Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Blaðsíða 35
6.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA ÁRIÐ 2018 Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Stúlkan hjá brúnniArnaldur Indriðason
2 BrúðanYrsa Sigurðardóttir
3 ÞorpiðRagnar Jónasson
4 Útkall – þrekvirki í djúpinuÓttar Sveinsson
5 Siggi sítrónaGunnar Helgason
6 Ungfrú ÍslandAuður Ava Ólafsdóttir
7 Þitt eigið tímaferðalagÆvar Þór Benediktsson
8 HornaugaÁsdís Halla Bragadóttir
9 Sextíu kíló af sólskiniHallgrímur Helgason
10 KrýsuvíkStefán Máni
11
Aron – sagan mín
Aron Einar Gunnarsson og
Einar Lövdahl
12 Orri óstöðvandiBjarni Fritzson
13 Fíasól gefst aldrei uppKristín Helga Gunnarsdóttir
14 Beint í ofninnNanna Rögnvaldardóttir
15
Kaupthinking – bankinn
sem átti sig sjálfur
Þórður Snær Júlíusson
16 Skúli fógetiÞórunn Jarla Valdimarsdóttir
17 Lára fer til læknisBirgitta Haukdal
18 Hvolparnir bjarga jólunumHvolpasveitin
19
Flóra Íslands: blóm-
plöntur og byrkingar
Hörður Kristinss., Jón Baldur
Hlíðberg, Þóra Ellen Þórhallsd.
20
Henny Hermanns
– vertu stillt!
Margrét Blöndal
Allar bækur
1 Stúlkan hjá brúnniArnaldur Indriðason
2 BrúðanYrsa Sigurðardóttir
3 ÞorpiðRagnar Jónasson
4 Ungfrú ÍslandAuður Ava Ólafsdóttir
5 Sextíu kíló af sólskiniHallgrímur Helgason
6 KrýsuvíkStefán Máni
7 Lifandilífslækur Bergsveinn Birgisson
8 StormfuglarEinar Kárason
9 SvikLilja Sigurðardóttir
10 Ástin, TexasGuðrún Eva Mínervudóttir
Íslensk skáldverk
1 Steindi í orlofiSteinþór Hróar Steinþórsson
2
Vísindabók Villa
– truflaðar tilraunir
Vilhelm Anton Jónsson
3
Stóra fótboltabókin með
Gumma Ben
Guðmundur Benediktsson
4
13 þrautir jólasveinanna:
óþekktarormar
Huginn Þór Grétarsson
5 Brandarar og gátur 3 Huginn Þór Grétarsson
Barna- og ungmenna-
fræði- og handbækur
1 Siggi sítrónaGunnar Helgason
2 Þitt eigið tímaferðalagÆvar Þór Benediktsson
3 Orri óstöðvandiBjarni Fritzson
4 Fíasól gefst aldrei uppKristín Helga Gunnarsdóttir
5 Lára fer til læknisBirgitta Haukdal
Barnabækur
1 HornaugaÁsdís Halla Bragadóttir
2
Aron – sagan mín
Aron Einar Gunnarsson og
Einar Lövdahl
3 Skúli fógetiÞórunn Jarla Valdimarsdóttir
4
Henny Hermanns
– vertu stillt!
Margrét Blöndal
5 HasimÞóra Kristín Ásgeirsdóttir
Ævisögur
1 Útkall – þrekvirki í djúpinuÓttar Sveinsson
2 Beint í ofninnNanna Rögnvaldardóttir
3
Kaupthinking – bankinn
sem átti sig sjálfur
Þórður Snær Júlíusson
4
Flóra Íslands: blóm-
plöntur og byrkingar
Hörður Kristinss., Jón Baldur
Hlíðberg, Þóra Ellen Þórhallsd.
5 Hvað er í matinn? Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
Fræði og almennt efni
Ég las Brúðuna eftir
Yrsu fyrir jól. Þetta
er löng en vel skrif-
uð glæpasaga, flókin
flétta sem gengur
vel upp. Ein besta
bók Yrsu.
Svo var ég að
klára 60 kíló af sólskini eftir Hall-
grím Helgason, sem er aldarspeg-
ill nítjándu aldarinnar og fram á
tuttugustu öld. Stór-
kostleg bók.
