Fréttablaðið - 27.04.2019, Síða 12

Fréttablaðið - 27.04.2019, Síða 12
Dugnaðarforkurinn Sprinter frá Mercedes-Benz. Hörkuduglegur og traustur Sprinter vill komast í krefjandi verkefni. Getur hafið störf strax. Hagstætt rekstrarleiguverð í boði. Sprinter sendibíll Rekstrarleiga frá 147.300 kr. með vsk. á mánuði Verð frá 6.200.000 kr. með vsk. mercedes-benz.is/vans ASKJA ATVINNUBÍLAR · Fosshálsi 1 · 110 Reykjavík · Sími 590 2120 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi Suðurkóreski tæknirisinn Samsung skipaði tækniviðgerðafyrirtækinu iFixit að fjarlægja myndband af YouTube-rás sinni þar sem sjá mátti Samsung Galaxy Fold, hinn vænt- anlega samanbrjótanlega snjall- síma Samsung, tekinn í sundur. „Við fengum Galaxy Fold í gegn- um samstarfsaðila. Samsung fór fram á það við samstarfsaðilann að iFixit fjarlægði myndbandið. Við erum ekki skyldug til þess að gera það en í virðingarskyni höfum við ákveðið að fjarlægja myndbandið þar til við getum keypt Galaxy Fold er hann fer í almenna sölu,“ sagði í tilkynningu iFixit. Samsung svaraði ekki fyrirspurn tæknimiðilsins The Verge um málið. Það liggur hins vegar fyrir að Samsung hefur átt í nokkru basli með þennan síma að undanförnu. Fyrr í vikunni var greint frá því að Samsung hefði innkallað alla Galaxy Fold frá gagnrýnendum og tæknibloggurum til þess að skoða frekar alvarlegan galla. Gagnrýn- endur og bloggarar höfðu margir hverjir lent í því að innri skjár sím- ans skemmdist við minnsta eða jafnvel ekkert sjáanlegt áreiti. Þá hefur Samsung einnig frestað því að síminn verði settur í sölu vegna vandans. Talið er að gallann megi rekja til núnings sem myndast við hjarir símans. – þea Samsung þjarmar að iFixit vegna Galaxy Fold Fallegur en brothættur Samsung Galaxy Fold. NORDICPHOTOS/AFP Risavaxna tölvuleikjaráðstefnan E3 nálgast óðfluga og getgátur og vanga- veltur um hvað stóru fyrirtækin ætli að kynna fara eins og eldur í sinu um veraldarvefinn. Þessar vangaveltur hafa að miklu leyti verið um næstu kynslóð leikjatölva eða þá uppfærslur á hinni tiltölulega nýju Nintendo Switch. Langt er síðan núverandi kynslóð leikjatölva kom á markað. Playstation 4 frá Sony kom á markað í nóvember 2013 og Xbox One frá Microsoft í sama mánuði. Nintendo Wii U kom á markað ári fyrr en seldist ekki sem skyldi. Nintendo dreif sig í að gefa út sína næstu leikjatölvu, Nintendo Switch, sem hefur selst einkar vel frá því hún kom á markað í mars 2017. Orðrómur um að Nintendo ætli að kynna ódýrari útgáfu af Switch á næstunni, jafnvel á E3, virðist ekki á rökum reistur. Í símtali með hlut- höfum í vikunni blés Nintendo á þennan orðróm. Þá er vert að nefna að Sony tilkynnti í fyrra að fyrirtækið ætlaði ekki að halda stærðarinnar blaðamannafund á E3 líkt og venju- lega. – þea Væntingunum verið stillt í hóf Frá E3 ráðstefnunni. NORDICPHOTOS/AFP Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, varar við því að ríki heims geri kröfu um að stafræn gögn um ríkisborgara verði vistuð í hverju landi fyrir sig. Það gæti leitt til þess að alræðis- ríki steli upplýsingum um þegna sína og nýti í annarlegum tilgangi. Þetta sagði Zuckerberg í um níutíu mínútna viðtali við sagnfræðing- inn Yuval Noah Harari sem birtist í gær. Kæmi til þess að krafa sem þessi yrði gerð sagði Zuckerberg að Facebook myndi einfaldlega neita að hlýða. Fyrirtækið myndi ekki setja upp gagnaver í alræðis- ríkjum og þannig stefna viðskipta- vinum sínum í hættu. Slík lög eru nú þegar til staðar í Rússlandi og Kína. „Ef ég væri í ríkisstjórn gæti ég sent herinn á svæðið og tekið þau gögn sem ég vildi. Tekið þau til þess að stunda eftirlit eða gera árásir. Mér finnst það hljóma eins og afar slæm framtíð. En við erum ekki á þeirri vegferð. Sem aðili sem er að byggja upp vef þjónustu, eða bara sem almennur borgari, vil ég ekki sjá þessa þróun,“ sagði Zucker berg og bætti við: „Ef ríkisstjórn getur nálgast persónuleg gögn þín getur hún komist að því hver þú ert, læst þig inni, meitt þig og fjölskyldu þína og valdið þér alvarlegum líkam- legum skaða.“ Zuckerberg sagði aukinheldur í símtali með hluthöfum fyrr í vikunni að Facebook gerði sér fullkomlega grein fyrir því að starfsemi fyrirtækisins í alræðis- ríkjum gæti verið bönnuð ef það hlýddi ekki kröfum sem þessum. Viðtalið við Harari sagði Zucker- berg að væri liður í átaki hans fyrir árið 2019 þar sem hann ætlaði að ræða oftar og ítarlegar um fram- tíð veraldarvefsins og stafræns samfélags á opinberum vettvangi. Leiða má líkur að því að Zuckerberg hafi tekið þessa ákvörðun eftir þá álitshnekki sem hann og Facebook og hafa beðið undanfarin misseri. Facebook hefur gengið í gegnum erfiða og alvarlega röð hneykslis- mála sem snúa mörg hver að öryggi stafrænna, persónulegra gagna. Til dæmis má nefna Cam- bridge Analytica-hneykslið, þar sem ráðgjafarfyrirtæki nýtti gögn Facebook-notenda í pólitískum tilgangi, öryggisgalla sem ollu því að hakkarar komust yfir millj- ónir lykilorða og gerðu persónu- legar ljósmyndir óvart aðgengi- legar öllum, deilingu persónulegra gagna með öðrum stórfyrirtækj- um og notkun öfgamanna á sam- félagsmiðlum fyrirtækisins sem auðvelduðu þeim að beita of beldi. Þá er ótalinn þáttur Facebook í afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum en gríðar- legur f jöldi falsfrétta komst í mikla dreifingu á samfélagsmiðl- inum. thorgnyr@frettabladid.is Zuckerberg óttast alræðisríki Forstjóri Facebook óttast kröfur um að persónuleg gögn verði vistuð í gagnaverum í hverju landi fyrir sig. Vill ekki að alræðisríki geti stolið upplýsingum um þegna sína. Ætlar að hundsa allar slíkar kröfur. Zuckerberg óttast ekki afleiðingarnar. NORDICPHOTOS/AFP Ef ríkisstjórn getur nálgast persónuleg gögn þín getur hún komist að því hver þú ert, læst þig inni, meitt þig og fjölskyldu þína. Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook TÆKNI 2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 7 -0 4 -2 0 1 9 2 2 :1 5 F B 0 9 6 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E 0 -3 F B 4 2 2 E 0 -3 E 7 8 2 2 E 0 -3 D 3 C 2 2 E 0 -3 C 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 9 6 s _ 2 6 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.