Fréttablaðið - 27.04.2019, Qupperneq 28
ríkjanna. Ég var ótrúlega bjartsýn,
þetta yrði ekkert mál. En auðvitað
var þetta mikið menningarsjokk.
Þegar ég uppgötvaði að ég var
komin á stað þar sem hugmyndin
um móðurhlutverkið er gerólík því
sem við þekkjum. Ég hafði alltaf
litið á mig sem femínista og kven
réttindi skipta mig miklu máli en
þarna var ég í umhverfi þar sem
gamaldags sýn ríkti. En að mörgu
leyti græddi ég samt alveg ótrúlega
mikið á þessu og er þakklát fyrir
að hafa fengið að vera mjög mikið
með börnum mínum á mínum for
sendum.
Ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég
kom aftur til Íslands og gekk þá til
neydd inn í brjálsemi hins íslenska
vinnuumhverfis hvað þetta hafði
verið merkilegur tími.
Ef ég hefði verið ómenntuð hér
heima, þá hefði ég líklega þurft að
vera í tveimur vinnum, bara til að
geta séð fyrir börnunum mínum.
Þetta er svo ótrúlega mikill fórnar
kostnaður sem fólk er tilneytt til
þess að bera,“ segir Sólveig sem var
í afgreiðslustarfi í lítilli kjörbúð.
Bugaðist af harmi
„Þar starfaði ég með fátæku fólki af
verkastétt sem var vinir mínir. Þetta
fólk lifði við mjög skert kjör, það gat
ekki kynt húsin sín með góðu móti
á veturna og á sumrin gat það ekki
loftkælt. Og þetta átti sér stað í vell
auðugu samfélagi. Þó að ég hafi
alltaf vitað að Bandaríkin væru
mjög kúgandi kapítalískt samfélag
þá var þetta lærdómsríkt.
Ég bugaðist af harmi við að upp
lifa viðbrögð bandarísks samfélags
við fellibylnum Katrínu. Þá brast
eitthvað innra með mér. Hvernig
rasisminn og stéttaskiptingin spil
aðist út. Þar sem sumt fólk hafði svo
lítið vægi í samfélaginu að það var í
lagi að það drukknaði í sinni eigin
borg,“ segir Sólveig.
„Manneskja með snefil af rétt
lætiskennd hlýtur að átta sig á því
að það er eitthvert eitur í samfélags
myndinni. Þú þarft ekki að vera
sósíalisti til að sjá það,“ segir hún.
Dæmd fyrir mótmæli
Fjölskyldan f lutti heim skömmu
fyrir hrun í júlímánuði árið 2008.
„Við f luttum út og George Bush
varð forseti og svo fluttum við heim
og efnahagur Íslands hrundi. Upp í
hugann kemur ljósmynd sem er
tekin af mér um sumarið, ég er ótrú
lega ung og brosandi. Lífið á Íslandi
yrði frábært. En svo bara nokkrum
mánuðum seinna var maðurinn
minn orðinn atvinnulaus og ver
öldin krassaði.“
Sólveig Anna tók þátt í bús
áhaldabyltingunni og var dæmd
fyrir að ráðast með félögum sínum
á þingpalla Alþingis. „Ég var í bök
unarfríi frá leikskólanum þennan
dag og ég fagnaði því að geta tekið
þátt í þessari aðgerð. Í hruninu gekk
valdastéttin af göf lunum, bæði
vegna þess að hún var afhjúpuð sem
algjörlega vanhæf og sem stjórn
sýsluarmur arðránskerfisins. Í ljósi
þess ástands sem ríkti þá var ekki
við öðru að búast en að lögreglan
mætti. Hún kom öskrandi og hams
laus inn í Alþingishúsið,“ segir hún
um atvikið.
Kölluð strengjabrúða og peð
Sólveig tilkynnti þann 29. janúar
2018 um framboð sitt til formanns
Ef lingar ásamt nýrri stjórn undir
nafninu Blistinn. Í kjölfar fram
boðsins segir hún að það hafi dunið
á henni árásir og aðdróttanir.
„Þetta var algjörlega svívirðilegt,
ég er mjög stóryrt en þessi brjál
semi öll var ótrúleg. Það var hægt
að kalla mig strengjabrúðu og peð
og ég veit ekki hvað. En raunveru
legu árásirnar sem áttu sér stað á
meðan við vorum í baráttunni voru
engar samanborið við brjálsemina
sem dundi svo yfir núna meðan við
vorum í þessari kjarabaráttu. Þar
sem reykvísk borgarastétt opin
beraði andlit sitt. Ég hef reyndar
unun af því þegar stéttaátökin eru
af hjúpuð. Það er gott fyrir vinnu
aflið sem er neytt til að vera á yfir
borðinu þar sem hlutirnir eru ekki
kallaðir réttum nöfnum. Það er gott
þegar talsmenn óbreytts ástands
opinbera sig svo rækilega, ég fagna
þeim stundum.“
Ógeðslegur málflutningur
Sólveig er harðorð þegar hún er
spurð út í tengslin við Gunnar
Smára Egilsson, stofnanda Sósíal
istaflokksins.
