Morgunblaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ✝ Magnús Þor-berg Haukdal Jónsson fæddist í Haukadal í Dýra- firði 20. nóvember 1920. Hann lést á hjúkrunarheimil- inu Sóltúni þann 10. janúar 2019. Foreldrar hans voru hjónin í Höll, þau Ástríður Jón- ína Eggertsdóttir húsfreyja, f. 18. júní 1888, d. 22. mars 1969, og Jón Guð- mundsson bóndi og smiður, f. 19. ágúst 1886, d. 17. desem- ber 1950. Börn þeirra hjóna, talin í aldursröð: Eggert Hauk- dal, f. 17. maí 1913, d. 14. október 1984; Elínborg Hauk- dal, f. 19. september 1916, d. 8. mars 1991; Guðmundur Pét- ur Haukdal, f. 15. janúar 1919, d. 2. febrúar 1996; Magnús Þorberg Haukdal, sem hér er minnst; Gunnar Agnar Hauk- dal, f. 1. desember 1922, d. 27. október 2003, Hákon Haukdal, f. 29. janúar 1925, d. 29. sept- ember 2013, og Sigríður Guð- munda, f. 23. júní 1931, d. 13. janúar 2009. Magnús kvæntist 17. júní 1950 Ingibjörgu Sigurjónsdótt- ur frá Hlíð í Reykhólasveit, f. 21. júlí 1921, d. 21. október 1990. Foreldrar hennar voru Sigurjón Kristjánsson skósmið- ur, f. 20. júní 1890, d. 26. jan- úar 1950, og Sigurlína Kristín Þórðardóttir húsfreyja, f. 18. ágúst 1885, d. 14. maí 1969. Börn Magnúsar og Ingi- bjargar eru: 1) Sigurjón Krist- jánsson, f. 28. júlí 1946, kvæntur Bodil Kristjansson, börn þeirra eru a) Thomas, kvæntur Maj, börn þeirra eru Viktor og Malthe, b) Maria gift Martin, börn þeirra eru Astrid og Ingrid. 2) Jón G. Magnússon, f. 2. október 1949, kvæntur Nínu Agnarsdóttur, börn þeirra eru a) Ingibjörg Agnes gift Daða, börn þeirra eru Nína Ísafold, Viggó Jón og Fríða Lovísa, b) Magnús Unnar Haukdal. 3) Ása Magnúsdóttir, f. 24. mars 1953, gift Sigurði Karlssyni, börn þeirra eru a) Inga María í sambúð með Ólafi Má, sonur hans er Ólafur Ar- on, b) Anna Jóna. 4) Sigurlína K. Magnúsdóttir, f. 9. janúar 1957, börn hennar eru a) Ólaf- ur Þór og b) Tómas Jón Hauk- dal. Magnús ólst upp í Höll í Haukadal, hann fór ungur á sjó og flutti síðan til Reykja- víkur um tvítugt og fór að vinna við byggingu Reykjavík- urflugvallar. Hann var sjómað- ur í yfir 40 ár og vann á allt frá smábátum til stærstu flutn- ingaskipa. Hann stofnaði heim- ili með eiginkonu sinni Ingi- björgu í Reykjavík og bjó lengst af við Laugarnesveg, síðustu árin dvaldi hann á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför Magnúsar fer fram frá Neskirkju í dag, 25. janúar 2019, klukkan 13. Í dag kveðjum við afa okkar sem eyddi síðustu árunum á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þar sem honum leið vel og hugsað var vel um hann. Þegar við vorum yngri vorum við alltaf velkomnar til afa á Laugarnesveginum þar sem hann sauð iðulega fisk og kart- öflur og stappaði saman fyrir okkur og köttinn Mósa. Afi var mikið að passa okkur og var alltaf með nóg fyrir stafni, hann kenndi okkur að skrifa og sat hann oft tímunum saman og gerði punktastafi sem við skrif- uðum eftir. Afi skrifaði afar vel og málaði myndir, aðallega af sveitinni sinni og skipum sem hann hafði siglt með. Það var alltaf gaman að eyða tíma með honum í sveitinni hans þar sem hann sagði fólki til verka og sýndi metnað til að halda æskuheimilinu sínu við. Síðan runnu upp úr honum sög- urnar um margt sem hann hafði upplifað í gegnum árin og svar- aði öllu spurningaflóði þolin- móður og með bros á vör. Ekki að furða að þegar kom að íslenskuverkefni í framhalds- skóla þar sem við áttum að ræða við eldri