Fréttablaðið - 27.04.2019, Síða 36
4 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RMÓTORHJÓL
Ásgeir Örn Rúnarsson og Sigurjón Andrésson héldu til Marokkó í Norður-Afr-
íku í byrjun þessa mánaðar til að
taka þátt í næststærsta ralli sem
haldið er í heiminum ár hvert.
Morocco Desert Challenge er rall
þar sem eknir eru þrjú þúsund
kílómetrar í Sahara-eyðimörkinni
á átta dögum. Ásgeir, sem keppti
á sérútbúnu mótorhjóli, kláraði
keppnina og endaði í sjötta sæti
í sínum f lokki sem kallaður er
Malle Moto. „Við sem skráum
okkur í Malle Moto-f lokkinn
megum ekki þiggja neina utan-
aðkomandi aðstoð og þurfum
að sinna öllu viðhaldi sjálfir.
Við máttum taka með okkur tvo
kassa, annan fyrir persónulega
muni og hinn fyrir verkfæri og
varahluti. Og þegar við komum í
mark að kvöldi þurfum við vinna
við hjólið sjálfir og undirbúa
næsta dag en í þessu ralli eru átta
dagleiðir og eknir samtals þrjú
þúsund kílómetrar“.
Upplýsingar á Facebook
Hlutverk Sigurjóns í ferðinni var
fyrst og fremst að styðja vin sinn í
hans þátttöku en einnig að flytja
þeim sem fylgdust með heima,
fréttir af gangi mála. „Ég var þarna
bæði til að upplifa og styðja Ásgeir
en einnig til að segja frá okkar
reynslu og reyna að deila henni
á samfélagsmiðlum. Við settum í
loftið Facebook-síðu sem kallast
Mótorhjólarallý – Ásgeir Örn
Rúnarsson og þar settum við inn
myndbönd, myndir og upplýs-
ingar oft á dag. Við fengum mikil
og góð viðbrögð að heiman og það
var geysilega skemmtilegt að finna
viðbrögðin. Fólk hefur gaman af
Kláruðu átta daga
eyðimerkurrall
Íslendingarnir Ásgeir Örn Rúnarsson og Sigurjón Andrés
son kepptu á mótorhjóli í byrjun þessa mánaðar í Mor
occo Desert Challengerallinu. Þar voru eknir 3.000 kíló
metrar í Saharaeyðimörkinni á 8 dögum.
Að lokinn keppni er við hæfi að fagna. Ásgeir þreyttur en ánægður.Ásgeir dyttar að keppnishjóli sínu á milli strembinna daga í Marokkorallinu.
því að sjá annað fólk glíma við
framandi og erfiðar aðstæður,“
segir Sigurjón.
Ágætt netsamband í Sahara
En hvernig gekk að koma skila-
boðum og myndböndum inn á
samfélagsmiðla þar sem rallið var
oft á tíðum á afskekktum stöðum í
eyðimörkinni?
„Það er svo magnað að það
mátti oftast ná í gott netsamband
í kringum þéttbýliskjarna þarna
suður frá. Við þurftum náttúrulega
að fá okkur ný símakort og fylla
vel á þau fyrir ferðina en oftast
þurfti ekki að aka alltof langt til að
komast í sæmilegt samband.“
Aðstoðarmaðurinn ók 3.500
kílómetra í eyðimörkinni
„Ég tók bílaleigubíl og ók á milli
rásmarks og endamarks dag hvern.
