Morgunblaðið - 30.01.2019, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Neðri deild breska þingsins sam-
þykkti í gærkvöldi tillögu um að leita
eftir breytingum á samningi bresku
stjórnarinnar við Evrópusambandið
um brexit, útgöngu Bretlands úr
sambandinu. Tillagan var samþykkt
með 317 atkvæðum gegn 301 og sam-
kvæmt henni á breska stjórnin að
reyna að semja um breytingar á um-
deildu ákvæði sem á að tryggja að
ekki verði tekið upp eftirlit við landa-
mæri Írska lýðveldisins og Norður-
Írlands. Áður höfðu leiðtogar ESB
sagt að slíkar breytingar kæmu ekki
til greina og talsmaður forseta leið-
togaráðs sambandsins áréttaði það
eftir atkvæðagreiðsluna í gærkvöldi.
Þingdeildin samþykkti einnig til-
lögu um að útiloka útgöngu úr ESB
án samnings með 318 atkvæðum gegn
310. Tillagan er þó ekki lagalega bind-
andi fyrir bresku stjórnina sem óttast
að það veiki samningsstöðu hennar í
viðræðum við Evrópusambandið ef
hún útilokar brexit án samnings.
Áður hafði þingdeildin hafnað til-
lögu Yvette Cooper, þingmanns
Verkamannaflokksins, um að fresta
brexit um níu mánuði til að koma í veg
fyrir að Bretland gengi úr ESB án
samnings. Tillagan var felld með 321
atkvæði gegn 298.
Segir núna breytingar
mögulegar
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, studdi tillöguna um að
leita eftir breytingum á brexitsamn-
ingnum. Hún hélt ræðu á þinginu fyr-
ir atkvæðagreiðsluna og hvatti þingið
til að veita stjórninni skýrt umboð til
að hefja samningaviðræður að nýju
við Evrópusambandið um útgöngu
Bretlands. Leiðtogar ESB hafa ítrek-
að sagt að þeir ljái ekki máls á neinum
breytingum á samningnum þótt
breska þingið hafi kolfellt hann í at-
kvæðagreiðslu 15. janúar.
„Heimsbyggðin veit hvað þing-
deildin vill ekki. Núna þurfum við að
senda ótvíræð skilaboð um hvað það
er sem við viljum,“ sagði May í ræð-
unni. Hún hafði áður sagt, eins og
leiðtogar ESB, að ekki væri hægt að
breyta brexitsamningnum og þingið
þyrfti að velja á milli hans og útgöngu
úr ESB án samnings.
Í ræðunni óskaði May þó eftir um-
boði þingsins til að leita eftir „þýð-
ingarmiklum og lagalega bindandi
breytingum á útgöngusamningnum“
áður en Bretland á að ganga formlega
úr ESB 29. mars. Fyrr um daginn
ræddi hún málið við Jean-Claude
Juncker, forseta framkvæmdastjórn-
ar ESB, og May viðurkenndi í ræð-
unni að leiðtogar sambandsins væru
andvígir því að hefja viðræður um
breytingar á samningnum. „Það verð-
ur ekki auðvelt,“ sagði hún en kvaðst
telja að hægt yrði að tryggja viðun-
andi breytingar.
Vill losna við írska ákvæðið
May er nú hlynnt því að reynt verði
að semja við ESB um að fella niður
umdeilt ákvæði í brexitsamningnum
sem kveður á um að Norður-Írland
verði áfram hluti af innri markaði og
tollabandalagi Evrópusambandsins
ef ekki næst samkomulag um annað í
viðræðum um framtíðartengsl Bret-
lands við ESB. Markmiðið með
ákvæðinu er að tryggja að ekki verði
tekið upp landamæraeftirlit milli
Írska lýðveldisins og Norður-Írlands
vegna útgöngu Bretlands úr ESB og
einnig að koma í veg fyrir að brexit
grafi undan samningnum sem náðist
árið 1998 til að koma á friði á Norður-
Írlandi eftir átök sem kostuðu um
3.500 manns lífið. Stjórnvöld í Bret-
landi og á Írlandi óttast að eftirlit við
landamærin geti orðið til þess að
vopnaðir hópar lýðveldissinna hefji
sprengjuárásir að nýju á Norður-
Írlandi.
