Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Blaðsíða 12
Undirtitill bókar GretchenRubin Better Than Beforeer, What I Learned About
Making and Breaking Habits - to
Sleep More, Quit Sugar, Procrast-
inate Less, and Generally Build a
Happier Life. Rubin þekkja margir
en hún er höfundur metsölubókanna
Happier at Home og The Happiness
Project, sem sagt hefur verið frá á
síðum Sunnu-
dagsblaðsins.
Rubin segir
vana vera
ósýnilegan
arkitektúr
hversdagslífs-
ins og þannig
geti þeir stuðl-
að að breyttri
og bættri hegð-
un. Flest höfum við vana sem við vilj-
um breyta en í bókinni rannsakar
Rubin vana ítarlega, bæði á sjálfri sér
og með viðamikilli rannsóknarvinnu.
Hún svarar spurningum á borð við af
hverju okkur þyki erfitt að skapa
vana í kringum eitthvað sem okkur
finnst gaman að gera. Einnig hvernig
við getum haldið við heilsusamlegum
vönum umkringd freistingum. Það
væri óskandi að svarið fælist í einni
setningu sem allir gætu tileinkað sér
en í 300 blaðsíðna bók er af mörgu
áhugaverðu að taka. Niðurstaðan er
sú að við verðum við að þekkja sjálf
okkur ef við viljum breyta vönum
okkar; það sem hentar einum, hentar
ekki endilega öðrum. Við þurfum að
skapa vana sem henta okkur sjálfum
og þannig náum við árangri. Vanar
geta hjálpað til við allt frá því að klára
ákveðið verkefni, borða hollara,
minnka skjátíma eða auka hreyfingu
en margt af þessu er fólki ofarlega í
huga á áramótum.
Sjálfsstjórn dugar ekki
Sjálfsstjórn dugar oft ekki til þegar
einhver ákveður að borða hollt.
Rubin bendir á að oft sé því haldið
fram að sjálfsstjórn sé eitthvað sem
eyðist og því sé erfitt að treysta á að
fara hluti á hnefanum eins og stund-
um er sagt. Hún rifjar upp að hún
hafi eitt sinn setið á fundi og staðist
disk með smákökum í heila tvo tíma
og síðan gripið tvær með á leiðinni út.
Þess vegna skipti vanar svo miklu
máli. Með vönum þá spörum við
sjálfsstjórnina. Við setjum óhreinan
bolla í uppþvottavélina án þess að
hugsa, það þarf enga sjálfsstjórn í
það.
Það þarf sjálfsstjórn til að mynda
góða vana en um leið og þeir eru til
staðar getum við áreynslulaust hagað
lífi okkar eins og við viljum. Með vön-
um verður lífið einfaldara og við þurf-
um ekki að vega og meta hvert ein-
asta atriði í hvert sinn heldur bara
framkvæmum.
Mælanleg markmið
Einn mikilvægur þáttur er að mæla
það sem við erum að gera og þá geng-
ur yfirleitt betur í flokkum á borð við
matar- og drykkjarvenjur, líkams-
rækt, vinnu, sjónvarps og netnotkun,
eyðslu og fleira. Þegar við skráum
hvað við gerum, verðum við meðvit-
aðri sem hjálpar sjálfsstjórninni.
Þess vegna er betra að setja sér mæl-
anleg markmið eins og að „lesa fréttir
á hverjum degi“ eða „hringja í einn
viðskipavin á dag“ í stað þess að segja
„vera upplýstari“ eða „mynda betri
sambönd við viðskiptavini“. Til þess
að þetta henti sem best hverjum og
einum ætti aðeins að mæla og fylgjast
með því sem er manni mikilvægt og
þannig ætti lífsstíll manns að endur-
spegla þau gildi sem maður hefur í
hávegum.
Lykilatriðið er að vera meðvitaður
um hvernig persóna maður er til að
halda sig við vanana. Oft er talað um
að það sé betra að tilkynna markmið
sín öllum svo maður finni frekar til
ábyrgðar. Rubin segir að þetta fari
hinsvegar algjörlega eftir persónu-
leika. Mörgum dugi vel að halda
markmiðum sínum fyrir sig því þeir
séu mjög ábyrgir í eðli sínu gagnvart
sjálfum sér. Öðrum henti að til dæmis
æfa með öðrum því að þeir finni frek-
ar til ábyrgðar gagnvart öðrum ein-
staklingum og séu ólíklegri til að
missa af æfingu ef þeir valda öðrum
vonbrigðum.
Fyrsta skrefið það þyngsta
Eins og margir vita er fyrsta skrefið
oftast það þyngsta. Það getur verið
mun auðveldara að halda áfram held-
ur en að byrja; erfiðara að koma sér á
staðinn og fara í leikfimifötin en að
gera sjálfa æfinguna.
Þess vegna eru vanar svona mikil-
vægir því þá fer ekki orka í byrjunar-
skrefið því það er alveg sjálfvirkt og
þarfnast ekki umhugsunar.
Þeir sem ætla sér að gera líkams-
rækt hluta af sinni rútínu á nýju ári
ættu að íhuga að byrja með krafti.
Ein leið er að skrá sig í námskeið sem
stendur yfir nokkra daga í viku í mán-
uð en þá þarf að plana sérstaklega
meðvitaða ákvörðun um hlé en ekki
láta hlutina fjara út hvort sem vaninn
hafi verið að æfa sig í erlendu tungu-
máli einu sinni á dag eða dagleg sund-
ferð. Þannig er maður ennþá við
stjórnvölinn en lætur ekki skeika að
sköpuðu.