Ég las líka í vikunni
Flateyjargátuna eftir
Viktor Ingólfsson,
sem reyndar var gef-
in út 2002. Hún er
mjög vel skrifuð
glæpasaga þar sem Flateyjarbók
kemur mikið við sögu. Svo las ég
fimm bækur eftir Sverri Norland
en þær eru bundnar inn í snæri.
Þetta eru smásögur, ljóð og stutt-
ar skáld-
sögur. Fjöl-
breyttar og
skemmti-
legar bæk-
ur. Rauði
þráðurinn
er hvað honum er umhugað um
íslensku. Hann vill hugsa, tala og
lesa á íslensku.
ÉG ER AÐ LESA
Ásgeir
Jónsson
Ásgeir Jónsson er hjartalæknir á
eftirlaunum.
Líkt og fyrri ár er það spennu-saga úr smiðju Arnaldar Indr-iðasonar sem seldist mest
allra bóka á Íslandi á árinu 2018, sam-
kvæmt bóksölulista Félags íslenskra
bókaútgefenda sem kom út á föstu-
dag.
Af 20 mest seldu bókum ársins
2018 eru sex íslenskar skáldsögur,
sex barnabækur, þar af fimm sem eru
íslensk skáldverk, fjórar ævisögur og
fjórir titlar úr flokki fræðibóka eða
bóka almenns efnis, þar af ein mat-
reiðslubók.
Hvolpasveitin eini fulltrúi
erlendra bókmennta
Af 20 mest seldu bókum síðasta árs
eru 19 eftir innlenda höfunda. Undan-
farin ár hafa erlendir titlar gjarnan
átt nokkur sæti á topp-tuttugu-
listanum, en í ár er aðeins ein þýdd
bók sem nær á listann yfir tutugu
mest seldu bækur ársins 2018; Hvolp-
arnir bjarga jólunum, barnabók eftir
vinsælum sjónvarpsþáttum um
Hvolpasveitina.
„Það verður nú varla íslenskara en
þetta. Þetta er með því mesta sem
gerist. Kiljur eftir erlenda höfunda,
glæpasögur sem hafa komið út á
sumrin, hafa oft verið meira áberandi
á þessum stóra lista. Ég held að skýr-
ingin á því að engin þeirra nær inn á
listann nú sé sú að það voru svo marg-
ar kiljur sem komu út í sumar að sal-
an dreifist og einstakir titlar ná því
ekki inn á topplistann,“ segir Bryndís
Loftsdóttir, starfsmaður Félags ís-
lenskra bókaútgefenda, sem í mörg ár
hefur unnið að því að taka saman
listann yfir mest seldu bækur ársins.
Ár íslenskra spennusagna
Bryndís segir heilmikil tíðindi felast í
lista þessa árs. „Það er ekkert nýtt við
það að Arnaldur og Yrsa eigi tvær
mest seldu bækur ársins. Oftast hefur
svo verið barnabók í þriðja sæti en í
ár má segja að sé ár hinnar íslensku
spennusögu vegna þess að í fyrsta
sinn síðan ég hóf að taka saman þenn-
an lista eru þrjár efstu bækurnar úr
smiðju íslenskra spennusagnahöf-
unda; Þorpið eftir Ragnar Jónasson
er í þriðja sæti. Fjórða spennusagan,
Krýsuvík eftir Stefán Mána, er svo í
tíunda sæti. Fjórar af tíu mest seldu
bókum ársins eru spennusögur eftir
íslenska höfunda og það er það mesta
sem ég hef séð. Þetta eru stórtíðindi,“
segir Bryndís.
Aðeins tvær skáldsögur sem flokka
má sem fagurbókmenntir ná inn á
listann yfir tuttugu mest seldu bækur
ársins 2018, sem er undir meðallagi.
Ævisögur seljast svipað og verið hef-
ur undanfarin ár.
Íslensk bókajól
Af 20 söluhæstu bókum 2018 eru 19 eftir innlenda
höfunda. Fjórar spennusögur eru meðal tíu mest
seldu bóka síðasta árs og hafa aldrei verið fleiri.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU