Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Blaðsíða 6
ERLENT
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2019
Hin japanska Marie Kondo,höfundur metsölubókar-innar The Life-Changing
Magic of Tidying Up er nú með eigin
þáttaröð á Netflix, sem heitir Tidying
Up with Marie Kondo og var frum-
sýnd 1. janúar. Bókin kom fyrst út ár-
ið 2011 og hefur selst í rúmlega 8,5
milljónum eintaka á rúmlega 40
tungumálum. Hún kom út í Banda-
ríkjunum 2014 og fór á toppinn á met-
sölulista New York Times. Hún kom
síðan út á Íslandi árið 2016 undir heit-
inu Taktu til í lífi þínu! Þættirnir virð-
ast hafa slegið í gegn (miðað við um-
tal en Netflix gefur ekki út áhorfs-
tölur), alla vega fór bókin aftur inn á
topp tíu lista hjá New York Times í
byrjun árs.
Ennfremur var bókin í vikunni í
öðru sæti á metsölulista Amazon, að-
eins Michelle Obama var ofar. Annað
sem er til marks um vinsældirnar er
að hinn 31. desember sl. var Kondo
með 710 þúsund fylgjendur á Insta-
gram en núna eru þeir 1,6 milljónir.
Tekið til í ákveðinni röð
Aðferð hennar, sem kallast KonMari,
byggist á því að taka til í ákveðinni
röð, byrjað er á fötum, því næst bók-
um og eftir það er allt húsið tekið í
gegn, einn flokkur í einu og endað er
á hlutum sem hafa tilfinningalegt
gildi. Aðeins á að geyma það sem vek-
ur gleði, aðrir hlutir eru kvaddir og
þeim þakkað fyrir þjónustuna.
Þættirnir virðast hafa haft áhrif í
Bandaríkjunum, búðir sem selja not-
aðan fatnað og bækur hafa fengið
óvenjulega mikið magn til sín í byrjun
árs. Beacon’s Closet, keðja fataversl-
ana með notaðan fatnað í New York,
hefur fengið óvenjumarga til sín á
þessu ári. „Þetta hafa verið virkilega
stórir pokar. IKEA-pokar, ferðatösk-
ur og ruslapokar. Það er erfitt að átta
sig á magninu en þetta er heill hell-
ingur, ég myndi segja þúsundir klæða
á dag,“ sagði verslunarstjórinn Leah
Giampietro við CNN. Janúar er yfir-
leitt frekar rólegur mánuður hjá
þeim, sagði Giampietro út af kuld-
anum og fólk nennir ekki að flækjast
þetta þá. Janúar í ár er undantekn-
ing. „Fólk virðist ákveðið í að hreinsa
til á heimilinu,“ sagði hún.
Bókabúðin Ravenswood Used
Books í Chicago fékk jafn margar
bækur í gjöf í annarri viku ársins eins
og venjulega á einum mánuði. „Við
erum búin að vera á þessum sama
stað í fjögur ár og fólk hefur gengið
hér fram og til baka án þess að taka
eftir okkur. Margir virðast vera farn-
ir að taka eftir okkur núna,“ sagði
eigandi verslunarinnar, Jim Mall í
samtali við CNN.
Áhrifa gætir á Íslandi
Meðlimum hefur fjölgað mjög í Face-
book-hópnum KonMari á Íslandi. Þar
skrifaði einn meðlimur sem starfar í
IKEA að sala á Skubb og fleiri skipu-
lagsboxum hafi aukist mjög undan-
farið en þessi box eru notuð til að
raða fötum í skúffur með KonMari-
aðferðinni sem útskýrt er hér til hlið-
ar. Þó að bókin hafi haft áhrif virðast
þættirnir ætla að hafa enn meiri áhrif
enda ná þeir til fleiri og heilu fjöl-
skyldurnar fara að flokka og henda
saman. Annar meðlimur í fyrr-
nefndum Facebook-hópi sagði frá því
að dætur hennar byrjuðu að flokka
dótið sitt og setja í poka það sem má
fara eftir að hafa horft á þættina.
Ólíklegt er að Kondo hafi sjálfa órað
fyrir þessu á uppvaxtarárunum í Jap-
an. Hún hafði alla tíð gaman af því að
taka til og fór síðan að vinna við skipu-
lagningu hjá öðrum en ákvað að gefa
út bók til að geta hjálpað fleirum þegar
biðlistinn var orðinn langur hjá henni.
Útkoman er fyrsta ofurstjarnan í
heimi skipulagningar og tiltektar.
Ekki er vitað hvað Netflix borgaði
henni fyrir þættina en það hefur vænt-
anlega verið há upphæð ef miðað er við
hvað greitt er fyrir bækur hennar.
