Morgunblaðið - 25.01.2019, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019
Hnitrýni Á Reykjavíkurleikunum, sem hófust í gær og standa til 3. febrúar, er hnit meðal átján greina
sem keppt er í. Ungir áhorfendur fylgdust einbeittir með keppninni í TBR-húsinu í Gnoðarvogi.
Eggert
„Fréttamenn skulu skýra
viðmælendum og heimildar-
mönnum frá því með hvaða
hætti viðtöl eða upplýsingar
frá þeim verði notaðar, um
hvað fréttin eða þátturinn
snúist.“
Þetta er orðrétt úr siða-
reglum RÚV og er út af fyrir
sig athyglisvert að stofnunin
telji sig þurfa að setja á blað
leiðbeiningar um vinnubrögð
sem þykja eðlileg meðal sið-
aðra manna.
Viðmælandi hefur kært Kastljós til siða-
nefndar RÚV fyrir meðferð Helga Seljan á
sér og viðtali við sig í mars 2012. Nefnt
ákvæði og mörg önnur í siðareglum og
fréttareglum RÚV voru þar þverbrotin og
við vinnslu fjögurra þátta í sömu seríunni.
Elín Björg Ragnarsdóttir lögfræðingur var
ekki eini viðmælandi Helga Seljan sem
þarna var brotið á. Þeir voru fleiri.
Páll Magnússon var útvarpsstjóri á þess-
ari vakt og sér enn ekkert athugavert við víta-
verð vinnubrögð Kastljósliðsins. Ekki vefst
fyrir mér að staðfesta að við Páll erum sam-
mála um að aðför Más Guðmundssonar & co.
gagnvart Samherja hafi verið reist á sandi og
ekki standi þar steinn yfir steini. Æskilegt
væri í framhaldinu að hann viðurkenndi að
Kastljósþættirnir fjórir voru líka reistir á
sandi! Þar var því haldið fram að sjávarútvegs-
fyrirtæki flyttu hagnað úr landi með undir-
verðlagningu sjávarafla og að þau brytu gjald-
eyrislög. Allt var rannsakað í þaula. Máli
Samherja lyktaði með sýknu en Vinnslu-
stöðvarinnar með niðurfellingu ákæru sér-
staks saksóknara.
Eftir stendur að ásakanir Kastljóss á hend-
ur nafngreindum fyrirtækjum voru falskar og
rangar en tímasettar í samhengi við framlagn-
ingu veiðigjaldafrumvarpa. Þetta kalla ég
samsæri starfsmanna RÚV, Seðlabanka og
þáverandi stjórnvalda.
Stjórnendur Samherja og Vinnslustöðvar-
innar voru blákalt sakaðir um lögbrot. Í mínu
tilviki frétti ég af því að Kastljós myndi fjalla
um mál tengt félaginu mörgum vikum áður en
þátturinn var sendur út.
Tíminn var nægur og með
örlítilli heimildarvinnu og við-
tölum við kunnáttufólk í
sjávarútvegi hefðu stjórn-
endur Kastljóss áttað sig á að
ekki stóð steinn yfir steini í
málatilbúnaðinum. Helgi
Seljan og samverkamenn
hans í Seðlabankanum rugl-
uðu t.d. saman verði á karfa á
innanlandsmarkaði og á er-
lendum mörkuðum, sem var
hærra vegna flutningskostn-
aðar!
Í þættinum þar sem
Vinnslustöðin kom fyrst við sögu fékk ég
ekki tækifæri til að bregðast við strax, eins
og kveðið er á um í reglum RÚV: „Sé um að
ræða alvarlegar ásakanir, t.d. um lögbrot
eða vanhæfi, verður að gefa viðkomandi
möguleika til andsvara í sama fréttatíma.“
RÚV hafði samband þremur klukku-
stundum fyrir útsendingu í byrjun apríl en
þá var auðvitað ekkert svigrúm til að
bregðast við ruglinu sem Seljan og Seðla-
bankinn höfðu kokkað frá því í janúar.
Daginn eftir lýsti ég vinnubrögðum Kast-
ljóss og viðtalið var afkynnt með þeim orð-
um að Kastljós stæði í einu og öllu við
umfjöllun sína. Þátturinn stendur enn við
þau orð sín, eða hvað?
Kastljós vann ekki heimavinnuna sína,
lét nota sig og braut á viðmælendum sínum.
Páll Magnússon ætti að íhuga hvort hann
treystir sér til að taka áfram ábyrgð á því
sem þarna gerðist á vaktinni hans.
Eftir Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson
» Ásakanir Kastljóss á
hendur nafngreindum
fyrirtækjum voru falskar og
rangar en tímasettar í sam-
hengi við framlagningu
veiðigjaldafrumvarpa.