Annað sem er áhugavert í bók
Rubin er að þar kemur fram að var-
hugavert geti verið að æfa fyrir stór-
an viðburð eða einblína á eitt mark-
mið. Þó að þú takir þátt í næsta
Reykjavíkurmaraþoni þýðir það ekki
endilega að þú sért búinn að gera
hlaup að reglulegum þætti í lífi þínu;
mikilvægt er að plana strax fram-
haldið eftir að stóru markmiði er náð
en líta ekki á það sem endapunkt.
Bíddu í fimmtán mínútur
Þeir sem strengdu áramótaheit ættu
að fylgja einu ráði Rubin. Það er að
bíða í fimmtán mínútur þegar löng-
unin kemur yfir þá, þegar skjárinn
heillar eða kexpakkinn kallar. Jafnvel
mjög kraftmikil tilfinning getur
sjatnað á korteri ef tekin er meðvituð
ákvörðun um að gera eitthvað annað,
sem gæti til dæmis verið að fara í
gönguferð, taka til eða leika við barn.
Það virkar best að gera eitthvað lík-
amlegt, þannig er auðveldara að
trufla hugann og það er ekki verra ef
manni finnst það vera eitthvað
skemmtilegt.
Það er í sjálfu sér engin ástæða til
þess að byrja endilega einhvers kon-
ar nýtt líf við áramót. Þeir sem eru
uppreisnargjarnir í anda ættu að
forðast þessi tímamót til að strengja
heit. Hver dagur felur í sér tækifæri
til að gera betur en í gær. Það sem
færir einni manneskju gleði virkar
ekki fyrir aðra og er því mikilvægt að
átta sig á því hvað maður raunveru-
lega vill og skapa vana í kringum það.
Ósýnilegur arkitektúr hversdagsins
Á áramótum strengir fólk gjarnan heit og setur sér markmið fyrir komandi ár. Rithöfundurinn Gretchen Rubin hefur rannsakað
vana, sem geta hjálpað fólki til að standa við stóru orðin í bókinni Better Than Before en hver vill ekki verða betri en áður?
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Gretchen Rubin, sem er búsett í
New York, er líka höfundur bók-
arinnar The Happiness Project.
Mynd/Andy Ryan
hvernig á að skipta yfir í að gera æf-
ingar sem hluta af reglulegum lífsstíl,
nota kraftinn í að halda áfram. Öðr-
um hentar að byrja í smærri skref-
um. Það er engin ein leið rétt heldur
er um að gera að nota það sem virkar
fyrir mann sjálfan.
Erfiðara að byrja aftur
Mikilvægara er að þegar loks er búið
að skapa vanann, eins og til dæmis
þann að mæta í jóga tvisvar í viku, er
að hætta aldrei heldur bara taka hlé.
Þeir sem mæta ekki reglulega yfir
sumarið ættu því ekki að hugsa með
sér að þeir séu hættir og ætli að byrja
einhvern tímann í haust aftur, heldur
ættu þeir að ákveða dagsetninguna
strax sem þeir ætla að byrja aftur að
æfa. Þetta kemur í ljós í rannsóknum
Rubin og geta jafnvel þeir vanar sem
eru búnir að festa sig lengi í sessi ver-
ið í hættu þegar keðjan er brotin og
þá er erfiðara að byrja en nokkru
sinni.
Þegar við venjum okkur á eitthvað
í fyrsta sinn erum við full vonar og at-
hæfið er spennandi þó það sé erfitt.
En þegar við ætlum að reyna okkur
við það á ný eftir hlé er spennan
minni og gallarnir sjáanlegri. Einnig
ríkir sú tilfinning að maður sé verr
settur en áður og kunni minna.
Þess vegna er svona gott að taka
BÆKUR
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2019
Fólk spyr Rubin oft að því hverjir
séu bestu vanarnir, rétt eins og
það sé ein leið sem liggi best fyr-
ir öllum. Ekki eru allir sammála
um hvað það sé sem t.d. rækti
sköpunargleði og listamenn í
gegnum tíðina hafa haft ólíka
vana. Sumir byrja snemma (eins
og Haruki Murakami) eða vinna
langt fram á nótt (Tom Stopp-
ard) eða lifa rólegheitalífi (Char-
les Darwin) eða skemmta sér
stöðugt (Toulouse-Lautrec).
Aðrir þjást af frestunaráráttu
(William James) eða vinna mjög
reglulega (Anthony Trollope)
eða vinna aðeins í hljóði (Gustav
Mahler) eða þar sem allt iðar af
lífi (Jane Austen). Sumum hent-
ar að vinna í marga tíma á dag
(H.L. Mencken) eða að vinna að-
eins í hálftíma á dag (Gertrude
Stein).
Það er engin töfraformúla til.
Við verðum ekki meira skapandi
eða afkastameiri með því að
herma eftir vönum annarra,
ekki einu sinni vönum snillinga.
Við verðum að þekkja eðli okkar
sjálfra og læra hvaða vanar þjóna
okkur best.
Rubin segir fólk skiptast í fjór-
ar týpur og gefur ráðleggingar á
vefsíðu sinni um hvaða aðferðir
henti hverri týpu. Þar er líka
hægt að taka próf til að sjá í
hvaða flokk maður fellur.
gretchenrubin.com
BESTU VANARNIR?
Engin ein uppskrift
að sköpunargleði