Andstæðingar ákvæðisins úr röð-
um þingmanna Íhaldsflokksins segja
að það geti orðið til þess að Bretland
þurfi að vera í tollabandalaginu til
frambúðar. DUP, flokkur sam-
bandssinna á Norður-Írlandi, sem
hefur stutt minnihlutastjórn May, er
einnig andvígur ákvæðinu þar sem
hann óttast að það geti orðið til þess
að Norður-Írland lúti öðrum reglum
en önnur svæði Bretlands.
Vill breytingar á samningnum
Neðri deild breska þingsins krefst breytinga á ákvæði um írsku landamærin í brexitsamningnum
ESB hafnar slíkum breytingum Tillaga um að útiloka útgöngu úr ESB án samnings samþykkt
Helstu atburðir eftir þjóðaratkvæðið um brexit
Bretland á að
ganga úr ESB
Bretland virkjaði 50.
grein Lissabonsáttmálans
um útgöngu úr ESB
19. júní 14.-15. des.
13. nóv.
Viðræður Bretlands
og ESB um brexit hafnar
Breska stjórnin og ESB
samþykktu brexitsamning
15. jan.
Breska þingið
hafnaði
samningnum
29. jan.
Þingið greiddi
atkvæði um
framhaldið
29. mars29. mars
Bretar samþykktu
útgöngu úr ESB í
þjóðaratkvæði
23. júní
20172016 2018 2019
Bráðabirgðasamkomulag
náðist um írsku landa-
mærin og fleiri mál
Sydney. AFP. | Hundruð þúsunda
fiska hafa drepist í á inni í auðn-
um Ástralíu síðustu daga og yfir-
völd telja mikla hættu á að fleiri
fiskar drepist vegna langvarandi
þurrka. Nokkrum vikum áður
hafði um milljón fiska drepist í
ánni vegna lágrar vatnshæðar, lít-
ils súrefnis og hugsanlega vegna
eitraðra þörunga, að sögn vísinda-
manna.
Íbúar bæjarins Menindee í suð-
austanverðri Ástralíu sögðu að áin
Darling væri hvít af dauðum fiski
og yfirvöld fengu upplýsingar um
að dauðir fiskar hefðu sést í þver-
ánni Murrumbidgee sem er
sunnar.
Embættismenn sögðu að mikil
hætta væri á því að enn fleiri fisk-
ar dræpust þar sem spáð væri
hækkandi hita og áframhaldandi
þurrki. Þeir hafa sagt að fiskarnir
hafi drepist vegna þurrka en íbú-
ar á svæðinu og sérfræðingar telja
að einnig megi rekja fiskdauðann
til ofnýtingar vatns úr ánni og
mengunar.
AFP
Hvít á Áin Darling í suðaustanverðri Ástralíu er hvít af dauðum fiski.
Hundruð þúsunda
fiska drápust
John Bercow,
forseti neðri
deildar
breska þings-
ins, gegndi
mikilvægu
hlutverki í at-
kvæðagreiðsl-
unum því að
hann ákvað hvaða breytingar-
tillögur voru bornar undir at-
kvæði. Bercow er þekktastur
fyrir að stjórna umræðum í
þingdeildinni af röggsemi,
þagga niður í þingmönnum þeg-
ar þeim hitnar í hamsi og
snupra ráðherra sem skaprauna
honum. Bercow er 56 ára, var
kjörinn á þing fyrir Íhaldsflokk-
inn 1997 og varð forseti deildar-
innar í júní 2009. Forsetinn á að
vera hlutlaus en framganga
hans í brexitmálinu hefur orðið
til þess að íhaldsmenn saka
hann um að draga taum and-
stæðinga stjórnar Íhaldsflokks-
ins og að hafa reynt að hindra
útgöngu Bretlands úr ESB.
Áhrifamikill
og umdeildur
ÞINGFORSETINN
AFP
Klofin þjóð Stuðningsmenn og andstæðingar útgöngu Bretlands úr Evr-
ópusambandinu efndu til mótmæla fyrir utan þinghúsið í London í gær.