Gleði í vinnunni
Þriðja bók hennar mun bera nafnið
Joy at Work: The Carreer-Changing
Magic of Tidying Up, sem hún skrifar
með Scott Sonensheim, prófessor í
stjórnum við Rice University School
of Business. New York Times hefur
heimildir fyrir því að útgáfurétturinn
hafi selst fyrir sjö stafa tölu, það er
sumsé verið að tala um bandaríkja-
dali og milljónir. Bókin er væntanleg
vorið 2020.
Variety spurði Kondo hvað hún
héldi að væri stærsta lexían sem fólk
gæti lært af þáttunum. „Það sem ég
óska mér helst er að áhorfendur byrji
að taka til sjálfir og haldi áfram í
þessu ferli. Ég vona að þeir verði
þakklátari en áður fyrir það sem þeir
eiga og líf þeirra verði gleðiríkari en
nokkru sinni fyrr!“
Gleðiríkara
líf eftir tiltekt
Tiltektaraðferðin KonMari breiðist út eins og
eldur í sinu eftir að sjónvarpsþáttur Marie
Kondo fór í loftið á Netflix í ársbyrjun.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
AFP
Marie Kondo klæðist hér
hvítu eins og hún gerir oftar
en ekki í þáttunum þar sem
hún kemur eins og frelsandi
engill inn á heimili fólks.
KENÍA
NAÍRÓBÍ Bandaríkjamaðurinn Jason
Spindler var einn þeirra rúmlega 20 sem
létu lífi ð í hryðjuverkaárás á hóteli í höf-
uðborg landsins á þriðjudag. Hann slapp
við að lenda í árásinni á tvíburaturnana
í New York árið 2001 þar sem hann var
seinn í vinnuna þann daginn. Hann vann
þá í fjármálaheiminum en þegar hann lést
rak hann eigið fyrirtæki sem einbeitti sér að vaxandi mörkuðum.
BANDARÍKIN
WASHINGTON, D.C. Rúmlega tvítugur maður
frá Georgíu-ríki hefur verið handtekinn fyrir að hafa
skipulagt árás á Hvíta húsið og Frelsisstyttuna. Hasher
Jallal Taheb var handtekinn eftir að hafa skipt bíl sínum
fyrir riffl a og sprengiefni. Taheb sagði FBI-manni sem vann
á laun frá áætlun sinni á síðasta ári en málið er nú fyrir
rétti. Hann ætlaði sér að ráðast á Hvíta húsið 17. janúar.
BÚRKÍNA FASÓ
Kanadískur námuverkamaður, sem var rænt í
vikunni, hefur fundist látinn. Kirk Woodman,
sem var jarðfræðingur, var rænt af vopnuð-
um mönnum nærri landamærunum við Níger.
Utanríkisráðherra Kanada, Chrystia Freeland,
hefur fordæmt verknaðinn. Öðrum Kanada-
búa hefur verið rænt í landinu en ekkert
hefur spurst til hjálparstarfsmannanna Edith
Blais og kærasta hennar, Ítalans Luca Tacchetto, frá því í desember.
BRETLAND
LONDON Brexit-samningi
Theresu May var hafnað með
miklum meirihluta á þriðjudag.
Ríkisstjórnin stóð hinsvegar af sér
vantrauststillöguna sem Jeremy
Corbyn lagði fram í framhaldinu.
Óvissuástand ríkir í landinu en fjármálaráðherrann Philip Hammond
reynir nú að sannfæra bresk stórfyrirtæki um að útganga án samn-
ings sé ólíkleg. Frakkar búa sig undir Brexit án samnings.
Eitt af því sem Marie Kondo kennir í þáttunum er að brjóta saman
föt. Flestir halda að það sé eitthvað sem þeir kunni ágætlega en
þessi aðferð hennar gerir það miklu aðgengilegra að finna hluti í
skúffum. Þetta er sérstaklega heppilegt fyrir smærri hluti eins og
boli og smábarnaföt en virkar fyrir flestan fatnað. Lykilatriðið í
þessu er að það er ekki verið að stafla en með þessari hefðbundu
aðferð er auðvelt að missa yfirsýn yfir hvað er að finna í viðkom-
andi skúffu. Það sem Marie Kondo gerir er að brjóta fötin saman
þannig að þau standa upp á annan endann. Oftast hentar vel að
brjóta í þrennt og síðan í tvennt en hún útskýrir þetta vel í þátt-
unum. Fötunum er síðan raðað hlið við hlið en ekki staflað. Til
þess að gera verkið auðveldara setur hún oftar en ekki opin box of-
an í skúffurnar til að hólfa þær niður.
Hér sést vel hvaða árangri er hægt að ná með því að beita aðferð Marie Kondo.
Kennir fólki að
brjóta saman föt