Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Blaðsíða 10
VETTVANGUR
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2019
Hari
Rannsóknir sýna fram á mikil-vægi ástríðu þegar kemurað því að skara fram úr.
Þegar við skoðuðum nokkra af
fremstu einstaklingum í heiminum
á sínu sviði fundum við út að bak-
við gífurlega mikla vinnu/þjálfun á
sviðinu voru nokkrir þættir sem er
hægt að kalla sálfræðilega hæfi-
leika (e. resources).
Þættirnir voru ástríða, þraut-
seigja (e. grit) og gróskuhugarfar
(e. growth mindset). Þar fyrir utan
var góður leiðbeinandi, eða „ment-
or“, mikilvægur.
Ástríðan hefur áhrif á stefnu
okkar í lífinu, það er að segja á
hvaða sviðum hún liggur og hvert
við viljum stefna. Í þessu samhengi
getur maður sagt að við sem for-
eldrar, kennarar, þjálfarar, afar og
ömmur eigum að kveikja elda í
stað þess að fylla á körfur.
Þrautseigjan er
síðan lykilþáttur
við að kalla fram
þá miklu vinnu/
þjálfun sem þarf
til að verða
framúrskarandi.
Í því sambandi
er mikilvægt að þú
sem einstaklingur
búir yfir hugarfari sem einkennist
af grósku, það er að þú hafir
sterka trú á því að þú getir haft
áhrif á þína eigin þróun. Ef ein-
staklingur með gróskuhugarfar er
spurður hvort hann sé góður að
spila á gítar, þá svarar hann:
„Ekki ennþá en ég ætla mér það.“
Eða hann er spurður hvað hann
viti um nóbelsskáldið Halldór Kilj-
an Laxness? „Ekki mikið ennþá en
ég ætla að fræðast meira um
hann.“
Gott dæmi um framúrskarandi
einstakling er Charles Darwin.
Darwin er talinn vera einn af
mikilvægustu vísindamönnum í
heiminum, sem með þróunarkenn-
ingunni kollvarpaði öllum hug-
myndum manna um þróun. Það
eru kannski færri sem vita að
Darwin kunni ekki vel við sig í
skóla en hann hafði ríka ástríðu og
áhuga á fugla- og dýraríkinu frá
unga aldri. Hann átti til dæmis
stórt safn af bjöllum. Hann elskaði
að veiða á stöng og að fara á smá-
fuglaveiðar. Róbert, pabbi Darw-
ins, vildi að hann yrði læknir eða
prestur en Darwin fylgdi hjartanu
og vann allt sitt líf með náttúru-
fræði. Hans mikla
ástríða fyrir og
reynsla af náttúru-
skoðun er talin einn
af lykilþáttum fyrir
þróun á hans kenn-
ingu.
Annar framúr-
skarandi einstakl-
ingur er söngkonan
Björk. Hún er annað dæmi um
mikilvægi þess að fylgja hjartanu.
Ástríða Bjarkar innan tónlistar og
hennar mikla reynsla frá barns-
aldri hefur gert hana að þeim tón-
listarmanni sem hún er. Darwin og
Björk eru gott dæmi um einstakl-
inga sem hafa náð frábærum ár-
angri á sínu sviði. Það má segja að
þetta séu einstaklingar sem gerðu
hluti á sinn hátt.
Okkar rannsókn á tengslum
ástríðu og þrautseigju sýnir sterkt
samband á milli þessara þátta sem
styrkir sýnina á að ástríða sé mik-
ilvæg fyrir þrautseigju að öfugt. Í
þessu samhengi er brýnt að hugsa:
Ég vil, ég skal og ég get.
Virkjum okkar ástríðu, kveikjum
elda.
Ástríða – lykill að velgengni
Vísindi og
samfélag
Hermundur
Sigmundsson
hermundurs@ru.is
’ Ástríðan hefuráhrif á stefnu okk-ar í lífinu, það er aðsegja á hvaða sviðum
hún liggur og hvert
við viljum stefna.
Björk Guðmundsdóttir söngkona er að dómi höfundar gott dæmi um framúr-
skarandi einstakling sem fylgt hefur hjartanu í listsköpun sinni og störfum.
Reuters
Laugarnar í Reykjavík
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Við þökkum samveruna á árinu 2018
og hlökkum til samverustunda 2019
milljónir gesta
á árinu 2018
2,3
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Skinnhúfa kr. 19.800
Vargur kr. 37.000
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Hálsmen kr. 13.900