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar hf.
binni@vsv.is
Fúsk á fréttavakt
Þegar kosningabar-
átta Donalds Trumps
var í molum í ágúst
2016 birtist Steve
Bannon. Hann náði
þráðum saman og bjó í
haginn fyrir frambjóð-
andann, sem náði kjöri
í nóvember 2016.
Nú þegar tvö ár eru
liðin frá því að Trump
tók við forsetaembætt-
inu er Bannon ekki lengur í náðinni í
Hvíta húsinu. Ákafi baráttumað-
urinn hefur snúið sér að evrópskum
stjórnmálum. Hann vill láta að sér
kveða í kosningum til ESB-þingsins
í maí 2019.
Steve Bannon og belgíski fjár-
málalögfræðingurinn Mischaël Mo-
drikamen reka Hreyfinguna, stjórn-
málaráðgjöf fyrir hægri flokka. Þeir
hafa aðsetur í ríkmannlegri bygg-
ingu í úthverfi Brussel og vilja
mynda öflugan hóp á ESB-þinginu
sem tileinki sér markmið Hreyfing-
arinnar. Ætlun þeirra er að í nýja
þingflokknum verði um þriðjungur
700+ manna á ESB-þinginu.
Þeir lofa samherjum að aðstoða þá
við skoðanakannanir, mat á gögnum,
nýtingu samfélagsmiðla og val á
frambjóðendum. Bannon segir að
hann kosti starfsemina að hluta úr
eigin vasa en upplýsir ekki um aðra
fjárhagslega bakhjarla. Í hans huga
er Hreyfingin svar við stofnun
George Soros sem kennd er við opið
þjóðfélag. Bannon lýsir Soros sem
„snjöllu illmenni“. Bannon vill þjóð-
ernishyggju (e. nationalism) í stað
hnattvæðingar (e. globalization).
Raddir í þessa veru heyrast víða,
einnig hér á landi.
Flokkar þjóðernissinnaðra popúl-
ista í Evrópu falla ekki
allir fyrir Hreyfing-
unni. Tengsl hennar
eru mest við Banda-
lagið, flokk Matteos
Salvinis á Ítalíu.
Tilboð Hreyfingar-
innar um ókeypis ráð-
gjöf brýtur í bága við
lög í níu af löndunum
13 þar sem hún vill láta
að sér kveða. Sterk rök
hníga að því að Bannon
skipti sér af flóknum
evrópskum stjórn-
málum til að draga athygli að sjálf-
um sér frekar en einstökum fram-
bjóðendum til ESB-þingsins.
Bannon telur Brusselmenn lykil-
andstæðinga sína „í þeim [slái]
hjarta globalismans“, takist sér að
„reka flein í gegnum vampíruna
[Brusselvaldið]“ hefjist upplausnin.
Modrikamen segir markmiðið ekki
að leggja ESB niður heldur breyta
sambandinu með því að vinna sigur á
elítunum.
Pútín ágreiningsefni
Matteo Salvini, vara-forsætisráð-
herra og innanríkisráðherra Ítalíu,
reynir nú að mynda samstöðu með
stjórnmálamönnum í ríkjum innan
ESB sem gagnrýna stjórnarhætti
innan sambandsins. Markmið hans
er að mynda öflugan fjölþjóðlegan
þingflokk í anda Bannons eftir ESB-
þingkosningarnar í maí.
Í ársbyrjun fór Salvini til Varsjár
og hitti meðal annarra Jaroslaw
Kaczynski, leiðtoga pólska stjórn-
arflokksins. Boðaði Salvini að Ítalir
og Pólverjar yrðu í forystu þeirra
sem vildu „nýtt evrópskt vor“.
Áherslan yrði lögð á hagvöxt, ör-
yggi, fjölskylduna og kristnar rætur
Evrópu, sagði hann.
Jaroslaw Kaczynski og flokkur
hans deila ekki aðdáun Salvinis á
Vladimir Pútin Rússlandsforseta. Í
huga pólsku ráðamannanna hefur
Rússlandsforseti ekki hreinsað sig
og stjórn sína af ábyrgð á dauða þá-
verandi forseta Póllands, tvíbura-
bróður Jaroslaws Kaczynskis, í flug-
slysi skammt frá Smólensk í
Rússlandi árið 2010.
Tortryggni pólskra yfirvalda í
garð Rússa er „áþreifanleg“.
Andrzej Duda, forseti Póllands,
mæltist til þess á fundi með Donald
Trump í Washington í september
2018 að Bandaríkjaher ætti stöð til
varanlegrar dvalar í Póllandi og
mundi hún heita Trump-virkið. Á
tveggja ára forsetaafmæli Donalds
Trumps er pólsku tilmælanna sér-
staklega getið. Þau sýni að þrátt fyr-
ir allt sé Bandaríkjaforseti ekki
vinalaus í Evrópu.
Ágreiningur um afstöðuna til Pút-
íns er ekki eina deiluefnið í hópi
gagnrýnna ESB-stjórnmálamanna.
