Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2019 FERÐALÖG Þeir fengu sannarlega Afríku-bakteríuna með móðurmjólk-inni, bræðurnir Máni og Steinn Borgarssynir en foreldrar þeirra, Elín Þorgeirsdóttir og Borgar Þorsteinsson hafa dvalið í Kenýa langdvölum síðustu tuttugu árin, auk þess að skipuleggja ferðir þangað fyrir íslenska ferðalanga í gegnum tíðina. Máni fór í sína fyrstu Afríku- ferð þegar hann var aðeins korna- barn, en foreldrar hans keyrðu þá gamlan Land Rover frá Danmörku til Kenýa. Mikið af bleium var með í þeirri för! Síðan er mikið vatn runnið til sjávar og Kenýa er orðið nánast eins og annað heimili hjá fjölskyld- unni. Bræðurnir, sem eru 19 og 22 ára, eru báðir á samningi að læra smíðar, og feta þar með í fótspor föður síns. Það kemur sér vel þar sem fjöl- skyldan hefur keypt land inni í þjóð- garði í Kenýa og þar hyggjast þeir bræður byggja sér sitt eigið hús. Það verður þó ekki þeirra fyrsta hús, því á síðasta ári keyptu þeir gamalt ein- býlishús í Hafnarfirði og gerðu það sjálfir upp, með hjálp föðurins. Kenýaferðum bræðranna er hvergi nærri lokið og bæði verkefni og ævintýri framundan. Umkringdur litlum öpum Bræðurnir segjast báðir heillaðir af Kenýa. „Það er bara allt öðruvísi en Ísland, það er eins og að fara í annan heim og stundum eins og að fara aftur í tím- ann. Það gengur allt mjög hægt og rólega fyrir sig þar,“ segir Steinn. „Svo er heitt og þægilegt þarna og góður og bragðmikill matur,“ segir Máni. Báðir eiga þeir ótal minningar frá barnæsku frá ferðum sínum. „Ég man eftir því þegar ég var lít- ill var ég eitt sinn umkringdur litlum öpum af því ég vildi ekki gefa þeim samlokuna mína,“ segir Steinn og hlær. „Við höfum ekki lent í neinum svakalegum háska en um daginn vor- um við að skoða munaðarlausa fíla og það ætlaði villisvín að ráðast á okk- ur,“ segir Steinn og Máni bætir við að eitt sinn hafi ljón verið um tuttugu metra frá þeim og þeir ekki í bíl. „Það voru fjögur ljón að horfa á okkur en það var sem betur fer kona þarna með vélbyssu,“ segir Máni. „Svo höfum við stundum mætt buffal á veginum, en þeir eru hættu- legustu dýrin. Eitt sinn festum við bílinn þvert yfir veginn fyrir framan buffal og í annað sinn elti buffall bíl- inn,“ segir Máni og bætir við að eitt sinn hafi hlébarði stokkið upp á húddið. Geit á mótorhjóli Hvað er skemmtilegast við að fara til Kenýa? „Það er bara öll upplifunin, að sjá allt þarna. Maður sér svo margt þeg- ar maður keyrir þarna í gegn,“ segir Morgunblaðið/Ásdís Steinn fékk koss frá myndarlegum gíraffa. Fílar og gíraffar í garðinum Hafnfirsku bræðurnir Máni og Steinn Borgarssynir hafa farið um tuttugu sinnum til Kenýa. Nú hafa þeir keypt þar landskika og hyggjast skipuleggja ævintýraferðir fyrir ungt fólk, enda þar öllum hnútum kunnugir. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Máni og Steinn Borgarssynir fengu Afríku- bakteríuna með móðurmjólkinni. Þeir fara nánast árlega til Kenýa og stundum oftar. Í framtíðinni hyggjast þeir byggja hús þar á landskika sem þeir eiga þar inni í þjóðgarði. Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600 Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 | info@smyril-line.is | www.smyrilline.is Taktu bílinn með til Færeyja eða Danmerkur Bókaðu núna og tryggðu þér pláss FÆREYJAR 2 fullorðnir með fólksbíl verð á mann frá ÍSK 16.600 Vikulegar siglingar allt árið til Færeyja og Danmerkur DANMÖRK 2 fullorðnir með fólksbíl verð á mann frá ÍSK 30.750

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.