Fréttablaðið - 27.04.2019, Síða 6
HEILBRIGÐISMÁL „Listería er bakt
ería sem lifir alls staðar í umhverf
inu, það er ekkert við því að gera.
Svo getur hún komist í matvæli
og sýkt fólk, sérstaklega fólk með
undirliggjandi bælingu á ónæmis
kerfinu,“ segir Þórólfur Guðnason,
sóttvarnalæknir.
Samkvæmt tölum frá Embætti
landlæknis hafa 11 manns sýkst
af listeríu síðastliðin tvö ár sem er
nokkru meira en árin á undan. Fjór
ir létust af völdum listeríu árið 2017.
Þrír af þeim voru eldri einstaklingar
með undirliggjandi sjúkdóma. Svo
var einnig nýfætt barn sem lést
skömmu eftir fæðingu eftir að hafa
smitast í móðurkviði.
Haraldur Briem, ráðgjafi sótt
varnalæknis, segir listeríu geta
valdið blóðsýkingu, iðrasýkingu,
sýkingum í líffærum sem og mið
taugakerfi. „Þessi baktería hefur
oft tengst sjávarafurðum, hún getur
líka fundist í ógerilsneyddum osti.
Listería hefur þann eiginleika að
geta lifað af kælingu, hún er sérstök
að því leyti að hún getur fjölgað sér
í ísskáp. Flestir veikjast ekkert af
henni, en sýkingar eru alvarlegar
fyrir þá sem eru veikir fyrir.“
Bæði Þórólfur og Haraldur segja
fulla ástæðu til að vara þungaðar
konur við að neyta fisks sem er
ekki fulleldaður og einnig ógeril
sneyddra matvæla. „Það er einmitt
gert í mæðraverndinni, þunguðum
konum er ráðlagt að neyta ekki svo
leiðis matvæla. Ég veit ekki hvort
það sé gert við einstaklinga sem
eru ónæmisbældir, ég vona að það
sé gert,“ segir Þórólfur. „Þetta eru
sjaldgæfir sjúkdómar sem betur
fer. Við sjáum þetta koma í hrinum.
Kannski koma ekki upp nein til
felli í nokkur ár, svo koma ár eins
og 2017 þar sem sjö einstaklingar
sýktust.“
Í byrjun janúar veiktist kona á
fimmtugsaldri með undirliggjandi
ónæmisbælingu af listeríu. Um jólin
borðaði hún graflax sem framleidd
ur var af fyrirtækinu Ópal sjávar
fangi. Hún lést tveimur vikum síðar.
Eftirlitsmenn frá Matvælastofnun
skoðuðu framleiðslu fyrirtækisins í
lok janúar og aftur í byrjun febrúar
í kjölfar ábendingar frá Embætti
landlæknis.
Hjalti Andrason hjá MAST segir
mikilvægt að bregðast hratt við í
slíkum aðstæðum. „Í þessu tilfelli
koma niðurstöðurnar til okkar kl.
11 um morguninn 4. febrúar. Við
upplýsum fyrirtækið kl. 12 um
jákvæða greiningu listeríu í vörum
fyrirtækisins og mjög háa greiningu
í graflaxi en lággildi í birkireyktum
afurðum. Í þessu tilfelli var farið
fram á innköllun í ljósi alvarleika
málsins. Fyrirtækið brást ekki við
með innköllun,“ segir Hjalti.
„Daginn eftir var ljóst að fyrir
tækið ætlaði ekki að innkalla, þá
sendum við fyrirtækinu stjórn
valdsákvörðun og því var veittur
stuttur andmælafrestur. Fyrirtækið
féllst á að innkalla vörur af markaði
en í okkar eftirlitsskýrslu segir að
það sé alvarlegt frávik þar sem þeir
innkölluðu bara graflax.“
Samkvæmt matvælalögum er
MAST heimilt að stöðva starfsemi
að hluta eða í heild ef rökstuddur
grunur er um að matvæli séu heilsu
spillandi, óhæf til neyslu eða valdi
tjóni á öðrum hagsmunum. Ef
stjórnendur fyrirtækisins sem um
ræðir sinna ekki fyrirmælum innan
tiltekins frests getur MAST beitt
dagsektum.