Ég reyndi að koma við á áhuga-
verðum stöðum og hitta fólk og
upplifa. Stundum ók ég bara beint
af augum í eyðimörkinni og tók
myndir af því sem fyrir bar en aðra
daga elti ég rallið og tók ljósmyndir
af því þegar ökutækin fóru hjá.“
Risastór adrenalínsirkus
Að sögn Sigurjón var ferðin öll og
þátttaka þeirra félaga mögnuð
upplifun. „Þetta var stærra og
kraftmeira en ég átti von á. Þetta
er 1.300 manna sirkus með 280
keppnistækjum og alls 555 öku-
tækjum, þegar ökutæki aðstoðar-
fólks eru talin með. Lestinni fylgdu
meðal annars þrjár þyrlur, alls
konar sjúkra- og dráttarbílar, sjón-
varpsútsendingatrukkur með öllu
tilheyrandi, 15 ljósmyndarar, 12
kvikmyndatökumenn og 10 blaða-
menn,“ segir Sigurjón og heldur
áfram. „Á hverjum degi eftir að
keppnistækin höfðu verið ræst var
þessi 1.300 manna tjaldborg með
aðstöðu liðanna, eldhúsi, veitinga-
svæði og bar, sturtu- og salernisað-
stöðu rifin niður og flutt 300 kíló-
metra og komið upp samdægurs á
öðru opnu svæði í eyðimörkinni.
Það var ótrúlegt að fá að vera hluti
af þessu, þetta voru sannkallaðar
adrenalínbúðir, keyrðar á ljósa-
vélum og það voru tæki í þenslu
og prufuakstri alla nóttina. Við
sváfum í tjöldum sem við tókum
með okkur út en gáfum að lokinni
keppni enda vorum við alveg búnir
að fá nóg því að sofa í tjaldi.“
Að hjóla í fullum herklæðum í 40
stiga hita
Ásgeir, sem kláraði rallið, lenti í
6. sæti í Malle Moto-flokknum og
49. sæti í f lokki allra mótorhjóla
af 72 hjólum sem hófu keppni. „Ég
er mjög sáttur við árangurinn.
Hjólið reyndist ótrúlega vel og
allur undirbúningur var eins og
best verður á kosið miðað við mitt
fyrsta eyðimerkurrall. Aðstæður
voru hins vegar afar erfiðar,
hitinn óvenju hár fyrir árstíma
og sandrokið mikið. Það er erfitt
að hjóla í sandöldum sem ég hef
enga reynslu af með 1.200 hestafla
trukk á hælunum, það er ógnvekj-
andi reynsla sem ég þarf að öðlast
meiri reynslu í ef ég færi í svona
aftur. En hitinn var þó erfiðastur.
Við hjóluðum í miklum hlífðar-
klæðnaði og með mikinn búnað
og vatnsbirgðir á okkur og í sjálfu
sér er það eitt erfitt, þó að ekki
bætist við 40 stiga hiti. Ég var til
að mynda algjörlega sigraður eftir
fjórða daginn og þurfti að hjóla
svokallaða þjónustuleið fimmta
daginn og fyrir það fékk ég tíma-
refsingu,“ sagði Ásgeir.
Ferðalagið kynnt fljótlega
Þeir félagar eru sammála um að
ferðin hafi verið dýrmæt reynsla.
„Fyrir mig var þetta ekki bara
gamall draumur að rætast heldur
einstök upplifun. Það er eitthvað
svo gefandi við það að takast á
við svona stórt verkefni og sigrast
á manni sjálfum,“ segir Ásgeir.
„Svo vonast ég líka til að geta deilt
reynslu til þeirra sem vilja upp-
lifa svona sjálfir.“ Sigurjón hefur
svipaða sögu að segja. „Ég vissi
ekki alveg hvað ég var að fara út í
en upplifunin var betri og sterkari
en ég átti von á. Það hafði áhrif á
mig að sjá hvernig fólk dregur fram
lífið í eyðimörkinni og það var sér-
stakt að fara til Vestur-Sahara og
finna hvernig ástandið og spennan
er á því hernumda svæði.“
Flatahraun 31 • 220 Hafnarfirði • 510-9090
2
7
-0
4
-2
0
1
9
2
2
:1
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
E
0
-7
F
E
4
2
2
E
0
-7
E
A
8
2
2
E
0
-7
D
6
C
2
2
E
0
-7
C
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K