Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Page 36
Það er ekki að ástæðulaususem dánardagur BuddyHolly hefur gjarnan verið
kallaður „dagurinn sem tónlistin
dó“.
Þrátt fyrir að tónlistarmaðurinn
hafi aðeins verið 22 ára þegar hann
lést, og aðeins eitt og hálft ár liðið
frá því hann sló í gegn, er hann tal-
inn óumdeilanlegur frumkvöðull
rokktónlistarinnar. Eftir nokkrar
vikur eru 60 ár liðin frá þessum
sorgardegi en með honum í vélinni
voru fleiri rokkstjörnur; 17 ára
gamall Ritchie Valens og J.P. „Big
Bopper“ Richardson. Nú um
helgina, 6. janúar, eru liðin 60 ár
frá því að lagið „It Doesn’t Matter“
kom út sem varð jafnframt síðasta
lag Buddy Holly en 29 dögum síðar
var hann allur.
Þegar tónlistin dó
Lög Buddy Holly sem slógu í gegn
eru fjölmörg; Peggy Sue, That’ll be
the Day, Everyday, Rave On, True
Love Ways og Oh Boy! eru þeirra á
meðal. „Rokk og ról eins og við
þekkjum það í dag væri ekki til án
Buddy Holly“ er tilvitnun sem finna
má í Frægðarhöll rokksins, Rock
and Roll Hall of Fame, og þeir eru
ófáir sem eru sammála þessu. Roll-
ing Stone valdi Buddy Holly sem
einn af mestu listamönnum allra
tíma sem er mikið afrek í ljósi þess
að Holly hafði skamman tíma til að
sanna sig þar sem hann lést svo
ungur.
Buddy Holly, Charles Hardin
Holley, fæddist í Texas 1936. Gælu-
nafn hans frá unga aldri var Buddy
og þegar hann skrifaði undir fyrsta
plötusamning sinn var nafn hans
rangskrifað Holly og honum fannst
það svo fínt að hann ákvað að nota
það nafn eftirleiðis; Buddy Holly.
Fjölskylda hans var tónelsk,
systkini hans þrjú og móðir spiluðu
öll á hljóðfæri eða sungu og fyrsta
gítarinn sinn fékk Buddy Holly að
gjöf frá eldri bróður sínum. Gítar-
inn hafði bróðirinn eignast meðan
hann gegndi herþjónustu í síðari
heimsstyrjöld og annar eldri bróðir
hans kenndi honum svo á hljóð-
færið. Raunar hafði Buddy Holly
sótt píanótíma en gítarinn var
hljóðfærið sem heillaði hann eftir
að hann sá leikið á það í skólarút-
unni.
Að loknum menntaskóla ákvað
Buddy Holly að leggja tónlist fyrir
sig og þar hafði Elvis Presley ekki
síst áhrif, sem Buddy Holly sá spila
í Lubbock. Stuttu síðar átti hann
eftir að hita upp fyrir Presley.
Buddy Holly sló í gegn með
hljómsveit sinni The Crickets og
skapaði sér strax sérstöðu. Frum-
leg spilamennska hans og söngstíll
eru þekkt fyrir hans sérstöku
„hiksta“, slagverkskenndan gítar-
leik, beygðar nótur og hljómagang
blúshljómanna. Þá samdi hann og
hljómsveit hans eigið efni sem var
þá nýtt, þar sem hljómsveitir
sömdu sjaldnast sitt efni sjálfar.
Bítlar án Buddy?
Buddy Holly hafði ótvíræð áhrif á
tónlist framtíðarinnar og það er
ekki djúpt í árinni tekið að segja að
Bítlarnir séu afsprengi hans, bæði
tónlistin og nafn sveitarinnar.
Stuttu eftir að John Lennon og
Buddy Holly lést aðeins
22 ára gamall en þrátt
fyrir það er hann talinn
einn merkasti listamað-
ur sem rokkið hefur átt.