„Ef það er tilefni til innköllunar
þá verður það að gerast hratt til
að tryggja öryggi neytenda. Þarna
hefði átt að innkalla strax 4. febrúar,
en við þurftum að beita stjórnvalds
ákvörðun, þess vegna var ekki farið
í innköllun fyrr en tveimur dögum
síðar,“ segir Hjalti.
Ekki var farið í allsherjarinnköll
un fyrr en 14. febrúar. „Graflaxinn
greindist með 600 frumur á hvert
gramm, en önnur af birkireyktu
vörunum greindist með 10 frumur
á gramm. Þannig að við lögðum
langmesta áherslu á innköllun
á graf laxinum, en engu að síður
fórum við fram á að allar vörur yrðu
innkallaðar. Fyrirtækið óskaði eftir
fresti til að kanna betur vörurnar
þar sem listería greindist í minni
mæli.“ Starfsstöð Ópals sjávarfangs
var hreinsuð og ný sýni tekin í kjöl
farið. 19. febrúar samþykkti MAST
dreifingu á vörum fyrirtækisins.
Þórólfur segir að mögulega sé
einhver aukning á listeríusmitum
þegar litið er til lengri tíma. „Bæði
með fjölgun einstaklinga með
ónæmisbælandi sjúkdóma, einnig
notkun á ónæmisbælandi lyfjum.
Fólk gæti líka verið að borða meira
hrámeti, til dæmis sushi eða hrátt
kjöt.“
Lítið sé hægt að gera þegar kemur
að því að vernda eldra fólk sem er
með ónæmisbælingu fyrir utan að
vara það við hættunni, þeir ein
staklingar séu þó einnig í hættu
þegar komi að öðrum sýkingum.
Þórólfur bendir á að sýklar séu úti
um allt. „Án sýkla værum við ekki
lifandi, en það eru vissulega sýklar
sem eru óæskilegir og valda svona
alvarlegum sýkingum. Við megum
samt ekki deyja úr sýklahræðslu.“
arib@frettabladid.is
Þetta eru sjaldgæfir
sjúkdómar sem
betur fer. Við sjáum þetta
koma í hrinum. Kannski
koma ekki upp nein tilfelli í
nokkur ár, svo koma ár eins
og 2017 þar sem sjö einstakl-
ingar sýktust.
Þórólfur
Guðnason
sóttvarnalæknir.
Hringdu í 907 2003 og gefðu 2500 kr.
eða upphæð að eigin vali á framlag.is
Stúlkan á myndinni tekur þátt í verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Kampala
í Úganda. Nafnið er ekki hennar rétta nafn en textinn lýsir raunveruleikanum
sem hún og fjöldi annarra ungmenna býr þar við. *
GEFUM ÞEIM SÉNS!
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
Mig langar
til að vinna
við að sauma
en ekki stunda
vændi
HULDA SÓLEY
JÓNSDÓTTIR*
Ellefu listeríusýkingar á tveimur árum
Fimm hafa látist af völdum listeríusýkinga á síðustu tveimur árum, þar á meðal nýfætt barn. Sóttvarnalæknir segir sýkingar alvar-
legar fyrir þá sem eru með veikt ónæmiskerfi. Matvælastofnun segir mikilvægt að bregðast hratt við þegar bakterían greinist í mat.
Listería, Listeria monocytogenes, er baktería sem smitast helst í gegnum matvæli. NORDICPHOTOS/GETTY
Ár Tilfelli Ár Tilfelli
1997 2
2004 1
2005 1
2007 4
2010 1
2011 1
2012 4
2013 1
2014 4
2017 7
2018 3
2019 1
✿ Listeríutilfelli frá 1997
tölur frá Embætti landlæknis
STJÓRNSÝSLA Bára Halldórsdóttir,
sem tók upp ósæmilegt samtal þing
manna Miðflokksins á Klausturbar
sem frægt er orðið, segist löngu hætt
að skilja hvað þeim gangi til og
hvernig þeir hugsi.
