Fréttablaðið - 27.04.2019, Side 84

Fréttablaðið - 27.04.2019, Side 84
Günday í Norræna húsinu Í dag, laugardaginn 27. apríl, ræðir Auður Jóns- dóttir rithöfundur við Hakan Günday í Norræna húsinu. Umræðuefnið er bók hans Meira og þær aðstæður sem blasa við tyrkneskum höfundum í pólitísku umhverfi Tyrk- lands í dag. Dagskráin hefst klukkan 15.00. Hvers vegna? Tyrkneski rithöf- undurinn Hakan Günday er meðal gesta Bókmennta- hátíðar í Reykja- vík. Skáldsaga hans Meira hefur vakið gríðarlega athygli enda á hún brýnt erindi við samtímann. Flestir komast í uppnám við lesturinn, segir Hakan Günday um hina mögnuðu verðlaunabók sína Meira. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Meðal gesta á Bók-menntahátíð í Reykjavík sem nú stendur yfir er tyrkneski rit-h ö f u n d u r i n n Hakan Günday en bók hans Meira kom nýlega út hér á landi í þýð- ingu Friðriks Rafnssonar. Bókin hefur hlotið mikið lof og hreppt ýmis verðlaun, þar á meðal Le Prix Médicis Étranger verðlaunin árið 2015. Bókin fjallar um þær skelfingar sem flóttamenn þurfa að upplifa og í forgrunni er tyrkneski drengurinn Gaza sem níu ára gamall byrjar að aðstoða föður sinn við smygl á ólög- legum innf lytjendum sem freista þess að komast yfir til Grikklands. Besta rannsóknarvinnan Günday er spurður hvort hann hafi unnið mikla rannsóknarvinnu við gerð bókarinnar. „Rannsóknar- vinnan var mjög einföld, ég skoðaði skýrslur frá Evrópusambandinu og Sameinuðu þjóðunum um ýmis tæknileg atriði eins og hvaða leið f lóttamenn fara. Ég hafði ekki þörf fyrir annars konar upp- lýsingar,“ segir hann. „Tyrkland er land sem er eins konar brú milli austurs og vesturs, milli borgarastyrjalda og velferðar, tveggja ólíkra heima. Flótta- menn fara langa leið án þess að vera sýnilegir, það er einungis þegar þeir eru dánir sem við vitum af þeim því þá lesum við um þá í dagblöðum. Stundum þarf maður ekki að leggjast í vísindalega rannsókn til að sjá það sem er í kringum mann. Besta rannsóknarvinnan er að horfa í kringum sig og halda augunum opnum.“ Hinn ungi Gaza segir söguna. Hann er barn sem sýnir af sér mikla grimmd og lesandinn sveiflast milli þess að hafa andstyggð á honum og finna til samúðar. Gaza tekur breytingum í sögunni, barn sem virðist ófært um samkennd þarf að þola miklar raunir. Barn sem ekki grét verður unglingur sem grætur. Undir lokin er færð göfug fórn. Er hægt að breytast? Günday segir að sér hafi þótt mikil- vægt að segja söguna frá sjónar- horni barns. „Ég þurfti barn til að spyrja nokkurra mikilvægra spurninga. Einu mannverurnar í lífi Gaza eru faðir hans og hann sjálfur, annað fólk er bara varningur sem má eyðileggja og tortíma. Faðirinn er yfirvaldið og setur reglurnar. Spurningarnar sem ég vildi spyrja eru þessar: Þegar þú fæðist inn í aðstæður eins og þessar þar sem þér er sagt að annað fólk sé einskis virði, þú sért eina mann- Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is BESTA RANNSÓKN- ARVINNAN ER AÐ HORFA Í KRINGUM SIG OG HALDA AUGUNUM OPNUM. látið þá vinna við ömurlegar aðstæður. Viðbrögð barnsins og samfélaganna eru þau sömu. Í lokin birtist svo samkenndin þegar Gaza áttar sig á því að fólk er tilbúið að hætta lífi sínu til að byrja nýtt líf í ókunnu landi. Þessari ferð var aðeins hægt að lýsa með augum barns, ekki fullorðinnar manneskja. Full- orðnir halda að þeir viti allt en barn spyr spurninga og aðallega spurninga sem byrja á orðunum: Hvers vegna? Fullorðnar mann- eskjur hafa gefist upp á að spyrja: Hvers vegna?“ Viðbrögð lesenda Meira er myrk og áhrifamikil skáldsaga og lesturinn gengur afar nærri lesandanum. „Mér leið illa þegar ég var að skrifa hana,“ segir Günday, en bók hans hefur verið þýdd á rúmlega tuttugu tungu- mál. „Ég hef ferðast víðs vegar um heiminn og séð viðbrögð les- enda. Flestir komast í uppnám við lesturinn. Sumir vilja ekki horfast í augu við hinn nakta sannleika en flestir vilja lesa áfram til að komast að því hvort það sé mögulegt að breytast. Ef fólk getur lesið dagblöð þá getur það lesið þessa bók. Og ef fólk er nógu hugrakkt til að horfa á sjónvarpsfréttir þá getur það auð- veldlega lesið þessa bók því það er ómögulegt að skrifa eitthvað sem er of beldisfyllra en sjónvarpsfréttir.“ eskjan og getir gert allt sem þér sýn- ist, er þá mögulegt fyrir þig að efast um þann raunveruleika og spyrja þig hvort aðrir gætu líka verið manneskjur? Hvað gerirðu þegar þú kemst að því að faðir þinn laug stöðugt að þér? Er hægt að breytast? Ég vildi skapa barn sem speglaði viðhorf þjóðfélaga sem hafa enga hugmynd um hörmungar f lótta- manna. Fyrstu viðbrögð Gaza við f lóttamönnunum eru að kenna þeim um. Hugsun hans er: Ég vil ganga í skóla og vera með vinum mínum en get það ekki vegna þess að þið eruð hér. Ef þið eruð hér þá er það ykkur að kenna, ástæðan er ekki stríð og hörmungar. Þetta eru sömu viðbrögð sem sýndu sig í byrj- un í evrópskum samfélögum, flótta- fólkinu var kennt um. Síðan fer Gaza að nýta sér neyð flóttamanna og selur þeim vatn í stað þess að gefa þeim það. Þjóðfélögin hafa gert það sama, nýtt sér neyð flóttamanna og AÐALFUNDUR Landssambands sumarhúsaeigenda. Verður haldinn, þriðjudaginn 30. apríl í SÍBS-húsinu, Síðumúla 6 , Reykjavík kl. 20:00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Gestur fundarins; Fulltrúi frá Garðyrkjufélagi Íslands. Kaffi Stjórnin. 2 7 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 2 7 -0 4 -2 0 1 9 2 2 :1 5 F B 0 9 6 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 E 0 -3 0 E 4 2 2 E 0 -2 F A 8 2 2 E 0 -2 E 6 C 2 2 E 0 -2 D 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 9 6 s _ 2 6 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.