einstakling þjóðfélags- ins þá völdum við systurnar báð- ar að ræða við afa um gömlu tímana. Sem í dag er gersemi að eiga á blaði og þar skín í gegn hvað afi var góður maður og annt um alla í kringum sig. Hann sagði okkur meðal ann- ars sögu úr smölun þegar hann var 9 ára gamall en þá vantaði eina kind og hann var sendur að leita að henni. Eftir að vera búinn að ganga í um klukkustund í mikilli rign- ingu þá fann hann kindina og lambið hennar nær dauða en lífi því það komst ekki á spena. „Þá mjólkaði ég í lófann á mér og saup það og opnaði svo munninn á lambinu og spýtti mjólkinni upp í það tvisvar til þrisvar sinnum og setti það síðan inn undir peysuna mína og gekk heim og kindin elti og ég gaf lambinu að drekka nokkrum sinnum á heimleið,“ sagði afi stoltur. Afi var mjög hógvær gagn- vart sjálfum sér og vildi ekki láta hafa mikið fyrir sér. Hann var mjög hreinskilinn og sam- viskusamur og talaði aldrei illa um náungann. Afi var mikil og góð persóna sem mun lifa í minningu okkar um alla tíð. Nú ertu kominn í faðm Ingu ömmu þar sem þér leið alltaf vel. Takk fyrir allt, elsku besti afi okkar. Þínar Inga María og Anna Jóna. Magnús Þ. Haukdal Jónsson ✝ GeirþrúðurSigurðardóttir fæddist í Haganesi í Mývatnssveit 31. október 1941. Hún lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 13. jan- úar 2019. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Stefánsson frá Haganesi í Mý- vatnssveit og Málmfríður Þorláksdóttir frá Skútustöðum í Mývatnssveit. Al- systkini Geirþrúðar eru Álf- hildur, Þorlákur, Áslaug og Margrét. Árið 1963 giftist Geirþrúður Jóni Þórissyni frá Baldursheimi í Mý- vatnssveit og þau bjuggu saman á Akureyri. Þeim varð tveggja barna auðið. Sonur þeirra, Sigurður Jónsson, kvæntur Annette J. de Vink. Þau eiga þrjár dæt- ur: Þuríði Önnu, Líney Rut og Jón- ínu Maj. Dóttir Geirþrúðar og Jóns, Þuríður Jónsdóttir, lést á 19. aldursári. Útför Geirþrúðar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 25. jan- úar 2019, klukkan 13.30. Orðin umhyggja, ást, seigla og dugnaður koma upp í huga okkar systra þegar við hugsum til Lillu móðursystur okkar sem nú hefur kvatt okkur. Lilla skipaði stóran og mikilvægan sess í lífi okkar systra. Hún sýndi okkur ómælda þolinmæði og umhyggju, var okk- ur sem önnur móðir, alltaf til staðar fyrir okkur og síðar börn okkar og maka. Norðurgatan var griðastaður okkar og í minning- unni ómetanlegt athvarf. Heitur matur í hádeginu ásamt skipa- súpu, skyrsúpu eða öðru góðgæti, nýsteiktar kleinur, ystingur og ýmiss konar bakstur, Gestur Einar og Hvítir mávar í útvarp- inu eftir hádegismatinn, sungið og jafnvel dansað með. Hún stillti til friðar ef okkur systrum lenti saman og hafði alltaf nægan tíma fyrir okkur. Það var iðulega líf og fjör í Norðurgötunni, mikill gestagangur, m.a. Mývetningar, ættingjar og vinir í bæjarferð. Það var alltaf gaman fyrir okkur að fylgjast með umræðum og síð- ar taka þátt í þeim. Seinna nutu Þorgerður og Gísli þess að búa við hliðina á þeim Lillu, Jonna og Láka með litlu Hildi Valdísi sína þegar þau hófu búskap. Það reyndist þeim ómetanlegur stuðningur. Hildi passaði hún gjarnan, setti hana út í vagn eftir hádegis- matinn og leyfði henni að skoða bók þar til hún sofnaði. Svo fór hún út, fjarlægði bókina og setti vettlinga á litlu fingurna þegar hún var sofnuð. Svona er um- hyggju Lillu vel lýst, alltaf að passa upp á alla í kringum sig. Lilla