Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Blaðsíða 31
viti hún að breskt stjórnmálalíf myndi seint bíða þess bætur yrðu fyrirheitin svikin. En tillögur hennar og sífelld eftirgjöf eru því miður þegar handan við þau mörk að við niðurstöðuna hafi verið staðið. Fyrirslátturinn Nú er því haldið fram til að rökstyðja kröfu um nýja kosningu um aðild að ESB að þeir sem sögðu já við spurningu um útgöngu hefðu ekki vitað hvers konar útgöngusamning þeir myndu fá. Það er auðvitað rétt. En sá samningur átti ekki að snúast um annað en til- högun og þess vegna var hans hvergi getið í spurn- ingunni sem lögð var fyrir þjóðina. Og þegar fjölmiðlar senda sína menn út af örkinni nú til að spyrja almenning er svarið sem þeir fá lang- oftast það að kosið hafi verið um það eitt sem fyrir var lagt. En svo er auðvitað hitt að ríkisfjölmiðlarnir, sam- tök atvinnulífsins, breski seðlabankinn og forstjórar stærstu fyrirtækja höfðu allir, ásamt flestum fag- mönnum háskólanna, málað það með sterkum litum hvílík fjárhagsleg eymd myndi bíða Breta frá fyrsta degi segði meirihlutinn já við útgöngu. Sá hræðslu- áróður var jafnvel verri en hin ömurlega tilraun til að hræða Íslendinga vegna Icesave. Allur sá magnaði og óbilgjarni áróður lá því svo sannarlega fyrir. Og svo vondur sem útgöngusamningur May var er hann eins og brúðarterta hjá fyrrnefndum ofsaspám í aðdrag- anda kosninganna. En samt sagði þjóðin já. Svíkja sína huldumey, lýðræðið En fyrst og síðast er að verða æ ljósara að óþægilega margir stjórnmálamenn samtímans eru ekki lengur lýðræðissinnar í hjarta sínu og þar með ekki heldur þegar kemur að því að breyta orðum sínum í efndir. Þeir bjóða sig vissulega fram fyrir ólíka flokka eins og áður. En eins og við sjáum svo oft í nærumhverf- inu þá eru þeir margir eins og í einum flokki núorðið, flokki sem aldrei býður fram. Við höfum séð það margoft í ógeðfelldu fitli þessa eineggja stjórnmálaliðs við stjórnarskrá landsins. Þær fréttir sem teknar eru að berast nú um væntan- lega niðurstöðu þess samkrulls benda til að forðum stórflokkar ráðgeri að leggjast flatir fyrir Samfylk- ingu og Viðreisn og eru sársaukafullt merki þessa. Þjóðin sendi þau skilaboð sem eftir var tekið að hún hefði ekki nokkurn áhuga á misheppnuðu aldar- afmælisbröltinu, þegar hún lét ekki sjá sig á Þingvöll- um. Enda hví ættu Íslendingar að vilja fagna fullveldi með þeim sem ekkert vilja sjálfir hafa með það að gera? Myndin af einflokknum hímandi í einsemd á rán- dýrum pöllunum við Almannagjá gat ekki aumari verið. Hann skundaði á Þingvöll en strengdi engin heit sem eiga þar heima. Og sjálfsagt er ekki tilhlökk- unarefni til annars afmælishalds séu formerkin svona. En hitt er rétt, það stendur hvergi að stjórnmála- menn eigi að vinna af heilindum enda er svo komið og er enn eitt furðuverkið að þingmenn eru búnir að framselja hluta af tilveru sinni til utanaðkomandi nefndar, og eru þá væntanlega bundnir af samvisku hennar en ekki sinni eins og stjórnarskráin, sem margir þeirra virðast fyrirlíta, segir fyrir um. Þá vit- leysu ræddu þeir aldrei við kjósendur sína eða sinn flokk, nema þá einflokkinn, sem þeir þora ekki fyrir sitt litla líf að skilja sig frá. Fyrst svona er komið, er þá ekki miklu betri kostur að fá að kjósa þessar siðanefndir og hina sem Moskvu-Jón stýrir bara beint og sleppa hinum? Því fyrr því betra. Láta svo siðanefndirnar halda útifund á Þingvöllum og sjá hverjir mæta. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ’ Kjörorðin voru: „Never, never, never quit.“ Þeir sem horfa gagnrýnum augum á tilburði May forsætisráðherra segja að hennar háttur sé að gefast upp fyrir búrókröt- um Brussel hvenær sem hún fái færi á. 20.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.