Fréttablaðið - 27.04.2019, Page 76
Ástkær eiginmaður minn,
Ástráður Berthelsen
lést í Danmörku þann 3. apríl sl.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði 2. maí kl. 15.
Sigrún Júlía Oddgeirsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hólmfríður Bergey
Gestsdóttir
andaðist á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópavogi þann 18. apríl.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 2. maí kl. 13.00.
Margrét Kristín Finnbogadóttir Björn Benediktsson
Einar Finnbogason Þórhildur Magnúsdóttir
Hafdís Finnbogadóttir Jón Karl Kristjánsson
Hörður Finnbogason Unnur Rut Rósinkransdóttir
Trausti Finnbogason Cheiryl Cadete
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóhanna J. Guðnadóttir
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 17. apríl
síðastliðinn. Útför hennar fer fram
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 30. apríl
næstkomandi kl. 15.00.
Karl Guðni Erlingsson Vaiva Drilingaité
Irma Jóhanna Erlingsdóttir Geir Svansson
Rósa Guðrún Erlingsdóttir Otti Elínarson
Jónas Garðar Erlingsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Borgin er eitt af merk-u st u kenni leit u m R ey k jav í k u r. Þ a r hefur allt gerst. Þar hafa allir verið. Sumir eru þar enn.“ Þessi
áletrun er skráð með rauðum
stöfum innan um svart letur í
textahefti nýrrar plötu hljóm-
sveitarinnar Melchior. Hún nefn-
ist Hótel Borg. Það er sjötta plata
sveitarinnar, ef mér skjátlast ekki.
„Okkar samstarf er orðið 46
ára, þó ekki óslitið. Það varð hlé í
28 ár. En við þökkum fyrir hvern
dag sem við fáum að spila,“ segir
Karl Roth glaðlega. Hann syngur
og leikur á gítar og hljómborð
í sveitinni, líkt og þeir Hilmar
Oddsson og Hróðmar I. Sigur-
björnsson. Kristín Jóhannsdóttir
er söngkona, Gunnar Hrafnsson bassa-
leikari og Kjartan Guðnason trommu-
leikari.
Í fréttatilkynningu kemur fram að
Melchior haldi sig við vandað kamm-
erpopp. Karl útskýrir það frekar. „Við
erum með klassísk hljóðfæri, vorum
alltaf með óbó og selló í gamla daga og
nú erum við með strengjakvartett sem
spilar í f lestum lögunum hjá okkur. Þess
vegna viljum við ekki bara segja popp,
heldur hafa vísbendingu um eitthvað
annað því við erum ekki mjög rafmagn-
aðir.“
Svo er það Hótel Borg og sá sess sem
hún skipar hjá Melchior. „Fyrsta hug-
myndin var sú að búa til textaalbúm
með uppstilltri mynd við hvert lag.
Metnaðarfull hugmynd sem tónaðist
aðeins niður. En það er gaman að hafa
einhvern hverfipunkt í svona verki
og Hótel Borg er visst kennileiti í mið-
borginni, dálítið gömul og dálítið grand.
Við höfum skemmt okkur mikið þar en
ég man ekkert hvort við spiluðum þar í
fyrra lífi. Hilmar veit það, hann er eins
og alfræðiorðabók, man allt og ég man
ekkert. Þú ert að tala við vit-
lausan mann!“
Tólf lög eru á diskinum eftir
þrjá lagasmiði sveitarinnar.
„Hilmar og Hróðmar eiga fimm
lög hvor, ég tvö og f lestir text-
arnir eru eftir mig,“ lýsir Karl og
heldur áfram: „Eitt lagið heitir
Búa um rúm. Annað er um lífið
í eldhúsinu. Svo erum við með
sálm, alltaf sálmur á hverri
plötu. Þessi snýst um það að Guð
sé alls staðar, líka á Borginni.
Svo tef lum við fram lagi sem
heitir Alla leið til stjarnanna. Það
fjallar um stemninguna sem ríkti
þegar f lugmennirnir úr ítölsku
f lugsveitinni sem kom hingað
1933 eru að yfirgefa borgina og
allar stelpurnar í öngum sínum.
Bærinn hafði fyllst af ungum
mönnum í einkennisbúningum.
Það var stórviðburður í Reykjavík. Þeir
bjuggu á Borginni.“
Lilja Björk Runólfsdóttir, hönnuður
og söngkona, á heiðurinn af plötuum-
slaginu. „Munstrið er teikning af gólf-
inu í anddyri Hótels Borgar,“ upplýsir
Karl. Hann segir hefti með texta lag-
anna í stóru og læsilegu letri fylgja með.
Gleymir heldur ekki að geta útgáfutón-
leikanna þann 30. apríl í Tjarnarbíói
klukkan 20. „Þá verður allt liðið á svið-
inu, blásararnir líka,“ segir hann og lofar
að platan verði leikin í heild sinni, auk
nokkurra eldri laga. gun@frettabladid.is
Þökkum fyrir hvern dag
sem við fáum að spila
Hljómsveitin Melchior hefur gengið í endurnýjun lífdaga og verður með útgáfutón-
leika í Tjarnarbíói þriðjudaginn 30. apríl í tilefni nýrrar plötu sem heitir Hótel Borg.
Efnið tengist Borginni og hönnun disksins ber sögufrægum art deco-stíl hennar vitni.
Gunnar Rafnsson, Hilmar Oddsson, Kjartan Guðnason, Karl Roth, Kristín Jóhannsdóttir og Hróðmar I. Sigurbjörnsson.
Teikning af gólfinu í anddyri Hótel
Borgar prýðir plötuumslagið.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir,
afi og langafi,
Jón Hannesson
Ásbúð 63,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
16. apríl. Útför hans fer fram frá
Vídalínskirkju fimmtudaginn 2. maí kl. 13.00.
Hannes Jónsson Guðlaug K. Jónsdóttir
Jón Gunnar Hannesson
Unnur Ösp Hannesdóttir
Arnar Atli Hannesson
Guðmunda K. Hauksdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingunn Hlín Björgvinsdóttir
Safamýri 46, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 18. apríl
á líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 30. apríl klukkan 13.00.
Björgvin S. Friðriksson Adda Björk Jónsdóttir
Friðrik M. Friðriksson Gunnrún Gunnarsdóttir
Guðný Hlín Friðriksdóttir Karl Ómar Guðbjörnsson
Friðgerður M. Friðriksdóttir Ófeigur Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36
TÍMAMÓT
2
7
-0
4
-2
0
1
9
2
2
:1
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
0
-4
9
9
4
2
2
E
0
-4
8
5
8
2
2
E
0
-4
7
1
C
2
2
E
0
-4
5
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K