hugsaði um hann afa Sigga alla tíð í veikindum hans. Síðar vann hún á næturvöktum sem starfsstúlka á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Hún naut þeirrar vinnu og hefði án efa sómt sér vel í starfi hjúkrunar- fræðings. Í Mývatnssveitinni leið henni vel og við eigum ótalmarg- ar góðar minningar þaðan, fyrst frá Skútustöðum en síðar úr Garði. Göngu-, hjóla- og hlaupa- ferðir, hellaskoðanir og ferðir í Baldursheim. Rúgbrauðs- bakstur, sundferðir og ótalmarg- ar fjósaferðir til Jóhönnu og Kára með börnunum okkar en fyrir þau átti hún ótakmarkaða þolin- mæði og umhyggju. Lilla lét aldrei mikið á sér bera. Umhyggja, ást, seigla og dugnaður eru dyggðir sem verða ekki til þess að reistir eru minnis- varðar en kannski er það vegna þess að enginn minnisvarði myndi fanga þá gæfu sem fylgdi því að vera henni samferða. Við erum ríkar og óendanlega þakklátar fyrir að hafa átt hana Lillu að. Við trúum því að Dudí hennar hafi beðið móður sinnar á himnum og þær séu nú samein- aðar á ný. Sunnan yfir sæinn breiða sumarylinn vindar leiða. Draumalandið himinheiða hlær, og opnar skautið sitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! Gakk þú út í græna lundinn, gáðu fram á bláu sundin. Mundu, að það er stutt hver stundin stopult jarðneskt yndi þitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! Allt hið liðna er ljúft að geyma, láta sig í vöku dreyma. Sólskinssögum síst má gleyma, segðu engum manni hitt! Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! (Jóhannes úr Kötlum) Takk fyrir allt, elsku Lilla. Stelpurnar þínar, Þorgerður, Kristín og Málmfríður. Þegar við hugsum til Lillu frænku er það efst í huga okkar hve heilsteypt, traust og hlý hún var og það æðruleysi sem hún sýndi alla tíð. Við vorum systra- dætur og hefur sambandið milli fjölskyldnanna alltaf verið mjög náið þrátt fyrir að við byggjum hvor á sínum hluta landsins. Fyrsta samveran var á Skútu- stöðum í Mývatnssveit þar sem við systur Affa og Erna vorum í sveit hjá ömmu og frændfólki okkar. Á sumrin var gengið í kringum Stakhólstjörn, vestur í Borgir að finna skúta og bíða af sér rigninguna, farið í berjamó og leiki ásamt því að sinna þeim störfum sem okkur var treyst fyrir. Lilla var náttúruunnandi og mikið fyrir útiveru. Hún var með grænmetisgarð í Norðurgötunni, ræktaði rósir og fleiri tegundir af blómum og safnaði áhugaverðum steinum. Hún naut þess að fara á skíði og vera í líkamsrækt meðan heilsan leyfði. Lilla hafði einstaklega mikla samkennd og góða nærveru og leið okkur vel í návist hennar vegna þeirrar væntumþykju og kærleika sem hún sýndi okkur. Við sóttumst eftir að koma í Norðurgötuna til Lillu og Jonna og Þorláks bróður Lillu, við fund- um hvað við vorum velkomnar og voru ófá skiptin sem við gistum þar hjá þeim og nú síðast í Vaðla- túni. Samband Lillu og Jonna var einstakt, væntumþykja og virð- ing hvors í garð annars var aug- ljós öllum sem þekktu þau. Sig- urður og Þuríður voru auga- steinar þeirra og var það þeim harmdauði þegar Þuríður lést af slysförum aðeins átján ára. Siggi og Annette kona hans eiga þrjá dætur, Þuríði Önnu, Líneyju og Jónínu, og naut amma þeirra þess að sýna okkur myndir og segja okkur frá þeim. Með söknuði þökkum við elsku Lillu fyrir allar samverustund- irnar. Innilegar samúðarkveðjur til Jonna, Sigga, Annette, Líneyjar, Jónínu, Þuríðar Önnu, Alex, litlu nýfæddu tvíburanna, Láka og