Morgunblaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019 VIÐTAL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Nú í janúar eru 14 ár frá því að Björg- ólfur Thor Björgólfsson kom í fyrsta sinn til smábæjarins Davos. Þangað var hann kominn eftir að hafa verið boðin þátttaka í Young Global Lead- ers (YGL) ráðstefnu sem haldin er samhliða Alþjóðaefnahagsþinginu sem haldið er árlega í fyrrnefndum skíðabæ í austurhluta Sviss. „Ég skildi nú eiginlega ekkert af hverju þeir boðuðu mig þangað. En ég mætti og þetta var fyrsta árið sem þetta pró- gramm var keyrt. Það má segja að það sé eins konar mastersnám þar sem farið er mjög hratt yfir.“ Í fyrsta árganginum, sem boðaður var árið 2005 voru m.a. ásamt Björg- ólfi þeir Sergey Brin og Larry Page, sem stofnað höfðu leitarvélina Google sjö árum fyrr. Björgólfur segist ekki hafa átt kost á því að sækja öll þingin frá því að hann mætti fyrst til leiks en að nú hvíli á honum skyldur í tengslum við þau. Þær tengist stjórnarsetu hans í YGL-verkefninu. „Við héldum stjórnarfund á mánu- dag og fylgdum svo starfinu úr hlaði þegar um 90 nýir þátttakendur, alls staðar að, komu og hófu þátttöku sína í því. Það var mjög ánægjulegt en það voru Klaus Schwab og Satya Nadella, forstjóri Microsoft, sem fylgdu verk- efninu úr hlaði,“ segir Björgólfur. Merkileg blanda fólks En það er fleira sem dregur hann til Davos en verkefni tengd YGL- verkefninu. Björgólfur segir að á ráð- stefnunni komi saman mjög góð blanda stjórnmálamanna, fólks úr fjölmiðlum, háskólasamfélaginu og viðskiptalífinu. „Það er engin ráðstefna eins og þessi þar sem svona ólíkir hópar koma saman. Hún dregur til sín bæði mikla hæfileika og valdamikið fólk. Þetta sjá stórfyrirtækin og það er mjög algengt að utan við ráðstefnu- svæðið leigi heilu veitingahúsin, lista- söfn, kaffihús og verslanir sem breytt sé í móttöku- og fundarstaði.“ Spurður út í hvort og hvernig hann búi sig undir þátttökuna segir hann að nauðsynlegt sé að gera ákveðnar ráðastafanir til að fá sem mest út úr dögunum sem viðburðurinn stendur. „Það þarf að bóka fundi, ekki síst þegar maður hefur áhuga á að eiga fundi með ráðherrum og öðrum kjörnum fulltrúum. Þar er mjög stífur prótókoll. Það getur líka reynst mikil- vægt þegar um formlega viðskipta- fundi er að ræða. En maður þarf líka að gera ráðstafanir þegar kemur að áhugaverðustu fyrirlestrunum sem í boði eru. Þeir eru það fjölsóttir að það komast ekki allir að.“ Bundist fólki tryggðaböndum Reynsla Björgólfs er sú að það sé ekki endilega heillavænlegt að koma gagngert til Davos í þeim tilgangi að byggja upp virkt tengslanet, hins veg- ar hafi hann kynnst mörgu góðu fólki á þessum vettvangi sem hann hafi bundist tryggðaböndum. „Það var t.d. skemmtilegt núna í ár að hitta forstjóra Heineken. Ég hef ekki hitt hann síðan hann keypti Bravo af mér í Rússlandi á sínum tíma. Það fór afar vel á með okkur.“ Ráðstefnan er fjölsótt og hefur mikil áhrif á öll umsvif í Davos. Björg- ólfur bendir á sem dæmi um þau að verð á hótelherbergjum og veitinga- húsum fimm- til tífaldist dagana í kringum ráðstefnuna. Spurður út í efnistökin á ráðstefn- unni að þessu sinni segir Björgólfur að hann hafi einkum beint sjónum sín- um að umræðunni um hið nýja 5G- kerfi sem stefnir í að muni umbylta gagnaflutningum í heiminum. „Það er margt að gerast í þessum efnum og forvitnilegt að hlusta á for- stjóra stórfyrirtækja á borð við AT&T um til hvers þessi tækni muni leiða. Þekkingin sem maður aflar á þessum fundum er eitthvað sem mað- ur tekur svo áfram með sér í starf- semina sem við erum m.a. að byggja upp í Suður-Ameríku.“ Tiplað í kringum tæknirisa En Björgólfur segir að hann skynji svipaða stemningu í Davos og fjallað var um í grein Financial Times sem birt var í ViðskiptaMogganum í gær Þar var bent á að lítið færi fyrir opin- skárri umræðu um stöðu stærstu tæknirisa veraldar þegar kæmi að hagnýtingu persónugagna notenda þeirrar þjónustu sem fyrirtæki á borð við Google og Facebook veittu. „Stóru tæknifyrirtækin eru mjög fyrirferðarmikil hérna og hafa sterk ítök. En þrátt fyrir það reyna menn að nálgast þessa umræðu út frá ýms- um sjónarhornum. Það sér maður m.a. á fólki frá Bandaríkjunum sem talar í auknum mæli fyrir íhlutun stjórnvalda, löggjafarvaldsins. Það heyrist æ oftar að mikilvægt sé að breyta stjórnarskrám og tryggja mannréttindi sem felast í aðgengi að internetinu en stjórn á eigin persónu- legu gögnum um leið. Fólki er að verða ljóst að tæknirisarnir eru alltof stórir og það þarf að brjóta þessi fyrirtæki upp með einhverju móti. Þar er ég fyrst og síðast að vísa til Go- ogle, Facebook og Amazon sem hafa hreðjatak á gagnanotkun heimsins en ekki svo fjarri þeim eru svo fyrirtæki á borð við Apple, Netflix og Micro- soft.