Fréttablaðið - 27.04.2019, Síða 32

Fréttablaðið - 27.04.2019, Síða 32
Ungt fólk fæðist inn í heim sam- félagsmiðla og mann- fólkið fylgir tækninni blindandi án þess að vita hver áhrifin verða. Mig langar að minnast foreldra minna, flytja lög sem þau sungu en einnig verð ég með klassískt popp. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Diddú er landsmönnum að góðu kunn fyrir skemmti-legan frásagnarmáta jafnt og sönginn, hvort sem hann er á dægurlagasviðinu eða því klass- íska. Á tónleikunum með Gunnari og Önnu Guðnýju Guðmunds- dóttur píanóleikara fer hún yfir klassískan söngferil frá upphafi, lífið og listina. „Ég hef sungið í hinum klassíska heimi í þrjátíu ár svo það er af nógu að taka,“ segir hún. „Þetta er orðinn langur tími þótt maður spyrji sig hvert hann hafi farið. Það er eins og gerst hafi í gær,“ bætir hún við í glaðlegum tón. „Ég er enn að syngja það sama og ég gerði í upphafi svo segja má að maður endist ágætlega í þessu starfi.“ Eftir að Diddú lauk söngnámi við Guildhall School of Music and Drama í London hélt hún til Ítalíu í framhaldsnám. Ítalía hefur alltaf átt sterk ítök í henni síðan enda eignaðist hún marga góða vini þar sem hún heldur góðu sambandi við og er því margt að segja frá. „Við Gunnar ætlum að vera með söng og spjall. Hann mun kryfja mína klassísku hlið til mergjar. Ég mun opna mig og segja sögur af klassískum ferli mínum en ég á auðvitað aðra hlið sem ég hef gert skil áður með Jóni Ólafssyni. Það eru margar skemmtilegar hliðar á mínu klassíska lífi,“ segir Diddú. „Síðan mun ég örugglega bresta í söng í miðju viðtali en þetta mun leiða hvað annað áfram.“ Diddú segist hafa æft lögin með Önnu Guðnýju sem flutt verða en viðtalið verður algjörlega óvænt uppákoma. „Maður kemst ekki hjá að gefa af sér á persónulegan hátt því klassíkin er samofin sálu manns og hjarta. Það eru svo ótrú- lega margar sögur sem hægt er að segja.“ Þegar Diddú er spurð hvernig henni hafi liðið þegar hún kom fyrst til Ítalíu og var að stíga sín fyrstu skref í ítölsku, svarar hún að það hafi verið skemmtileg upp- lifun. „Á þeim tímapunkti var mér orðið mál að læra ítalska óperu- skólann og saug allt í mig. Það gerðist ótrúlega margt á stuttum tíma og ég var f ljót að komast inn í málið. Ég hafði lært framburð í skólanum í London en tungumálið marineraðist inn í mig fljótt enda var ég mjög móttækileg. Núna finnst mér ég vera að koma heim þegar ég kem til Ítalíu. Þangað fer ég árlega. Í sumar förum við hjónin til Feneyja og ætlum að breyta til. Við bjuggum lengi í Veróna og í nálægð við Gardavatnið en nú langar okkur að prófa að vera í Feneyjum sem er dásamlegur staður. Feneyjar hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá okkur og þegar dæturnar voru litlar fórum við oft í sunnudagsbíltúr þangað með þær. Þarna getur maður notið allra lystisemdanna, bæði lystar og listar.“ Diddú segir að áhorfendur í Salnum á morgun fái að heyra Abba-lög í klassískri útfærslu jafnt sem aríur. „Mig langar að minnast foreldra minna sem sungu bæði, f lytja lög sem þau sungu en einnig verð ég með klassískt popp. Þetta verður óvissuferð þar sem farið verður yfir sviðið,“ segir hún. „Mér finnst mjög gaman að blanda lögum saman og hef alltaf gert það. Mörg dægurlög eru klass- ísk í eðli sínu og henta vel með síðdegiskaffinu,“ segir Diddú en tónleikarnir hefjast kl. 16 í Salnum í Kópavogi á morgun. Til gamans má geta þess að Diddú hefur hljóðritað fjóra geisla- diska við undirleik Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands, en alls hefur hún sungið inn á tæplega 100 hljóm- plötur. Hún hefur sungið með heimsfrægum söngvurum á borð við José Carreras og Placido Dom- ingo. Diddú hefur sungið víða um heim og má þarf nefna Frakkland, Rússland, Bandaríkin og Ítalíu svo nokkur dæmi séu tekin. Hún getur því sagt frá mörgu skemmtilegu sem á daga hennar hefur drifið. Óvissuferð með Diddú Sigrún Hjálmtýsdóttir verður gestur Gunnars Guðbjörnssonar söngvara í Salnum í síðdegiskaffi á morgun. Diddú ætlar að bregða á leik með áhorfendum, segja sögur og bresta í klassískan söng. Diddú syngur og spjallar í Salnum á morgun og sýnir sína klassísku hlið í lífinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ég á ekki langt að sækja dans-genin því hún amma mín, Klara Sigurgeirsdóttir, var landskunnur samkvæmisdansari í gamla daga og kenndi samkvæmis- dans í áraraðir í Hafnarfirði. Sem lítill drengur var ég sídansandi svo pabbi spurði mig um sex ára aldur- inn hvort ég vildi ekki fara í dans- skóla. Ég svaraði því neitandi, því dans þótti alltof stelpulegur, en öll mín uppvaxtarár þráði ég