systranna. Arnfríður, Erna og Kristín Huld. Nú hefur Lilla okkar kvatt þennan heim og eftir sitjum við með söknuð í hjarta. Til okkar streyma ótal minningar um konu sem var okkur öllum svo kær. Lilla sýndi okkur og börnum okkar einstaka vináttu og kær- leika og alltaf var tekið á móti okkur af mikilli gestrisni hjá þeim Lillu og Jonna og ósjaldan leysti hún okkur út með sultu- krukku. Hún tók á móti börn- unum okkur með hlýju og áhuga og litu þau á hana eins og ömmu sína. Við heimsóttum Lillu, Jonna og Láka á hverju ári í skíðaferðum og sumarfríum bæði á Akureyri og í Mývatns- sveit. Lilla smitaði okkur af áhuga sínum á útivist og var ötul við að sýna okkur falda gimsteina í náttúrunni og segja sögur af mannlífinu. Hún hefur fylgt okkur um lífið í langan tíma og eftir situr þakklæti fyrir vinskap og ljúfar samverustundir. Kristín Sif Árnadóttir, Páll Sveinsson og börn. Ég var ekki há í loftinu þegar ég fór að venja komur mínar í Norðurgötu 50. Þar bjuggu Lilla og Jonni sem eru foreldrar leik- félaga og vina minna, Sigga og Dudíar, ásamt foreldrum Lillu, systrum hennar og bróður. Húsakynnin voru ekki stór en alltaf var ég velkomin og alltaf pláss fyrir einn í viðbót og ein- hvernveginn fannst mér ég verða hluti af fjölskyldunni og kallaði til að mynda foreldra Lillu aldrei neitt annað en afa og ömmu. Milli fjölskyldnanna í Norðurgötu og Ránargötu myndaðist vinátta og samgangur. Á kveðjustund streyma minn- ingarnar fram, sögurnar, glað- værðin, hláturinn og hvað það var gott að vera í hópnum. Ég man sláturgerðina, laufa- brauðsgerðina, berjatínsluna og kartöfluræktina í Aðalstrætinu. Það var alltaf einhver ævintýra- ljómi yfir þessum viðburðum, enda þurfti mikið af öllu fyrir svona stóra fjölskyldu. Ég man Mývatnssveitina, Skútustaði, Baldursheim og öll ævintýrin sem sveitin bauð upp á. Við leik- félagarnir brölluðum margt en aldrei skammaði Lilla okkur þó tilefnin hafi örugglega verið, hún ræddi málin og leiðbeindi, alltaf róleg en gat sett upp strangan svip og þá vissi maður að senni- lega hefðum við alveg farið fram úr okkur. Ég man hvað Lilla sýndi mér mikla umhyggju, þolinmæði og umburðarlyndi. Þannig var Lilla, róleg og með einstakt jafnaðargeð, talaði ekki hátt og það var fjarri henni að trana sér fram. Eftir því sem ég eltist og vitkaðist þróaðist sam- band okkar Lillu í vináttu, vin- áttu sem aldrei bar skugga á. Það var gott að leita til hennar, hún hlustaði, huggaði og leið- beindi á sinn rólega og yfirveg- aða hátt. Vegna búsetu minnar fjarri Akureyri hefur verið langt á milli okkar en við hringdumst reglulega á og símtölin oft löng. Hún sýndi mér og mínum ein- lægan áhuga, vildi vita hvernig allir hefðu það og flutti mér tíð- indi af sínum. Í gegnum tíðina hefur verið lærdómsríkt að horfa á samband Lillu og Jonna. Sú einlæga ást, virðing og vinátta sem ríkti á milli þeirra er til eftirbreytni. Það hefur aldrei verið hægt að tala um þau í eintölu, hún er Lilla hans Jonna, hann er Jonni henn- ar Lillu. Mér fannst sárt að sjá hvað Parkinson-sjúkdómurinn tók alltaf meira og meira af Lillu og síðustu ár hafa verið henni erfið. Jonni hefur staðið eins og klettur við hlið hennar sem og fjölskyld- an öll. Síðasta símtal okkar Lillu var á afmælisdaginn hennar í lok október. Ég heyrði að mjög væri dregið af minni kæru vinkonu, hún spurði minna og sagði færra. Ég trúi því að nú sé Lilla í ljósinu og að hún og