Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 19

Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019 Hnitrýni Á Reykjavíkurleikunum, sem hófust í gær og standa til 3. febrúar, er hnit meðal átján greina sem keppt er í. Ungir áhorfendur fylgdust einbeittir með keppninni í TBR-húsinu í Gnoðarvogi. Eggert „Fréttamenn skulu skýra viðmælendum og heimildar- mönnum frá því með hvaða hætti viðtöl eða upplýsingar frá þeim verði notaðar, um hvað fréttin eða þátturinn snúist.“ Þetta er orðrétt úr siða- reglum RÚV og er út af fyrir sig athyglisvert að stofnunin telji sig þurfa að setja á blað leiðbeiningar um vinnubrögð sem þykja eðlileg meðal sið- aðra manna. Viðmælandi hefur kært Kastljós til siða- nefndar RÚV fyrir meðferð Helga Seljan á sér og viðtali við sig í mars 2012. Nefnt ákvæði og mörg önnur í siðareglum og fréttareglum RÚV voru þar þverbrotin og við vinnslu fjögurra þátta í sömu seríunni. Elín Björg Ragnarsdóttir lögfræðingur var ekki eini viðmælandi Helga Seljan sem þarna var brotið á. Þeir voru fleiri. Páll Magnússon var útvarpsstjóri á þess- ari vakt og sér enn ekkert athugavert við víta- verð vinnubrögð Kastljósliðsins. Ekki vefst fyrir mér að staðfesta að við Páll erum sam- mála um að aðför Más Guðmundssonar & co. gagnvart Samherja hafi verið reist á sandi og ekki standi þar steinn yfir steini. Æskilegt væri í framhaldinu að hann viðurkenndi að Kastljósþættirnir fjórir voru líka reistir á sandi! Þar var því haldið fram að sjávarútvegs- fyrirtæki flyttu hagnað úr landi með undir- verðlagningu sjávarafla og að þau brytu gjald- eyrislög. Allt var rannsakað í þaula. Máli Samherja lyktaði með sýknu en Vinnslu- stöðvarinnar með niðurfellingu ákæru sér- staks saksóknara. Eftir stendur að ásakanir Kastljóss á hend- ur nafngreindum fyrirtækjum voru falskar og rangar en tímasettar í samhengi við framlagn- ingu veiðigjaldafrumvarpa. Þetta kalla ég samsæri starfsmanna RÚV, Seðlabanka og þáverandi stjórnvalda. Stjórnendur Samherja og Vinnslustöðvar- innar voru blákalt sakaðir um lögbrot. Í mínu tilviki frétti ég af því að Kastljós myndi fjalla um mál tengt félaginu mörgum vikum áður en þátturinn var sendur út. Tíminn var nægur og með örlítilli heimildarvinnu og við- tölum við kunnáttufólk í sjávarútvegi hefðu stjórn- endur Kastljóss áttað sig á að ekki stóð steinn yfir steini í málatilbúnaðinum. Helgi Seljan og samverkamenn hans í Seðlabankanum rugl- uðu t.d. saman verði á karfa á innanlandsmarkaði og á er- lendum mörkuðum, sem var hærra vegna flutningskostn- aðar! Í þættinum þar sem Vinnslustöðin kom fyrst við sögu fékk ég ekki tækifæri til að bregðast við strax, eins og kveðið er á um í reglum RÚV: „Sé um að ræða alvarlegar ásakanir, t.d. um lögbrot eða vanhæfi, verður að gefa viðkomandi möguleika til andsvara í sama fréttatíma.“ RÚV hafði samband þremur klukku- stundum fyrir útsendingu í byrjun apríl en þá var auðvitað ekkert svigrúm til að bregðast við ruglinu sem Seljan og Seðla- bankinn höfðu kokkað frá því í janúar. Daginn eftir lýsti ég vinnubrögðum Kast- ljóss og viðtalið var afkynnt með þeim orð- um að Kastljós stæði í einu og öllu við umfjöllun sína. Þátturinn stendur enn við þau orð sín, eða hvað? Kastljós vann ekki heimavinnuna sína, lét nota sig og braut á viðmælendum sínum. Páll Magnússon ætti að íhuga hvort hann treystir sér til að taka áfram ábyrgð á því sem þarna gerðist á vaktinni hans. Eftir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson » Ásakanir Kastljóss á hendur nafngreindum fyrirtækjum voru falskar og rangar en tímasettar í sam- hengi við framlagningu veiðigjaldafrumvarpa. