Fréttablaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 15
Buenos Aires – Sem ég gekk inn í tangó-klúbbinn hér í Buenos Aires fyrir allmörgum árum, þá blasti þar við mér í móttökunni risavaxið gljáandi olíumálverk með þverhandar- þykkum gullramma. Á mynd- inni voru tveir gleiðbrosandi miðaldra menn. Annan þekkti ég strax, Carlos Menem forseta Argentínu 1989-1999. Hann var auðþekktur af helztu höfuð- prýði sinni, miklum börtum sem minntu einna helzt á myndir af séra Matthíasi Jochumssyni. Hinn reyndist vera eigandinn sem stóð sjálfur í miðasölunni og seldi mér aðgöngumiða á 50 pesóa. Ég átti ekkert smærra en 100 pesóa sem jafngiltu þá 100 Bandaríkjadölum. Hann gaf mér 50 til baka. Tangósýningin var svellandi fín. Sækjast sér um líkir Morguninn eftir fór ég út að kaupa mér dagblað og bað manninn í blaðsöluturninum afsökunar á að ég skyldi ekki eiga neitt smærra en þennan 50 pesóa seðil sem ég hafði fengið til baka kvöldið áður. Hann skilaði mér seðlinum aftur og sagði: Þetta eru 50 ástralar, þessir seðlar voru teknir úr umferð fyrir löngu. Ekki veit ég hvernig fór fyrir eig- anda klúbbsins sem hafði af hent mér úreltan seðil, en Carlos Menem var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi 2015 fyrir fjárdrátt. Efnahagsráðherrann og dómsmálaráðherrann í stjórn hans fengu þrjú ár hvor fyrir aðild að sama broti. Áður hafði forsetinn fv. þurft að greiða sekt fyrir mútuþægni. Það var hann sem hafði löngu fyrr náðað og leyst úr haldi herforingjana sem höfðu myrt þúsundir óbreyttra borgara og ráðizt á Falklands- eyjar. Þannig er Argentína. Stundum er stórlöxunum sleppt. Stundum þurfa þeir að sæta ábyrgð. Perón og Evita Argentína var ríkasta land heims árin fyrir aldamótin 1900 og hélzt í hópi ríkustu landa fram til 1930 þegar Kreppan mikla setti strik í reikninginn með því að taka fyrir kjötútf lutning frá Arg- entínu. Herinn ruddist til valda. Eftir það tók að halla undan fæti. Juan Perón var forseti Arg- entínu og einræðisherra 1946- 1955. Hann bar kápuna á báðum öxlum. Hann var fv. herforingi og hermálaráðherra, greiddi götu þýzkra stríðsglæpamanna í Arg- entínu eftir heimsstyrjöldina og talaði jafnframt máli verkalýðs- ins gegn voldugum bændum og landeigendum. Hann hrökklaðist undan andstæðingum sínum í útlegð fyrst til Venesúelu og síðan til Spánar og kom síðan heim aftur til að setjast í forsetastólinn 1973-1974, þá undir merkjum lýð- ræðis. Honum var aldrei stungið inn. Perón er þjóðsaga og það er einnig Eva, önnur eiginkona hans, sem ólst upp í sárri fátækt og talaði sig inn í hjörtu aðdá- enda sinna. Hún varð heims- fræg af söngleik Andrews Loyd Webber og Tims Rice, Evita, sem f luttur var í íslenzkri þýðingu Jónasar Friðriks Guðnasonar í Íslensku óperunni 1997. Egill Ólafsson og Andrea Gylfadóttir f luttu hlutverk forsetahjónanna. Einræði, lýðræði, spilling Eftir valdatíma Peróns og her- foringjanna héldu einræði og lýðræði áfram að dansa tangó í Argentínu í allmörg ár enn. Lýðræði komst á 1983 og hefur sú skipan staðið síðan þá þótt ekki dygði það til að kveða niður spillinguna. Eduardo Duhalde forseti Argentínu 2002-2003 sagði í viðtali við Financial Times strax eftir embættistöku sína: „Stjórn- málaforusta landsins er sjitt (hans orð, ekki mitt; stafsetning- in er skv. Orðabók Menningar- sjóðs), og ég tel sjálfan mig með.