Dudí séu loksins saman á ný. Elsku Jonni, Siggi, Láki og fjölskyldan öll, ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að eiga part í Lillu með ykkur. Valgerður Anna Vilhelmsdóttir. Það sem við erum lánsöm að hafa haft elsku Lillu í lífi okkar. Lilla hefur alltaf verið „auka- amma“ okkar systkinanna. Hún hafði alltaf tíma fyrir okkur og var ávallt tilbúin til að veita okk- ur ást og hlýju. Allar minningarnar sem við eigum um Lillu eru okkur dýr- mætar. Hún náði einstaklega vel til Helgu því þolinmæðin og um- burðarlyndið hennar Lillu áttu sérlega vel við skapið hennar. Það lýsir þolinmæði Lillu vel þegar Hildur var lítil að leika sér með hringana hennar Lillu og fór með þá á klósettið. Þar sem hringarnir voru ekki fyrir litla fingur duttu þeir í klósettið. Hildi leið eins og hringarnir væru ónýtir og Lilla myndi aldrei fá þá aftur en Lilla gerði nú ekki stór- mál úr þessu og sótti einfaldlega hanska og náði í hringana. Samverustundirnar í Garði þykir okkur mjög vænt um. Göngutúrar og hjólaferðir, svörtu pétrarnir sem við spiluð- um og kaplarnir. Lilla var alltaf til í að gera eitthvað með okkur. Hún passaði upp á að okkur leiddist aldrei. Dagur Elís minn- ist þess þegar þau Lilla vöknuðu á undan öllum og áttu góðar sam- verustundir. Lilla þreyttist aldr- ei á að hlusta á hann lýsa fót- boltaleikjum og þylja upp fótboltakappa þrátt fyrir að hafa lítinn áhuga á íþróttinni. Hún var ætíð dugleg að hreyfa sig og Hildur gleymir því ekki þegar hún var lítil og spurði Lillu út í skokk. Lilla sagði þá við hana að þegar maður væri að skokka ætti maður að snýta sér út í loftið. Því gleymdi Hildur aldrei. Seinna hljóp Hildur hálft mara- þon en það hlaup reyndist Hildi mjög erfitt en dugnaðurinn í Lillu var henni efst í huga allan tímann og kom henni í gegnum hlaupið. Helga minnist þess líka að þó hjólaferðirnar sem þær fóru í væru farnar að vera miklu erfiðari fyrir Lillu, hélt hún samt áfram og fann sér nýjar leiðir til þess, þrátt fyrir að „Parkinn“ væri ekki endilega á sama máli. Í Garði var hún oftast löngu vökn- uð á undan öðrum, búin að fara út að hreyfa sig og stússast, þrátt fyrir „Parkann“, áður en aðrir skriðu á fætur. Lilla var mjög flink í höndun- um, gerði falleg útsaumsverk og töfraði fram ljúffengar kökur og fleira gotterí. Helgu þótti marmarakakan hennar Lillu allt- af best og þótti einstaklega vænt um að í lok síðasta sumars hafði hún bakað eina slíka handa henni í nesti upp í sveit. Einnig þykir Hildi vænt um stundina þegar hún útbjó kransaköku með Lillu, Jonna og ömmu Maddý. Lilla var okkur mikil og góð fyrirmynd og hún tæklaði lífið á aðdáunarverðan hátt. Hjá henni ríkti svo mikil glaðværð og bros- ið hennar mun lifa með okkur ásamt öllum minningunum. Við munum leitast við að koma fram við aðra eins og Lilla frænka gerði og gera okkar besta við að takast á við lífið á sama hátt og hún. Samband Lillu og Jonna var einstakt og svo fal- legt að sjá hvað þau voru sam- stiga og stuðningsrík í sínu hjónabandi. Það er okkur mikil fyrirmynd og við munum hafa það að leiðarljósi í okkar sam- böndum. Elsku Lilla, við erum óendan- lega þakklát fyrir allar stundirn- ar með þér. Takk fyrir alla ást- ina, hlýjuna og hvatninguna. Þú ert og verður fyrirmyndin okkar. Þín, Hildur Valdís Gísladóttir, Helga Margrét Gísladóttir og Dagur Elís Gíslason. Geirþrúður Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.