“ Risarnir þrír of valdamiklir  14 ár síðan Björgólfur Thor sótti fyrst WEF í Davos Ráðstefna World Economic Forum hefur verið haldin í Davos frá árinu 1971. 25. janúar 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.53 121.11 120.82 Sterlingspund 156.46 157.22 156.84 Kanadadalur 90.48 91.0 90.74 Dönsk króna 18.319 18.427 18.373 Norsk króna 14.015 14.097 14.056 Sænsk króna 13.338 13.416 13.377 Svissn. franki 120.62 121.3 120.96 Japanskt jen 1.0985 1.1049 1.1017 SDR 167.63 168.63 168.13 Evra 136.82 137.58 137.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.9631 Hrávöruverð Gull 1284.9 ($/únsa) Ál 1867.0 ($/tonn) LME Hráolía 61.37 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Húsnæðisverð á Íslandi hækkaði um 5,8% á þriðja ársfjórðungi 2018 frá því sem var á sama ársfjórðungi fyrra árs. Það er aðeins fyrir ofan þróunina í Evr- ópusambandinu sem og á evru- svæðinu en í hvoru tilfelli fyrir sig hækkaði hús- næðisverð um 4,3%. Þetta kem- ur fram í saman- tekt sem Hag- stofa Íslands byggir á vísitölum frá hagstofu Evr- ópusambandsins. Sé horft til Skand- inavíu sést að húsnæðisverð hefur hækkað um 3,5% í Danmörku á sama tímabili, um 3,5% í Noregi og um 1% í Finnlandi. Í Svíþjóð hefur hús- næðisverð aftur á móti lækkað um 2,1% á sama tímabili. Sé horft til þeirra landa þar sem húsnæðisverð hefur hækkað hvað mest á sama tímabili er Slóvenía þar í sérflokki en þar nemur hækkunin 15,1%. Í Hol- landi nemur hækkunin 10,2%. Þessar tölur hagstofu ESB ná aftur til fjórða ársfjórðungs árið 2015. Sé þriðji ársfjórðungur ársins 2016 bor- inn saman við þriðja ársfjórðung 2017 hér á landi sést að hækkunin hér á landi á því tímabili var heil 22,5%. Sé fjórði ársfjórðungur ársins 2015 borinn saman við þriðja árs- fjórðung 2016 var hækkunin 7,8%. Magnús Árni Skúlason hjá Reykjavík Economics segir að um jákvæða þróun sé að ræða og að hús- næðismarkaðurinn sé að ná jafnvægi frá lágpunktinum árið 2010. Hann sé nú eðlilegur í samanburði við önnur lönd varðandi svona lækkunarferli og að búast megi við eðlilegri verð- hækkunum til framtíðar. „Það er komið að endalokum þessa hækkunarferlis sem hefur átt sér stað frá árinu 2010. Það sem ýtti einnig undir verðhækkunina er lækkun húsnæðislánavaxta og fram- boðsskortur ásamt því mikla inn- streymi af fólki sem kom til landsins eftir útstreymið eftir fjármálakrepp- una,“ segir Magnús. Húsnæðismark- aður í jafnvægi  Komið að endalokum hækkunarferlis Magnús Árni Skúlason LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 AIR OPTIX® COLORS Linsur í lit IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2017 RAM 3500 Limited Litur: Perluhvítur, svartur að innan. Ekinn 9600 km. Einn með öllu: Loftpúðafjöðrun, Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, RAM-box. 6,7L Cummins VERÐ 9.180.000 m.vsk 2019 Ford F-350 Lariat Ultimate Litur: Svartur / svartur að innan 6-manna bíll. 6,7L Diesel,450 Hö, 925 ft of torque. Lariat með öllu, Ultimate- og krómpakka, upphituð/ loftkæld sæti, stóra topplúgan, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera, Driver alert og distronic, Bang Olufssen hljómkerfi, 360 myndavél. VERÐ 11.990.000 m.vsk 2018 RAM 3500 Laramie Litur: Svartur (brilliant black), dökk grár að innan. Black apperance pakki. 35” Dekk. Ekinn 17.000 km. 6,7L Cummins, Aisin sjálfskipting, loftpúðafjöðrun, heithúðaður pallu, fjarstart, 5th wheel towing pakki VERÐ 8.530.000 m.vsk 2019 Chrysler Pacifica Hybrid Limited Glæsilegur 7 manna bíll. Einn með öllu, t.d. hita/kæling í sætum, glerþak, leðursæti, bakkmyndavél, Dvd spilari, Harman Kardon hljómflutningskerfi o.fl. o.fl. VERÐ 8.490.000 m.vsk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.