Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Blaðsíða 12
Undirtitill bókar GretchenRubin Better Than Beforeer, What I Learned About Making and Breaking Habits - to Sleep More, Quit Sugar, Procrast- inate Less, and Generally Build a Happier Life. Rubin þekkja margir en hún er höfundur metsölubókanna Happier at Home og The Happiness Project, sem sagt hefur verið frá á síðum Sunnu- dagsblaðsins. Rubin segir vana vera ósýnilegan arkitektúr hversdagslífs- ins og þannig geti þeir stuðl- að að breyttri og bættri hegð- un. Flest höfum við vana sem við vilj- um breyta en í bókinni rannsakar Rubin vana ítarlega, bæði á sjálfri sér og með viðamikilli rannsóknarvinnu. Hún svarar spurningum á borð við af hverju okkur þyki erfitt að skapa vana í kringum eitthvað sem okkur finnst gaman að gera. Einnig hvernig við getum haldið við heilsusamlegum vönum umkringd freistingum. Það væri óskandi að svarið fælist í einni setningu sem allir gætu tileinkað sér en í 300 blaðsíðna bók er af mörgu áhugaverðu að taka. Niðurstaðan er sú að við verðum við að þekkja sjálf okkur ef við viljum breyta vönum okkar; það sem hentar einum, hentar ekki endilega öðrum. Við þurfum að skapa vana sem henta okkur sjálfum og þannig náum við árangri. Vanar geta hjálpað til við allt frá því að klára ákveðið verkefni, borða hollara, minnka skjátíma eða auka hreyfingu en margt af þessu er fólki ofarlega í huga á áramótum. Sjálfsstjórn dugar ekki Sjálfsstjórn dugar oft ekki til þegar einhver ákveður að borða hollt. Rubin bendir á að oft sé því haldið fram að sjálfsstjórn sé eitthvað sem eyðist og því sé erfitt að treysta á að fara hluti á hnefanum eins og stund- um er sagt. Hún rifjar upp að hún hafi eitt sinn setið á fundi og staðist disk með smákökum í heila tvo tíma og síðan gripið tvær með á leiðinni út. Þess vegna skipti vanar svo miklu máli. Með vönum þá spörum við sjálfsstjórnina. Við setjum óhreinan bolla í uppþvottavélina án þess að hugsa, það þarf enga sjálfsstjórn í það. Það þarf sjálfsstjórn til að mynda góða vana en um leið og þeir eru til staðar getum við áreynslulaust hagað lífi okkar eins og við viljum. Með vön- um verður lífið einfaldara og við þurf- um ekki að vega og meta hvert ein- asta atriði í hvert sinn heldur bara framkvæmum. Mælanleg markmið Einn mikilvægur þáttur er að mæla það sem við erum að gera og þá geng- ur yfirleitt betur í flokkum á borð við matar- og drykkjarvenjur, líkams- rækt, vinnu, sjónvarps og netnotkun, eyðslu og fleira. Þegar við skráum hvað við gerum, verðum við meðvit- aðri sem hjálpar sjálfsstjórninni. Þess vegna er betra að setja sér mæl- anleg markmið eins og að „lesa fréttir á hverjum degi“ eða „hringja í einn viðskipavin á dag“ í stað þess að segja „vera upplýstari“ eða „mynda betri sambönd við viðskiptavini“. Til þess að þetta henti sem best hverjum og einum ætti aðeins að mæla og fylgjast með því sem er manni mikilvægt og þannig ætti lífsstíll manns að endur- spegla þau gildi sem maður hefur í hávegum. Lykilatriðið er að vera meðvitaður um hvernig persóna maður er til að halda sig við vanana. Oft er talað um að það sé betra að tilkynna markmið sín öllum svo maður finni frekar til ábyrgðar. Rubin segir að þetta fari hinsvegar algjörlega eftir persónu- leika. Mörgum dugi vel að halda markmiðum sínum fyrir sig því þeir séu mjög ábyrgir í eðli sínu gagnvart sjálfum sér. Öðrum henti að til dæmis æfa með öðrum því að þeir finni frek- ar til ábyrgðar gagnvart öðrum ein- staklingum og séu ólíklegri til að missa af æfingu ef þeir valda öðrum vonbrigðum. Fyrsta skrefið það þyngsta Eins og margir vita er fyrsta skrefið oftast það þyngsta. Það getur verið mun auðveldara að halda áfram held- ur en að byrja; erfiðara að koma sér á staðinn og fara í leikfimifötin en að gera sjálfa æfinguna. Þess vegna eru vanar svona mikil- vægir því þá fer ekki orka í byrjunar- skrefið því það er alveg sjálfvirkt og þarfnast ekki umhugsunar. Þeir sem ætla sér að gera líkams- rækt hluta af sinni rútínu á nýju ári ættu að íhuga að byrja með krafti. Ein leið er að skrá sig í námskeið sem stendur yfir nokkra daga í viku í mán- uð en þá þarf að plana sérstaklega meðvitaða ákvörðun um hlé en ekki láta hlutina fjara út hvort sem vaninn hafi verið að æfa sig í erlendu tungu- máli einu sinni á dag eða dagleg sund- ferð. Þannig er maður ennþá