Morgunblaðið - 30.01.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
20% afsláttur
af CHANEL vörum kynningardaga
na
KYNNING
miðvikudag,
fimmtudag og
föstudag
Gréta Boða verður á
staðnum og kynnir nýju
vorlitina í CHANEL
Verið velkomin
Nýtt
Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum.
Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
ERT ÞÚ MEÐ
HÁLSBÓLGU?
Bólgueyðandi og
verkjastillandi munnúði
við særindum í hálsi
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Magnús Árnason, framkvæmda-
stjóri Skíðasvæðanna, segir það al-
gjöra undantekningu að fólk sé
ekki með hjálm í Bláfjöllum.
Spurður hvort það hafi komið
til skoðunar að setja á hjálma-
skyldu segir hann að það hafi ver-
ið rætt. „Já, það hefur komið til
greina en við höfum bara ekki
neitt vald til að setja á hjálma-
skyldu. Skylda er nokkuð sem
tengist lögum. Við fórum raun-
verulega yfir það á tímabili hvort
við gætum skyldað fólk í þetta.
Það eru orðin nokkuð mörg ár
síðan og þá var niðurstaðan sú að
við gætum ekki verið að setja
svona skilyrði,“ segir Magnús.
Hann segir einnig að jákvæð
hvatning geti verið betri lausn þar
sem erfitt væri að framfylgja
skyldunni. „Við höfum hvatt til
þess að fólk sé með hjálm og við
höfum skoðað það hvort við gæt-
um sett einhverja skyldu í þessum
málum. Ef settar eru svona reglur
sem er ekki hægt að fylgja eftir
þá eru þær alltaf tæpar.“ Á skíða-
svæðinu eru bæði skilti og vegg-
spjöld þar sem fólk er hvatt til
þess að nota hjálm.
Fimm einstaklingar voru fluttir
á slysadeild frá skíðasvæðinu í
Bláfjöllum um síðustu helgi. Að
minnsta kosti eitt beinbrot var til-
kynnt og einn missti meðvitund
eftir að hafa hlotið höfuðhögg,
auk þess sem smávægileg meiðsli
hafa orðið. Sá sem varð fyrir
höfuðhögginu fékk aðhlynningu í
sjúkraherbergi skíðaskálans í Blá-
fjöllum og náði smám saman
áttum. Magnús segist ekki vita til
þess hvort skíðafólkið í þessum til-
vikum hafi verið með hjálm eða
ekki.
Með betri opnunum seinni ára
Aðspurður segir Magnús opnun-
ina í vetur hafa gengið afar vel.
„Þetta er með betri opnunum sem
ég hef upplifað hér. Þetta er búið
að ganga fyrirhafnarlaust, þótt
eitthvað komi alltaf upp á þegar
5.000 manns eru í fjallinu og fullt
af nýju starfsfólki eins og á fyrsta
deginum. Þá er alltaf einhver
hiksti en þetta hefur gengið betur
en ég hef séð oft áður.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjör í lyftunni Vaskir skíðakappar á
leið upp fjallið í skíðalyftunni í vetur.
Hjálmleysi undantekning
Hjálmaskylda
var skoðuð um tíma
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Frágengið er að starfsemi ung-
mennabúða Ungmennafélags Ís-
lands á Laugum í Sælingsdal í Dala-
sýslu flyst á þessu ári á Laugarvatn.
Verið er að ganga frá samningum
milli UMFÍ og sveitarstjórnar Blá-
skógabyggðar um leigu á bygg-
ingum þar sem Íþróttakennaraskóli
Íslands hafði aðsetur lengi. Þaðan
eru aðeins nokkur hundruð metrar í
íþróttahús og sundlaug og margvís-
lega aðra þarfa aðstöðu.
2.l00 nemar úr 9. bekk
Í vetur koma um 2.100 nemendur
úr 9. bekk grunnskóla víða af land-
inu í ungmennabúðirnar á Laugum,
sem starfræktar eru í gamla heima-
vistarskólanum þar. Dalabyggð
hyggst nú selja þær eignir, að með-
töldum íþróttamannvirkjum á staðn-
um, og um nokkurt skeið hefur verið
leitað að nýjum stað fyrir ung-
mennadvölina. Niðurstaðan er
Laugarvatn, en gerður verður lang-
tímasamningur um húsnæði við Blá-
skógabyggð aukinheldur sem starf-
semi UMFÍ og Laugarvatn tvinnast
saman á marga vísu.
„Hugmyndafræði okkar er hreyf-
ing, útivera og samvera og því hent-
ar Laugarvatn okkur vel. Þar er góð
íþróttaaðstaða og góð aðstaða til úti-
veru við vatn, í skógi og fjalli. Einnig
nálægð við sveitina, en allt þetta gef-
ur okkur mikil tækifæri,“ segir Anna
Margrét Tómasdóttir forstöðu-
maður. Þau Jörgen Nilsson eigin-
maður hennar komu starfseminni á
Laugum á laggirnar árið 2005 og
hafa staðið að rekstri búðanna síðan
fyrir UMFÍ. Aðsóknin hefur aukist
jafnt og þétt og aldrei verið meiri en
nú í vetur.
Pláss fyrir 75 á nýjum stað
Á Laugum hefur verið hægt að
taka á móti 90 ungmennum hverju
sinni, en hóparnir dveljast þar jafn-
an fimm virka daga í senn. Á
Laugarvatni verður heldur þrengra
um og miðað við núverandi húsa-
kynni verður þar hægt að hýsa í
mesta lagi 75 krakka á hverri vakt.
„Við þurfum að breyta ýmsu á
Laugarvatni áður en við hefjum
starfsemi þar; koma upp leiksvæði
og fleiru slíku. Það hefur líka verið
eftirsótt meðal foreldra og skóla-
fólks að krakkarnir komist í hvíld frá
farsímum og tölvum, sem er mikils
vert í nútímasamfélagi.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Laugarvatn Ungmennabúðirnar verða í byggingunum sem eru neðst til
hægri á þessari mynd, þar sem Íþróttakennaraskóli Íslands var forðum.
Ungmennabúðir
á Laugarvatni
Fluttar frá Laugum eftir 14 ára starf
Morgunblaðið/Eggert
Forstöðumenn Jörgen Nilsson og
Anna Margrét Tómasdóttir hafa
rekið skólabúðirnar frá upphafi.