“ Alþingi sýndi af sér hliðstæða hreinskilni þegar það ályktaði einum rómi 2010 að „taka verði gagnrýni á íslenska stjórnmála- menningu alvarlega“. Hjónin Néstor Kirchner og Cristine Kirchner úr f lokki Perónista voru forsetar Argent- ínu 2003-2015, hann 2003-2007 og hún 2007-2015. Þau auðguðust ótæpilega þessi ár. Hann dó 2010. Hún fékk síðan dóm fyrir spill- ingu en gengur laus þar eð hún nýtur friðhelgi sem þingmaður. Friðhelgin hlífir henni við hand- töku en ekki saksókn. Mauricio Macri var kjörinn forseti Argentínu 2015. Nafn hans fannst í Panama-skjölunum árið eftir. Dómstóll í Buenos Aires hreinsaði hann af grun um fjárböðun 2017, en hann er ekki sloppinn því rannsókn málsins heldur áfram. Þannig er Arg- entína. Og þannig er Suður-Ameríka. Alberto Fujimori forseti Perú 1990-2000 situr inni. Lula da Silva forseti Brasilíu 2003-2010 situr einnig inni, en stuðningsmenn hans segja hann vera pólitískan fanga. Augusto Pinochet forseti Síle 1974-1990 var tjargaður, fiðr- aður og fangelsaður þótt hann slyppi of vel að margra dómi. Brot þessara manna eru ýmist efnahagsbrot eða mannréttinda- brot nema hvort tveggja sé. Gráttu mig ei, Argentína Þannig er Argentína. Stund- um er stórlöxunum sleppt. Stundum þurfa þeir að sæta ábyrgð. Þorvaldur Gylfason Í DAG Föstudagurinn langi 19. apríl kl. 17 Tónleikar – Spuni og íhugun. Norski djasstrompetleikarinn Arne Hiorth mun flytja, ásamt Sönghópnum við Tjörnina, Gunnari Gunnarssyni og Hljómsveitinni Möntru, ómþíða föstu- og íhugunartónlist í bland við spuna á orgel og trompet. FRÍKIRKJAN - FRÍKIRKJUSÖFNUÐURINN - LOGO B3 FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK Í FULLUM LITUM / TVÍLITT1 LITUR - GRÁTÓNAR 1 LITUR - STIMPLAR - GYLLING FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK Páskadagur 21. apríl kl. 9 Hátíðarguðsþjónusta á páskadagsmorgni. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir athöfnina. Hjörleifur Valsson, fiðluleikari, hljómsveitin Mantra og söng- hópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista, leiða tónlistina. Barnakórinn við Tjörnina syngur undir stjórn Birgit Djupedal. Páskaegg og messukaffi í safnaðar- heimili að guðsþjónustu lokinni. Helgihald um páskahátíðina 19.995 POLAROID MINT LJÓSMYNDAPRENTARI • Prentaðu myndirnar úr símanum á einfaldan hátt • Bluetooth og NFC, það verður ekki einfaldara • ZINK ljósmyndapappír, stærð 5,2x7,5cm 8.995 verð frá: sjáðu fleiri flottar fermingargjafir elko.is/fermingargjafir 39.995 RAZER LEIKJAVÖRUR • Vandaðar leikjavörur frá Razer • Fjölbreytt úrval í boði SAMSUNG GALAXY WATCH ACTIVE • Góður skjár með Always On Display • Vatnshelt að 50metrum, innbyggt GPS • Rafhlaða sem endist og endist • Virkar með Strava, Spotify, o.fl. forritum it A V c e G R A N D I – L I N D I R – S K E I FA N – E L K O . I S 46.995 BOSE QUIETCOMFORT 35 II • Bluetooth, NFC, 3,5mm jack • Allt að 20 klst. rafhlöðuending • Active Noise-Canceling S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F I M M T U D A G U R 1 8 . A P R Í L 2 0 1 9 1 8 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 D 6 -6 9 9 4 2 2 D 6 -6 8 5 8 2 2 D 6 -6 7 1 C 2 2 D 6 -6 5 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 7 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.