Morgunblaðið - 30.01.2019, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 30.01.2019, Qupperneq 27
lýðssambands Íslands og var for- maður þess 1974-75, stjórnar- maður í Æskulýðsráði ríkisins og formaður ráðsins 1973-74, formað- ur Alþýðubandalagsins í Reykja- vík 1978-79 og átti sæti í miðstjórn og framkvæmdanefnd flokksins. Jónas var varabæjarfulltrúi í Mosfellsbæ frá 1990 og bæjar- fulltrúi þar 1993-2014, fyrst fyrir Alþýðubandalagið og síðan Sam- fylkinguna. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Mosfellsbæ, var formaður bæjar- ráðs 1994-95 og 1996-97 og forseti bæjarstjórnar 1995-96 og 1997- 2000. Jónas sat í fræðslunefnd bæjarins 1994-2006 og var formað- ur nefndarinnar 1994-2002 og í skipulags- og byggingarnefnd 2006 til 2010. Hann átti sæti í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu 1994-2002 og var formaður þeirra 1996-1997. Að ferðast og kanna nýjar slóðir hefur verið áhugamál Jónasar og Guðrúnar, eiginkonu hans, til margra ára, ýmist í góðra vina hóp eða tvö ein. Einkum hafa þau beint sjónum að löndum á megin- landi Evrópu hin síðari ár. „Að kynnast menningu og sögu landa, þjóða og stórborga í bland við fagra náttúru þeirra er ákaflega gefandi,“ segir Jónas. Fjölskylda Jónas kvæntist 14.3. 1970 Guð- rúnu Skúladóttur, f. 2.11. 1950, fyrrv. bókara hjá Skráningarstof- unni. Hún er dóttir Skúla Frið- rikssonar, f. 1920, d. 1981, húsa- smíðameistara frá Bakka í Bakka- firði og Svanfríðar Hjartardóttur, f. 1916, d. 2004, húsmóður, frá Rauðsdal á Barðaströnd. Börn Jónasar og Guðrúnar eru: 1) Svanfríður Linda, f. 21.8. 1968, starfrækir ásamt manni sínum Hraðlestrarskólann, búsett í Reykjanesbæ, en maður hennar er Jón Vigfús Bjarnason og eiga þau tvö börn; 2) Gunnhildur Björk, f. 18.8. 1971, húsmóðir í Reykjavík. Fyrrverandi maður hennar er Ein- ar Ólafur Birgisson rafeindavirki og eiga þau fjögur börn en sam- býlismaður hennar er Ragnar Ingi Einarsson verktaki og á hann þrjú börn með fyrrverandi eiginkonu sinni; 3) Sigurður Þorgeir, f. 9.4. 1973, verslunarstjóri, en kona hans er Margrét Steinunn Haf- steinsdóttir naglafræðingur og eiga þau fjögur börn. Systkini Jónasar eru Hrafnhild- ur, f. 27.4. 1936, d. 27.6. 2015, hús- móðir í Reykjavík; Hildigunnur, f. 17.5. 1940, d. 8.6. 2007, var starfs- maður á leikskóla og búsett í Kópavogi; Þráinn, f. 31.8. 1952, byggingatæknifræðingur í Reykja- vík. Foreldrar Jónasar voru Sig- urður Þorgeirsson, f. 31.5. 1912, d. 18.7. 1999, húsasmíðameistari í Mosfellsbæ, og Hulda Þ. Ottesen, f. 24.12. 1914, d. 14.11. 1999, bankastarfsmaður. Jónas Sigurðsson Hulda Þ. Ottesen bankastarfsmaður í Rvík Þorlákur G. Ottesen verkstjóri og hestamaður í Rvík Ása Þorkelsdóttir húsfreyja á Miðfelli Guðmundur Jónsson Ottesen bóndi á Miðfelli í Þingvallasveit Ragnheiður orgeirsdóttir húsfreyja á Helgafelli Þ Auður inriksdóttir húsfreyja í tykkishólmi H S BerglindAxelsdóttir skólastjóri í Stykkishólmi og fv. bæjarfulltrúi Sigurlaug Gunnlaugsdóttir húsfreyja á Bergstöðum Friðrik Gunnarsson bóndi á Bergstöðum í