Morgunblaðið - 11.01.2019, Side 36
*Verð miðast við WOW Basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
Tilboðið á aðeins við ef bókað er flug fram og til baka.
SKÍÐINFLJÚGA
FRÍTTMEÐ
SALZBURG FRÁ
12.999kr.*
Tímabil: janúar - febrúar 2019
Dreymir þig snævi þakta fjallstinda og skjannahvítan
púðursnjó? Þá er Salzburg áfangastaðurinn fyrir þig,
enda stutt í bestu brekkurnar. Skíðin, eða snjóbrettið,
fljúga frítt með ef þú bókar fyrir miðnætti 13. janúar
á wowair.is. Fáðu frí frá rigningunni og upplifðu
ævintýralega Alpafegurð í vetur.
Hljómsveitin Nýdönsk heldur tón-
leika í kvöld og annað kvöld í Bæj-
arbíói og eru tónleikarnir í kvöld
aukatónleikar því miðar seldust
upp á augabragði á tónleikana ann-
að kvöld, að því er fram kemur á
miðasöluvefnum midi.is. Á efnis-
skránni verða mörg af þekktustu og
vinsælustu lögum sveitarinnar, eins
og segir þar.
Nýdönsk blæs til auka-
tónleika í Bæjarbíói
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 11. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Njarðvík og Tindastóll, tvö efstu
liðin í Dominos-deild karla í körfu-
knattleik, lentu í miklum vandræð-
um á heimavöllum sínum í gær-
kvöld en tókst báðum að knýja fram
sigur að lokum. Njarðvík vann Þór
frá Þorlákshöfn með sex stigum og
Tindastóll lagði Valsmenn með
þriggja stiga mun í framlengdum
leik. »2-3
Toppliðin voru í basli
á heimavöllum sínum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Félagarnir Eiríkur Orri Ólafsson, Ró-
bert Reynisson og Magnús Trygva-
son Eliassen koma saman í menn-
ingarhúsinu Mengi við Óðinsgötu í
kvöld kl. 21 og leika af fingrum
fram. Þeir hafa allir spilað með
mörgum mjög lengi og þar með tal-
ið hver með öðrum, eins og þeir
lýsa því á Facebook. Hafa þeir starf-
að saman sem tríó í tæpt ár og gert
margt mjög skemmti-
legt; á hverjum
tónleikum má til
að mynda heyra
rafmagnshljóð,
óhljóð og skrýtinn
takt.
Rafmagnshljóð, óhljóð
og skrýtinn taktur
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Barnaspítali Hringsins er með viða-
mikla rannsókn í gangi á veikindum
barna fram að fjögurra ára aldri og
hvaða áhrif sjúkdómarnir hafa á for-
eldra og aðra aðstandendur. „Mjög
mikilvægt er að flestir foreldrar ný-
fæddra barna taki þátt í rannsókn-
inni og hafi úthald til þess í langan
tíma til þess að niðurstöðurnar verði
sem áreiðanlegastar,“ segir Ásgeir
Haraldsson, yfirlæknir, prófessor í
barnalækningum og forstöðumaður
fræðasviðs Barnaspítala Hringsins.
Rannsóknin kallast VOFFI, sem
stendur fyrir „Veikindi og fjarvistir
fjölskyldna á Íslandi“. Ásgeir og
Valtýr Stefánsson Thors barna-
læknir hafa umsjón með rannsókn-
inni, en gagnasöfnun hófst fyrir um
ári.
„Fyrir okkur vakir að reyna að
meta hvað veikindi ungra barna
valda miklu álagi,“ segir Ásgeir.
Hann bendir á að hægt sé að nálg-
ast tölur um til dæmis innlagnir á
sjúkrahús, en í mörgum tilfellum
séu veik börn heima og fólk missi úr
vinnu og skóla þess vegna. Upplýs-
ingar þar að lútandi séu ekki til.
Mikilvægt samfélagsverkefni
Allir foreldrar barna, sem hafa
fæðst frá 1. janúar 2018, geta tekið
þátt í rannsókninni, sem tekur fjög-
ur ár. Þátttakendur fá sendan stutt-
an spurningalista á rafrænu formi á
þriggja mánaða fresti, þar sem
spurt er um veikindi barnsins
undanfarna þrjá mánuði Hafi ekki
verið um nein veikindi að ræða er
svarið nei við fyrstu spurningunni
og þá þarf ekki að svara fleiri spurn-
ingum í það skiptið. Hafi barnið ver-
ið veikt er spurt nánar til þess að
greina á milli sjúkdóma eins og til
dæmis öndunarfærasjúkdóma og
magapestar. Einu sinni á ári er
lengri spurningalisti um almennt
heilsufar og afstöðu til heilbrigðis-
mála og bólusetninga. „Smátt og
smátt byggist upp hjá okkur gagna-
grunnur, þar sem við getum sagt
með nokkuð góðri vissu hversu mik-
il veikindin eru og hversu miklar
fjarvistir foreldra frá skóla eða
vinnu eru,“ segir Ásgeir.
Rannsakendurnir hafa hvergi
rekist á eins ýtarlega rannsókn á
þessu sviði erlendis og þessa. Ásgeir
segir að hérlendis séu góðir mögu-
leikar á að fá nákvæm svör og sér-
staklega vegna þess að foreldrar á
Íslandi séu mjög jákvæðir fyrir
verkefninu. Þátttakendur á fyrsta
árinu nálgist 3.000 eða foreldrar um
60% nýfæddra barna á ári. „Við er-
um sáttir með 50% þátttöku en því
fleiri því betra,“ segir Ásgeir. Hann
leggur áherslu á að niðurstöðurnar
geti nýst foreldrum til þess að fá
meiri skilning á veikindadögum,
fjarvistum og því álagi sem veik-
indum barna fylgir.
Foreldrum á stærstu fæðingar-
stöðum landsins er boðin þátttaka á
fyrstu viku barnsins en á öðrum
stöðum taka ljósmæður og hjúkr-
unarfræðingar, sem sinna heima-
þjónustu, við skráningu. Eins getur
fólk skráð sig með því að senda
tölvupóst á voffi@landspítali.is eða
á VOFFI, Facebook-síðu verkefn-
isins.
Samtök atvinnulífsins styrkja
verkefnið og segir Ásgeir það
ánægjulegt. „Við höfum fundið fyrir
því að beggja vegna borðsins á
vinnumarkaði er jákvæður áhugi á
rannsókninni og það er ánægjulegt
að heyra af vilja til þess að fá sem
gleggsta mynd af þessum þætti.“
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, segir mikil-
vægt að átta sig á stöðunni. Veikindi
barna geti valdið miklu álagi á fjöl-
skyldur á viðkvæmum tíma, þegar
fólk er að hefja starfsferil sinn á
vinnumarkaði og koma sér þaki yfir
höfuðið. „Þetta er brýnt samfélags-
verkefni en Ísland stendur öðrum
norrænum löndum langt að baki
þegar kemur að því að halda töl-
fræði yfir veikindi og fjarvistir frá
vinnumarkaði. Þegar niðurstaða
rannsóknarinnar liggur fyrir er svo
hægt að velta því fyrir sér hvað er
hægt að gera betur,“ segir hann.
Hvetja foreldra til
samstarfs við voffa
Voffi Ásgeir Haraldsson og Valtýr Stefánsson Thors sjá um rannsóknina.
Viðamikil rannsókn á veikindum barna og fjarvistum þeirra vegna