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson Höfundur er framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar hf. binni@vsv.is Fúsk á fréttavakt Þegar kosningabar- átta Donalds Trumps var í molum í ágúst 2016 birtist Steve Bannon. Hann náði þráðum saman og bjó í haginn fyrir frambjóð- andann, sem náði kjöri í nóvember 2016. Nú þegar tvö ár eru liðin frá því að Trump tók við forsetaembætt- inu er Bannon ekki lengur í náðinni í Hvíta húsinu. Ákafi baráttumað- urinn hefur snúið sér að evrópskum stjórnmálum. Hann vill láta að sér kveða í kosningum til ESB-þingsins í maí 2019. Steve Bannon og belgíski fjár- málalögfræðingurinn Mischaël Mo- drikamen reka Hreyfinguna, stjórn- málaráðgjöf fyrir hægri flokka. Þeir hafa aðsetur í ríkmannlegri bygg- ingu í úthverfi Brussel og vilja mynda öflugan hóp á ESB-þinginu sem tileinki sér markmið Hreyfing- arinnar. Ætlun þeirra er að í nýja þingflokknum verði um þriðjungur 700+ manna á ESB-þinginu. Þeir lofa samherjum að aðstoða þá við skoðanakannanir, mat á gögnum, nýtingu samfélagsmiðla og val á frambjóðendum. Bannon segir að hann kosti starfsemina að hluta úr eigin vasa en upplýsir ekki um aðra fjárhagslega bakhjarla. Í hans huga er Hreyfingin svar við stofnun George Soros sem kennd er við opið þjóðfélag. Bannon lýsir Soros sem „snjöllu illmenni“. Bannon vill þjóð- ernishyggju (e. nationalism) í stað hnattvæðingar (e. globalization). Raddir í þessa veru heyrast víða, einnig hér á landi. Flokkar þjóðernissinnaðra popúl- ista í Evrópu falla ekki allir fyrir Hreyfing- unni. Tengsl hennar eru mest við Banda- lagið, flokk Matteos Salvinis á Ítalíu. Tilboð Hreyfingar- innar um ókeypis ráð- gjöf brýtur í bága við lög í níu af löndunum 13 þar sem hún vill láta að sér kveða. Sterk rök hníga að því að Bannon skipti sér af flóknum evrópskum stjórn- málum til að draga athygli að sjálf- um sér frekar en einstökum fram- bjóðendum til ESB-þingsins. Bannon telur Brusselmenn lykil- andstæðinga sína „í þeim [slái] hjarta globalismans“, takist sér að „reka flein í gegnum vampíruna [Brusselvaldið]“ hefjist upplausnin. Modrikamen segir markmiðið ekki að leggja ESB niður heldur breyta sambandinu með því að vinna sigur á elítunum. Pútín ágreiningsefni Matteo Salvini, vara-forsætisráð- herra og innanríkisráðherra Ítalíu, reynir nú að mynda samstöðu með stjórnmálamönnum í ríkjum innan ESB sem gagnrýna stjórnarhætti innan sambandsins. Markmið hans er að mynda öflugan fjölþjóðlegan þingflokk í anda Bannons eftir ESB- þingkosningarnar í maí. Í ársbyrjun fór Salvini til Varsjár og hitti meðal annarra Jaroslaw Kaczynski, leiðtoga pólska stjórn- arflokksins. Boðaði Salvini að Ítalir og Pólverjar yrðu í forystu þeirra sem vildu „nýtt evrópskt vor“. Áherslan yrði lögð á hagvöxt, ör- yggi, fjölskylduna og kristnar rætur Evrópu, sagði hann. Jaroslaw Kaczynski og flokkur hans deila ekki aðdáun Salvinis á Vladimir Pútin Rússlandsforseta. Í huga pólsku ráðamannanna hefur Rússlandsforseti ekki hreinsað sig og stjórn sína af ábyrgð á dauða þá- verandi forseta Póllands, tvíbura- bróður Jaroslaws Kaczynskis, í flug- slysi skammt frá Smólensk í Rússlandi árið 2010. Tortryggni pólskra yfirvalda í garð Rússa er „áþreifanleg“. Andrzej Duda, forseti Póllands, mæltist til þess á fundi með Donald Trump í Washington í september 2018 að Bandaríkjaher ætti stöð til varanlegrar dvalar í Póllandi og mundi hún heita Trump-virkið. Á tveggja ára forsetaafmæli Donalds Trumps er pólsku tilmælanna sér- staklega getið. Þau sýni að þrátt fyr- ir allt sé Bandaríkjaforseti ekki vinalaus í Evrópu. Ágreiningur um afstöðuna til Pút- íns er ekki eina deiluefnið í hópi gagnrýnna