„Hugsa sér að stærsti glæpur
í íslensku samfélagi sé að gerast
sósíalisti. Ég fordæmi þennan
mccarthy isma sem viðgengst í sam
félaginu og hefur beinst að Gunnari
Smára. Ég vil svo hryggja þá sem
halda því fram að ég sé strengja
brúða Gunnars Smára með því að ég
hef verið sósíalisti frá barnsaldri,“
segir Sólveig.
„Þetta voru líka ærumeiðingar, ég
var þjófkennd og því haldið fram að
ég hefði ásælst sjóði Ef lingar. Mér
hefði verið plantað þarna til þess
að hafa aðgang að sjóðnum. Þetta
er náttúrulega svo ógeðslegur mál
flutningur.“
Þú ert stóryrt, það verður ekki
tekið af þér, og þú hefur látið stór
orð falla um fólk sem gagnrýndi þig.
Sérðu eftir einhverju sem þú hefur
sagt?
„Nei, ég sé ekki eftir neinu. Ég hef
verið mjög stóryrt í gagnrýni minni
á kerfið. En þegar ég hef verið stór
yrt gagnvart persónum þá er það
vegna þess að þær hafa leyft sér svo
ótrúlega framkomu gagnvart mér.“
Svarar fullum hálsi
Getur þú nefnt dæmi um slíkan mál-
f lutning?
„Leiðarar Harðar Ægissonar í
Fréttablaðinu eru með þvílíkum
ólíkindum að þegar ég svaraði þeim
mjög harkalega fannst mér ég þurfa
að gera það og fannst það mjög
skemmtilegt.“
Upplifðir þú þá sem árás?
„Þetta var árás. Þótt það sé margt
sem ég styðst við í kristinni hug
myndafræði þá myndi ég aldrei
bjóða hinn vangann. Ég býð aldrei
hinn vangann. Og aldrei nokkurn
tímann myndi ég senda þau skila
boð til láglaunakvenna á Íslandi að
þær ættu að bjóða hinn vangann.
Svo sannarlega mun ég svara fyrir
mig ef ég þarf að gera það.“
Sólveig segir að þrátt fyrir átökin
hafi hún notið þess að taka þátt í
baráttunni. „Það sem mér finnst
gaman er að taka þátt í alvöru upp
risu vinnandi fólks á Íslandi, ekki
aðeins finnst mér það gaman heldur
trúi ég því að það sé lífsnauðsynlegt.
Ekki aðeins á Íslandi, heldur í ver
öldinni allri.“
Lærdómsríkt leikrit
Fyrir almenning sem fylgist með
kjaraviðræðum, þá líta þær svolítið
út eins og leikrit, störukeppni. Er það
þannig?
„Já, þetta er leikrit. Allt þetta er
leikrit. Það er ekkert efnahagslegt
lýðræði til staðar. Þessar kjaravið
ræður voru lærdómsríkar og ég
lærði að við verðum að komast af
þeim stað að vera alltaf að berjast
fyrir þúsundköllum.
Síðustu dagana gerðist margt
sem mér fannst athyglisvert og ég
hef margt út á að setja. Til dæmis
þessa hröðunarstemningu sem fer
í gang. Sem er keyrð mjög mark
visst áfram. Ég hafna slíkri nálgun.
Hún er fulltrúum vinnuafls ekki til
góðs. Þennan síðasta dag þarna inni
og við vorum að klára. Þá vorum við
enn þá að semja um mjög mikilvæg
mál en vorum, án þess að hafa raun
verulega eitthvað um það að segja,
undir mjög mikilli og aktífri pressu
á að nú yrði bara að skrifa undir.
Stærstu málin voru komin en enn
voru mikilvæg mál óafgreidd. Mér
var misboðið,“ segir Sólveig sem er
heldur ekki sátt við það heiti sem
samningarnir hafa gengið undir,
lífskjarasamningar.
Uppnefnið lífskjarasamningar
„Mér er misboðið yfir þessu svona
uppnefni. Í eðli sínu eru allir samn
ingar lífskjarasamningar. Við erum
að semja um kjör fólks sem hefur
áhrif á líf þess. Það er partur af
nýfrjálshyggjunni að vera alltaf að
skella einhverjum merkimiðum á
allt.“
Sólveig segist ánægð með framlag
stjórnvalda. „Framlag stjórnvalda
var ótrúlega mikilvægt og ég lít á
það sem sigur að hafa náð þessari
aðkomu stjórnvalda því hún var
svo sannarlega ekki uppi á borðinu
í haust þegar kjaraviðræður hófust.
