Morgunblaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 34
Ný Neko3 er samtímatónlistarhópur er hefur aðsetur í Kaupmannahöfn.
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Um 30 verk verða heimsfrumflutt á
hátíðinni í ár auk þess sem nokkur
verk verða Íslandsfrumflutt,“ segir
Gunnar Karel Másson, listrænn
stjórnandi nútímatónlistarhátíðar-
innar Myrkra músíkdaga (MM), sem
hefst á morgun og stendur til 2. febr-
úar. Markmið hátíðarinnar, sem Tón-
skáldafélag Íslands stofnaði til 1980,
er að sögn Gunn-
ars að flytja og
kynna samtíma-
tónlist með
áherslu á nýja, ís-
lenska tónlist og
flytjendur í bland
við erlend verk og
flytjendur.
„Í ár bjóðum
við upp á rúmlega
20 viðburði á 14
ólíkum tónleika-
stöðum á einni viku,“ segir Gunnar,
en um er að ræða Iðnó, Gamla bíó,
Hallgrímskirkju, Fríkirkjuna í
Reykjavík, Hafnarborg, húsnæði
tónlistardeildar LHÍ í Skipholti 31,
Norræna húsinu, Mengi, Húrra,
Hannesarholt, Hafnarhúsið og þrjú
ólík rými Hörpu.
„Við ákváðum að lengja hátíðina í
viku í ár til að prufukeyra slíkt skipu-
lag fyrir næsta ár þegar 40 ár verða
liðin frá stofnun hátíðarinnar með til-
heyrandi hátíðarhöldum,“ segir
Gunnar og rifjar upp að á upphafs-
árum hátíðarinnar hafi hún yfirleitt
staðið í tvær viku. „Lengi vel stóð
hún síðan í viku, en þegar hún flutti
öll inn í Hörpu um tíma styttist hún
niður í þrjá daga til að halda kostnaði
í lágmarki,“ segir Gunnar og bendir á
að annað árið í röð sé hátíðin haldin
víðs vegar um borgina, þó nokkrir
viðburðir fari enn fram í Hörpu,
þ.m.t. tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
Íslands. „Draumur okkar er að hátíð-
in verði haldin víðs vegar um höfuð-
borgarsvæðið, enda búa tónskáldin
ekki öll í miðbænum,“ segir Gunnar
og nefnir í því samhengi að ánægju-
legt sé að hluti hátíðarinnar fari fram
í Hafnarborg í tengslum við sýn-
inguna Hljóðön – sýning tónlistar
sem þar verður opnuð á morgun.
Líkt og í fyrra verða flestallir tón-
leikar hátíðarinnar um klukkutími að
lengd og dagskránni stillt þannig upp
að hátíðargestir eiga að geta mætt á
alla tónleika. Á vefnum darkmusic-
days.is má finna ítarlega dagskrá og
upplýsingar um flytjendur. Þar má
einnig nálgast hátíðarpassa fyrir 15
þús. kr. Miðaverð á staka tónleika er
á bilinu 1.500-4.500 kr. en ókeypis er
á nokkra viðburði.
Að sögn Gunnars eykst aðsókn
listamanna í hátíðina sífellt milli ára,
í ár bárust um 350 umsóknir en voru
300 í fyrra. „Sem fyrr er markmið
okkar að hækka hlutfall kven-
tónskálda og fer það upp í 37,4% í ár
en var 30% í fyrra,“ segir Gunnar og
tekur fram að við val á flytjendum sé
einnig horft til þess að fjölbreytnin sé
mikil.
Algjör hvalreki fyrir hátíðina
Myrkir músíkdagar verða form-
lega settir í Norræna húsinu á morg-
un kl. 19. Á sama stað kl. 20 frum-
flytur tónlistarhópurinn The Riot
Ensemble „Solstices“ eftir Georg
Friedrich Haas, en tónskáldið verður
viðstatt og situr fyrir svörum að tón-
leikum loknum. „The Riot Ensemble
er ein af leiðandi kammersveitum á
Bretlandi. Þau pöntuðu verkið eftir
Haas sem er prófessor í tónsmíðum
við Columbia-háskóla og í topp fimm
af lifandi nútímatónskáldum. Það er
því algjör hvalreki fyrir hátíðina að fá
heimsfrumflutning á verki eftir
hann,“ segir Gunnar og bendir á að
verkið verði flutt í algjöru myrkri.
Tvennir tónleikar verða í boði á
sunnudag. Schola cantorum Íslands-
frumflytur „Requiem“ eftir Alfred
Schnittke og frumflytur verk eftir
Sigurð Sævarsson í Hallgrímskirkju
kl. 16 undir stjórn Harðar Áskels-
sonar. Tónlistarhópurinn Kúbus
kemur fram í Fríkirkjunni í Reykja-
vík kl. 20 og frumflytur verk eftir
Hauk Tómasson og Kolbein Bjarna-
son. „Í verkum Hauks er skírleikinn
og einfaldleikinn í fyrirrúmi meðan
meira flúr er áberandi í verkum Kol-
beins,“ segir Gunnar og bendir á að
Kolbeinn sé í raun ungt tónskáld þar
sem hann hafi ekki snúið sér að tón-
smíðum fyrr en eftir langan og far-
sælan feril sem tónlistarflytjandi.
