Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Qupperneq 4
INNLENT 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2019 Í sautjánda himni Við Fjarðarstræti á Ísafirði stendurreisulegt hús sem óvænt er komiðmeð tilvísun í afreksíþróttir á heims- vísu enda hefur það óbeint tekið þátt í bæði Evrópu- og heimsmeistaramótum í bæði handbolta og fótbolta. Fyrir hönd Íslands. Þannig er nefnilega mál með vexti að núm- erið sem bræðurnir Arnór Þór og Aron Einar Gunnarssynir hafa borið á bakinu á þessum mótum vísar í þetta ágæta hús – 17. Hvernig má það vera? spyrð þú líklega les- andi góður, enda eru bræðurnir fæddir og uppaldir á Akureyri og tengdir höfuðstað Norðurlands órofa böndum. Jú, móðuramma þeirra og afi, Arnór Sigurðsson og Hulda Jónsdóttir, bjuggu um langt árabil í húsinu og móðir þeirra, Jóna Emilía Arnórsdóttir, ólst að stórum hluta þar upp. „Við vorum alltaf dugleg að heimsækja for- eldra mína meðan þau voru á lífi og þegar strákarnir voru litlir bjuggum við einn vetur á Ísafirði, í sömu götu. Þeir tengja því báðir við húsið og það er ákaflega skemmtilegt að þeir hafi valið að vísa í það með þessum hætti. Arnór byrjaði á þessu, enda eldri, og Aron tók það síðan upp eftir honum. Þeim er greinilega annt um rætur sínar og við hugs- um öll með hlýju til Ísafjarðar,“ segir Jóna Emilía en þrír bræður hennar eru búsettir vestra og einn þeirra á meira að segja Fjarð- arstræti 17. Býr þar að vísu ekki sjálfur, heldur leigir húsið út. Jóna Emilía og eiginmaður hennar, Gunnar Malmquist, eru nýkomin heim frá München, þar sem þau sáu þrjá fyrstu leiki Íslands á HM. „Það var rosalega gaman að vera úti og fylgjast með liðinu í þessum leikjum og mað- ur er með fiðring í maganum að fara aftur og sjá leik eða leiki í milliriðlinum. Það er hins vegar ekki hlaupið að því; bæði er erfitt að fá miða og svo verður maður víst að vinna eitt- hvað líka,“ segir Jóna Emilía og skellir upp úr. Hún er hæstánægð með frammistöðu sonar síns á mótinu en hann er markahæstur í ís- lenska liðinu og hefur verið valinn maður leiksins í tveimur síðustu leikjum, gegn Japan og Makedóníu. Ekki svo að skilja að það komi henni í opna skjöldu. „Hann hefur alltaf verið rosalega duglegur og það er mjög ánægjulegt að fylgjast með honum taka meiri og meiri ábyrgð. Lengi vel var hann í hlutverki vara- manns með landsliðinu, meðan strákar eins og Þórir Ólafsson og Ásgeir Örn Hallgríms- son voru að spila og Arnór þurfti að vera þol- inmóður. Núna er hann að uppskera og ég er rosalega stolt af honum. Hann hefur náð ótrúlega langt.“ Eins og bróðir hans var Arnór Þór bæði í handbolta og fótbolta sem strákur en valdi handboltann þegar að því kom að gera upp á milli. „Hann var í marki í fótbolta og þegar hann sá fram á að verða ekkert sérstaklega hár í loftinu var því líklega sjálfhætt. Við sjáum þetta vel meðan þjóð- söngurinn er leikinn, það kemur alltaf einn lítill gutti inn á milli stóru mannanna,“ segir móðir hans létt í bragði. „Annars hafði hann alltaf meiri áhuga á handboltanum og valdi alveg örugglega rétta grein.“ Gunnar þjálfaði syni sína báða í handbolta á sínum tíma og Jóna Emilía fylgdi þeim í ófáa leikina og mótin þeg- ar þeir voru yngri. Og nú hefur hún séð Jóna Emilía ber lof á Þjóðverja fyrir glæsi- lega umgjörð á HM; rífandi stemmning sé á mótinu. „Það kemur svo sem ekki á óvart; við förum reglulega á leiki hjá Arnóri í Þýska- landi og það er alltaf full höll og rífandi stemning. Þjóðverjar eru algjörir snillingar þegar kemur að handbolta og frábært fyrir Arnór að fá tækifæri til að spila í búndeslíg- unni,“ en hann leikur sem kunnugt er með Bergischer HC. Eins og gengur var metingur milli bræðr- anna í æsku, svo sem Aron Einar lýsir skemmtilega í nýrri bók sinni, en í dag segir móðirin þá styðja hvor annan með ráðum og dáð. „Þeir peppa hvor annan upp og fylgj- ast náið hvor með öðrum. Þannig ætlar Aron að fljúga til Þýskalands á sunnudaginn með eldri son sinn og sjá leik- inn gegn Frakklandi. Ég heyrði í honum í gær og hann er með mikinn fiðring út af HM.“ Hann er líklega ekki einn um það. Fjarðarstræti 17 á Ísafirði, þar sem amma og afi þeirra Gunn- arssona réðu húsum. Bræðurnir tengdu við húsið í æsku. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Númerið sem bræðurnir Arnór Þór og Aron Einar Gunnarssynir bera á bakinu með landsliðum Íslands í handbolta og fótbolta, 17, vísar í heimili ömmu þeirra og afa heitinna á Ísafirði en þau bjuggu í Fjarðarstræti 17. Móður bræðranna, Jónu Emilíu Arnórs- dóttur, sem ólst upp í húsinu, þykir tilvísunin skemmtileg og er ákaflega stolt af sonum sínum, eins og gjörvöll þjóðin. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Jóna Emilía Arnórsdóttir og Gunnar Malmquist ásamt börnum sínum sex. Frá vinstri Tinna, Hulda, Aron Einar, Atli Már, Ása og Arnór Þór. Grannt er fylgst með þeim síðastnefnda á HM. Það er í alvöru heilmikil vinna að skrifa svona viku-lega pistla. Maður þarf að hafa voða miklar skoð-anir og setja sig inn í alls konar mál. Ég verð að viðurkenna að stundum nenni ég því ekki alveg. Stundum gerist það líka að fólk, sem ég þekki og treysti, hefur svo rosalega ólíkar skoðanir að ég sit bara eftir og helli vatni úr eyrunum. Stundum er ég eins og pólitíkus með erfiðan og óþolandi kjósanda. Ég er í raun ósammála honum en langar í at- kvæðið hans. Ég nenni ekki að fara í langt og leiðinlegt rifrildi en langar líka pínu að segja hvað mér finnst. Ég er á þeim slóðum með Öldu Karen sem er búin að fylla Hörpuna og nú Laugardagshöllina og talar við fólk um hvernig því líður og hvað það eigi að gera til að líða betur. Sem er gott. Sjálfum finnst mér reyndar óþolandi þegar fólk er að segja mér hvað ég á að gera og reyna að laga eitthvað í mínu lífi (sem mér finnst sjaldnast bilað) og svo er ég svo mikill efasemdamaður. Sem ég hef reyndar alltaf litið á sem kost í mínu fari. Ég myndi halda að svona fyrirlestur væri frekar stutt- ur. „Borðaðu hollan mat, reglulega. Hreyfðu þig, ekki reykja og reyndu að drekka ekki alltof mikið. Ef það er eitthvað að þá skaltu panta tíma hjá heimilislækni.“ Ég geri mér grein fyrir því að ég er ekki að fara að rukka 12.900 fyrir þetta en ykkur er velkomið að leggja inn á mig ef þetta hjálpaði. Ég er mögulega ekki alveg að tengja við að kyssa pen- inga og tala við sjálfan sig í speglinum. Það finnst mér í besta falli undarlegt. Og ég skil áhyggjur lækna og sál- fræðinga af því að það sé allt í einu hægt að redda ein- hverju flóknu og erfiðu á einfaldan hátt með innblásnum fyrirlestri. Það hlýtur að vera soltið pirrandi að borga af námslánunum ef þetta er svona einfalt. Við treystum (flest) vísindum og það er eðlilegt. Kenn- ingar hafa verið settar fram og sannaðar eða afsannaðar í mörg hundruð ár. Þar er ákveðinn agi sem við þurfum í líf okkar, rökhugsun og reglur. Ég myndi til dæmis alltaf velja lækni frekar en heilara og frekar fara til sálfræðings en í svett. Ég er líka af gamla skólanum og held að spegl- un geri meira gagn fyrir hnéð á mér en endalaus köld böð. En sem betur fer erum við ekki öll eins og stundum get- ur það hjálpað okkur að hlusta á annað fólk. Prófa eitthvað nýtt. Stundum er það líka þannig að það sem gefur okkur von gefur okkur líka betri líðan. Og þar sem ég er á þeirri skoðun að það sé miklu betra að vera léttur get ég alveg keypt að það hjálpi að vera bjartsýnn í viðbót við lyfin. En við verðum samt líka að muna að ef eitthvað hljómar of vel til að vera satt, þá er sennilega einhver ástæða fyrir því. Við erum nefnilega pínu veik fyrir skyndilausnum og allskonar ketókúrum, fyrir sál og líkama. Við vilj- um helst fá einhverja pillu sem reddar þessu eða ein- hvern sem segir okkur hvernig við getum orðið betri, helst í stuttu máli. En það er alveg sama hver það er: Guð, Jordan Peterson eða Alda Karen. Við erum ekkert endilega sammála um boðskapinn en stundum mætt- um við kannski róa okkur aðeins í viðbrögðunum. Hlusta eft- ir því sem gæti gagnast okkur í stað þess að brjálast yfir því sem við erum ósammála. Þegar allt kemur til alls er þetta undir okkur sjálfum komið. Og það er ekkert víst að þetta sé einfalt. Ekkert víst að þetta sé einfalt ’Ég myndi halda að svonafyrirlestur væri frekar stutt-ur. „Borðaðu hollan mat, reglu-lega. Hreyfðu þig, ekki reykja og reyndu að drekka ekki alltof mik- ið. Ef það er eitthvað að þá skaltu panta tíma hjá heimilislækni.“ Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Arnór Þór Gunnarsson á HM í Þýskalandi. Aron Einar Gunnarsson á HM í Rússlandi. þá báða spila á HM og EM. Hvorn í sínu sportinu. Spurð hvort hún hafi hugmynd um hversu marga kappleiki hún hafi séð um dag- ana hlær hún við: „Nei, ég hef ekki minnstu hugmynd um það. En þeir eru ófáir.“

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.