Þetta loforð, sem svo sannarlega
verður staðið við, annars verður
okkur að mæta.
„Ég bugaðist af harmi við að upplifa viðbrögð bandarísks samfélags við fellibylnum Katrínu. Þá brast eitthvað innra með mér.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SEM BETUR FER HORFÐI
LJÓSMÓÐIRIN Á MIG EINS
OG ÞAÐ VÆRI EITTHVAÐ
AÐ MÉR OG SAGÐI NEI, NEI,
ÞAÐ GERIR ÞÚ EKKI, OG
RÉTTI MÉR DRENGINN.
ÞÁ GERÐIST EITTHVAÐ.
ÞETTA VAR ÁRÁS. ÞÓTT
ÞAÐ SÉ MARGT SEM ÉG
STYÐST VIÐ Í KRISTINNI
HUGMYNDAFRÆÐI ÞÁ
MYNDI ÉG ALDREI BJÓÐA
HINN VANGANN. ÉG BÝÐ
ALDREI HINN VANGANN.
Það skal enginn halda að stjórn
völd komist upp með það að standa
ekki við loforðin. Við verðum vakin
og sofin yfir því.“
Var reið í mörg ár
Sólveig sendi kveðju til félagsmanna
á Facebook og þakkaði bæði félög
um sem kusu með samningnum og
höfnuðu honum í kosningunni.
Hefðir þú sjálf kosið með samn-
ingnum ef þú hefðir staðið utan
við þetta og værir ekki formaður
Ef lingar?
„Þetta er mjög góð spurning. Ég
var í tveimur vinnum sem láglauna
kona á íslenskum vinnumarkaði
og hef verið rosalega reið í því hlut
skipti. Í eðli mínu er ég mjög glaðleg
og jákvæð manneskja. Biturleiki er
ekki mitt náttúrulega ástand. En ég
hef í mörg ár verið rosalega reið og
út í rosalega marga, ekki síst verka
lýðshreyfinguna. Ég var reið við
hana fyrir að samþykkja ömurleg
kjör og taka ekki slaginn af öllum
krafti. Fyrir að stíga ekki fram og
lýsa samfélaginu á réttan og skýran
hátt. Bjóða sjálfu sér upp á launa
kjör langt utan seilingar verkafólks,
fyrir þjónkunina við lífeyrissjóða
kerfið og undirgefnina við nýfrjáls
hyggjuna.
Í ljósi þess hefði ég samþykkt
samningana vegna þess að það
var barist. Hlutirnir voru kallaðir
réttum nöfnum og stjórnmála
fólkið fékk ekki að komast upp með
það að vandamálin væru ekki líka
þess til að leysa. Í ljósi þess þá hefði
ég sennilega sagt já. Í ljósi þess að
ég hefði viljað standa með þessari
baráttu.“
Stjórnlaus frekja
En hvað með hótanir fyrirtækja um
að hækka verð vegna samninganna?
Hvað finnst þér um þær?
„Þetta er ótrúlegt, þarna enn eina
ferðina afhjúpast afstaða þeirra sem
í stjórnlausri frekju sinni trúa því
af öllu hjarta að þeirra sé algjört
valdið. Ég skil mjög vel þá sem fara
í sniðgöngu en á endanum skilar
það litlu. Ég held við ættum frekar
að koma okkur mjög markvisst frá
þeim stað að þurfa að beita slíkum
aðgerðum og raunverulega öðlast
völd í samfélaginu. Sem við höfum
að mörgu leyti nú þegar en höfum
ekki náð að nota markvisst.“
Þú meinar að sniðganga sé bit-
laus?
„Hún er það að vissu leyti. En
Ef ling hefur til dæmis þessi ótrú
legu völd sem eru lífeyrissjóða
kerfið þegar kemur að afskiptum af
viðskiptalífinu. Nú er það búið að
gerast að Efling er komin með tvo
stjórnarmenn í stjórn Gildis. Stefán
Ólafsson er varaformaður Gildis
fyrir hönd Eflingar.
Það sem hélt íslensku efnahags
kerfi uppi eftir hrun voru lífeyris
sjóðirnir. Sem eru byggðir upp á
iðgjöldum sem eru tekin af launum
vinnuaf lsins. Sjóðirnir hafa verið
notaðir markvisst til að keyra áfram
kapítalísku maskínuna án þess að
það sé nokkru sinni tekið tillit til
hagsmuna vinnuaflsins. Við eigum
í gegnum sjóðina að beita áhrifum
okkar, ekki síst þegar kemur að fjár
festingum í fyrirtækjum. Þá fáum
við raunveruleg völd.“
2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
7
-0
4
-2
0
1
9
2
2
:1
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
0
-4
9
9
4
2
2
E
0
-4
8
5
8
2
2
E
0
-4
7
1
C
2
2
E
0
-4
5
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K