Morgunblaðið - 30.01.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.01.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019 Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775 Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar til afþreyingar tryggja betri fundarhlé. Fundarfriður áHótelÖrk ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Rúmlega 91 þúsundi færri brottfarir verða frá Keflavíkurflugvelli fyrstu fimm mánuði ársins en í fyrra. Hins vegar verða farþegarnir rúmlega 61 þúsundi fleiri í júní til ágúst. Þetta er meðal þess sem má lesa úr nýrri farþegaspá Isavia. Samkvæmt henni verða tæplega 45 þúsundum færri brottfarir í september og október en í fyrra og tæplega 11 þúsundum fleiri brottfar- ir í nóvember og desember en í fyrra. Samandregið verður vorið lakara en í fyrra, sumarið betra, haustið lakara en síðustu mánuðirnir betri. Heilt yfir spáir Isavia 2,2% færri brottförum í ár en í fyrra. Hér er miðað við þá talningu enda hefur Ferðamálastofa miðað fjölda er- lendra ferðamanna við brottfarir. Isavia gerir ráð fyrir að brottför- um innlendra ferðamanna fækki um 3,3% og um 2,4% hjá erlendum ferðamönnum. Erlendum ferða- mönnum muni fækka úr 2,316 millj- ónum í 2,26 milljónir, eða um 56 þús. Það gera 150 ferðamenn á dag. Isavia spáir meiri samdrætti í tengiflugi yfir hafið. Farþegum um völlinn muni fækka úr 9,8 milljónum 2018 í 8,95 milljónir í ár. Til saman- burðar hafði Isavia áður spáð 10,38 milljónum farþega í nóvemberspá 2017 og 10,07 milljónum farþega í maíspá 2018. Bilið milli þessara áætl- ana fyrir 2018 og nýrrar spár fyrir 2019 er því 1,43 og 1,12 milljónir far- þega. Skal tekið fram að meirihluti farþega fer ekki út úr flugstöðinni. Spáði áður allt 10,4 milljónum Árið 2018 var metár í íslenskri ferðaþjónustu hvað fjölda ferða- manna snertir. Þrátt fyrir samdrátt milli ára yrði árið 2019 það annað stærsta í þessu efni frá upphafi. Farþegaspá Isavia er vanalega birt í lok nóvember. Vegna sviptinga á markaði var birtingu frestað. Hlynur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri viðskiptasviðs Isavia, segir uppstokkun hjá WOW air megin- skýringuna á fækkun flugfarþega í vor. Isavia telji nýju spána byggjast á eins áreiðanlegum grunni og hægt sé að hafa miðað við stöðuna. „Við vinnum spána út frá núver- andi forsendum. Við erum bjartsýnir um að áform WOW air [um samruna við Indigo Partners] gangi eftir. Flugþjónustufyrirtæki WOW air, Airport Associates, hefur dregið til baka stóran hluta af uppsögnum í flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli. Við munum boða til nýs fundar ef það verða frekari sviptingar á mark- aði,“ segir Hlynur. Aukið framboð hjá Icelandair eigi þátt í að spáð sé fleiri farþegum í sumar en í fyrra- sumar. Icelandair fái nýjar þotur í vor. Þá skýri minna framboð áætlaða 13,4% fækkun farþega í október. „Svo virðist sem flugfélögin hafi meiri trú á sölu flugsæta til og frá landinu í haust en þau hafa á sölu flugsæta yfir hafið,“ segir Hlynur. Spáin ekki vel rökstudd Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir Ferðamála- stofu hafa áætlað að brottförum frá Keflavíkurflugvelli myndi fækka um 8-10% milli ára. Isavia geri ráð fyrir töluvert minni fækkun. Hins vegar sé spá Isavia ekki vel rökstudd að mati Ferðamálastofu. Kristófer Oliversson, formaður FHG – fyrirtækja í hótel- og gisti- þjónustu og eigandi CenterHotel- keðjunnar, telur spá Isavia hvorki gefa tilefni til bjartsýni né svartsýni. „Undanfarin ár hefur megin- áherslan í markaðssetningu landsins verið á vetrarmánuðina. Við höfum haft minni áhyggjur af sumrinu. Aukin nýting á veturna hefur verið kærkomin í gistiþjónustu enda eru kostnaður við fasteignarekstur og laun langstærstu útgjaldaliðirnir. Spá Isavia gerir ráð fyrir veruleg- um samdrætti flesta vetrarmánuði, allt að 17% í febrúar og mars. Ef þetta gengur eftir fækkar erlendum gestum um tæp 30 þúsund þessa mánuði og svipaðri þróun er spáð í október. Þá er gert ráð fyrir fjölgun [á erlendum ferðamönnum] yfir sumarmánuðina um u.