Þeir deila til dæmis einnig um út-
lendingamál. Salvini vill að kvóta-
regla gildi innan ESB. Ítalir geti
sent útlendinga til annarra ESB-
landa á grundvelli hlutfallsreglu.
Þetta er eitur í beinum Austur-
Evrópumanna.
Þá vill Salvini að Ítalir fái styrki
úr sjóðum ESB í stað þess að greiða
meira en þeir fá til baka. Þetta fellur
ekki að skoðunum Pólverja sem not-
ið hafa hæstu uppbyggingarstyrkja
úr sjóðum ESB. Þeir bregðast
einnig illa við þegar Þjóðverjar og
Frakkar viðra hugmyndir um að
setja pólitísk skilyrði fyrir veitingu
slíkra styrkja.
Ítalir gegn Frökkum
Frakkar og Þjóðverjar minntu
enn á sérstöðu sína og forystu-
hlutverk innan ESB þriðjudaginn
22. janúar þegar Angela Merkel
Þýskalandskanslari og Emmanuel
Macron Frakklandsforseti „upp-
færðu“ tvíhliða sáttargjörð forvera
sinna Konrads Adenauers og Char-
les de Gaulles frá 22. janúar 1963.
Matteo Salvini neitar að við-
urkenna „aflgjafa Þjóðverja og
Frakka“ í ESB og segir að í hans
stað komi nú „öxull Ítala og Pól-
verja“.
Frakkar kölluðu í vikunni ítalska
sendiherrann í París á teppið vegna
ummæla sem Luigi Di Maio, vara-
forsætisráðherra Ítalíu og leiðtogi
Fimmstjörnu-hreyfingarinnar, lét
falla á stjórnmálafundi sunnudaginn
20. janúar um Frakka sem nýlendu-
þjóð í Afríku. Þeir hefðu verið helstu
kúgarar Afríkumanna. Afleiðingar
þess birtust nú í ólöglegum straumi
fólks frá Afríku yfir Miðjarðarhaf.
Vill Di Maio að ESB refsi Frökkum
fyrir að „arðræna Afríku“.
Matteo Salvini vill ekki vera minni
maður en Di Maio í þessu efni. Hann
sagði þriðjudaginn 22. febrúar að
Frakkar hefðu engan áhuga á stöð-
ugleika í Líbíu, líklega vegna þess að
olíuhagsmunir Frakka þar stöngð-
ust á við hagsmuni Ítala. Frakkar
hefðu ekki efni á að hneykslast á
neinum í útlendingamálum, þeir
hefðu hrakið tugi þúsunda farand-
fólks á brott frá frönsku landamær-
unum, út á guð og gaddinn eins og
skepnur. „Ég þarf ekki neina leið-
sögn um mannúð og mildi frá
Macron,“ sagði Salvini.
Hörð valdabarátta
Innan ESB er Þjóðverjum lýst
sem forystumönnum þjóðanna í
norðri og Frökkum í suðri. Þegar
ítalskir ráðamenn beina spjótum sín-
um sérstaklega að Emmanuel
Macron Frakklandsforseta er um
meira en málefnaágreining að ræða
– þetta er valdabarátta innan suður-
ríkjahópsins og einnig gegn Macron
á heimavelli. Salvini og félagar vilja
búa í haginn fyrir Marine Le Pen,
skoðanasystur sína og helsta and-
stæðing Macrons.
Þegar Emmanuel Macron flutti
ræðu í steypiregni við Sigurbogann í
París 11. nóvember 2018 á 100 ára
afmæli vopnahlésins eftir fyrri
heimsstyrjöldina sagði hann þjóð-
ernishyggju andstæðu föðurlands-
ástar.
Forsetinn gaf þá tóninn fyrir
kosningabaráttuna til ESB-
þingsins. Macron telur hana háða
milli „framfarasinna“ og „þjóðernis-
sinna“. Hann ætlar að leiða fyrri
hópinn. Í anda Bannons er sótt hart
að Macron frá Ítalíu. Á heimavelli
stendur hann illa. Þar hafa gulvest-
ungar efnt til mótmæla 10 helgar í
röð.
Norðurarmur ESB veikist við að
Bretar hverfa úr sambandinu. Úr-
sagnarraunir Breta hafa örugglega
orðið til þess að ESB-efasemdar-
menn boða ekki úrsögn heldur
breytingar á æðstu stjórn, meira
sjálfstæði aðildarríkja og aukna
hörku í útlendingamálum.
Baráttan um völdin innan ESB
snýst um tilfinningar, að embætt-
ismenn án lýðræðislegs umboðs
ráðskist um of með hag almennings.
Hann fái ekki rönd við reist nema
hann kjósi gegn elítunni.
Eftir Björn
Bjarnason »Úrsagnarraunir
Breta hafa örugg-
lega orðið til þess að
ESB-efasemdarmenn
boða ekki úrsögn.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Línur skýrast vegna ESB-þingkosninganna