Morgunblaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 40
Tálgað undir hömrum, sýning á verk-
um Guðjóns R. Sigurðssonar, verður
opnuð í Svavarssafni, listasafni
Svavars Guðnasonar, í dag kl. 17 á
Hafnarbraut 27 í Hornafirði. Guðjón
tálgaði og smíðaði hina ýmsu muni
um ævina en viðarstyttur, sem hann
skar út og gaf kunningjum sínum
eða seldi ferðamönnum, urðu vin-
sælar meðal listunnenda. Í dag
prýða styttur hans heimili og söfn
víða um landið og tilheyra sögu
næfrar myndlistar á Íslandi.
Tálgað undir hömrum
FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 25. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Frammistaða íslensku landsliðs-
mannanna í handknattleik á heims-
meistaramóti karla var ekki eins
góð í leikjunum þremur í milliriðl-
inum og hún var í leikjunum fimm í
riðlakeppninni þar á undan. Morg-
unblaðið metur frammistöðu leik-
mannanna í millariðlakeppninni og
gefur þeim einkunnir fyrir hana. »2
Einkunnir leikmanna
fyrir milliriðilinn
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Listasafnið á Akureyri verður með
dagskrá helgaða sýningunni Örn Ingi
Gíslason: Lífið er LEIK-fimi um
helgina. Á laugardaginn frá kl. 15
verður haldin kynning á bók um Örn
Inga og málþing en sýningin hefur
verið skipulagður gjörningur frá því
hún var opnuð 3. nóvember. Á
sunnudaginn kl.
14 hefst tón-
listardagskrá og
munu tónlistar-
nemar flytja
verk samið fyr-
ir sýninguna
og börn úr leik-
listarskóla
munu leiklesa úr
nokkrum hand-
ritum sem Örn Ingi
samdi fyrir börn.
Dagskrá helguð list
Arnar Inga um helgina
leiðinlegt enda segi ég á síðu minni
að telji fólk sig eiga höfundarréttinn
á efninu skuli það senda mér línu og
ég þurrka það út.“ Seinna stofnaði
hann síðurnar MeNicelander, þar
sem sjá má tæplega 100 myndbönd
og Saegrjot, þar sem eru tæplega
1.000 myndbönd og yfir 2.000 áskrif-
endur. „Þegar ég byrjaði skrifaði ég
útvarpsstjóra og spurði hvort hann
hefði eitthvað við þetta að athuga.
Mér var ekki svarað og því fór ég að
ráðum ömmu minnar sem sagði allt-
af að þögn væri sama og samþykki.“
Á síðum Hafsteins er margvíslegt
efni eins og til dæmis tónlistar-
myndbönd, skemmtiþættir, fræðslu-
efni, leikrit, fréttir, viðtöl og ávörp
forystumanna. „Um 305.000 hafa
skoðað myndband um Mikka ref úr
Dýrunum í Hálsaskógi,“ segir hann.
„Það segir mér að einhverjir noti
efnið sem barnapössun.“ Hann bæt-
ir við að starfsmaður Ríkisútvarps-
ins hafi haft samband fyrir um
tveimur árum og spurt hvort hann
ætti meira fréttaefni. „Á tímabili
fleygði Sjónvarpið miklu efni eða
tók yfir það, en seinna sáu menn að
þarna höfðu verið gerð mistök,“
segir Hafsteinn og leggur áherslu á
að hann hugsi fyrst og fremst um að
varðveita efnið.
„Ég hef hægt á niðurhalinu en er
ekki hættur og hef nóg að gera þeg-
ar ég hætti að vinna,“ segir Haf-
steinn. Bendir loks á að þegar hann
hafi verið skírður hafi kunningi föð-
ur síns sagt: „„Jæja, heitir hann þá
Sægrjót.“ Þannig varð nafnið á síð-
unni til.“ Og hlær þar til símtalið
rofnar.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hafsteinn Filippusson, húsgagna-
smiður í Ástralíu, hefur bjargað
mörgum íslenskum sjónvarps-
upptökum frá glötun og sett þær inn
á Youtube, þar sem þær eru öllum
aðgengilegar. „Þetta hefur almennt
mælst vel fyrir enda er tilgangurinn
að bjarga verðmætum,“ segir hann.
Hjónin Hafsteinn og Arndís
Magnúsdóttir fluttu með tvær dæt-
ur og tvo syni til Tamborine í
Queensland í Ástralíu, um 60 km frá
Brisbane, árið 1980. Þau eru öll þar
enn fyrir utan yngri dótturina. „Hún
ætlaði að skoða heiminn fyrir um 25
árum, byrjaði á því að fara til Van-
couver í Kanada, en fór aldrei
lengra og settist þar að,“ segir Haf-
steinn.
Undanfarin 20 ár hefur hann rek-
ið fyrirtækið Steinco í aðstöðu
heima en áður átti hann fyrirtækið
Filippusson Cabinetmaking, sem
síðar var breytt í Deskmasker &
Chairmasters í Brisbane, rak það í
um 19 ár og var mest með 45 manns
í vinnu við að smíða skrifstofu-
húsgögn. „Flestir á mínum aldri eru
hættir að vinna, en ég vil ekki
breyta lífinu þótt árunum fjölgi,“
segir Hafsteinn, sem verður 77 ára í
ár.
Fékk sendar spólur frá Íslandi
Eftir að þau fluttu til Ástralíu
sendi faðir Hafsteins, Filippus Þor-
varðarson, honum reglulega vídeó-
spólur með efni sem hann hafði tek-
ið upp úr íslensku sjónvarpi. „Af
rælni fór ég að leika mér að því að
koma þessu á stafrænt form og setja
inn á Youtube, vann við það á hverju
kvöldi í sjö ár frá 2008,“ segir hann.
Fyrst notaði Hafsteinn nafnið
Humperdinkus á Youtube og þar
eru nú á 1.200 hundrað titlar og
tæplega 3.000 áskrifendur. Hann
segir að ýmsir hafi hvatt sig til þess
að halda áfram en aðrir hafi viljað
stöðva útbreiðsluna og hann hafi
verið kærður fyrir stuld á efni og
höfundarrétti. Þá hafi Youtube haft
lokað á hann í eitt ár. „Mér þótti það
Stendur vörð um
íslenska menningu
Hefur bjargað íslenskum sjónvarpsupptökum frá glötun
Brisbane Hjónin Hafsteinn og Arndís Magnúsdóttir. Miðbærinn í baksýn.
HEIMSBORGIR
ÁFLOTTUVERÐI!
BOSTON FRÁ
12.999kr.*
Ferðatímabil: janúar - maí 2019
DETROIT FRÁ
12.999kr.*
Ferðatímabil: janúar - febrúar 2019
NEWYORK FRÁ
12.999kr.*
Ferðatímabil: janúar - maí 2019
MONTRÉAL FRÁ
15.999kr.*
Ferðatímabil: janúar - maí 2019
TORONTO FRÁ
15.999kr.*
Ferðatímabil: janúar - maí 2019
WASHINGTON,D.C. FRÁ
12.999kr.*
Ferðatímabil: janúar - febrúar 2019
Bragðast pítsan betur í Boston
eða NewYork? Þú getur auðveldlega
komist að því, enda færðu flug frá
aðeins 12.999 kr. Svomá líka skella
sér til Detroit,Washington,D.C.
eða kíkt til Kanada þar sem
Toronto ogMontréal bíða þín
með opinn faðminn.
*Verðmiðast viðWOWbasic aðra leiðmeðsköttumef greitt ermeðNetgíró ogflugbókað framog til baka.