dansinn. Ég hafði líka mikinn áhuga á bar- dagalist og æfði taekwondo í átta ár en fannst ég kominn á endastöð þar þegar ég var átján ára þótt ég væri bæði af bragðs bardagamaður og í keppnisliðinu,“ segir Andrean Sigurgeirsson, dansari og danshöf- undur í Íslenska dansflokknum. „Andartakið þegar það rann upp fyrir mér að ég yrði að prófa dansinn var þegar við pabbi sátum saman yfir sjónvarpsþættinum So you think you can dance? Þar var stiginn samtímadans sem mér þótti gjörsamlega geggjaður. Aftur hvatti pabbi mig til að prófa og ég ákvað að slá til. Ég hringdi í snar- hasti í Listdansskólann og sagðist vilja mæta strax í tíma, þrátt fyrir að hálft ár væri liðið frá inntöku- prófum. Vantaði hvort eð er ekki alltaf stráka? spurði ég, sem er því miður veruleikinn í ballett- senunni hér heima, og úr varð að ég fékk inngöngu eftir fyrsta balletttímann, þá nýorðinn full- orðinn maður, 18 ára gamall,“ segir Andrean. Dansar með Hatara í Ísrael Andrean er 27 ára og hálf-indó- nesískur. Nafnið Andrean ber hann einn á Íslandi, ásamt tveggja ára systursyni sínum. „Mamma vildi upphaflega skíra mig Andrea en pabba hugnaðist það ekki vegna þess að það er kvenmannsnafn á Íslandi. Því bættu þau n-i aftan við Andrea og úr varð Andrean. Lengi vel héldu þau að nafnið væri heimasmíðað og einstakt á heimsvísu en með til- komu samfélagsmiðla höfum við komist að raun um að Andrean er algengt karlmannsnafn í Indónes- íu,“ útskýrir Andrean brosmildur og spenntur fyrir komandi dögum. Hann er á leið til Ísraels með Hatara til að dansa svarteygður í leðurólum í Eurovision. „Það verður stærsta sviðið og mesti áhorfendafjöldi sem ég hef dansað fyrir hingað til. Ég býst við tilfinningalegum og líkamlegum rússíbana og reikna með að horfa agndofa til baka þegar ég lít yfir farinn veg í framtíðinni. Þetta mun opna margar dyr og nýja heima og víkka út sjóndeildarhringinn, enda er allt eftir áætlun,“ segir Andrean sem eftir BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands bauðst föst staða dansara við Íslenska dans- flokkinn (ÍD) árið 2017. „Dansflokkurinn var alltaf stóri draumurinn minn en ég reiknaði aldrei með að hann rættist. Að ganga til liðs við ÍD er eitt af stærstu skrefum lífs míns, mikill heiður og stórt stökk. Ég er enn að klípa mig til að vakna upp af draumnum,“ segir Andrean og hlær. Tilvistarkreppa sjálfsmynda Alþjóðlegi dansdagurinn er á mánudaginn, 29. apríl. Af því til- efni frumsýnir dansflokkurinn FWD Youth Company verkið Mass Confusion eftir Andrean í Tjarnar- bíói annað kvöld, sunnudaginn 28. apríl, klukkan 20 og er um aðeins eina sýningu að ræða. „Í verkinu velti ég upp spurningu sem ég hef mikið velt fyrir mér og snýst um sjálfsmynd okkar í sam- félaginu eins og það tikkar í dag. Ungt fólk fæðist í samfélagsmiðla- heim þar sem er dagleg tilvistar- kreppa að finna út hver maður er. Sú spurning verður æ flóknari og því þurfum við öll að spyrja okkur hvort raunmynd okkar sé sú sanna eða sú sem við birtum á samfélags- miðlum; já, hvora þeirra tengjum við meira við?“ spyr Andrean í Mass Confusion. „Mannfólkið tekur allri þessari tækni gagnrýnislaust og fylgir henni blindandi án þess að vita hver áhrifin verða. Því er spurning hver stjórnar hverjum. Stjórnum við tækninni, eða stjórnar hún okkur? Vegna þessa er líkamleg tenging og snerting líka orðin afmörkuð. Eigum við að láta það viðgangast eða spyrna við fótum?“ veltir Andrean fyrir sér í yfirþyrmandi ringulreið sam- félagsins. Hann segir FWD Youth Comp- any stórkostlegan stökkpall fyrir unga dansara sem hafa lokið dansnámi en vilja enn halda fast í dansinn. „Það er sóun á hæfileikum ungra dansara að þeir hafi ekki tækifæri til að dansa því að í ríkis- rekna dansflokknum eru aðeins átta dansarar. Íslendingar eru ótrúlega hæfileikaríkir á dans- sviðinu, og má líkja þeim við íslenska landsliðið í knattspyrnu út á við. Þeir eru þekktir og virtir í alþjóðadansheiminum og í gegnum þá streymir mikill kraftur, sköpun og orka.“ Andlegur og líkamlegur rússíbani Andrean er enn að klípa sig til að vakna af draumi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Andrean Sigur- geirsson er á hraðri uppleið. Hann er dansari hjá Íslenska dans- flokknum, dansar með Hatara í Eurovision og frumsýnir eigið dansverk í Tjarn- arbíói á morgun. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 2 7 -0 4 -2 0 1 9 2 2 :1 5 F B 0 9 6 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E 0 -2 2 1 4 2 2 E 0 -2 0 D 8 2 2 E 0 -1 F 9 C 2 2 E 0 -1 E 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 9 6 s _ 2 6 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.