Fréttablaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 70
Roskva, sögum þínum hefur verið lýst sem ljóðrænum og myrkum. Hvað finnst þér sjálfri um þá lýs- ingu? Roskva: Ég verð alltaf mjög hissa þegar einhver lýsir sögunum mínum sem drungalegum eða myrkum. Í þunglyndi hefur þú ekkert að segja, þar eru engin orð. En smásögur mínar finnst mér vera frekar eins og ljóð og ég set mikla orku í þær. Ég sjálf er líka full lífs- orku þegar ég skrifa. Fólk segir sögur mínar einnig fjalla um mannleg samskipti, til dæmis foreldra og barna, vina eða hjóna. Meginþemað er líklega þessi tálsýn um að það að hafa einhvern nálægt þér geri þig hamingjusaman og tryggi þér öruggan stað í veröld- inni. Stundum er fólk meira ein- samalt, meira hrætt og lokað af í samböndum sínum en ef það væri einsamalt. Mazen, sögur þínar í Brand- arar handa byssumönnum eru ansi magnaðar. Ég upplifði þær sem til- finningar úr bernsku þinni sem svo seinna urðu að sögum? Það er eitt- hvað falið í þeim, er það ekki? Mazen: Jú, það má segja það. Til- finningar verða að sögum. Og hver saga inniheldur eitthvert atriði sem ég upplifði sjálfur sem barn. Það er áhugavert að segja frá því að á meðan ég bjó í Líbanon trufluðu þessi atriði mig ekki mikið. Það var ekki fyrr en ég kom til Íslands sem ég vaknaði á kraftmikinn máta og fann að það var áríðandi að gera upp það sem gerðist. Ég vildi koma á sáttum með því að finna reynslu minni stað í skáldskap. Getur þú nefnt dæmi um raun- verulegt atriði sem átti sér stað og er að finna í sögum þínum? Mazen: Já, í einni sögunni segir af dreng sem felur sig undan sprengjuregni í kvikmyndahúsi. Það þurftum við fjölskyldan einu sinni að gera. Stríðið var algjörlega skelfilegt. Það verður aðskilnaður á milli fólks vegna trúar og uppruna og það ríkir ótti og vantraust á fólki. Þetta eru ómannúðlegar aðstæður og hrylli- legar. En þrátt fyrir það kýs engin manneskja að lifa bara í hryllingi og ótta. Við reynum alltaf að hafa gaman, segja brandara í fáránlegum aðstæðum. Það endurspeglar að mínu mati lífið á einhvern hátt. Þú varst tilnefndur til alþjóðlegu Man Booker verðlaunanna fyrir bókina. Hvernig varð þér við? Mazen: Tilnefningin gladdi mig, sérstaklega vegna þess að ég var tilnefndur fyrir smásögur. Ég fékk skilaboð um miðja nótt á símann. Ég gat ekki sofið í þrjá tíma. Ég fylltist skelfingu. Hvað á ég að gera? Mig langaði auðvitað að öskra og hoppa en ég bý í gömlu húsi og vildi ekki vekja nágrannana. Ég fagnaði í algjörri þögn. Skelfdist líka. En svo gladdist ég á endanum. Roskva, þú varst aðeins 28 ára gömul og tilnefnd til Bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs, hvern- ig leið þér? Roskva: Ég fék k f réttir nar þremur vikum áður, þannig að ég gat ekki rætt við aðra um líðan mína. Ég sagði reyndar mömmu og kærastanum mínum frá. Árið áður var tilnefndur rithöfundur sem var óþekktur í Noregi þrátt fyrir að hann hefði skrifað bækur í mörg ár. Fyrirsögnin í einu stærsta blaði Noregs var: Hann á ekki skilið þessa tilnefningu. Svo kom ég, aðeins 28 ára gömul og tilnefnd. Ég beið því óttaslegin eftir fyrirsögninni: Hver er þessi frekjudolla? Það er svona ákveðið trend í Rosk va Kor it zinsk y er nýlent á Íslandi og hingað komin til að taka þátt í Bókmennta-hátíð. Hún er 29 ára gömul og gaf út sína fyrstu bók árið 2013. Það var smá- sagnasafnið Her inne et sted sem fékk góða dóma og viðurkenningar. Fyrsta skáldsaga hennar, Flammen og mörket, kom út árið 2015 og svo kom annað smásagnasafn árið 2017; Jeg har ennå ikke sett verden. Hún var tilnefnd til Bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs árið 2018. Mazen Maarouf þekkja Íslend- ingar. Hann er palestínskur að upp- runa og fæddur í Beirút. Hann er fertugur og hefur síðustu ár helgað sig skáldskap og þýðingum. Hann kom hingað til lands árið 2011 eftir að Reykjavíkurborg gerðist aðili að ICORN og varð þannig skjólborg fyrir rithöfunda sem hafa þurft að yfirgefa heimalönd sín vegna ofsókna. Mazen hefur birt ljóð og smásögur og fyrir smásagnasafn sitt, Brandarar