ Og það
er engin lognmolla fram undan.
„Ég held litla tónleika í Þjóðleik-
húskjallaranum 17. maí þar sem ég
ætla að flytja þessa fjórtán djass-
söngva sem fengu tónlistarverð-
launin ásamt Siggu Thorlacius, Jóel
Pálssyni og Togga Jóns. Síðan fer ég
til Hong Kong að sýna Hróa Hött
með Vesturporti og svo ætlum við
Sigga Eyrún, unnusta mín, að láta
gefa okkur saman í lok júlí. Þetta
verður því sannarlega spennandi
vor og sumar hjá mér.“
Dettur í karakter
Hann segir gaman að klæða sig í
karakterinn sem hann ætli að vera
þá stundina. „Ég hef t.d. gaman af
stílnum sem ég kalla New York-
djassarann sem er svört hettu-
peysa undir frakka eða jakka,
gallabuxur og Puma-skór. Annars
hef ég nánast búið í 66°N-úlpunni
minni í vetur. Hún er vegan, það
er ekki dúnn í henni heldur eitt-
hvert snilldarefni sem ég þekki
ekki. Hún er létt en hlý og hentar
á breiðu hitastigi. Hún hefur líka
ýmis hólf þar sem ég geymi gler-
augu og vaktarahúfu og annað sem
ég kynni að nota.“
Hvernig hefur tískuáhugi þinn
þróast?
Ég hef alltaf verið svag fyrir
dýrari merkjum en eignast þau
yfirleitt sjaldan nema í gegnum
útsölur eða á mörkuðum með
notuð föt. Áþreifanlegasta þróunin
hjá mér er samt pork pie-hatturinn
sem ég uppgötvaði fyrir tilviljun
á Portobello Road í London fyrir
nokkrum árum. Mér var kalt á
hausnum og var að leita að six-
pensara sem hefur verið hatta-
týpan mín en sölumanni tókst að
selja mér pork pie-hatt sem fór mér
ansi vel. Síðan þá hef ég sankað að
mér slíkum höttum þegar ég hef
verið á ferðalögum í útlöndum.
Hvernig fylgist þú með tískunni?
Ég fylgist ekki með tísku nema
með öðru auganu. Auðvitað sé ég
greinar um hvað verði inni og úti
hverju sinni en ég stekk ekkert út
á sloppnum að ná mér í röndótta
skyrtu þótt verið sé að mæla með
því. Það er frekar að ég sjái ein-
hvern af tónlistarmönnunum sem
ég ber virðingu fyrir klæða sig á
einn eða annan hátt og fái hug-
myndir þaðan.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Margar af mínum uppáhalds-
flíkum hef ég fengið í Herragarð-
inum en ég er sökker fyrir Sand og
Bugatti. Annars reyni ég að hafa
augun opin hvar sem ég fer.
Hvaða litir eru í uppáhaldi?
Ég elska liti en oftast finnst mér
dökkir litir fara mér best. Ég á
reyndar töluvert af bláum jökkum
einhverra hluta vegna. Það er
gaman að skera sig úr á sviði en ég
nota þá gjarnan skrautlega skó og
hatta til þess.
Áttu minningar um gömul tísku-
slys?
Um 1990 sá ég tónlistarmynd-
band með Prince sem klæddist
þar geggjuðum gulum jakka. Ég
óskaði mér slíks jakka í jólagjöf
og fékk einn appelsínugulan sem
ég var mjög kátur með. Seinna
var ég að spóka mig í honum og
hitti Pál Óskar á gangi á Laugaveg-
inum. „Ert þú byrjaður að klæða
þig svona?“ spurði hann forviða.
Ég veit ekki ennþá hvað hann
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
J. Philipp-vestið sem Karl klæðist hér segir hann vera nánast eins og smókingjakka. Þegar skyrtuermarnar fara upp
fyrir flúrið losar Karl gjarnan um slaufuna. Röndóttu jakkafatabuxurnar eru frá Filippu K, keyptar í Rauðakrossbúð.
Svörtu Puma-skórnir gera heildarútlitið afslappað. Pork pie-hatturinn er Bugatti, keyptur í Vinnufatabúðinni.
Sand-frakkinn er úr Herragarðinum og silfurskórnir frá Adidas. Hatturinn
er fyrsti pork pie-hattur Karls, keyptur í London fyrir nokkrum árum.
Seinna var ég að
spóka mig í honum
og hitti Pál Óskar á gangi
á Laugaveginum. „Ert þú
byrjaður að klæða þig
svona?“ spurði hann
forviða. Ég veit ekki
ennþá hvað hann meinti.
Framhald af forsíðu ➛
meinti. Svo benti mér einhver á
að Spaugstofan væri með einmitt
svona jakka sem einkennisbúning
í sjónvarpinu. Þá lagði ég mínum
loksins.
Hvaða f lík hefur þú átt lengst og
notar enn þá?
Ég á æðislegan Bugatti-frakka
sem er léttur, fínn og grófur á
stílíseraðan hátt. Hann er orðinn
ansi slitinn en verður bara svalari
með árunum. Ætli hann sé ekki
hvað elstur í safninu.
Áttu þér uppáhaldsverslanir?
Það er hattabúð í Berlín sem ég
hlakka til að heimsækja aftur. Zara
á Champs-Élysées í París er með
mikið af sviðsklæðum sem ég hef
ekki séð í öðrum Zörum. Að vísu
eru númerin heldur lítil þar …
Áttu þér uppáhaldsf lík?
Ég hef oft átt f líkur sem ég hef
tekið ástfóstri við, t.d. peysur,
silkiskyrtur, skó og frakka. En
í augnablikinu er engin flík í
heiðurssætinu.
Bestu og verstu fatakaupin?
Bestu kaupin eru Filippa
K-jakkaföt sem ég fann í Rauða
krossinum í Lundi nánast gefins og
alveg ónotuð. Ég hef oft keypt föt
númeri of lítil sem ég hef ætlað að
minnka niður í. Það eru án undan-
tekninga slæm kaup.
Notar þú fylgihluti?
Ég er nýbúinn að fá mér geggjuð
gleraugu frá Barton Perreira sem
gera mig að betri manni. Svo hef
ég hugsað mér að ganga með hring
eftir brúðkaupið í sumar!
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
8
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
6
-6
9
9
4
2
2
D
6
-6
8
5
8
2
2
D
6
-6
7
1
C
2
2
D
6
-6
5
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
1
7
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K