Morgunblaðið - 11.01.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2019
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir ökuskírteinið,
passann, ferilskrána o.fl.
Góð passamynd
skiptir máli
Engar tímapantanir
Skjót
og hröð
þjónusta
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
Arnar Þór Ingólfsson
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi
Miðflokksins, og Kolbrún Baldurs-
dóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins,
ætla að flytja tillögu á næsta fundi
borgarstjórnar um að skýrslu innri
endurskoðunar Reykjavíkurborgar
um framkvæmdirnar við Nauthóls-
veg 100 verði vísað til héraðs-
saksóknara til rannsóknar.
„Við munum styðja þessa tillögu,
við sjáum ekki hvernig er hægt að
vera á móti því að þetta sé skoðað,“
sagði Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins.
Málið kallar á umbætur
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formað-
ur borgarráðs og oddviti Viðreisnar,
sagði að ekkert í skýrslunni benti til
þess að glæpsamlegur ásetningur
hefði verið til staðar. Minnihlutinn
væri að nota braggamálið í pólitísku
leikriti. Hún og Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri kynntu yfirlit yfir
ábendingar úr skýrslu innri endur-
skoðunar í borgarráði í gær.
„Ég get ekki séð það að þetta sé
lögreglurannsókn. Mér fannst ein-
mitt gott þegar ég sá skýrsluna í des-
ember að það var mjög margt sem
þarf að breyta og miklar umbætur
sem þarf að gera, en það gladdi mig
hins vegar, af því að við höfðum af því
áhyggjur, að skýrslan er mjög skýr
með það að það er ekki glæpsamleg-
ur ásetningur inni í þessu,“ sagði
Þórdís Lóa. Það að borgarfulltrúarn-
ir ætli að leggja til að braggamálinu
verði vísað til héraðssaksóknara hafi
komið henni á óvart. „En það kemur
mér samt ekkert á óvart að það sé
reynt að gera eins mikið úr þessu og
hægt er, því það hefur verið vilji
minnihlutans alveg frá byrjun. Málið
er hins vegar grafalvarlegt, við þurf-
um að fara í umbætur og ætlum að
gera það.“
Í bókun Vigdísar á fundinum kom
fram að tillagan væri rökstudd með
vísan í 140. og 141. grein almennra
hegningarlaga, sem fjalla um skyldur
opinberra starfsmanna í störfum sín-
um.
Viku ekki af fundinum
Vigdís lýsti í bókuninni furðu sinni
á því að borgarstjóri, borgarritari og
borgarlögmaður hefðu ekki vikið af
fundi undir umræðu um skýrslu innri
endurskoðunar.
„Þessir aðilar eru persónur og leik-
endur þegar kemur að braggamálinu.
Kjörnir fulltrúar verða að hafa frelsi
til beinna samskipta við skýrsluhöf-
unda í svo alvarlegum málum án
áheyrnar þeirra sem um er fjallað í
skýrslunni. Það er mjög nauðsynlegt,
ekki síst í ljósi þess að mikilvægt er
að aðilar geti ekki samræmt fram-
burð sinn eftir því hvernig spurning-
um borgarfulltrúa og svörum innri
endurskoðunar fram vindur,“ sagði
m.a. í bókuninni.
Í bókun Kolbrúnar sagði að skýrsl-
an hefði mátt fara dýpra í „embættis-
færslur og stjórnsýsluhætti borgar-
stjóra og borgarritara í tengslum við
braggaverkefnið“. Þá sagði hún að
tölvupóstar hefðu ekki verið skoðaðir
eins ítarlega við rannsókn innri end-
urskoðunar og hægt hefði verið.
„Sjá má af öllu þessu að þarna
leika ákveðnir starfsmenn sér að vild
og án eftirlits með fé borgaranna.
Stór spurning er hvort hér sé ekki
um misferli að ræða. Í það minnsta
hafa lög verið brotin, sveitarstjórn-
arlög og lög um skjalavörslu og
spurning er með meintar blekking-
ar,“ sagði í bókun Kolbrúnar. Hún
kvaðst í viðtali vilja sjá innri endur-
skoðun gera úttekt á enn fleiri verk-
efnum sem heyrðu undir skrifstofu
eigna og atvinnuþróunar „til þess að
sjá hvort sama stjórnleysið hafi verið
alstaðar“.
Vilja vísa braggamáli til saksóknara
Borgarfulltrúar Miðflokks og Flokks fólksins leggja til að héraðssaksóknari rannsaki skýrslu innri
endurskoðunar Sjálfstæðisflokkur styður tillöguna Formaður borgarráðs segir málið grafalvarlegt
Morgunblaðið/Eggert
Oddvitar Eyþór Arnalds og Þórdís
Lóa Þórhallsdóttir fyrir fundinn.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Samanlagður aldur fimmtán systk-
ina frá Brúnastöðum í Flóa nær í
dag sléttum þúsund árum. Geir
Ágústsson, bóndi í Gerðum í Flóa,
verður í dag, 11. janúar, 72 ára en
hann er fimmti elsti af systkinunum
sem voru alls sextán. Gísli, sem var
fjórði í aldursröðinni, lést 2006 og er
utan við framangreinda summu.