Svartárdal,A-Hún. Þuríður Friðriksdóttir verkakona og verkalýðsforingi í Rvík Margrét Friðriksdóttir húsfreyja á Blönduósi Ingibjörg Indriðadóttir húsfreyja í Eyjarhólum í Mýrdal Indriði H. Þorláksson fyrrverandi ríkisskattstjóri Ingibjörg Hallgrímsdóttir húsfreyja í Stykkishólmi Björn Steindórsson hreppstjóri í Stykkishólmi Ingibjörg Björnsdóttir húsfreyja á Helgafelli Þorgeir Jónasson bóndi á Helgafelli í Helgafellssveit, Snæf. Ástríður Þorsteinsdóttir húsfreyja á Helgafelli Jónas Sigurðsson bóndi á Helgafelli Úr frændgarði Jónasar Sigurðssonar Sigurður L. Þorgeirsson húsasmíðameistari í Rvík Hjónin Á Tenerife síðastliðið haust. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019 DRAUMAEIGN Á SPÁNI Nánar á www.spanareignir.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR Aðalheiður Karlsdóttir Löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is Sími 893 2495 Ármúla 4-6, Reykjavík Karl Bernburg Viðskiptafræðingur karl@spanareignir.is Sími 777 4277 Ármúla 4-6, Reykjavík • 3 svefnherbergi – 2 baðherbergi • Fataherbergi – Tæki í eldhúsi fylg ja • Sérgarður með einkasundlaug • Sameiginlegur sundlaugargarður • Fallegt útsýni • Flott hönnun – vandaður frágangur • Golf, verslanir, veitingastaðir í göngufæri HÚSGÖGN AÐ EIGIN VALI FYRIR Ikr. 500.000,- fylg ja með í kaupunum Alg jör GOLF paradís Verð frá 46.400.000 Ikr. (339.000 evrur, gengi 1evra/137Ikr.) Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001 GLÆSILEGAR GOLFVILLUR LA FINCA golfvöllurinn Fallegt umhverfi – stutt frá flugvelliBjörn Bjarnason fæddist 30.janúar 1899 á Höskulds-stöðum á Skagaströnd, A.- Hún. Foreldrar hans voru Bjarni Sigurðsson, lengst af vinnumaður í Vatnsdal og síðast sjómaður í Kálf- hamarsvík á Skaga, og Sólveig Andrésdóttir, vinnukona og bjó síð- an með Þórði Jóhannessyni á Blönduósi. Björn ólst upp hjá móður sinni þar sem hún var vistráðin hverju sinni en fluttist svo með henni inn á heimili Þórðar. Björn stundaði sjómennsku á ár- unum 1915-1928 með heimili á Blönduósi. Hann þurfti að hætta sjó- mennsku vegna taugabólgu í fingr- um, fór í land og vann hjá fyrirtæk- inu Hreini hf. í Reykjavík 1928-1934 og hjá Smára og Sápugerðinni Frigg á árunum 1934-1967. Björn varð síð- an starfsmaður Iðju 1967-1983. Björn var einn af stofnendum Kommúnistaflokks Íslands árið 1930 og var í miðstjórn hans alla tíð og síðan í miðstjórn Sósíalistaflokksins til 1962 en þá fannst Birni flokkur- inn hafa fjarlægst upphafleg stefnu- mið sín. Björn var stofnandi Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavík, árið 1934. Björn var ritari Iðju 1934-1942 og formaður Iðju 1942-1947 og aftur 1950-1957. Björn sat í miðstjórn ASÍ 1942-1948 og 1956-1958. Hann var formaður fulltrúaráðs verkalýðs- félaganna í Reykjavík um sex ára skeið. Þá var Björn fyrsti formaður Landssambands iðnverkafólks 1973- 1978. Björn var bæjarfulltrúi í Reykja- vík 1934-1950 og fyrsti fulltrúi Kommúnistaflokksins í borginni og varamaður í bæjarráði 1946-1950. Hann var í hafnarstjórn tvö kjör- tímabil og varamaður í