Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2019 ✝ Þóra Erla Hall-grímsdóttir fæddist á Akureyri 25. október 1930. Hún lést 19. desem- ber 2018 á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi. Móðir hennar var Þórunn Lúðvíks- dóttir, f. 16. apríl 1900, d. 1933. Mað- ur hennar var Hall- grímur Kristjánsson, f. 30. okt. 1880, d. 3. apríl 1954. Faðir Gísli Marinósson, f. 28. júní 1906, d. 17. nóv. 1995. Systkini sammæðra: Kristján, f. 5 mars 1923, d. 25. maí 1998, Ásta, f. 27. febrúar 1925, Auður, f. 5. nóv. 1926, d. 22. apríl 1991, og Erla, f. 13. apríl 1928, d. 2. apríl 1929. Systkini samfeðra: Hilmar, f. 29. febr. 1936, Hreiðar, f. 31. júlí 1940, Marselía, f. 8. mars 1942, Anna, f. 24. maí 1954. Uppeldisforeldrar Jenný Lúð- víksdóttir, f. 8. des. 1906, d. 13. des. 2002, og Haraldur Leví Bjarnason, f. 19. sept. 1909, d. 11. nóv.1990. Uppeldissystkini: Þórunn Haraldsdóttir, f. 25. júlí 1935, Börn þeirra eru: Þóra María, f. 25. febr. 1985, og Melissa Björg, f. 15. jan. 1992, d. 6. febr- úar 2017. Þóra missti móður sína þriggja ára gömul og flutti þá til móðursystra sinna, Jennýjar og Sólveigar í Reykjavík. Fljótlega tóku svo Jenný og Haraldur hana að sér. Á æskuárunum bjó Þóra á Grettisgötu hjá Jennýju og Haraldi. Á unglingsárum sín- um æfði Þóra sund og náði góð- um árangri. Þóra nam við Hús- mæðrakennaraskóla Íslands frá 1950 og lauk þaðan námi. Að námi loknu starfaði hún í sendi- ráði Íslands í Ósló. Þau Árni Þór giftust árið 1956, skömmu síðar fluttu þau hjón í Gnoðarvog 58, þar eignuðust þau og ólu upp börnin sín fyrstu árin. Fjöl- skyldan flutti síðan til Banda- ríkjanna árið 1966 þar sem þau bjuggu í 11 ár. Árni vann hjá íslenska fyrir- tækinu Iceland Products í Harrisburg, en Þóra, sem var húsmæðrakennari, var oft feng- in til að taka á móti og annast fólk sem kom í heimsókn í verk- smiðjuna, sem og fyrir Íslend- ingasamfélagið. Eftir að þau fluttu aftur til Ís- lands árið 1977 byggðu þau sér hús í Arkraseli 13 þar sem Þóra bjó til dauðadags. Útför Þóru fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 4. jan- úar 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Ingibjörg G. Har- aldsdóttir, f. 19. apríl 1942, og Hrannar Garðar Haraldsson, f. 15. okt. 1943, d. 2. júní 1995. Dóttir með Birni Brynjólfi Björns- syni Edda Björns- dóttir, f. 10. júlí 1950, maki Halldór Jón Sigurðsson, f. 6. nóv.1947. Börn þeirra eru Daði, f. 5. mars 1979, og Ívar, f. 12. sept. 1986. Þóra giftist 22. sept. 1956 Árna Þór Árnasyni, f. 26. apríl 1930, d. 5. maí 2003. Börn Þóru og Árna: a) Þórunn, f. 16. apríl 1957, maki Ívar Ásgeirsson, f. 15. júní 1959, barn þeirra er Dagný, f. 30. júní 1986. b) Árni Þór Árnason, f. 24. apríl 1959, maki Mimmo Ilvonem, f. 23. mars 1972, barn þeirra er Árni Tero, f. 24. ágúst 2008. Börn Árna frá fyrri samböndum eru: Karólína, f. 24. júlí 1981, Krist- ófer Logi, f. 4. okt. 1987, Ástrós Lind, f. 15. maí 1994. c) Jenný, f. 13. júlí 1962, maki Jay Manga- nello, f. 9. maí 1959. Elsku amma Þóra hefur kvatt þennan heim og það er erfitt að sætta sig við. Ung í hjarta, grallari og ævintýrakona eru þau orð sem koma fyrst í huga við að reyna að lýsa henni. Hún hafði mikinn húm- or fyrir