við stjórnvölinn en lætur ekki skeika að sköpuðu. Annað sem er áhugavert í bók Rubin er að þar kemur fram að var- hugavert geti verið að æfa fyrir stór- an viðburð eða einblína á eitt mark- mið. Þó að þú takir þátt í næsta Reykjavíkurmaraþoni þýðir það ekki endilega að þú sért búinn að gera hlaup að reglulegum þætti í lífi þínu; mikilvægt er að plana strax fram- haldið eftir að stóru markmiði er náð en líta ekki á það sem endapunkt. Bíddu í fimmtán mínútur Þeir sem strengdu áramótaheit ættu að fylgja einu ráði Rubin. Það er að bíða í fimmtán mínútur þegar löng- unin kemur yfir þá, þegar skjárinn heillar eða kexpakkinn kallar. Jafnvel mjög kraftmikil tilfinning getur sjatnað á korteri ef tekin er meðvituð ákvörðun um að gera eitthvað annað, sem gæti til dæmis verið að fara í gönguferð, taka til eða leika við barn. Það virkar best að gera eitthvað lík- amlegt, þannig er auðveldara að trufla hugann og það er ekki verra ef manni finnst það vera eitthvað skemmtilegt. Það er í sjálfu sér engin ástæða til þess að byrja endilega einhvers kon- ar nýtt líf við áramót. Þeir sem eru uppreisnargjarnir í anda ættu að forðast þessi tímamót til að strengja heit. Hver dagur felur í sér tækifæri til að gera betur en í gær. Það sem færir einni manneskju gleði virkar ekki fyrir aðra og er því mikilvægt að átta sig á því hvað maður raunveru- lega vill og skapa vana í kringum það. Ósýnilegur arkitektúr hversdagsins Á áramótum strengir fólk gjarnan heit og setur sér markmið fyrir komandi ár. Rithöfundurinn Gretchen Rubin hefur rannsakað vana, sem geta hjálpað fólki til að standa við stóru orðin í bókinni Better Than Before en hver vill ekki verða betri en áður? Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Gretchen Rubin, sem er búsett í New York, er líka höfundur bók- arinnar The Happiness Project. Mynd/Andy Ryan hvernig á að skipta yfir í að gera æf- ingar sem hluta af reglulegum lífsstíl, nota kraftinn í að halda áfram. Öðr- um hentar að byrja í smærri skref- um. Það er engin ein leið rétt heldur er um að gera að nota það sem virkar fyrir mann sjálfan. Erfiðara að byrja aftur Mikilvægara er að þegar loks er búið að skapa vanann, eins og til dæmis þann að mæta í jóga tvisvar í viku, er að hætta aldrei heldur bara taka hlé. Þeir sem mæta ekki reglulega yfir sumarið ættu því ekki að hugsa með sér að þeir séu hættir og ætli að byrja einhvern tímann í haust aftur, heldur ættu þeir að ákveða dagsetninguna strax sem þeir ætla að byrja aftur að æfa. Þetta kemur í ljós í rannsóknum Rubin og geta jafnvel þeir vanar sem eru búnir að festa sig lengi í sessi ver- ið í hættu þegar keðjan er brotin og þá er erfiðara að byrja en nokkru sinni. Þegar við venjum okkur á eitthvað í fyrsta sinn erum við full vonar og at- hæfið er spennandi þó það sé erfitt. En þegar við ætlum að reyna okkur við það á ný eftir hlé er spennan minni og gallarnir sjáanlegri. Einnig ríkir sú tilfinning að maður sé verr settur en áður og kunni minna. Þess vegna er svona gott að taka BÆKUR 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2019 Fólk spyr Rubin oft að því hverjir séu bestu vanarnir, rétt eins og það sé ein leið sem liggi best fyr- ir öllum. Ekki eru allir sammála um hvað það sé sem t.d. rækti sköpunargleði og listamenn í gegnum tíðina hafa haft ólíka vana. Sumir byrja snemma (eins og Haruki Murakami) eða vinna langt fram á nótt (Tom Stopp- ard) eða lifa rólegheitalífi (Char- les Darwin) eða skemmta sér stöðugt (Toulouse-Lautrec). Aðrir þjást af frestunaráráttu (William James) eða vinna mjög reglulega (Anthony Trollope) eða vinna aðeins í hljóði (Gustav Mahler) eða þar sem allt iðar af lífi (Jane Austen). Sumum hent- ar að vinna í marga tíma á dag (H.L. Mencken) eða að vinna að- eins í hálftíma á dag (Gertrude Stein). Það er engin töfraformúla til. Við verðum ekki meira skapandi eða afkastameiri með því að herma eftir vönum annarra, ekki einu sinni vönum snillinga. Við verðum að þekkja eðli okkar sjálfra og læra hvaða vanar þjóna okkur best. Rubin segir fólk skiptast í fjór- ar týpur og gefur ráðleggingar á vefsíðu sinni um hvaða aðferðir henti hverri týpu. Þar er líka hægt að taka próf til að sjá í hvaða flokk maður fellur. gretchenrubin.com BESTU VANARNIR? Engin ein uppskrift að sköpunargleði

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.