Böndin eru sterk
Foreldrar þessa stóra systkina-
hóps voru Ágúst Þorvaldsson, bóndi
og alþingismaður, og Ingveldur Ást-
geirsdóttir, sem bæði eru látin. „Við
systkinin erum öll við góða heilsu og
í stórum dráttum má segja að lífið
hafi leikið við okkur,“ segir Ásdís
Ágústsdóttir sem er fædd árið 1942
og er elst systkinanna. „Nei, mér
finnst ég aldrei hafa átt mörg systk-
ini eða velt því mikið fyrir mér. Ég
þekki ekki annað en að hafa verið í
þessum stóra barnahópi. Já, við
höldum vel hópinn, böndin milli okk-
ar systkinanna eru sterk og alltaf
talsverður samgangur milli fólks.“
Ásdís býr á Selfossi en fjórtán
systkinanna búa á Suðurlandi. Í
Reykjavík býr Guðni, fyrrverandi
alþingismaður og ráðherra.
„Við fengum kjarngóðan mat í
foreldrahúsum, vorum starfandi og
alltaf á hreyfingu. Það skýrir sjálf-
sagt að einhverju leyti að okkur öll-
um heilsast vel þótt árunum fjölgi,“
segir Guðni. „Við systkinin erum öll
utan eitt fædd í hjónarúminu heima
þar sem Arndís amma okkar var
ljósmóðir, en því embætti gegndi
hún í sinni sveit. Og á stóru heimili
urðu allir að hjálpast að. Pabbi
klippti okkur bræður á sunnudögum
þegar hann kom heim af þinginu um
helgar væri ekki messa í Hraun-
gerði. Það hefði kostað drjúgan
skildinginn að senda 16 börn tíu
sinnum á ári til rakarans.“
91 karl og 55 konur
Systkinin frá Brúnastöðum eru í
aldursröð: Ásdís, f. 1942; Þorvaldur,
f. 1943; Ketill Guðlaugur, f. 1945;
Gísli, f. 1946. d. 2006; Geir, f. 1947;
Hjálmar, f. 1948; Guðni, f. 1949;
Auður, f. 1950; Valdimar, f. 1951;
Bragi, f. 1952; Guðrún, f. 1954;
Tryggvi, f. 1955; Þorsteinn, f. 1956;
Hrafnhildur, f. 1957; Sverrir, f.
1959; Jóhann, f. 1963. – Barnabörn
Brúnastaðahjónanna eru alls 49;
barnabarnabörn eru samtals 77 og
fjögur eru komin í fimmta ættlið.
Alls eru þetta 146 manns; 91 karl og
55 konur
Þrír aðrir systkinahópar sem nú
eru á lífi hafa náð þúsund ára aldri,
elsti hópurinn er frá Kjóastöðum í
Biskupstungum en heildaraldur
hans er nú 1.070 ár. Sextán systkini
frá Gunnlaugsstöðum í Stafholts-
tungum í Borgarfirði eiga Íslands-
metið, sem er frá 1991, 1.215 ár.
Brúnastaðasystkinin eru 1.000 ára í dag
Sextán og fimmtán lifa Fjölmennur hópur úr Flóanum Fædd á árunum 1942-1963 Öll eru
þau við góða heilsu Lífið hefur leikið við okkur, segir Ásdís Ágústsdóttir sem er elst systkinanna
Ágústsbörn Í fremri röð frá vinstri, Geir, sem er afmælisbarn dagsins, Bragi, Hjálmar, Gísli sem lést 2006, Tryggvi,
Þorsteinn, Þorvaldur og Ketill. Í aftari röð eru, frá vinstri, Valdimar, Guðni, Auður, Hrafnhildur, Ásdís, Guðrún,
Sverrir og Jóhann. Systkinin fimmtán búa öll, að Guðna frátöldum, á Suðurlandi. Mynd frá árinu 2005.
Vigdísarholt ehf. mun annast rekst-
ur nýja hjúkrunarheimilisins á Sel-
tjarnarnesi, samkvæmt viljayfirlýs-
ingu heilbrigðisráðherra og
Vigdísarholts ehf. sem undirrituð var
í gær, að því er segir í tilkynningu
heilbrigðisráðuneytisins.
Seltjarnarnesbær mun afhenda
hjúkrunarheimilið fullfrágengið og
fullinnréttað til rekstrar fyrir næstu
mánaðamót. Samkvæmt viljayfirlýs-
ingunni tryggir heilbrigðisráðuneytið
greiðslur fyrir rekstri 40 hjúkrunar-
rýma af hálfu Sjúkratrygginga Ís-
lands frá 1. febrúar næstkomandi.
Gert er ráð fyrir að það geti tekið
allt að þrjá mánuði að koma heim-
ilinu í fullan rekstur þannig að öll
hjúkrunarrýmin verði fullnýtt. Vig-
dísarholt, sem tekur að sér rekstur
hjúkrunarheimilisins á Seltjarnar-
nesi, er einkahlutafélag í eigu rík-
isins. Félagið rekur einnig hjúkr-
unarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi
undir stjórn Kristjáns Sigurðssonar
sem er framkvæmdastjóri Vigdísar-
holts og mun hann einnig stýra
rekstri heimilisins á Seltjarnarnesi.
Formaður stjórnar Vigdísarholts er
Steingrímur Ari Arason. Horft er til
samlegðaráhrifa í þessu sambandi
með góða þjónustu og samnýtingu
að leiðarljósi.
Vigdísarholt mun einnig annast
rekstur níu dagdvalarrýma sem Sel-
tjarnarnesbær hefur rekið við Skóla-
braut. Þau verða færð í húsnæði
nýja hjúkrunarheimilisins 1. júlí nk.
Stefnt er að því að fjölga dagdval-
arrýmum í 25 þann 1. janúar 2020.
Samkomulag gert um
rekstur á hjúkrunarheimili
40 hjúkrunarrými á Seltjarnarnesi Fullfrágengið 1. feb.
Ljósmynd/Heilbrigðisráðuneytið
Viljayfirlýsing Vigdísarholt ehf.
mun reka hjúkrunarheimilið.