sjálfri sér og það var alltaf stutt í grínið á erfiðum stundum. Hún hafði ákaflega smitandi hlát- ur sem gerði það auðvelt fyrir hvern sem var að tengjast henni og þykja vænt um fljótt. Ég er svo þakklát fyrir þær fjölmörgu góðu stundir sem við áttum saman. Það var ekki hægt að hugsa sér betri ömmu. Ég var svo heppin að fá að búa í kjallaran- um í Akraseli í eitt ár með for- eldrum mínum sem barn á meðan pabbi og afi voru að klára einbýlis- húsið okkar í Grafarvogi. Þá átti ég margar góðar stundir með ömmu. Ég man hvað ég var alltaf spennt að hlaupa upp stigann á morgnana og sjá hana á bað- sloppnum með kaffi að lesa Mogg- ann í hægindastólnum sínum. Það var eitthvað svo hlýlegt við þetta. Amma var mikil jólakona og ég tengi mikinn hluta af jólahaldinu og töfrunum í kringum þau við hana en hún skapaði alltaf mjög hátíðlega stemmingu. Hún var mikið fyrir hefðir og voru margir fastir liðir sem mikilvægt var að virða á hverju ári, nokkuð sem mér hefur þótt vænna og vænna um í gegnum árin. Henni þótti svo gaman að gefa gjafir og gleðja aðra. Á móti vildum við allt fyrir hana gera. Amma var dugleg að láta okkur krakkana taka þátt í jólaundirbúninginum og gefa okk- ur hlutverk. Ég man sérstaklega eftir því að hafa verið falin hin mikla ábyrgð að skreyta jólatréð og stofuna ásamt Ívari frænda. Yfirleitt skemmtum við okkur konunglega við þetta verk. Fyrir utan að vera meistara- bakari og matreiðslukona var hún amma virkilega flink í höndunum og voru ótal fallegar peysur og húfur prjónaðar á barnabörnin. Hún var einnig dugleg að smala okkur saman til að hittast og eyða tíma saman þegar hún hafði heilsu til. Hún hafði mikinn og einlægan áhuga á því sem barnabörnin tóku sér fyrir hendur og var alltaf með á hreinu hvar í heiminum hver var hverju sinni. Hún elskaði sjálf að ferðast og hafði gaman af ferða- sögum. Einnig fannst henni fátt skemmtilegra en að keyra. Ég fann alltaf til svo mikils stuðnings frá henni. Það er einnig ömmu að þakka að ég byrjaði að læra á pí- anó á sínum tíma en það var nám og reynsla sem átti eftir að verða mikilvægari og verðmætari en ég hafði gert mér grein fyrir. Eitt sem hefur alltaf staðið upp úr, og þá sérstaklega á seinni ár- um, er hvað hún var með ofboðs- lega skýrt og skarpt minni. Hún gat lýst betur minningum og at- burðum frá því fyrir 60-70 árum heldur en ég gæti lýst frá því í síð- ustu viku. Hún var dugleg að taka upp tækninýjungar, óskaði eftir staf- rænni myndavél um leið og þær komu út, tölvu, farsíma, einka- banka á netinu og hún lét sig ekki vanta á Fésbókina. Hún var mjög sjálfstæð og ákveðin kona. Bar sig alltaf með virðingu og stolti og neitaði að sýna merki um veikleika fram á síðustu stund. Þannig mun ég minnast hennar að eilífu. Hvíl í friði, elsku amma. Dagný Ívarsdóttir. Elsku amma. Það er undarlegt að hugsa til þess að þú sért ekki lengur á með- al okkar. Það er undarlegt að hugsa til þess að þú sért ekki leng- ur í Akraselinu þar sem ég á svo margar góðar minningar. Það var svo gott að koma í heimsókn til þín og njóta samveru þinnar. Ég minnist þess að hafa setið í eldhúsinu þínu og talað við þig um allt milli himins og jarðar, á meðan ilmurinn af „pancakes“ fyllti eld- húsið – með alvöru amerísku sír- ópi. Ég minnist þess hversu hlý og einlæg þú varst og hversu vel mér leið í návist þinni. Okkar stundir saman eru mér dýrmætar og þú átt alltaf stað í hjarta mínu. Þín Karólína. Það er virkilega undarleg og erfið tilfinning að sitja hér og skrifa minningargrein um elsku- lega ömmu mína. Það er svo sárt að takast á við þann raunveruleika að amma, sem hefur staðið mér við hlið og verið með mér allt mitt líf, sé virkilega farin. Ég var svo heppinn að búa alla mína ævi í næstu götu við ömmu og það var svo gott að vita af henni og geta farið til hennar hvenær sem var. Amma hafði alltaf miklar skoð- anir á öllum hlutum og hafði greinilega upplifað margt í sínu lífi. Sama um hvað maður talaði við hana þá hafði hún skoðun eða sögu til að segja manni frá því sem hún hafði upplifað. Hún hafði alltaf svo mikinn áhuga á því sem maður var að gera og fannst gaman að spyrja hvað væri að frétta af mér. Það er ekki auðvelt að rita minningar- grein og reyna að rifja upp ákveðnar minningar þar sem það er engin ein minning, hún amma var það stór hluti af lífi mínu; sama hvaða tímamóta maður hugsar til þá var hún þar. Amma var sterkasta mann- eskja sem ég hef kynnst. Alveg sama hvað bjátaði á þá sá maður aldrei neitt að henni og ef maður komst að því að eitthvað var að angra hana lét hún mann lofa því að segja ekki sálu frá því. Sá styrkleiki kom sennilega sterkast fram á síðustu dögum hennar þeg- ar sjúkdómurinn var langt kominn en maður tók aldrei eftir því að neitt væri að hrjá hana og virkaði hún yfirleitt á mann þannig að hún væri í betra standi en maður sjálf- ur. Því er kannski enn óraunveru- legra að hún sé í raun farin. Það er erfitt að kveðja mann- eskju sem var manni svo kær, en ég er gífurlega þakklátur fyrir all- ar minningarnar og allt sem amma hefur gert fyrir mig. Ég veit að þótt hún sé kannski ekki lengur hér þá verður hún alltaf hjá mér og í raun aldrei farin. Það er kannski við hæfi að enda þetta á síðustu orðunum sem ég sagði við ömmu mína á líknardeildinni: ég elska þig. Ívar Halldórsson. Það er erfitt að lýsa í orðum hver amma var fyrir mér og svo mörgum öðrum. Hún var ljós sem skein skært fyrir sína nánustu, sérstaklega á myrkum og erfiðum tímum. Jafnvel á hennar síðustu dögum setti hún fjölskylduna í forgang. Hún var gjafmild og samúðarfull. Ég dáðist alltaf að því hvernig hún gat fangað athygli allra við- staddra. Stóru fallegu brúnu aug- un hennar gátu horft djúpt inn í sál þína og fyllt þig af ást og hugg- un um að allt yrði í lagi. Styrkur hennar og stuðningur var ómet- anlegur fyrir mig á mínum erfiðu árum en hún var alltaf til staðar fyrir mig, skilyrðislaust. Við amma berum sama nafn því ég var skírð í höfuðið á henni. Það er heiður sem ég mun bera með mér það sem eftir er. Síðast þegar ég sá hana, fyrir sex vikum, þá sagði hún mér oft hversu sterk ég væri og hversu lík ég væri henni sem leiðtogi. Það er erfitt að feta í þau fótspor en ég mun reyna að vera sterk það sem eftir er til að heiðra minningu hennar. Þóra Manganello, barnabarn. Kæra systir. Með sorg í huga drep ég niður penna og kveð þig með fáeinum orðum. Þú varst ætíð sú sterka sem hægt var að leita til, fyrirmyndin