Ljósmynd/Brunswick Records
Maðurinn
sem setti
rokkið á
dagskrá
Um helgina eru 60 ár liðin frá því að Buddy Holly söng sitt síðasta lag
á plötu en 29 dögum síðar lést hann, aðeins 22 ára gamall, í flugslysi.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Í flugslysinu sem Buddy Holly lést í, létust einnig tónlistarmennirnir Ritchie
Valens, sem þá var aðeins 17 ára gamall, og J.P. „Big Bopper“ Richardson.
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2019
LESBÓK
KVIKMYNDIR Saoirse Ronan, sem aðeins 13 ára gömul
hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir leik í auka-
hlutverki, segir í ítarlegu viðtali í breska tímaritinu
Harper’s Bazaar frá því hvernig hún slapp við kynferð-
islega áreitni og ofbeldi í Hollywood. Leikkonan, sem er
24 ára í dag og hefur slegið í gegn í myndum eins og
Atonement og Lady Bird, hefur frá unga aldri verið við-
loðandi Hollywood og þakkar móður sinni að hafa slopp-
ið ósködduð í gegnum árin en hún hafi fylgt henni eftir í
allar upptökur og verið til staðar. „Ég veit ekki hvað
hefði gerst hefði hún ekki verið til staðar,“ segir Ronan í
viðtalinu. „Ég gerði mér grein fyrir að það var fólk í
kvikmyndaiðaðinum sem misnotaði vald sitt. En vegna
hennar varð ég aldrei fórnarlamb.“
Naut verndar móður Saoirse Ron-
an er þakklát
móður sinni.
AFP
KVIKMYNDIR Og meira af Saiorse Ronan
því kunngjört hefur verið að hún og Gary
Oldman muni saman afhenda verðlaun á Gol-
den Globe-verðlaunahátíðinni. Oldman var á
síðasta ári valinn besti leikarinn á hátíðinni,
fyrir hlutverk sitt sem Winston Churchill í
Darkest Hour, en leikkonan vann til verð-
launa sem besta leikkonan í Lady Bird. Það
er alltaf mikill spenningur fyrir því hverjir
afhenda verðlaun á hátíðinni sem haldin er í
kvöld, sunnudagskvöld. Að vonum eru Íslend-
ingar einnig spenntir en Jónsi í Sigur Rós er
tilnefndur fyrir lag sitt Revelation í kvik-
myndinni Boy Erased.
Golden Globe-spenningur
Gary Oldman er annar kynna í ár.
Taylor Swift
Loka öppunum
TÓNLIST
Taylor Swift
hefur tilkynnt
að samskipta-
appinu The
Swift Life
verði lokað
innan mán-
aðar. Smáfor-
ritið var
kynnt til sög-
unnar 2017 í
framhaldi af
sjöttu breið-
skífu tónlistarkonunnar en þar eiga
aðdáendur Swift í samskiptum sín á
milli og fá fréttir af söngkonunni og
nota sérstaka Taylor Swift-
broskarla.
Kim Kardashian, sem opnaði ekki
ósvipað app með systrum sínum á
sama tíma og Swift, tilkynnti einnig
nýlega að þeirra smáforriti yrði
einnig lokað. Ástæðan sem Swift
gefur er að nú sé allri eftirfylgni við
sjöttu breiðskífu hennar lokið og
hún hyggist ekki koma með ný öpp í
tengslum við aðrar breiðskífur.
Kim Kardashian
UPPISTAND Skoski grínistinn
Billy Connolly hefur tilkynnt að
komið sé að lokum ferilsins en Con-
nolly greindist með parkinsons-
sjúkdóm fyrir fimm árum og hefur
hrakað stöðugt síðan. Nú er sjúk-
dómurinn kominn á þann stað að
hann getur ekki lengur komið fram
að því er fram kemur í nýrri heim-
ildamynd BBC um uppistandarann.
„Líf mitt er að fjara út, ég finn
það,“ segir Connolly í myndinni en
hann hefur allt þar til í síðasta mán-
uði túrað um Bretland með uppi-
stand sitt.
Billy Connolly
Á endastöð