þ.b. 15 þús. hvern mánuð. Mér hefði hugnast betur að sjá þetta á hinn veginn, þ.e. að fjölgunin yrði yfir vetrarmánuði. Þetta er vönduð spá hjá Isavia en engu að síður er þetta spá og við höf- um ekki enn séð fyrir endann á kjaradeilum. Þá hafa málefni WOW air ekki klárast þótt aukinnar bjart- sýni gæti þar. Þeir sem stunda hótel- rekstur þurfa að halda vel á spöð- unum og enn sem fyrr þarf að huga að erfiðri stöðu á landsbyggðinni. Þessi spá Isavia bendir til að við séum að taka skref til baka og auka árstíðasveiflu, en síðustu ár hefur fjölgunin einkum verið á veturna.“ 19 ný hótel, íbúðahótel eða stækkun á núverandi hótelum, alls 1.520 ný hótel-herbergi og 93 nýjar hótelíbúðir 9 8 7 6 5 4 3 2 1 0 2,4 2,0 1,6 1,2 0,8 0,4 0 1,2 1,0 0,8 0,6 0,4 0,2 0 Heildarfarþegafjöldi: 2018 Spá fyrir 2019 Fjöldi brottfara: 2018 Spá fyrir 2019 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. T.ark arki tekt ar Áformuð hótel og hótelíbúðir mið- svæðis í Reykjavík 2019-2020 Heimild: Fulltrúar hótelanna Farþegafjöldi árið 2018 og spá fyrir 2019Farþegaspá Isavia fyrir 2019 850.000 færri farþegar árið 2019 en í fyrra samkvæmt spá Isavia 60.000 færri erlendir ferðamenn munu koma til landsins árið 2019 en í fyrra samkvæmt spá Isavia Fjöldi erlendra ferðamanna sem koma um Kefl avíkurfl ugvöll 2011-18,spá fyrir 2019 Fjöldi farþega 2010-2018 og spá fyrir 2019 Milljónir farþega Milljónir ferðamanna Milljónir farþega á mánuði Heimild: Isavia Heimild: Isavia Heimild: Isavia 2,07 2,47 2,76 3,21 3,87 4,86 6,82 8,76 9,80 8,95 SPÁ 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Spá Isavia frá nóv. 2017: 10,38 Spá Isavia frá maí 2018: 10,07 Heildarfar- þegafjöldi Brottfarir 0,54 0,65 0,78 0,97 1,26 1,77 2,20 2,32 2,26 SPÁ Spá lakara vori en betra sumri  Isavia spáir að erlendum ferðamönnum muni fækka um 56 þúsund milli ára og brottförum um 2,2%  Breytingar hjá WOW air skýri fækkun á 1. fjórðungi  Spá fleiri farþegum í sumar en í fyrrasumar „Miðað við þróun flugframboðsins kemur spáin ekki á óvart. Það er þó að nokkru leyti jákvætt að fækkunin er fyrst og fremst í tengifarþegum en minni í farþeg- um sem hafa Ísland að áfangastað. Það skiptir miklu máli fyrir gisti- staði og afþreyingarfyrirtækin inn- anlands en að sama skapi er fækk- un tengifarþega högg fyrir flug- félögin,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Sam- taka ferðaþjónustunnar, um nýja spá Isavia. Hann tekur fram að engu að síð- ur sé mikil óvissa í ferðaþjónustu, bæði varðandi flugframboð á árinu og kjarasamninga. Einna mest áhrif úti á landi Þá geti fækkun erlendra ferða- manna haft einna mest áhrif á landsbyggðinni. Þrýstingurinn á hagræðingu eða samruna ferða- þjónustuaðila úti á landi „minnki ekki við þessar fréttir“. Almennt kunni tekjur margra fyrirtækja í ferðaþjónustu að dragast saman. „Menn munu fara hægar í fjár- festingar í ár ef þetta verður niðurstaðan. Fyrirtækin horfðu til hagræðingar í fyrra og sú þróun mun halda áfram. Dæmi er að eftir að ívilnun varðandi vörugjald bíla- leigubíla var afnumin um áramótin hefur dregið úr bílakaupum bíla- leiga, allt að 40% minnkun milli ára,“ segir Jóhannes Þór, sem telur að- spurður þetta eitt dæmi um að hið opinbera geti haft meiri tekjur af greininni með því að endurmeta skatta og gjöld. Ísland sé nú í 25. sæti í heiminum í samkeppnis- hæfni ferðaþjónustu. „Eitt af því sem gæti aukið sam- keppnishæfni er að endurskoða gjaldtöku af greininni. Frá því gjaldtökuumræðan hófst upp úr 2010 – þegar ferðamannastraum- urinn var að aukast – hefur staða ríkissjóðs gjörbreyst til hins betra. Nettótekjur ríkis og sveitarfélaga af ferðaþjónustu voru orðnar alls um 60 milljarðar 2017,“ segir Jó- hannes Þór og bendir á að hið opinbera geti notað skatttekjurnar til uppbyggingar innviða. Almennt geti slíkar lækkanir á sértækum sköttum og gjöldum liðkað fyrir í rekstri fyrirtækja og unnið gegn kostnaðarhækkunum vegna kjarasamninga. „Sértæk gjaldtaka er ekki endilega besta leiðin fyrir ríkið til að hámarka tekjur af greininni,“ segir Jóhannes Þór. Horfurnar betri en óttast var SAF TELJA ÞÓ AÐ FJÁRFESTING GETI DREGIST SAMAN Jóhannes Þór Skúlason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.