handa byssumönn- um, var hann tilnefndur til hinna virtu alþjóðlegu Man Booker verð- launa. Þá hlaut hann Al-Multaqa verðlaunin sem eru veitt fyrir smá- sögur á arabísku. Roskva, hefur þú komið áður hingað? Roskva: Ég hef aldrei komið áður til Íslands, ég bara var að lenda og keyrði beint hingað. Ég hef ekki séð mikið enn en á dagskránni er að fara í sund, mér skilst í Vesturbæjarlaug. Mazen, hvernig var það þegar þú komst hingað? Mazen: Ég kom fyrst hingað árið 2011. Það var einn skrýtnasti dagur í lífi mínu. Það var snarbrjálaður stormur og f lugvélin lenti um 20 mínútum á undan áætlun. Vindur- inn hreinlega fleygði vélinni áfram. Ég var að koma frá Beirút í gegnum París og var brugðið. Mín var beðið á flugvellinum og mér sagt að svona væri þetta nú ekki alveg alltaf. En ég komst f ljótt að því að Ísland er að öllu leyti ólíkt landinu sem ég kem frá. Andstæðurnar eru miklar, í menningu, pólitík og veðri, og ég vissi strax að hér yrði allt öðruvísi líf í boði fyrir mig. Skelfileg velgengni Rithöfundarnir Mazen Maarouf, sem er palestínskur að uppruna en íslenskur ríkisborgari, og Roskva Koritinsky, ungur rithöfundur frá Noregi, settust á rökstóla og ræddu óttann sem fylgir því að ganga vel, nánd, tilgang bókmennta og uppgang smásögunnar. Bakgrunnur Mazen og Roskvu er afar ólíkur en þau eiga það sameiginlegt að trúa því að í bókmenntum felist svar við því hvað það er að vera manneskja. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI norskum f jölmiðlum að sýna hörku. Fjölmiðlar eru komnir með nóg af sannsögulegum og skáldævi- sögum þar sem er í raun og veru ekki hægt að hanka höfundinn á innihaldi bókarinnar. Ég var eigin- lega hrædd um að það yrði öskrað á mig, en svo var þetta bara fínt. Ég skrifa smásögur eins og Mazen og mér finnst mjög gott að smásagan er að fá meira vægi. Mazen, þú hefur fylgst vel með baráttu hælisleitenda hér á landi, hvernig finnst þér staðan vera? Mazen: Það er skömm að því hvernig er komið fram við þetta fólk. Ísland er stolt af því að vera land þar sem skoðanafrelsi ríkir, þar sem mannréttindi eru virt, kyn- frelsi og kvenfrelsi en ég velti því fyrir mér hvort þetta sé allt á yfir- borðinu. Þegar fólk yfirgefur heima- land sitt í neyð er það að yfirgefa stóran og ríkan menningarheim og það vill bara lifa góðu lífi. Ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með það hvernig lögregla kemur fram, ég er í sjokki yfir því. Mér f innst þetta sérstaklega ömurlegt vegna þess að sjálfstæðis- barátta Íslendinga byggir á menn- ingarverðmætum. Saga okkar er einstök en stjórnmálasagan virðist ætla að þróast í aðra átt. Það segir okkur líka margt um þessa krísu, frjálshyggjan er að líða undir lok og nú lifum við á tímum engrar hugmyndafræði. Já, það eru helst börnin sem berj- ast fyrir betri heimi? Mazen: Já, það er rétt og það er mikilvæg barátta. Roskva: Þegar ég segi fólki að ég sé frá Noregi þá hefur það þessa sömu draumsýn og þú segir frá. En hún er tálsýn og þetta gerist svo hratt. Það ríkir algjör óreiða, við höfum ekki lengur skýra hug- myndafræði, trú eða siðferðis- kompás til að fylgja. Mér finnst egóið í forgrunni og það er skelfileg tilhugsun. Mazen: Þess vegna eru bók- menntir mikilvægar, þær færa saman fólk af mismunandi menn- ingarheimum. Þær eru mikilvægari en pólitík. Við vitum ekki mikið um hvert annað, við vitum margt um heiminn en ekki um hvert annað sem manneskjur. Bókmenntir færa okkur vitneskju um það, hver við erum. SVO KOM ÉG, AÐEINS 28 ÁRA GÖMUL OG TILNEFND. ÉG BEIÐ ÞVÍ ÓTTASLEGIN EFTIR FYRIRSÖGNINNI: HVER ER ÞESSI FREKJU- DOLLA? Roskva MIG LANGAÐI AUÐVITAÐ AÐ ÖSKRA OG HOPPA EN ÉG BÝ Í GÖMLU HÚSI OG VILDI EKKI VEKJA NÁGRANNANA. ÉG FAGN- AÐI Í ALGJÖRRI ÞÖGN. Mazen Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 7 -0 4 -2 0 1 9 2 2 :1 5 F B 0 9 6 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 E 0 -4 E 8 4 2 2 E 0 -4 D 4 8 2 2 E 0 -4 C 0 C 2 2 E 0 -4 A D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 9 6 s _ 2 6 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.