á svo mörg- um sviðum. – En hver hefur sinn drösul að draga í lífinu, misstóran, þinn var mörgum númerum of stór, þótt þú kvartaðir aldrei. Sóríasis ásamt liðagikt er ekkert grín að kljást við. Með viljann að vopni og góðum lyfjum tókst þér að komast aftur á fætur og til sæmilegrar heilsu á sínum tíma, en eftir stóð stöðug vinna að halda exeminu í skefjum. Þegar Bláa lónið fyrir tilviljun reyndist hafa lækningamátt varstu ekki sein að nýta þér það og náðir oft miklum árangri. En svo var tekið fyrir það. En snúum okkur að glaðari hliðum lífs þíns. Þú varst alltaf stóra flotta systirin sem gott var að leita til, enda lærði ég margt af þér. Þú eignaðist Eddu þína um svipað leyti og þú aflaðir þér góðr- ar menntunar sem hússtjórnar- skólakennari og þótt þú ynnir ekki við kennslu varstu vel í stakk búin til að vera matráðskona á ýmsum stöðum og taka að þér veisluhöld, allt lék þér vel í hendi. Þú eignaðist ljúfan og heima- kæran eiginmann þar sem Árni Þór var og voruð samhent við að búa ykkur fallegt heimili í Gnoðarvoginum. Börn ykkar; Þórunn, Árni Þór og Jenný, uxu þar úr grasi og eru öll börnin þín vel gift í dag. Eftir nokkur ár í Gnoðarvogi bauðst Árna vinna í fiskverksmiðju Sambandsins í Harrisburg, Pennsylvaníu þar sem þið dvölduð í áratug. Heim komin var fljótlega byrjað að byggja í Akraseli og Gnoðarvogur seldur. Jenný þín hvarf aftur til Harrisburgar nokkrum árum seinna og giftist öðlingspilti, Jay, og eignaðist með honum tvær dætur, Thoru Mariu og Melissu. Sá sorglegi atburður gerðist fyrir fáum árum, að Melissa dó í svefni, blessuð sé minning hennar, gullfalleg stúlka og svo miklum hæfileikum búin. – Nokkrum ár- um eftir að Árni Þór dó eignaðist þú góðan vin, Gunnar Þormar, sem var duglegur að finna upp á leikhús- og utanlandsferðum, sem þú hafðir mikla ánægju af. En svo leyfði heilsan það ekki lengur. Erfitt þótti henni að geta ekki heimsótt dótturina og fjöl- skyldu í Bandaríkjunum framar. Síðustu tvö árin, eftir að hún greindist með húðkrabba, voru henni erfið, þótt hún bæri ætíð höfuðið hátt og kveinkaði sér aldr- ei. Við systurnar töluðum oft um að skreppa vestur að heilsa upp á Árna son hennar, en aldrei fannst hentugur tími fyrr en í ágúst sl., að hún gaf grænt ljós á það og við drifum okkur ásamt Eddu, sem keyrði í dásamlegu veðri, og áttum við yndislega dvöl hjá gestrisnu litlu fjölskyldunni á Ísafirði. Þrátt fyrir að ferðin væri systur minni afar erfið lét hún aldrei á neinu bera, sterk eins og henni var ætíð eiginlegt. Blessuð sé minning hennar. Með orðum skáldsins F.J. Arn- dals kveð ég þig, elsku systir: Geiglaus að móðunni miklu ég fer, mjúkhendur blærinn hann fylgir mér yfir. Andviðrin hverfa, en byrinn mig ber blíðheima til, þar sem ástúðin lifir. Mín heitasta þrá mun þar fullnægju finna í friðarins höfn meðal ástvina minna. Ingibjörg G. Haraldsdóttir. Elsku Þóra mín, nú ertu farin frá okkur og ég sakna þín svo sárt. Við vorum stjúpsystur og nánustu vinir allt lífið. Þóra fluttist til Reykjavíkur frá Akureyri einungis þriggja ára gömul eftir andlát móður sinnar Þórunnar. Í Reykjavík átti Þórunn tvær systur, móður mína Sólveigu og Jennýju. Þóra bjó fyrst hjá okkur, en eftir að Jenný giftist