ESB-stjórnmálamanna. Þeir deila til dæmis einnig um út- lendingamál. Salvini vill að kvóta- regla gildi innan ESB. Ítalir geti sent útlendinga til annarra ESB- landa á grundvelli hlutfallsreglu. Þetta er eitur í beinum Austur- Evrópumanna. Þá vill Salvini að Ítalir fái styrki úr sjóðum ESB í stað þess að greiða meira en þeir fá til baka. Þetta fellur ekki að skoðunum Pólverja sem not- ið hafa hæstu uppbyggingarstyrkja úr sjóðum ESB. Þeir bregðast einnig illa við þegar Þjóðverjar og Frakkar viðra hugmyndir um að setja pólitísk skilyrði fyrir veitingu slíkra styrkja. Ítalir gegn Frökkum Frakkar og Þjóðverjar minntu enn á sérstöðu sína og forystu- hlutverk innan ESB þriðjudaginn 22. janúar þegar Angela Merkel Þýskalandskanslari og Emmanuel Macron Frakklandsforseti „upp- færðu“ tvíhliða sáttargjörð forvera sinna Konrads Adenauers og Char- les de Gaulles frá 22. janúar 1963. Matteo Salvini neitar að við- urkenna „aflgjafa Þjóðverja og Frakka“ í ESB og segir að í hans stað komi nú „öxull Ítala og Pól- verja“. Frakkar kölluðu í vikunni ítalska sendiherrann í París á teppið vegna ummæla sem Luigi Di Maio, vara- forsætisráðherra Ítalíu og leiðtogi Fimmstjörnu-hreyfingarinnar, lét falla á stjórnmálafundi sunnudaginn 20. janúar um Frakka sem nýlendu- þjóð í Afríku. Þeir hefðu verið helstu kúgarar Afríkumanna. Afleiðingar þess birtust nú í ólöglegum straumi fólks frá Afríku yfir Miðjarðarhaf. Vill Di Maio að ESB refsi Frökkum fyrir að „arðræna Afríku“. Matteo Salvini vill ekki vera minni maður en Di Maio í þessu efni. Hann sagði þriðjudaginn 22. febrúar að Frakkar hefðu engan áhuga á stöð- ugleika í Líbíu, líklega vegna þess að olíuhagsmunir Frakka þar stöngð- ust á við hagsmuni Ítala. Frakkar hefðu ekki efni á að hneykslast á neinum í útlendingamálum, þeir hefðu hrakið tugi þúsunda farand- fólks á brott frá frönsku landamær- unum, út á guð og gaddinn eins og skepnur. „Ég þarf ekki neina leið- sögn um mannúð og mildi frá Macron,“ sagði Salvini. Hörð valdabarátta Innan ESB er Þjóðverjum lýst sem forystumönnum þjóðanna í norðri og Frökkum í suðri. Þegar ítalskir ráðamenn beina spjótum sín- um sérstaklega að Emmanuel Macron Frakklandsforseta er um meira en málefnaágreining að ræða – þetta er valdabarátta innan suður- ríkjahópsins og einnig gegn Macron á heimavelli. Salvini og félagar vilja búa í haginn fyrir Marine Le Pen, skoðanasystur sína og helsta and- stæðing Macrons. Þegar Emmanuel Macron flutti ræðu í steypiregni við Sigurbogann í París 11. nóvember 2018 á 100 ára afmæli vopnahlésins eftir fyrri heimsstyrjöldina sagði hann þjóð- ernishyggju andstæðu föðurlands- ástar. Forsetinn gaf þá tóninn fyrir kosningabaráttuna til ESB- þingsins. Macron telur hana háða milli „framfarasinna“ og „þjóðernis- sinna“. Hann ætlar að leiða fyrri hópinn. Í anda Bannons er sótt hart að Macron frá Ítalíu. Á heimavelli stendur hann illa. Þar hafa gulvest- ungar efnt til mótmæla 10 helgar í röð. Norðurarmur ESB veikist við að Bretar hverfa úr sambandinu. Úr- sagnarraunir Breta hafa örugglega orðið til þess að ESB-efasemdar- menn boða ekki úrsögn heldur breytingar á æðstu stjórn, meira sjálfstæði aðildarríkja og aukna hörku í útlendingamálum. Baráttan um völdin innan ESB snýst um tilfinningar, að embætt- ismenn án lýðræðislegs umboðs ráðskist um of með hag almennings. Hann fái ekki rönd við reist nema hann kjósi gegn elítunni. Eftir Björn Bjarnason »Úrsagnarraunir Breta hafa örugg- lega orðið til þess að ESB-efasemdarmenn boða ekki úrsögn. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Línur skýrast vegna ESB-þingkosninganna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.