RÚV greindi frá því í gær að lög
maður þingmannanna fjögurra
hefði lagt fram kröfu um að fá upp
lýsingar frá fjármálafyrirtækjum
um greiðslur inn á reikning Báru
á tímabilinu 15. nóvember til
15. desember síðastliðinn. Líklega
vilja þeir með þeim upplýsingum
reyna að færa sönnur á eigin kenn
ingar um að Bára hafi verið gerð út
af einhverjum ónefndum aðila og
þegið greiðslu fyrir.
Í samtali við Fréttablað ið. is
í gær segist Bára hafa verið
beðin um upplýsingarnar
fyrir nokkrum vikum en
að hópurinn hafi lagt fram
kröfu aftur á fimmtudag. Hún
furðar sig á því að Persónu
vernd skuli fara með málið.
„Mér skilst að það þurfi
lögregluúrskurð til að fá
þessi gögn og ég held
að Persónuvernd ætti
ekki að vera að sjá
um þetta mál. Þetta
er eins og að biðja
bakara um fisk.“
Aðspurð segist
Bára ekkert hafa
að fela. Hún segir
þingmenn Mið
f lokksins biðja um upplýsingar
handahófskennt.
„Ég er hætt að skilja hvernig þetta
fólk hugsar,“ segir Bára.
„Spurning hvort ég fái
ekki að sjá þeirra gögn og
þá fái þau að sjá mín gögn,“
segir Bára og slær á létta
strengi.
K l au st u r m á l ið s vo
kallaða hefur verið til
um f jöllunar hjá Per
sónu vernd frá því um
miðjan desember,
en þá k ra fðist
l ö g m a ð u r i n n ,
Reimar Snæ fells
Péturs son, þess
að rann sakað
yrði hver hefði
staðið að hljóð
upp tökunni á
barnum Klaust
ur. – ilk
Hætt að skilja hvernig
Miðflokksmenn hugsa
FERÐAÞJÓNUSTA Ísland er um þess
ar mundir dýrasta land Evrópu og
að öllum líkindum einn dýrasti
áfangastaður heims fyrir ferða
menn. Þetta er meðal þess sem fram
kemur í nýrri skýrslu Greiningar
Íslandsbanka.
Verðlag á Íslandi var 84 pró
sentum hærra en að meðaltali í
aðildarríkjum ESB árið 2017. Ferða
maðurinn greiðir því næstum tvö
falt hærra verð hér en að meðaltali
innan ESB.
Verðlag á algengum vörum og
þjónustu sem ferðamenn sækjast
eftir hefur hækkað langt umfram
verðlag í Evrópu undanfarinn ára
tug og má sem dæmi nefna að verð
áfengra drykkja er í dag hátt í þre
falt hærra en að meðaltali í ESB.
Á árinu 2010 var verðlag í Nor
egi og í Danmörku á sömu vöru
og þjónustuf lokkum hærra en á
Íslandi og var Ísland í þriðja sæti,
á pari við Sviss sem var í fjórða
sæti yfir Evrópuþjóðir með hæsta
verðlagið fyrir ferðamenn. Þá var
verðlag hér á landi um þriðjungi
hærra (32 prósent) en að meðaltali
í aðildarríkjum ESB. Munur á verð
lagi hér og að meðaltali hjá aðildar
ríkjum ESB hefur því hækkað um 52
prósentustig frá árinu 2010. Krónan
styrktist á sama tímabili um 26 pró
sent og má því gróf lega áætla að
gengisáhrif skýri um helming áður
greindrar hækkunar. – smj
Ísland líklega
dýrast fyrir
ferðamenn
Spurning hvort ég
fái ekki að sjá
þeirra gögn og þá fái þau að
sjá mín gögn
Bára Halldórsdóttir, öryrki og upp-
ljóstrari
Bára
Halldórsdóttir.
2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
7
-0
4
-2
0
1
9
2
2
:1
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
0
-4
4
A
4
2
2
E
0
-4
3
6
8
2
2
E
0
-4
2
2
C
2
2
E
0
-4
0
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
9
6
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K