Haraldi Bjarnasyni tóku þau Þóru undir sinn verndarvæng sem sitt barn og ólst hún upp hjá þeim í miklum kærleika. Mikill og kær samgang- ur var ætíð milli móður minnar og Jennýjar. Minningarnar hrannast upp. Samband okkar Þóru var alltaf mjög náið. Það leið varla sá dagur að við heyrðum ekki hvor í ann- arri. Eftir að Þóra og Árni fluttu í Akraselið, vorum við Þóra dugleg- ar að fara í göngutúra um ná- grennið, sem enduðu auðvitað með fínum kaffisopa í litla, fallega eld- húsinu þeirra og ég hafði þar fast sæti. Þetta voru góðar stundir. Þóra með sitt yndislega skap og brosið fallega og svo töluðum við náttúrlega út í eitt. Nokkrum sinnum fórum við norður í land og heimsóttum frændfólkið okkar í Mývatnssveit- inni. Í þessum ferðum komum við alltaf við í kirkjugarðinum á Ak- ureyri og fórum að leiði móður hennar. Þegar Þóra var orðin full- orðin kynntist hún blóðföður sín- um, Gísla Ólafssyni, og konu hans Kristínu, miklum öðlingshjónum. Mér lánaðist að hitta þau í eitt skipti og eiga með þeim kærleiks- ríka stund sem mun aldrei gleym- ast. Já, þær voru ótal margar gleði- stundirnar sem við áttum saman. Nú hefurðu fengið hvíldina, elsku Þóra mín, og söknuðurinn er mik- ill. Ég bið góðan Guð að varðveita þig. Við fjölskyldan vottum elsku- legum börnum þínum og fjölskyld- um þeirra okkar dýpstu samúð. Megi blessun fylgja ykkur. Þín Erla Sigurjónsdóttir. Inni í blámanum úti við ysta haf tekur við annar heimur þar sem þér hefur verið búinn staður utan efnis, tíma og rúms. Þar ríkir fegurð og friður, fyrirgefning og réttlæti, sumar og sátt, líf í fullri gnægð. Þú gengur á skýjum himins inn í endurnýjun lífdaga, þar sem allt verður nýtt og fegurðin varir að eilífu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Blessuð sé minning mágkonu og vinkonu minnar, Þóru Erlu Hallgrímsdóttur, og hafðu þökk fyrir allt. Lára Kjartansdóttir. Þóra Erla Hallgrímsdóttir Systir mín, MARÍA BJÖRK ÞÓRSDÓTTIR, Bakka, Öxnadal, lést 25. desember. Útför hennar fer fram frá Bakkakirkju þriðjudaginn 8. janúar klukkan 13.30. Ólöf Þórsdóttir Ástkær eiginmaður minn, sonur, pabbi okkar, tengdapabbi, afi og bróðir, EINAR BRAGI BERGSSON skipstjóri, Mosarima 8, lést á Landspítalanum 28. desember. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 9. janúar klukkan 13. Guðrún Bernódusdóttir Ágústa Einarsdóttir Guðjón Öfjörð Einarsson Kristjana Hrund Bárðardóttir Baldur Freyr Einarsson Barbara Hafey Þórðardóttir Bergur Árni Einarsson Inga Kristín Kjartansdóttir Friðgeir Rúnarsson Vilborg Anna Hjaltalín afabörn, systkini og aðrir aðstandendur Elsku systir mín og mágkona, AGNES INGVARSDÓTTIR, lést 23. desember. Útför hennar fer fram frá St. James-kirkju, Colwall, Herefordshire, 10. janúar. Björn Ingvarsson Erla Margrét Sverrisdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓTTARR MÖLLER, fv. forstjóri, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 19. desember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 8. janúar klukkan 13. Emilía Björg Möller Valgeir Ástráðsson Kristín Elísabet Möller Jóhannes Jóhannesson Erla Möller Sigurður Kr. Sigurðsson Auður Margrét Möller Guðmundur Már Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.