Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Blaðsíða 2
Hvernig leggst nýja árið í þig?
Nýtt ár er alltaf spennandi og ég veit að það eru góð-
ir tímar framundan. Ég hlakka til að vinna með
fólki sem vill bæta líf sitt, það er svo gefandi að sjá
breytingarnar, andlega og líkamlega.
Strengdir þú áramótaheit?
Vera besta útgáfan af sjálfri mér og fara vel
með það eintak sem ég er með í höndunum.
Vera góð móðir og maki og elska skilyrðis-
laust. Stunda mína líkamsrækt af lífi og sál.
Næra líkama minn af öllu því holla sem hann
kallar á. Sofa eins og engill. Vakna til vinnu
alla daga með bros á vör. Ég ætla að lifa í
núinu.
Hvað er nýtt í líkamsrækt á
nýju ári?
Æfingatíminn á eftir að styttast, 60
mín. verður 30-45 mín. Það er hægt að
ná jafn góðum árangri á styttri tíma
með vel skipulögðum æfingum þar sem
styrkur og sprengikraftur er notaður á
víxl með stuttum pásum í bland við liðleika
og jafnvægisæfingar. Fólk á einnig eftir að
nota náttúruna meira, hugleiða og stunda jóga.
Nú ætla margir að byrja árið á
heilsuátaki. Hvaða ráð gefur þú
fólki varðandi hreyfingu?
Finndu þér hreyfingu sem þér finnst skemmti-
leg, það getur tekið smátíma að prófa sig
áfram. Það á að vera tilhlökkun að stökkva í
æfingagallann og fá smá útrás. Mikilvægt er að
hafa hreyfinguna fjölbreytta, og nota líka nátt-
úruna, súrefnið og sólina.
Ef þú ættir að gefa eitt gott ráð á nýju
heilsusamlegra ári, hvaða ráð væri það?
Lifa þolinmóð einn dag í einu með bros á vör og nota þau
tækifæri sem við fáum til að gera það besta úr okkur.
Árangurinn sannar það að litlu skrefin koma manni á end-
anum í mark.
Viltu segja eitthvað að lokum?
Brostu og þér mun ganga betur. Elskaðu þig af öllu þínu hjarta
og farðu vel með þitt eintak, það er bara til eitt!
TELMA MATTHÍASDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Farðu vel með
þitt eintak
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2019
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Almáttugur. Hér hefur verið framið morð!Þetta var það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá Ólaf Darra Ólafs-son rölta í hægðum sínum út ganginn hér á ritstjórn Morgunblaðsins
í vikunni. Sláandi tíðindi en samt fór ég ekki af hjörunum enda göngulag
Ólafs Darra með afbrigðum sefandi. Þrátt fyrir aðsteðjandi hörmungar og
eymd fær maður strax á tilfinninguna að allt komi til með að fara vel. Að lok-
um.
Hvers vegna hugsaði ég á þennan veg; það er gaf mér að morð hefði verið
framið hér í fásinninu við Rauðavatn?
A. Vegna þess að Ólafur Darri var í keimlíkum vetrarjakka og hann klæð-
ist í annarri seríunni af Ófærð – ef ekki hreinlega þeim sama.
B. Vegna þess að ég er endanlega hættur að gera greinarmun á veruleika
og sjónvarpi.
Þín ágiskun, lesandi góður, er
örugglega ekkert verri en mín; ég
átta mig hreinlega ekki á þessu. Hitt
liggur þó fyrir að ég hef löngum haft
jafnmikil ef ekki meiri samskipti við
fólk sem heyrir til öðrum víddum en
þeirri sem við dauðlegir menn búum
í. Níu ára gömul sonardóttir mín
minnti mig á þessa staðreynd á dög-
unum. Þegar ég spurði hvort hún
hefði heyrt söguna af John gamla
Sorbitch gretti hún sig bara. Nú,
trúirðu því ekki að hann sé til?
spurði ég hvumsa.
„Nei, afi. Þú ert alltaf að búa til
einhverja menn?“
Það leiðir hugann að því hvort
Ólafur Darri sé líka hugarfóstur mitt. Útilokað að útiloka það enda er gaur-
inn mjög líklega of góður til að vera raunverulegur í þessum viðsjárverða
heimi. Eða hvað? Og hvað var hann að gera hér í Hádegismóum í vikunni?
Sáu einhverjir fleiri hann?
Ófærð 2 þykir mér hafa farið vel af stað. Þjóðin er vonandi búin að jafna
sig á því að þar geta menn farið inn í hús á Siglufirði og komið út á Seyðisfirði
og getur fyrir vikið farið að einbeita sér að sjálfum söguþræðinum. Hann hef-
ur verið þéttofinn í byrjun og ómögulegt að segja inn í hvaða skúmaskot sam-
félagsins framvindan á eftir að skila okkur. Maður getur þó huggað sig við
það að Ólafur Darri fer fyrir rannsókninni og mun alveg örugglega ekki fara
á taugum – enda þótt heilu fjallshlíðarnar falli að fótum hans.
Já, almáttugur. Morð hefur verið framið!
Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir
Morð framið í
Hádegismóum
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Það leiðir hugann aðþví hvort ÓlafurDarri sé líka hugarfósturmitt. Útilokað að útiloka
það enda er gaurinn mjög
líklega of góður til að vera
raunverulegur í þessum
viðsjárverða heimi.
Benedikt Arnar Þorvaldsson
Nei, en ég hef alltaf sömu mark-
miðin sem ég reyni að standa við.
SPURNING
DAGSINS
Strengdir
þú ára-
mótaheit?
Guðný Guðnadóttir
Nei. Ég hef gert það en alltaf svikið
þau þannig að ég sleppti því í ár.
Rafn Magnús Jónsson
Nei. Ég hef ekki gert það.
Eyrún Magnúsdóttir
Nei, en ég setti mér markmið. Að
vera duglegri að hreyfa mig og
hætta að henda fötum á stól.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 569 1100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís
Telma Matthíasdóttir er eigandi Fitubrennsla.is og rekur einnig
Bætiefnabúlluna með unnusta sínum. Hún hefur þjálfað í HRESS
í 18 ár og er vinsæl á snapchat undir nafninu fitubrennsla.