byggingar- nefnd í fjögur ár. Björn var kjörinn heiðursfélagi Iðju 1949. Fyrri kona Björns var Brynhildur Magnúsdóttir, f. 1904, d. 1980, hús- freyja, en þau skildu. Sonur þeirra er Þórir, f. 1926, búsettur í Reykja- vík. Seinni kona Björns var Guðný Sigurðardóttir, f. 1919, d. 1999, hús- freyja. Björn lést 19. janúar 1984. Merkir Íslendingar Björn Bjarnason 80 ára Guðlaug Kristrún Einarsdóttir Guðrún Bjarnadóttir Hilmar M. Ólafsson Liudmila Andreyeva Númi Jóhannsson Ragnar Tómasson 75 ára Helga Ósk Ólafsdóttir Jóhannes Lárus Gíslason Jóna Bjarkan Katrín Ingunn Guðbrandsdóttir Kristbjörg Jóhannsdóttir Sigurfinnur Þorsteinsson Þórdís Andrésdóttir 70 ára Dieter Pollitz Elsabet Daníelsdóttir Helgi Sveinbjörnsson Jónas Sigurðsson Kristján Haraldsson Magnhildur Baldursdóttir Sigurveig Jónsdóttir 60 ára Ása Lovísa Aradóttir Ásgeir Gunnarsson Birgir Halldórsson Bjarney Magnúsdóttir Bjarni Axelsson Erla Jóna Guðmundsdóttir Friðbjörn V. Sigurðsson Guðrún Arndís Eiríksdóttir Marteinn Hákonarson Pétur Sverrisson Sigurður Ásgeirsson Sigurður Guðjónsson Tómas Ólafur Kristjánsson Wendell Keith Reed 50 ára Arndís Hilmarsdóttir Árni Þór Árnason Davíð Ólafsson Hermann Arnar Sigurðsson Irma Sulollari Jón Helgason Maciej Jerzy Gritz Schumann Didriksen Sigurbjörn Ingvarsson Særún Vignisdóttir Michelsen Unnur Henrysdóttir 40 ára Gunnar Örn Reynisson Hafsteinn Elíasson Hólmfríður Steinþórsdóttir Ingvar Þór Guðjónsson Ioana Mihaela Grebenisan Íris Árný Magnúsdóttir Kostiantyn Melnyk Kristinn Snær Harrysson Kristófer Jensson Sigurður Einar Sævarsson Sólrún María Ólafsdóttir Sverrir Már Jónsson Þórir Ólafsson 30 ára Aldís Hilmarsdóttir Anton Terzi Bylgja Björk Haraldsdóttir Guðrún Ása Kolbeinsdóttir Harpa Ýr Ómarsdóttir Helgi Kristinsson Ingimar Hrímnir Skúlason Júlíana K. Þórhallsdóttir Leifur Ingi Magnússon Stefán Fannar Steinarsson Una Björg Jónsdóttir Þorvarður Arnarson Til hamingju með daginn 40 ára Ingvar er Hafn- firðingur og er kennari í Hraunvallaskóla. Maki: Ásdís Petra Odds- dóttir, f. 1979, vinnur hjá Ríkisskattstjóra. Börn: Andri Steinn, f. 2006, Thelma Kristín, f. 2009, og Dagur Logi, f. 2013. Foreldrar: Guðjón Guð- mundsson, f. 1960, og Kristín Garðarsdóttir, f. 1961. Fósturfaðir: Björn Þórisson, f. 1957. Ingvar Þór Guðjónsson 40 ára Kristinn er Akur- eyringur og er stálsmiður í Slippnum á Akureyri. Maki: Hrafnhildur Brynj- arsdóttir, f. 1981, dag- móðir. Synir: Dagur Freyr, f. 2006, og Lúkas Máni, f. 2007. Foreldrar: Harry Ólafs- son, f. 1943, fyrrverandi verktaki, og Ásdís Ívars- dóttir, f. 1953, prent- smiður. Þau eru bús. á Akureyri. Kristinn Snær Harrysson 30 ára Harpa Ýr ólst upp í Kópavogi en býr í Hafnarfirði. Hún er kenn- ari í Áslandsskóla. Maki: Hrafn Hrafnsson, f. 1989, rafvirki. Systir: Helena, f. 1983, sjúkraliði. Foreldrar: Ómar Ívars- son, f. 1957, geðlæknir hjá Lækningu, og Hildur Alma Björnsdóttir, f. 1958, meinatæknir hjá Ís- lenskri erfðagreiningu. Þau eru bús. í Hafnarfirði. Harpa Ýr Ómarsdóttir mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.