Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2019, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 15.05.2019, Qupperneq 33
Nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/athafnaborgin Athafnaborgin Opinn fundur Opinn fundur um athafnaborgina Reykjavík verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 17. maí kl. 9-11. Fjallað verður um skapandi greinar, verslun, þjónustu og nýsköpun. Sagt verður frá uppbyggingarverkefnum sem eru að taka á sig mynd í borgarumhverfinu, sem og verkefnum sem enn eru á hugmyndastigi. Einnig verður fjallað um hönnunardrifna nýsköpun, sem og stöðu og þróun verslunar í borginni. Dagskrá  Hvað getur borgin gert fyrir atvinnulífið? Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs  Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Reykjavík – staða og horfur Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri  Landsbankinn – fjölbreytt atvinnu- og verslunarhúsnæði í miðborginni Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt  Gróska - hugmyndahús í Vatnsmýri Árni Geir Magnússon, framkvæmdastjóri Grósku  Landspítali Háskólasjúkrahús – nýr meðferðarkjarni Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt  Hönnunardrifin nýsköpun – lykill að samkeppnisforskoti framtíðarinnar Kristbjörg María Guðmundsdóttir, stofnandi Mstudio - Innovationlab  Verslun í Reykjavík – greining á stöðu og framtíðarþróun Árni Sverrir Hafsteinsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs Verslunarinnar Fundarstjóri er Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.30. Fyrirlestrar hefjast kl. 9.00 og verður þeim streymt. Skapandi greinar, þróun verslunar og atvinnustarfsemi UPPBYGGING NÝSKÖPUN ÞJÓNUSTA VERSLUN HÖNNUN SAMKEPPNISHÆFNI SAMFÉLAG ATVINNUHÚSNÆÐI HUGMYNDAHÚS FJÖLBREYTNI ÞEKKING EFL ING MIÐBORGAR Ein af stjörnum The Office í íslenskum sjónvarpsþáttum The Office stjarnan Rainn Wil-son er staddur hér á landi, að því er virðist við upptökur á sjónvarpsþættinum Ráðherrann. Í innleggi á samskiptamiðlinum Twitter birti hann mynd af töku- liðinu, sem hann segir líta út eins og sannkallaða víkinga. Merkir hann sjónvarpsþáttinn Ráðherrann ásamt leikaranum Ólafi Darra í inn- legginu, en á myndinni sést annar lei k st jór i þát t a n na , Arnór Pálmi Arnars- son. Ólafur Darri fer með titilhlutverkið, en með honum í þætt- inum leika Þuríður Blær, Aníta Briem og Þor- valdur Davíð. Við getum því h l a k k að t i l að sjá þessu e i n v a l a l i ð i bregða fyrir á skjáum okkar fyrr en síðar. Hægt verður að kaupa Hatara-varn- ing í Bíói Paradís. Jón Jónsson verður meðal þeirra sem koma fram á sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON Hatara-varningur til sölur í Bíói Paradís um helgina Hönnunarfyrirtækið Döðlur hefur í samstarfi við hljóm-sveitina Hatara hannað fatalínu undir nafninu Hatrið. Hana er hægt að kaupa á heima- síðu hljómsveitarinnar. Döðlur standa einnig fyrir opnun svokall- aðrar pop-up búðar í Bíói Paradís á laugardaginn, þar sem hægt verður að kaupa fatnaðinn úr línunni frá klukkan 14.00. Síðar um kvöldið verður keppnin sýnd í bíóinu, en að henni lokinni verður slegið til heljarinnar Eurovision-veislu undir stjórn Styrmis Hanssonar í kjölfar keppninnar. Fólk er hvatt til að mæta í búningum. Heimilissýning í Laugardalshöll Heimilissýningin Lifandi heimili fer fram í Laugar-dalshöll um helgina, þann 18. og 19. maí. Síðast fór sýningin fram árið 2017 en þá tóku 90 fyrir- tæki þátt í að sýna vörur sínar fyrir gesti og gangandi. Sýningunni í ár verður skipt í tvo f lokka, ann- ars vegar fyrir nútímaheimilið og svo hins vegar fyrir foreldra, og þá sér í lagi nýbakaða. Leiktæki og skemmtiatriði verða fyrir börnin, en meðal þeirra sem fram koma eru söngvarinn Jón Jónsson og töfra- maðurinn Einar Mikael. Miðar á sýninguna fást á midi.is. 1 5 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F F -5 3 4 0 2 2 F F -5 2 0 4 2 2 F F -5 0 C 8 2 2 F F -4 F 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.