„Það er mjög áhugavert að sjá svona
þroskaðan listamann og tónlistar-
flytjanda takast á við nýtt hlutverk
sem tónskáld.“
Ungir flytjendur fá pláss
Þriðjudaginn 29. janúar kemur
Dúplum Dúó, sem Björk Níelsdóttir,
söngkona og tónskáld og Þóra Mar-
grét Sveinsdóttir víóluleikari skipa,
fram í Iðnó kl. 20 og frumflytur verk
eftir ung íslensk og hollensk tón-
skáld. „Mér finnst mikilvægt að há-
tíðin gefi ungum flytjendum pláss til
að flytja tónlist sinnar kynslóðar.
Þetta verða mjög áhugaverðir tón-
leikar, enda eru þær báðar frábærir
flytjendur,“ segir Gunnar.
Miðvikudaginn 30. janúar kl. 20
heldur Hið íslenska gítartríó tónleika
á neðri hæð Hafnarborgar þar sem
frumflutt verða verk eftir m.a. Hildi-
gunni Rúnarsdóttur og Svein Lúðvík
Björnsson. „Okkur fannst spennandi
að gítartónlist væri flutt á hátíðinni,
en gítarinn á það stundum til að
gleymast. Það getur verið mjög flók-
ið að skrifa samtímatónlist fyrir
gítarinn og því nauðsynlegt að tón-
skáldin þekki hljóðfærið vel.“
Fimmtudaginn 31. janúar efnir
Rannsóknarstofa í tónlist (RíT) við
tónlistardeild LHÍ í samstarfi við
Myrka Músíkdaga og tónleikaröðina
Hljóðön til málstofu um listrann-
sóknir í tónlist undir stjórn Marko
Ciciliani og Barböru Lüneburg í
stofu S304 í húsnæði tónlistardeildar
Listaháskóla Íslands í Skipholti 31
milli kl. 13 og 15. Þess má geta að þau
koma fram á tónleikum í Hafnarborg
2. febrúar kl. 16.
Mikilvægt samstarf
Zoë Martlew kemur fram í Kalda-
lóni Hörpu 31. janúar kl. 17.30 og
flytur verk eftir m.a. Daníel Bjarna-
son, Bjørn Fongaard og Juliönu
Hodkinson. „Ég hef unnið náið með
Zoë frá 2014, bæði skrifað fyrir hana
og pródúserað tónleika með henni,“
segir Gunnar en Zoë Martlew kom
fram á Jaðarber-tónleikaröðinni
2014. „Hún er ein af samtímatón-
listarsellistum Bretlandseyja, en hef-
ur komið víða við í tónlistinni og m.a.
setið í dómnefnd Eurovision þar í
landi. Hún var DIVA í Danmörku,
sem er skammstöfun fyrir Danish
International Visiting Artist og
kynntist þar danskri og norrænni
samtímatónlist sem unnið er með á
þessum tónleikum,“ segir Gunnar og
bendir á að tónleikarnir séu hluti af
PULS-verkefninu. „PULS, sem
Myrkir músíkdagar urðu hluti af í
fyrra, er norrænt tengslanet fjár-
magnað af Norræna menningar-
sjóðnum.“
Fjölbreytni í fyrir-
rúmi á hátíð ársins
Nútímatónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar að hefjast
Dúó Elísabet Waage og Laufey Sigurðardóttir hafa unnið lengi saman.
Gunnar Karel
Másson
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019
Soffía Sæmundsdóttir myndlistar-
kona opnaði í gær sýninguna
Órætt landslag í Galleríi Gróttu á
Seltjarnarnesi og stendur hún yfir
til 24. febrúar. Galleríið er á 2.
hæð Eiðistorgs, inni á bókasafni
bæjarins.
Á sýningunni má sjá olíumálverk
unnin á tré og myndröð unna á
pappír með olíulitum og coldvaxi
sem blandað er saman við litinn og
borið á með spaða, eins og segir í
tilkynningu. „Verkin eru unnin
hratt og máta sig við óhlutbundna
málarahefð með áherslu á endur-
tekningu í myndbyggingu og sam-
spili lita og flata,“ segir þar.
„Yfirbragð sýningarinnar er
hrátt enda flestar myndirnar unn-
ar sl. mánuð og sumar varla þorn-
aðar. Það er eitthvað hressandi við
það í upphafi nýs árs að fara út á
ystu nöf þess mögulega. Enginn
tími til yfirlegu og markvissrar
niðurstöðu. Maður verður bara að
treysta og það er áhætta sem þarf
að taka (svo eitthvað komist upp á
vegg!!),“ segir Soffía enn fremur í
tilkynningunni. Öll skilningarvit
séu þanin, skynjarar hafi vart und-
an að taka á móti litaflæði og
formum sem komi í röðum. Hún
hugsi um tónlist en hlusti á mynd-
list.
Abstrakt Eitt af verkum Soffíu á sýningunni í Galleríi Gróttu.
Hressandi að fara út á ystu nöf
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI
Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.